Morgunblaðið - 15.03.2003, Side 26

Morgunblaðið - 15.03.2003, Side 26
AKUREYRI 26 LAUGARDAGUR 15. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ Tilboð óskast í sem nýtt gistihús fyrir 16 gesti ásamt íbúðarhúsi sem þarfnast endurbóta. Í gistihúsinu er fullkomið eldhús og mat- salur fyrir 30-40 manns. Íbúðarhúsið er hæð og kjallari, 8 her- bergja, um 233 fermetrar að stærð. Um 1 hektari lands mun fylgja. Til afhendingar strax. Nánari upplýsingar gefur Fasteigna- og skipasala Norðurlands á Akureyri Símar 461 1500 og 896 9437. Engimýri í Öxnadal Blaðbera vantar • Skerjafjörður Upplýsingar fást í síma 569 1122 Hjá Morgunblaðinu starfa um 600 blaðberar á höfuðborgarsvæðinu í Oddeyrargötu og Brekkugötu.ⓦ Blaðburður verður að hefjast um leið og blaðið kemur í bæinn. Góður göngutúr sem borgar sig. Morgunblaðið, Kau vangsstræti 1, Akureyri, sími 461 1600. ÞRÍR Akureyringar stofnuðu fyr- ir nokkru atvinnuleikhóp sem nefnist Hálfur Hrekkur í dós, en Hrekkur er nafn á hundi. Það eru Hildigunnur Þráinsdóttir leik- kona, Jónas Viðar Sveinsson og Þórarinn Blöndal myndlistarmenn sem að hópnum standa og fyrsta frumsýning hópsins verður í byrj- un apríl, þegar þau setja Búkollu á svið. Öll starfa þau hjá Leikfélagi Akureyrar en vildu einnig nýta hugmyndir sínar til starfa á eigin vettvangi. Búkolla verður ævintýraleg sýning, sem Hildigunnur samdi upp eftir samnefndu og sígildu ævintýri. Hún leikstýrir jafnframt verkinu, en Þórarinn gerir leik- mynd sem og sjálfa Búkollu, sem verður stór og mikil skepna. Leikritið verður sýnt í Samkomu- húsinu og standa æfingar yfir. Leikhópurinn leitaði til Norður- mjólkur sem styrkti sýninguna. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Þau Hallmundur Kristinsson, Þórarinn Blöndal, Hildigunnur Þráinsdóttir og Tinna Ingvarsdóttir voru að smíða leikmyndina fyrir Búkollu sem Hálf- ur Hrekkur í dós frumsýnir á næstunni. Leikhópurinn Hálfur Hrekkur í dós Æfa Búkollu Akureyri, um Evrópusambandið, stjórnfestu og staðbundið lýðræði. „Þetta er fyrsta ráðstefnan sem deildin efnir til,“ sagði Mikael Karls- son deildarforseti laga- og félagsvís- indadeildar HA. Hann sagði viðfangs- efni ráðstefnunnar tengjast bæði lögfræði og félagsvísindum af því tagi sem fyrirhugað er að kenna við deild- ina. Þannig verður til að mynda kennd samfélags- og hagþróunar- fræði við deildina, sem tengist byggðaþróun og sveitarstjórnarmál- um m.a. í samhengi við Evrópumál. „Þetta er líka mikilvægt málefni, sem margir eru að velta fyrir sér þessa dagana og við viljum leggja okkar af mörkum til að halda þessari umræðu vakandi,“ sagði Mikael. Einnig nefndi hann að brýnt væri að halda umræðu um lýðræði á lofti og einkum og sér í lagi hvað það í raun þýddi en slíkt væri stundum óljóst, sérstaklega þegar stjórnar- og skipu- lagsbreytingar væru í gangi. „Spurn- ing er hvernig gæta á lýðræðis í þessu NÝSTOFNUÐ laga- og félagsvís- indadeild við Háskólann á Akureyri efnir til ráðstefnu um Evrópusam- runann og staðbundið lýðræði næst- komandi þriðjudag, 18. mars. Fram- sögumenn á ráðstefnunni eru Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra sem fjallar um Evrópusamvinnu og lýð- ræði, Sigurður Líndal prófessor ræð- ir um hina svokölluðu nálægðarreglu, Kristrún Heimisdóttir, Samtökum iðnaðarins, flytur erindi sem nefnist „Að beita fullveldi sínu“ og þá fjallar Ágúst Þór Árnason, Háskólanum á breytta samhengi og hvort unnt er að auka þátttöku fólksins,“ sagði Mikael, en fyrirhugað er að í hinni nýstofnuðu deild verði þessi málefni tekin upp sem kennslu- og rannsóknarefni. Meðal annars verða í boði námskeið í Evrópurétti þar sem fjallað verður um Ísland í evrópsku samhengi. „Við erum nátengd Evrópu og breytingar þar skipta okkur því máli,“ sagði Mikael. Laga- og félagsvísindadeild Háskólans á Akureyri Ráðstefna um Evrópusamruna og staðbundið lýðræði Hlynur Hallsson myndlistarmaður er gestur á laugardagsfundi hjá Vinstrihreyfingunni – grænu fram- boði í dag, laugardag. Hlynur skipar þriðja sæti á lista VG í Norðaust- urkjördæmi og hann mun fjalla um utanríkismál, möguleika í atvinnu- málum og menningarmálum og segja frá kosningabaráttunni. Fund- urinn hefst kl. 11 og er í kosninga- miðstöðinni Hafnarstræti 94. Í DAG ir skömmu sendi frá sér úrskurð þess efnis að Akureyrarbær hefði með ráðningunni brotið lög um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla. Þótti Soffía að mati nefndarinnar standa karlinum framar, m.a. hvað varðar menntun og reynslu. Bæjarlögmaður Akureyrar, Inga Þöll Þórgnýsdóttir, hefur í greinargerð um málið margt við úrskurð kærunefndar að athuga. Soffía sagði að hún hefði hitt bæj- arlögmann og bæjarstjóra, Kristján Þór Júlíusson, að máli en engin nið- urstaða orðið á þeim fundi. Bærinn hefur ekki boðið henni bætur. „Í mínum huga snýst þetta mál ekki um krónur og aura“ sagði Soffía en hún kvaðst ekki hafa skaðast á því fjárhagslega að hafa ekki fengið starf- ið. „Málið snerist um framtíð mína og fjölskyldunnar sem hefur hug á að flytjast búferlum til Akureyrar. Og eins snerist það um hagsmunabaráttu kvenna, því meir sem maður starfar í stjórnmálum og ég hef líka starfað með félagsmálastjórum innan Evr- ópusambandsins, því betur kemst maður að því hversu stutt við konur erum komnar hvað varðar stöður og völd í þjóðfélaginu,“ sagði Soffía. Hún sagði nauðsynlegt að fara í dómsmál við Akureyrarbæ til að fá skaða sinn metinn, „en ég hef bara engan áhuga fyrir því og mun ekki fara í mál,“ sagði Soffía. Hún kvaðst ánægð með niðurstöðu kærunefndar- innar og sagði að hún hefði að mati nefndarinnar verið hæfari til að gegna stöðunni en karlinn sem ráðinn var. Hún myndi því ekki krefja bæinn um bætur þó úrskurður kærunefndar hefði fallið henni í vil. Soffía sagðist ekki vita hvort hún hefði beðið skaða af málinu, það ætti eftir að koma í ljós. Hún hefði ekki sótt um aðrar stöður síðan það kom upp. SOFFÍA Gísladóttir hefur ákveðið að höfða ekki mál gegn Akureyrarbæ í kjölfar ráðningar í stöðu deildarstjóra íþrótta- og tómstundadeildar Akur- eyrar í fyrra. Hún mun heldur ekki krefjast bóta. Soffía sótti um stöðuna, en karl- maður var ráðinn. Soffía kærði til kærunefndar jafnréttismála sem fyr- Soffía Gísladóttir höfðar ekki mál gegn bænum Moggabúðin Íþróttataska, aðeins 2.400 kr.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.