Morgunblaðið - 15.03.2003, Síða 29
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. MARS 2003 29
sinni og afa í bíltúr seinna um dag-
inn og þá var ekki talað um annað
en íþróttaskólann.“ Flest börnin
sem voru í íþróttum fyrir áramót
eru aftur núna og álítur Sigurður
að ef þau mæti ekki í tímann sé
ástæðan fremur sú að foreldrarnir
eigi erfitt með að vakna því ekki
skorti áhugann hjá börnunum.
Sjálfum finnst honum mjög gaman
að fylgjast með hvað foreldrar eru
virkir með börnum sínum sem er
BÖRN á aldrinum 2–5 ára fá
íþróttaþjálfun einu sinni í viku á
sunnudagsmorgnum í Íþrótta-
miðstöðinni í Borgarnesi. Sigurður
Örn Sigurðsson íþróttakennari sér
um þjálfunina í umboði foreldra-
félags leikskólans Klettaborgar.
Íþróttir af þessu tagi hafa áður
verið í boði en þetta er í fyrsta sinn
sem tveggja ára börn eru með. Alls
eru 43 börn skráð á námskeiðið
sem telur 5 skipti. Foreldrar eru
skyldugir til að vera með börnum
sínum og segist Sigurður fyrst og
fremst líta á þessa tíma sem sam-
verustund barns og foreldris. „Í
nútímaþjóðfélagi er barnið
kannski á leikskóla 8 tíma alla
virka daga þannig að ekki veitir af
tímanum fyrir barn og foreldri að
leika sér saman. Einnig eru nokkr-
ir staðir þar sem barnið þarf bæði
hjálp til að leysa þrautirnar og
sumt getur verið hættulegt ef for-
eldrar eru ekki nálægt.“
Börnin standa sig frábærlega að
mati Sigurðar. „Sum eru kannski
svolítið feimin fyrst en síðan eru
flestir komnir í góðan gír eftir 2–3
skipti. Þau hlýða ótrúlega vel og
fylgjast vel með.“ Að sögn Sig-
urðar eru börnin gríðarlega
áhugasöm. „Ég veit t.d. um strák
sem var að koma í fyrsta skipti
núna síðast. Hann fór með ömmu
forsendan til að börnunum finnist
skemmtilegt. Ennfremur segir Sig-
urður að gaman sé að sjá hversu
hratt börnunum fer fram. Til dæm-
is er sá sem ekki þorir að ganga á
hárri jafnvægisslá í byrjun farinn
að hlaupa á henni í lok tímans. Sig-
urður vill nota tækifærið og hvetja
foreldra til að vera duglegri til að
gera eitthvað skemmtilegt með
börnum sínum sem tengist hreyf-
ingu og útiveru.
Börn og
foreldrar
leika sér
saman
Morgunblaðið/Guðrún Vala
Börn og foreldrar að leik í íþróttasalnum.
Sigurður Örn Sigurðsson með hóp af krökkum.
Borgarnes
UM þessar mundir er unnið hörðum
höndum að því að reisa lausa skóla-
stofu á lóð leikskólans Sólvalla í Nes-
kaupstað. En töluverð vandræði
hafa verið tengd biðlistum á Sólvöll-
um undanfarin misseri.
Í samtali við Höllu Höskuldsdótt-
ur leikskólastjóra kom fram að árið
1995 voru gerðar breytingar á leik-
skólanum og farið að bjóða börnum
frá eins árs aldri pláss á Sólvöllum.
En það var fyrst og fremst vegna
þess hve fá börn voru á leikskóla-
aldri í Neskaupstað á þeim tíma.
Fljótlega fór að hlaðast á listann, en
mest hefur þó bæst á hann undanfar-
in misseri. Nú er svo komið að rúm-
lega tuttugu börn eru á biðlista eftir
leikskólaplássi. Aðspurð sagði Halla
að fyrstu börnin yrðu tekin inn í
byrjun apríl. En alls komast tíu börn
inn til að byrja með. Halla bindur
vonir við að með bættu skipulagi og
færslu á milli deilda í vor og sumar
verði hægt að tæma biðlistann end-
anlega í haust þegar elstu börnin
fara í skóla.
Það er fyrirsjáanlegt að fljótlega
þarf að taka ávörðun um framtíðar-
lausn á húsnæðisvanda leikskólans. Í
samtali við Smára Geirsson, for-
mann bæjarráðs Fjarðabyggðar
kom fram að verið er að skoða mögu-
leika á framtíðarlausn á „…þessu
gleðilega, en jafnframt hvimleiða
vandamáli“.
Það er Einar Dalberg, verktaki á
Eskifirði, sem sér um að byggja
skólastofuna sem síðan verður tengd
við leikskólann með tengibyggingu.
Morgunblaðið/Kristín Ágústsdóttir
Laus skólastofa er risin í bakgarði Sólvalla í Neskaupstað.
Laus skólastofa byggð við leikskólann
Bráðabirgðalausn á
biðlistavandanum
Neskaupstaður
SAMGÖNGUMÁL voru hluti af um-
ræðunni á fundi samgönguráðherra í
Grundarfirði í vikunni og samgöngu-
mál voru líka þess valdandi að hann
kom of seint á fundinn. Tafðist hann í
þinginu við umræðu á samræmdri
samgönguáætlun sem varð til þess
að hann mætti ekki á boðuðum fund-
artíma. Grundfirðingar og aðrir
Snæfellingar létu örlitla bið eftir ráð-
herra þó ekki hafa áhrif á sig og
breyttu biðinni í óformlegan borg-
arafund þar sem ýmislegt var rætt.
Húsfyllir var í samkomuhúsinu í
Grundarfirði þrátt fyrir leiðindaveð-
ur, en þótt rok og rigning lemdu
veggina að utan ríkti jákvæð stemn-
ing innandyra. Sturla Böðvarsson
samgönguráðherra fjallaði í yfir-
gripsmikilli framsögu sinni um
rekstur samgönguráðuneytisins og
þá fjölmörgu og viðamiklu mála-
flokka sem falla undir stjórn ráðu-
neytisins og hafa verið í vinnslu eða
framkvæmd í hans ráðherratíð.
Í lok framsögunnar gaf Sturla
fundarmönnum kost á að koma með
fyrirspurnir. Þeir sem tóku til máls
byrjuðu flestir á að þakka ráðherra
fyrir erindið og þann mikla árangur
sem hann hefði náð í sinni ráðherra-
tíð. Sögðu nokkrir að greinilegt væri
að þarna færi maður sem léti verkin
tala. Fyrirspurnir snéru að ýmsum
málaflokkum eins og markaðssetn-
ingu ferðaþjónustu á landsbyggð-
inni, lánamálum til hennar, öryggis-
málum sjómanna, nýjum hafnar-
lögum, atvinnuuppbyggingu í kjör-
dæminu, póstdreifingu og ljósleið-
arasambandi.
Athygli fundarmanna vakti að
Norðvesturkjördæmið er stóriðju-
laust svæði, en fundarmenn töldu þó
að stóriðjuna þar væri að finna í nátt-
úrufari og landslagi og gæti það nýst
til frekari uppbyggingar ferðaþjón-
ustu svo og í þeim mörgu tækifærum
sem tengjast fullvinnslu á afla af hin-
um ríkulegu fiskimiðum svæðisins.
Sturla fund-
ar með Snæ-
fellingum
Hellnar