Morgunblaðið - 24.03.2003, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 24.03.2003, Qupperneq 11
LAUN hvors bankastjóra Búnaðarbankans um sig á síðasta ári námu 15,7 milljónum króna eða 1,3 milljónum króna á mánuði. Inni í þeirri tölu er kaupauki upp á 75 þúsund krónur líkt og aðrir starfsmenn bankans fengu á síðasta ári. Til viðbótar fengu bankastjórarnir bifreiðahlunnindi upp á 74 þúsund krónur á mánuði eða 882 þúsund á árinu og lífeyrisgreiðslur sem eru 5,94% umfram almenna bankamenn. Árlegur kaupréttur bankastjóra til að kaupa hlutabréf í bankanum er 3 milljónir króna að nafnverði og er miðað við grunngengið 4,25. Bankastjór- arnir geta hins vegar ekki nýtt þennan kauprétt fyrr en eftir fimm ár og því í fyrsta lagi 1. desember 2006 og þá að hámarki 60% af uppsöfnuðum rétti. Laun bankastjóra 15,7 milljónir VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. MARS 2003 11 Vagnhöfði 21 • 110 Reykjavík Sími: 577 4500 • www.velaland velaland@velaland.is VÉLA- VIÐGERÐIR d es ig n. is 2 00 3 EF ekki myndast ný þjóðarsátt milli stjórnvalda, forsvarsmanna atvinnu- lífsins og verkalýðshreyfingarinnar um aðgerðir til að mæta stóriðjufram- kvæmdum er hætta á að enn ein koll- steypa í efnahagsmálum ríði yfir þjóð- ina, að því er fram kom í máli formanns bankaráðs Búnaðarbank- ans, Magnúsar Gunnarssonar, á aðal- fundi bankans á laugardag. Fundurinn markaði tímamót í sögu Búnaðarbankans þar sem íslenska ríkið hefur selt eftirstöðvar sínar af eignarhlut sínum í bankanum og er því alfarið komið út úr eignarhaldi á viðskiptabönkum. Magnús sagði í ræðu sinni að fram- undan væruu stórfelldar stóriðju- framkvæmdir sem hleypa mundu miklu lífi í íslenskt atvinnulíf á næstu árum. „Engum blandast hugur um að þær framkvæmdir munu hafa jákvæð áhrif á efnahagslífið á næstunni, en hafa ber í huga að hér er um að ræða einhverjar mestu framkvæmdir Ís- landssögunnar. Þegar horft er til ár- anna 2000-2005 bendir því allt til að þetta fimm ára tímabil geti einkennst af gríðarlegum sveiflum í efnahagslíf- inu þar sem skiptast á veruleg verð- bólga og verðhjöðnun, samdráttur og mikill hagvöxtur, mikill viðskiptahalli og jákvæður viðskiptajöfnuður og hágengi og lággengi. Sveiflur af þessu tagi eru alltaf varhugaverðar. Þessi staða veldur því að upphaf fyrirhug- aðra stórframkvæmda við tiltölulega hátt raungengi reynir mjög á innviði efnahagslífsins og hagstjórnina í landinu. Sérstaklega er mikilvægt að sá uppgangur sem fylgir stóriðju- framkvæmdunum verði ekki til þess að valda útflutnings- og samkeppnis- greinum búsifjum vegna of hás raun- gengis. Til þess að leysa þetta verk- efni farsællega skiptir að mínu viti sköpum að þegar í upphafi skapist ný þjóðarsátt milli stjórnvalda, forsvars- manna atvinnulífsins og verkalýðs- hreyfingarinnar um aðgerðir til að mæta stóriðjuframkvæmdunum með þeim hætti að til sem mestra heilla horfi fyrir þjóðarbúið allt. Annars er veruleg hætta á að við upplifum enn eina kollsteypuna í efnahagsmálum þegar líður að lokum stóriðjufram- kvæmdanna,“ sagði Magnús. Stefnt að 14% arðsemi á eigið fé Hann sagði í ræðu sinni að starf- semi dótturfyrirtækis bankans í Lúx- emborg hefði gengið mjög vel og skil- að hagnaði strax á fyrsta heila starfsári félagsins. „Þessi góði árang- ur hefur leitt til þess að farið er að huga að næstu skrefum í útrás bank- ans,“ að sögn Magnúsar. Í samtali við Morgunblaðið segir Árni Tómasson, bankastjóri Búnað- arbankans, að bankinn hafi í fram- haldi af því að reksturinn í Lúxem- borg gekk jafn vel og raun ber vitni farið að huga að frekari útrás. Hann segir að bankinn sé þegar byrjaður að fikra sig inn á Bretlandsmarkað. Eins er farið að skoða samstarf á verð- bréfasviðinu við fyrirtæki á Norður- löndum. Jafnframt er verið að skoða möguleika á öðrum sviðum. Í ræðu Árna á fundinum kom fram að markmið bankans um lágmarks- arðsemi á eigið fé eftir reiknaða skatta væri 6% álag ofan á áhættu- lausa ávöxtun. Óverðtryggðir vextir á skuldabréfum ríkisins eru nú á milli 7 og 8% og að viðbættu 6% álagi er stefnt að 14% arðsemi á eigið fé. Rekstraráætlun bankans fyrir 2003 miðar að því að ná þessu marki. Jafn- framt er gert ráð fyrir því að efna- hagur bankans aukist um 10–12% á árinu og verði í því í árslok um 270– 275 milljarðar króna. Þegar djarft er siglt gefur oft á bátinn Magnús vék að umræðu um Bún- aðarbankann og verklag í ræðu sinni. „Umfangsmikil sala bankans á óskráðum eignarhlutum í félögum, frumkvæði starfsmanna verðbréfa- sviðs við sameiningar og umbreyting- ar á fjármálamarkaði og tilraunir bankans til að vaxa með sameiningu og samstarfi við önnur félög ollu því að bankinn varð í fararbroddi í fjár- málalífinu í landinu. Því fylgdi líka á stundum mikil umræða um bankann og verklag hans. Af hálfu bankaráðs hefur verið lögð áhersla á það á und- anförnum árum að bæta verklag, skýra verkferla og tryggja að ávallt sé farið að settum reglum. Mikill ár- angur hefur verið af því starfi. Þá hef- ur bankaráð markvisst sóst eftir stækkun bankans við samruna við önnur fjármálafyrirtæki og sú stefna hefur skilað hluthöfum miklum ávinn- ingi. Þegar djarft er siglt gefur oft á bátinn. Það er hægur vandi að gera engin mistök – besta leiðin til þess er sú að gera ekkert. Þegar mistök hafa komið í ljós hefur bankinn fúslega leiðrétt þau og lagt sig fram um að bæta verklag. Eftir stendur að Bún- aðarbankinn hefur verið í fararbroddi í fjármálalífinu á síðasta ári, sýnt góða afkomu og nýtur trausts viðskipta- manna og hluthafa. Það er það próf sem mestu skiptir að standast,“ að sögn Magnúsar. Mikil aukning í hlutabréfaviðskiptum Að sögn Sólons R. Sigurðssonar, bankastjóra Búnaðarbankans, nam hlutdeild Búnaðarbankans í viðskipt- um með hlutabréf 61 milljarði króna að markaðsvirði eða sem svarar til 19,1% af heildarviðskiptum á Íslandi með hlutabréf í fyrra. Er þetta um 280% aukning frá fyrra ári þegar hlutdeild bankans nam 16 milljörðum króna eða 11,4% af heildarviðskiptum með hlutabréf árið 2001. Samþykkt var á fundinum að greiða hluthöfum 15% arð af nafn- verði hlutafjár fyrir árið 2002. Verður arðurinn greiddur út þann 5. maí nk. Jafnframt var samþykkt að sam- eina Landbúnaðarsjóð og Menning- ar- og styrktarsjóð Búnaðarbankans. Morgunblaðið/Árni Sæberg Árni Tómasson og Sólon R. Sigurðsson, bankastjórar Búnaðarbankans, ásamt Gesti Jónssyni fundarstjóra, hlýða á Magnús Gunnarsson, formann bankaráðs, flytja ávarp á aðalfundi bankans. Búnaðarbankinn hyggur á frekari útrás Þörf á nýrri þjóðarsátt Á AÐALFUNDI Bún- aðarbankans voru Elín Sigfúsdóttir, fram- kvæmdastjóri fyrir- tækjasviðs Búnaðar- bankans, Finnur Ingólfsson, forstjóri VÍS, Hjörleifur Jak- obsson, forstjóri Olíu- félagsins ehf., Jón Helgi Guðmundsson, forstjóri BYKO og dr. Michael Sautter, fram- kvæmdastjóri hjá Société Générale í Þýskalandi og Austur- ríki, kjörin í bankaráð bankans. Varamenn í bankaráði eru: Guð- mundur Kristjánsson, Margeir Daníelsson, Jón Þór Hjaltason, Þórður Magnússon og Guðmundur Hjaltason. Fulltrúar ríkisins, Magnús Gunnarsson, Þorsteinn Ólafsson og Árni Páll Árnason, gáfu ekki kost á sér til endurkjörs. Á fundi nýskipaðs bankaráðs að loknum aðalfundi var Hjörleifur skipaður formaður og Finnur varaformaður bankaráðs. Í samtali við Morgunblaðið sagði Hjörleifur að seta í bankaráði Búnaðarbankans legðist vel í hann. Hann segir bankann vel rekinn og ekki séu fyrirhugaðar breytingar á stjórnun bankans. „Bankinn er traustur og vel rekinn og getur vel stækkað og þróast á eigin for- sendum og við munum skoða það vel. Á sama tíma er ljóst að það er áhugi hjá mörgum fyrirtækjum á íslenskum fjármálamarkaði að hagræða og stækka með samruna. Við munum taka þátt í því og skoða alla þá möguleika sem eru fyrir hendi,“ segir Hjörleifur. Hann neitar því að þegar sé byrjað að ræða slíkar sameiningar. „Nú kemur nýtt bankaráð saman. Skoðar kosti og galla og mótar sína stefnu. Það er auðvitað búið að leggja heilmikla vinnu í þetta hjá bankanum og við munum yf- irfara hana og halda svo áfram í framhaldi af því,“ að sögn Hjör- leifs. Hjörleifur Jakobsson Hjörleifur Jakobsson formaður bankaráðs

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.