Morgunblaðið - 15.03.2003, Page 23
sagt mótað marga krakkanna sem
þar áttu heima. „Ég held kannski að
þeir hafi orðið duglegri við að rífa sig
upp og koma sér áfram, þeir urðu
svolítið metnaðarfullir,“ segir Sigríð-
ur en María segist finna fyrir því á
annan hátt hjá sjálfri sér. „Ég finn
svolítið fyrir því að ég vil láta allt líta
vel út heima hjá mér,“ segir hún.
Þær eru sammála um að líklega
hafi það farið misjafnlega í börnin að
búa við slíkar aðstæður. „Ég man t.d.
eftir því að ég fór ekki alltaf alla leið
heim í strætó heldur fór úr á stoppi-
stöðinni fyrir neðan og labbaði þaðan.
Sérstaklega ef ég var ein í vagn-
inum,“ útskýrir María. „Mér var al-
veg sama,“ segir Sigríður. „Ég fór
bara úr heima hjá mér.“
Eins og að flytja í höll
Það voru því eðlilega talsverð við-
brigði fyrir vinkonurnar þrjár úr
Laugarnescampinum þegar nýtt líf á
öðrum stað tók við en þá var María 17
ára, Þorgerður 14 og Sigríður 15 ára.
„Fólk byrjaði að flytja í burtu um
1958 og margir fluttu í Smáíbúða-
hverfið og þar í kring,“ segir Þor-
gerður. Meðal þeirra voru fjölskyldur
hennar og Sigríðar sem báðar eign-
uðust nýtt húsnæði við Tunguveginn,
önnur í einbýlishúsi og hin í raðhúsi.
„Þú getur rétt ímyndað þér – glænýtt
hús!“ segja þær með áherslu. „Þetta
var eins og að flytja í höll og þarna
var bæði bað og þvottahús. Maður
fékk hreinlega víðáttubrjálæði.“
Það eru greinilega sterk tengsl
sem hafa myndast á milli kvennanna
þriggja í gegn um sameiginlega æsku
þeirra í braggahverfinu. Þrátt fyrir
að þær búi hver í sínu sveitarfélaginu
og ein þeirra í Vestmannaeyjum, láta
þær það ekki hindra sig í að hittast
reglulega enn þann dag í dag. Þeim
er líka mikið í mun að ná saman
gömlu félögunum sínum úr Laug-
arnesinu. „Það er ofsalega gaman
þegar maður hittir þessa krakka á
förnum vegi. Þér finnst þú eiginlega
vera að hitta uppeldissystkini þitt,
eða einhvern sem er skyldur manni.
En það er svo margir af þessum
krökkum sem við höfum aldrei séð
frá því að við vorum unglingar, eða
við vitum ekki af.“
Þær segjast vonast til að það komi
a.m.k. 50 manns þegar hittast á í vor
og þegar hafa hátt í 30 braggabörn
haft samband við þær. „Það er þó
ekki nema einn þriðji eða einn fjórði
hlutinn af þeim krökkum sem voru
þarna. Svo hafa krakkar úr Múla-
kamp og Kamp Knox haft samband
við okkur og vilja fá að vera með en
það gengur ekki því þetta er bara fyr-
ir krakkana sem bjuggu í Laugarnes-
inu á þessum árum, 1948–1958,“
segja þær harðákveðnar í að sam-
koman eigi ekki að vera einhvers kon-
ar uppreisnarhátíð fyrir alla þá sem
einhvern tímann hafa búið í bragga.
Af og til eiga þær stöllur leið
framhjá svæðinu við Sæbrautina þar
sem kampurinn þeirra stóð og Eyja-
konan Sigríður segist oft gera sér
sérstaka ferð út á tangann þegar hún
er í bænum. Og þótt braggarnir séu
löngu horfnir segja þær gamla svæð-
ið niðri við sjóinn eiga sér ákveðinn
stað í huga þeirra.
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. MARS 2003 23
* Flugvallarskattur og tryggingagjald
(333 kr.) er ekki innifalinn. Börnin
verða að vera í fylgd með fullorðnum.
Sjá nánari upplýsingar á flugfelag.is.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
E
H
F.
/S
IA
.I
S
-F
LU
2
05
18
03
/2
00
3
flugfelag.is
Flugfarið kostar alltaf
aðeins 1500 kr.* aðra leiðina
fyrir börn yngri en 12 ára ef þú bókar á netinu.
Njóttu dagsins - taktu flugið með alla fjölskylduna.
„HORFUM til framtíðar – Mótum
hreppinn okkar saman“ eru kjörorð
íbúaþings sem haldið verður í Bessa-
staðahreppi í dag. Á þinginu fá íbúar
hreppsins tækifæri til að taka þátt í
stefnumótun um ýmis málefni í sveit-
arfélaginu.
Í frétt frá Bessastaðahrepp segir
að þátttakendum verði skipt upp í
vinnuhópa, sem fjalla munu um
skólamál, fjölskyldu- og félagsmál,
æskulýðsmál, málefni aldraðra, um-
hverfismál og útivist og loks menn-
ingu og listir.
Þingið hefst með morgunverði kl.
9 í Álftanesskóla en barnagæsla
verður í boði í leikskólanum Krakka-
koti meðan á þinghaldi stendur. Op-
inn kynningarfundur um niðurstöð-
ur íbúaþingsins verður síðan haldinn
þriðjudaginn 25. mars nk.
Íbúaþing í
Álftanesskóla
Bessastaðahreppur
REYKJAVÍKURHÖFN tók mestu fram-
förum sem viðkomuhöfn fyrir skemmti-
ferðaskip árið 2002 að mati tímaritsins
Dream World Cruise Destinations. Tímarit-
ið veitti höfninni viðurkenningu vegna þessa
á dögunum en hún þykir hafa tekið miklum
framförum í markaðssetningu, upplýsinga-
gjöf og vel útfærðri móttöku skemmtiferða-
skipa þegar þau eru í höfn.
Í frétt frá Reykjavíkurhöfn segir að val á
höfnum til viðurkenninga nái til allra hafna í
heiminum þar sem skemmtiferðaskip hafi
viðkomu. „Þetta er í fimmta skiptið sem
Dream World Cruise Destinations efnir til
samkeppni um hvaða hafnir standi sig best í
því að þjóna skemmtiferðaskipum og er við-
urkenningum skipt í nokkra flokka svo sem
aðstöðu fyrir farþega, bestu hafnarmann-
virki og hafnir sem sýnt hafa mestar fram-
farir.“
Þá segir í fréttinni að von sé á 58 skemmti-
ferðaskipum til Reykjavíkur í sumar. „Er
það 8 skipum fleira en í fyrra en þá komu 50
skip með þrjátíu þúsund farþega.“
Tók mestu framförum
sem viðkomuhöfn fyrir
skemmtiferðaskip
Ágúst Ágústsson, markaðsstjóri Reykjavíkurhafnar, tekur
við viðurkenningunni úr hendi ritstjóra Dream World
Cruise Destinations, Chris Ashcroft. Viðurkenningin var af-
hent á ráðstefnu í Miami, Florída, í byrjun mánaðarins.
Reykjavíkurhöfn
♦ ♦ ♦