Morgunblaðið - 15.03.2003, Page 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. MARS 2003 9
Eddufelli 2, s. 557 1730
Bæjarlind 6, s. 554 7030.
Opið mán–fös. frá kl. 10-18
Laugardaga frá kl. 10-16
Glæsilegur
vor-
fatnaður
frá Pas
Str. 36-42
& 44-56
Glæsilegar kjóldragtir
Engjateigi 5, sími 581 2141.
Opið virka daga frá kl. 10.00—18.00, laugardaga frá kl. 10.00—16.00.
Neðst við Dunhaga, sími 562 2230 Opið í dag kl. 10-14
Franskar
stúdentadragtir
með Lísu B. Hjaltested
Þátttakendum er kennd notkun ilmkjarnaolía fyrir börn og
fullorðna á fyrirbyggjandi hátt og í baráttunni við ýmsa
almenna kvilla. Ýmis búnaður fylgir auk kennslumöppu.
Kennt 21.– 22. mars (föstud. kl. 19:30-22 og laugard. kl. 14:30-17)
Notkun ilmkjarnaolía - stig 1
Auðbrekku 14, Kópavogi,
símar 544 5560 og 820 5562,
www.yogastudio.is
Nýtt kortatímabil
Flott sumarlína
Heimakjólar
ný sending
Opið til kl. 16 í dag
Laugavegi 4, sími 551 4473
www.lifstykkjabudin.is
Póstsendum
Vor 2003
Augustsilk
Augustsilk
Opið í dag frá kl. 13 -17 í Síðumúla 35 – 3. hæð
Útsala – Útsala
Silkipeysur frá kr. 1.900
Mikið úrval í „small“
Silkináttfatnaður frá kr. 1.900
Flottir dúkar og pashminur
Engin kort
Maura-heilsársfrakkar með lausu fóðri
Bómullarfrakkar
Laugavegi 63, sími 551 4422
15-50% afsláttur
Nýtt kortatímabil
EIRÍKUR Þorláksson, forstöðu-
maður Listasafns Reykjavíkur,
segir að samstarfs safnsins við Ís-
landssíma hafi verið einkar farsælt
fyrir báða aðila. Nýtt samkomulag
hefur nú verið gert og tekur Eirík-
ur skýrt fram að Íslandssími
standi við allar skuldbindingar sín-
ar gagnvart safninu og vel það.
Samstarfssamningur frá 30. des-
ember 2000 átti að renna út í lok
þessa árs en Eiríkur segir að
vegna þess að Íslandssími hefur
nú runnið inn í nýtt fjarskiptafélag
með Halló og Tali, hafi verið
ákveðið að gera nýtt samkomulag.
Aðilar hafi verið sammála um að í
stað fullrar greiðslu Íslandssíma
til listasafnsins, skv. upphaflegum
samningi, væri báðum í hag að
beint fjárframlag yrði hluti af því
sem upphaflega var áætlað. Á hinn
bóginn héldi Íslandssími, undir
merkjum hins nýja sameinaða fyr-
irtækis, áfram að greiða fjar-
skiptakostnað safnsins til ársloka
2005. Ávinningur safnsins kæmi
því fram á lengri tíma og væri síst
minni. Í raun mætti segja að sam-
starfssamningurinn hafi verið
framlengdur um tvö ár. Eiríkur
bendir á að á þeim tíma sem samn-
ingurinn var undirritaður hafi
hann verið sá stærsti sem menn-
ingarstofnun hérlendis hafi gert
við einkafyrirtæki. Sú staðreynd
að safnið og fyrirtækið ætli að
vinna áfram saman á ýmsum svið-
um sé glöggt merki um ánægju
beggja með samstarfið.
Samkvæmt hinu nýja samkomu-
lagi sem var undirritað í lok febr-
úar og síðan samþykkt í borgar-
ráði greiðir Íslandssími safninu
samtals sjö milljónir króna, þar af
fjórar vegna fjarskiptakostnaðar
til ársloka 2005 og þrjár milljónir í
lokagreiðslu. Einnig kostar fyrir-
tækið GSM-leiðsögn um safnið. Ís-
landssími afsalaði sér réttindum til
að vera sýnilegur styrktaraðili
safnsins og getur listasafnið orðið
sér úti um nýja styrktaraðila á
þessu ári.
Listasafn Reykjavíkur og
Íslandssími áfram í samstarfi
Sjö milljóna króna greiðslur á þremur árum
STEFÁN Snævarr hefur verið
skipaður prófessor í heimspeki við
háskólann í Lillehammer í Noregi.
Stefán hefur
kennt við skólann
undanfarin fjög-
ur og hálft ár og
gegndi áður
stöðu dósents.
Sótt er sérstak-
lega um prófess-
orsstöðu við há-
skólann í Lille-
hammer og verð-
ur umsækjandi
að leggja fram ígildi tveggja dokt-
orsritgerða.
Stefán lagði fram doktorsritgerð
sína Minerva and the Muses. The
Place of Reason in Aesthetic
Judgement, auk fjölda smágreina.
Þá lagði hann og fram bókarhandrit
á norsku, Fra Logos til Mytos.
Metaforer, mening og erkjennelse.
Í fyrri bók Stefáns er fjallað um
spurninguna hvort listdómar séu
bara smekksatriði en í hinni síðari
hvort myndhverfingar hafi sérstaka
merkingu og hvor þær geti veitt
fólki þekkingu.
Stefán Snæv-
arr skipaður
prófessor
Stefán Snævarr