Morgunblaðið - 15.03.2003, Síða 48

Morgunblaðið - 15.03.2003, Síða 48
48 LAUGARDAGUR 15. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329  Netfang bref@mbl.is Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. NÚ fyrir nokkrum dögum síðan birt- ist í blöðum grein eftir Sigurð Jóns- son á Selfossi þar sem hann heldur fram gömlum frasa frá kjörnefndar- starfi í Suðurkjör- dæmi. Það virðist angra Sigurð að horfa upp á afleið- ingar af starfi hans og annarra í kjörnefndinni og til að friða sam- visku sína grípur hann til þess ráðs að fara fram á rit- völlinn og halda fram hálfri sögu eða hálfsannleik. Sigurður heldur því fram í grein sinni að Kristján Páls- son hafi í samtali við hann og Ellert Eiríksson sagt að hann óskaði eftir að skipa 1. sætið á lista Sjálfstæð- isflokksins í Suðurkjördæmi og að hann myndi sætta sig við að skipa 2. sætið á eftir Drífu Hjartardóttur. Framansagt er rétt eftir Kristjáni haft, hann sagði þetta svona enda eðlilegt af honum að líta svo á að hann ætti að skipa annað af þessum sætum. Kristján hlaut betri útkomu úr síðasta prófkjöri en Árni R. Árna- son í gamla Reykjaneskjördæmi og í gamla Suðurlandskjördæmi var Drífa Hjartardóttir 1. þingmaður Sjálfstæðisflokksins eftir brottför Árna Johnsen af sviðinu. Það sem Sigurður nefnir hinsvegar ekki nú sem fyrr er að Kristján sagði jafn- framt að ef hann ætti að taka annað en eitt af þessum tveimur sætum „þyrfti að færa fyrir því sérstök rök við hann“. Þessu gleymdu eða slepptu hann og Ellert Eiríksson jafnframt að hafa eftir í kjörnefnd- inni og því vissu aðrir í kjörnefndinni sem treystu þessum trúnaðarmönn- um Sjálfstæðisflokksins ekki söguna alla. Góður samstarfsmaður minn sagði mér um daginn dæmisögu um sann- leika og lygi, í þessari sögu sem er of löng til að segja í stuttri grein var meginþemað að oft dugir ekki að segja sannleikann þúsund sinnum til að þurrka út eina lygi. Mér verður oft hugsað til þessar dæmisögu þeg- ar ég heyri söguburð og réttlætingar sumra kjörnefndarmanna á því að Kristján Pálsson fékk ekki sæti á listanum. Nú þegar ljós er afleiðing þessa hálfsannleiks þeirra félaga, að Kristján Pálsson hyggst fara fram sér, er eðlilegt að Sigurður reyni að réttlæta gerðir sínar með því að halda hálfsannleiknum á lofti, ef ekki til annars þá til að friða eigin sam- visku. Mig langar í niðurlagi að gefa Sigurði ráð sem félagi hans Ellert Eiríksson sagði að ætti að einkenna góða stjórnmálamenn en það er að segja alltaf satt sama hversu sár sannleikurinn er, ég trúi því að hann hafi átt við sannleikann allan ekki bara hálfan. VALÞÓR S. JÓNSSON, Njarðvík. Sigurði Jónssyni á Selfossi svarað Frá Valþóri S. Jónssyni ÞAÐ er ömurlegt að heyra fulltrúa ríkisstjórnarflokkanna vera sífellt að neita staðreyndum um kjör lágtekju- ellilífeyrisþega. Það er ekki hlutverk þingmanna að neita staðreyndum, það gerir þá óheiðarlega. Fyrir um ári benti ég á það í Morgunblaðinu að ég borgaði skatt af lífeyri sem var skattfrjáls fyrir átta árum þegar ég fór á ellilífeyri. Nú þegar ég var að gera skatta- skýrsluna mína kom útkoma ársins í ljós. Hækkanir á mínum lífeyri á síð- astliðnu ári færðu mér að meðaltali 4.258 kr. á mánuði. Núna í mars er lífeyririnn 5.399 kr. hærri en hann var í mars á liðnu ári. Síðan er rétt að skoða hækkun á þremur gjaldaliðum í marsmánuði. Ég borga 1.448 kr. hærri skatt en í fyrra, 2.568 kr. hærri tryggingar af húsi og bíl og 541 kr. hærra fasteignagjald. Þetta gerir samanlagt 4.557 kr. Ef við drögum svo þessar 4.557 kr. frá 5.399 kr. standa eftir 842 kr. sem eiga að standa undir hækkuðu vöruverði og þjónustu, sem hefur hækkað fast að einum þriðja á síðastliðnu ári. Hver er kaupmáttaraukningin í þessari út- komu? Þetta sýnir vel hvað lágar töl- ur vega þungt á móti prósentuhækk- un lífeyris. Það er óheiðarlegt að tala um meðaltalslaun og meta afkomu fólks eftir þeirri útkomu. Slík viðmiðun er óheiðarleg og raunar heimskra manna tal, því hún segir ekkert um það hver afkoma þeirra er sem búa við lægstu kjörin. Afkoma fólks verður alltaf að miðast við afkomu þeirra sem búa við lægstu laun eða lífeyri, aðrar viðmiðanir eru aðeins tilraun til að fela fátækt. Það er verulegt umhugsunarefni fyrir sjálfstæðismenn og framsókn- armenn að stjórnleysið skuli vera orðið svo yfirþyrmandi í stjórnsýslu fjármuna að fyrirtæki séu farin að okra til þess eins að geta ausið sífellt meira af þjóðartekjunum í vasa for- stjóra og annarra gæðinga og að peningastofnanir séu farnar að nota vaxta- og þjónustugjaldaokur til þess að ausa peningum í vasa gæð- inganna á meðan öðrum er haldið við vannæringu og þess er vandlega gætt að ellilífeyrisþegar geti á engan hátt bætt kjör sín. GUÐVARÐUR JÓNSSON, Hamrabergi 5. Horft framhjá staðreyndum Frá Guðvarði Jónssyni

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.