Morgunblaðið - 24.03.2003, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 24.03.2003, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. MARS 2003 29 DAGBÓK Leiðsögunám Hnitmiðað og skemmtilegt nám fyrir þá, sem vilja kynnast Íslandi í máli og myndum. Námið er opið öllum þeim, sem áhuga hafa á að læra hvernig standa skal að leiðsögn erlendra ferðamanna á ferð um Ísland. Stuðst er við námsskrá menntmálaráðuneytisins um viðurkennt leiðsögunám.  Helstu námsgreinar:  Ferðalandafræði Íslands. Helstu viðkomustaðir ferðamanna í máli og myndum.  Saga landsins, atvinnuvegir, stjórnmál, bókmenntir og listir.  Mannleg samskipti og hópasálfræði.  Skipulagðar ferðir, afþreyingaferðir og margt fleira. Leiðbeinendur eru þaulvanir leiðsögumenn og sérfræðingar á hinum ýmsu sviðum. Kennt er 3 kvöld í viku, en auk þess er farið í vettvangsferðir á laugardögum. Bíldshöfða 18, sími 567 1466 Opið til kl. 22:00 STJÖRNUSPÁ Frances Drake HRÚTUR Afmælisbörn dagsins: Þú býrð yfir áræði og þori, ástleitni og umhyggju og hefur gaman af íþróttum, rómantík og leikjum. Miklar breytingar gætu verið framundan í lífinu. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Það er nauðsynlegt að hugsa um eigin hag um þessar mundir enda tæki- færið til að hlaða orku- geymana. Sólin er í merki þínu og þú verður að nýta það. Naut (20. apríl - 20. maí)  Mundu að þú þarft á hvíld og afslöppun að halda um þessar mundir. Reyndu að draga þig í hlé og vera í einrúmi smá stund til að róa hugann. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Talaðu við vini þína um framtíðardrauma þína og vonir. Með því að orða drauma þína eykur þú líkur á að þeir rætist. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Reyndu að hugsa vel um útlitið því fólk tekur eftir þér þennan mánuð. Það er mikilvægt að þú skapir þér sterka og jákvæða ímynd. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Ferðir, aukin menntun, samræður við útlendinga og bækur eða kvikmyndir geta víkkað sjóndeildarhring þinn nú. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Það er nauðsynlegt að þú skilgreinir vel sameiginlegt eignarhald á einhverju. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Þú vilt vera innan um ann- að fólk nú. Þú gætir öðlast aukinn skilning á þér með samræðum við vin eða fé- laga. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Losaðu þig við hluti sem þú þarft ekki lengur á að halda. Þú þarft að skipu- leggja þig betur og koma skikki á líf þitt. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Rómantíkin leikur stórt hlutverk í lífi þínu nú. Þú skalt skemmta þér meðan kostur er. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Einbeittu þér að heimilinu og fjölskyldunni. Taktu þér tíma til að hlusta á fjöl- skyldumeðlimi og veittu þeim stuðning. Þú sérð aldrei eftir slíku. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Þú átt annríkt um þessar mundir. Kaup og sala, samningar, stuttar ferðir og samræður við vini halda þér við efnið. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Ræddu við einhvern sem hefur völd um hvernig þú getur aukið tekjur þínar nú eða í framtíðinni. Þú þarft að hafa trú á getu þinni og hæfileikum. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. MEÐ MORGUNKAFFINU Ef þú hættir ekki að elta mig þá á ég eftir að stíga á þig! Mömmudagar, pabbadagar, afmæli, jólin … það er ótrú- legt hvað það kostar að eiga foreldra núorðið! ÍSLENSKUR KVEÐSKAPUR Undarleg er íslensk þjóð! Allt, sem hefur lifað, hugsun sína og hag í ljóð hefur hún sett og skrifað. Hlustir þú og sé þér sögð samankveðna bagan, þér er upp í lófa lögð: landið, þjóðin, sagan. Stephan G. Stephansson LJÓÐABROT SUÐUR gengur hreint til verks og stekkur í fjögur hjörtu eftir opnun makk- ers á grandi: Vestur gefur; enginn á hættu. Norður ♠ 743 ♥ ÁG8 ♦ á74 ♣ÁDG6 Suður ♠ D82 ♥ KD10964 ♦ K6 ♣84 Vestur Norður Austur Suður Pass 1 grand Pass 4 hjörtu Pass Pass Pass Útspil vesturs er spaða- ás og austur lætur tíuna í slaginn, sem er frávísun. Vestur tekur makker al- varlega og skiptir yfir í tíguldrottningu. Hvernig á að spila? Þetta er einfalt mál fyr- ir vana menn: Vestur virð- ist vera með ÁKG í spaða og DG í tígli. Hann sagði pass í upphafi og getur því ekki átt laufkónginn líka. En það er allt í lagi: Norður ♠ 743 ♥ ÁG8 ♦ Á74 ♣ÁDG6 Vestur Austur ♠ ÁKG ♠ 10965 ♥ 532 ♥ 7 ♦ DG95 ♦ 10832 ♣732 ♣K1095 Suður ♠ D82 ♥ KD10964 ♦ K6 ♣84 Vestur fær að eiga slaginn á tíguldrottningu! Ef hann skiptir yfir í lauf tekur þú með ás, hendir síðan laufi niður í tígulás og tromp- svínar fyrir laufkónginn. Tíu slagir. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson 1. e4 c5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 e6 4. Bxc6 bxc6 5. d3 Re7 6. 0–0 Rg6 7. Rc3 e5 8. a3 a5 9. b3 d6 10. Bd2 Be7 11. h3 0–0 12. Re2 f5 13. exf5 Bxf5 14. Rg3 Be6 15. De2 h6 16. Kh2 Dd7 17. Hae1 a4 18. b4 cxb4 19. axb4 a3 20. c4 a2 21. Ha1 d5 22. c5 Bf6 23. Rh5 Kh7 24. Rxf6+ gxf6 25. d4 e4 26. De3 Dg7 27. Hg1 exf3 28. Dxe6 Hfe8 29. Df5 He2 30. Be3 He8 Staðan kom upp á Edduskák- mótinu, minning- armóti Guð- mundar J. Guðmundssonar. Íslenskum skák- mönnum tókst sumum hverjum að leggja að velli erlendu ofur- stórmeistarana sem þátt tóku. Í stöðunni hafði Jón Garðar Viðarsson (2391) hvítt gegn Loek Van Wely (2668). 31. Kh1! Hógvær en um leið vinningsleikur þar sem nú opnast g-línan án þess að svartur fái rönd við reist. 31… Hb2 32. gxf3 Hg8 33. Hg4 Df7 34. Hh4 Hh8 35. Hg1 h5 36. Dxh5+ Kg7 37. Dxh8#. 6. umferð Meistaramóts Taflfélagsins Hellis hefst kl. 19.30 í kvöld. Teflt verður í húsakynnum fé- lagsins, Álfabakka 14a og eru áhorfendur velkomnir. SKÁK Helgi Áss Grétarsson Hvítur á leik. MORGUNBLAÐIÐ birt- ir tilkynningar um af- mæli, brúðkaup, ætt- armót og fleira lesendum sínum að kostnaðarlausu. Til- kynningar þurfa að ber- ast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyrirvara fyrir sunnudagsblað. Samþykki afmæl- isbarns þarf að fylgja afmælistilkynningum og/eða nafn ábyrgð- armanns og síma- númer. Fólk getur hringt í síma 569-1100, sent í bréfsíma 569- 1329, eða sent á net- fangið ritstj @mbl.is. Einnig er hægt að skrifa: Árnað heilla, Morgunblaðinu, Kringlunni 1, 103 Reykjavík Hann sagði að nýi kjóllinn færi mér svo vel og svo spurði hann hvort hann gæti fengið hann lánaðan! SMÆLKI KIRKJUSTARF Hallgrímskirkja. Lestur Passíusálma kl. 12.15. Langholtskirkja. Kl. 12.10 lestur Pass- íusálma og bænagjörð í Guðbrandsstofu í anddyri Langholtskirkju. Allir velkomn- ir. Kl. 15–16.30 Ævintýraklúbburinn, starf fyrir 7–9 ára börn, sem eru öll vel- komin. Laugarneskirkja. 12 spora hópar koma saman í dag kl. 18 og 20. Umsjón Mar- grét Scheving sálgæsluþjónn. (Sjá síðu 650 í Textavarpi.) Neskirkja. 6 ára starf kl. 13.50 10–12 ára starf kl. 16.30. Litli kórinn, kór eldri borgara, þriðjudag kl. 16.30. Stjórnandi Inga J. Backmann. Allir velkomnir. Seltjarnarneskirkja. Friðarstund kl. 12– 12.30. Hljóð bænastund. Árbæjarkirkja. Kl. 15.15 TTT (starf 10– 12 ára) í safnaðarheimilinu. Fella- og Hólakirkja. Kl. 13–15.30 opið hús fyrir fullorðna í safnaðarheimili kirkjunnar. Spilað, fræðst, kaffi og spjall. Bænastund kl. 15.15 í kirkjunni. Fyrirbænaefnum má koma til djákna í síma 557 3280. Þeir sem óska eftir akstri láti vita í sama síma fyrir hádegi á mánudögum. Stúlknastarf fyrir 11–12 ára kl. 17–18. Æskulýðsstarf fyrir 8.– 10. bekk á mánudagskvöldum kl. 20. Grafarvogskirkja. KFUK í Grafarvogs- kirkju kl. 17.30–18.30 fyrir stúlkur 9– 12 ára. Kirkjukrakkar í Engjaskóla kl. 17.30–18.30 fyrir 7–9 ára. TTT (10–12 ára) í Engjaskóla kl. 18.30–19.30. Sorgarhópur kl. 20. Á leiðinni heim. Þekktir leikarar og skáld lesa Pass- íusálmana kl. 18.15–18.30. Hjallakirkja. Æskulýðsfélag fyrir 8. bekk kl. 20. Prédikunarklúbbur presta í Reykjavíkurprófastsdæmi eystra er í Hjallakirkju þriðjudaga k. 9–10.30. Um- sjón Sigurjón Árni Eyjólfsson. Bessastaðasókn. TTT-starf fyrir 10–12 ára drengi og stúlkur kl. 17.30–18.30 í stofu 104 í Álftanesskóla. Rúta ekur börnunum heim að loknum fundi. Skemmtileg dagskrá. Mætum öll. Lágafellskirkja. Heimsóknarþjónusta kirkjunnar er í umsjá Þórdísar djákna, símatími mánudaga kl. 16–18 í síma 566-7113. Opinn bænahópur í Lága- fellskirkju kl. 20. Umsjón hefur Þórdís djákni. Al-Anon-fundur í Lágafellskirkju kl. 21. Ytri-Njarðvíkurkirkja. Systrafélag Ytri- Njarðvíkurkirkju. Fundur í dag, mánu- dag, kl. 20.30. Landakirkja í Vestmannaeyjum. Kl. 17.30 æskulýðsfélag fatlaðra, eldri hópur. Hulda Líney Magnúsdóttir, Ingv- eldur Theódórsdóttir og sr. Kristján Björnsson. Hjálpræðisherinn. Kl. 15 heimilasam- band. Katrín Eyjólfsdóttir talar. Kl. 17.30 barnakór. Öll börn velkomin. Borgarneskirkja. TTT-starf kl. 15.30– 16.30. Akureyrarkirkja. Kirkjusprellarar, 6–9 ára starf, kl. 16. TTT-starf kl. 17.30. Hjálpræðisherinn á Akureyri. Kl. 15 heimilasamband. Kl. 17.15 Örkin hans Nóa, 1. 2. og 3. bekkur. Kl. 19.30 Mannakorn, 6. og 7. bekkur. LESTUR Passíusálma í Graf- arvogskirkju alla virka daga kl. 18.15–18.30. Þeir sem lesa þessa viku eru: Í dag, 24. mars: Kristín Marja Baldursdóttir; 25. mars: Gunnar Eyjólfsson; 26. mars: Baldvin Halldórsson; 27. mars: Bryndís Pétursdóttir og 28. mars: Þór Tulinius. Á leiðinni heim Safnaðarstarf

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.