Morgunblaðið - 24.03.2003, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 24.03.2003, Blaðsíða 12
TÍMARITIÐ Newsweek sagði frá því í gær að háttsettur Íraki hefði greint bandarísku leyni- þjónustunni, CIA, frá því hvar Saddam Huss- ein Íraksforseti hygðist dvelja næturlangt við upphaf átakanna í Írak. Reuters-fréttastofan sagðist í gær hafa heimildir fyrir því Saddam Hussein hefði verið fluttur með sjúkrabíl eftir fyrstu flugskeytaárásina á Bagdad aðfaranótt fimmtudags, en þá hófust árásirnar. Banda- ríkjamenn hafa staðfest að reynt hafi verið að drepa Saddam og aðra helstu leiðtoga Íraks aðfaranótt fimmtudagsins. Newsweek greindi frá því að Bandaríkja- mönnum hefði tekist að hlera símalínur þær sem Saddam nýtti í Bagdad. Hins vegar hefði vegið þyngra að Bandaríkjamönnum hefði tekist að komast í samband við háttsettan íraskan embættismann sem hefði vitneskju um það hvar Saddam svæfi á hverri nóttu. For- setinn væri jafnan á ferð- inni og svæfi sjaldnast meira en eina nótt á hverj- um stað. Þessi maður hefði veitt CIA upplýsingar um verustað Saddams fyrstu árásarnóttina. Írakar staðhæfðu hins vegar í gær að Saddam Hussein væri enn með tögl og hagldir á borg- inni. Voru myndir af honum sýndar í íraska ríkissjónvarpinu en ógerlegt var hins vegar með öllu að staðfesta að þær hefðu verið tekn- ar í gær. Í fréttum Fox-sjónvarpsstöðvarinnar sagði að gervihnattamyndir hefðu sýnt mann bor- Saddam sagður hafa særst Hermt er að háttsettur Íraki hafi greint bandarísku leyniþjónust- unni, CIA, frá dvalarstað Saddams Husseins fyrstu árásarnóttina Lundúnum, AFP. inn út úr byrgi í forsetahöllinni þar sem talið var að Saddam hefði dvalist þegar árásirnar hófust. Richard Myers, ofursti í bandaríska hernum, sagði í samtali við Fox að hann hefði enga vitneskju um hvort Saddam réði enn yfir allri borginni eða íraska hernum. Féll Uday? Breska blaðið The Sunday Telegraph greindi frá því í gær að Tony Blair, forsætis- ráðherra Bretlands, hefði verið skýrt frá því að Saddam hefði að líkindum særst. Breskir leyniþjónustumenn teldu Saddam enn á lífi og hann hefði aðeins særst lítillega. Frétt blaðs- ins var höfð eftir ónefndum embættismanni og kom þar fram að talið væri að Uday, sonur Saddams, hefði fallið eða særst alvarlega í þessari fyrstu árás. Saddam Hussein 12 MÁNUDAGUR 24. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ STRÍÐ Í ÍRAK „Við höfðum átt von á mótspyrnu og hana fengum við“ UNDIROFURSTI Í BRESKA HERNUM Tommy Franks hershöfðingi, yf- irmaður bandaríska heraflans við Persaflóa, sagði á laugardaginn að hann hefði engin áform um að senda her inn í borgina, en vildi heldur fá íbúa hennar í lið með sér, enda hefðu þeir tekið her- mönnum vel. Breskir hermenn mættu harðri mótspyrnu við Basra í gær, en fréttamenn sögðu að er kvöldaði hefði herinn verið búinn að tryggja stöðu sína í útjöðrum borgarinnar. Sjöunda herdeild breska hersins, svonefndar Eyðimerkurrottur, varð fyrir sprengikúlum, fallbyssu- skotum og skothríð úr vélbyssum, er hún nálgaðist borgina. Bandarískir landgönguliðar, sem farið höfðu fyrir atlögunni þar til í gærmorgun, hafa dregið sig í hlé og haldið til norðurs í átt að Bagd- ad, og látið Eyðimerkurrottunum eftir að taka Basra. Joe Carnegie majór, talsmaður breska hersins í Írak, sagði að ekki væri ætlunin „að halda inn í Basra sem sig- ursæll her. Við ætlum okkur að fara inn í Basra sem hjálparlið“. Fundu mikið vopnabúr Íraka En vísbendingar voru um að her bandamanna mætti búast við kröftugri mótspyrnu. Við flugvöll borgarinnar urðu þeir fyrir skot- árás frá Írökum, og annars staðar frá litlum hópi Íraka sem voru vopnaðir léttum vélbyssum og einni sprengjuvörpu. Yfirmaður bresku herdeildarinnar sem í hlut átti sagði að svæðið væri „mor- andi“ í íröskum hermönnum í borgarlegum klæðum. „Við þurfum að fá liðsauka frá fótgönguliðinu,“ sagði hann. Bresku hermennirnir sem sótt hafa að Basra hafa fundið stýri- flaugar og sprengjuodda falda í víggirtum byrgjum og virðist vera um að ræða mikið vopnabúr sem íraski herinn í suðurhluta landsins hefur yfirgefið er hann hefur hörf- að undan herjum bandamanna. Vakti þetta nýjar spurningar um umfang vígbúnaðar Íraka. „Fyrst urðum við furðu lostnir og vorum að reyna að átta okkur á því hvað þetta væri,“ sagði Steven Airzee, undirforingi í breska hernum. „Maður fer að velta því fyrir sér hvort vopnaeftirlitsmennirnir [frá Sameinuðu þjóðunum] hafi verið hérna á ferðinni því að þetta leit út fyrir að vera stórt og mikið.“ ; 6 8 $. 2 8,** :9 % /%/ -/     8+ /%,7E /9..#% 2.*( /%%, /+6 .3.*3% F7+ :/9 '' '8,** E*+*2+!  +..7#8  ; G  ; ? ;  H   8   - -    ;  )%/ 7+** 2+!  7#( /)++.. +7!,+ %&&   I  7 8*5 " 8+ / 7+ 2+! +..7 I  ;9//)++..2.*.. )#9,J+/.)>.*% ('>/%7#; 6 ;! @K @ %,7+(7+ +6#>/..'7* 8.*(/!.. "/.. >#7%# 7+2F.%(7# 7+%** 8.*( /)+ 7+ /9..9#%6     Óbreyttir borgarar falla í Basra Bandamenn mæta harðri andspyrnu við borgina Bagdad, nágrenni Basra. AFP. SJÖTÍU og sjö óbreyttir borgarar féllu og 366 aðrir særðust loft- árásum Bandaríkjamanna á borgina Basra í suðurhluta Íraks, að því er upplýsingamálaráðherra Íraka, Mohammad Said al-Sahaf, greindi frá á fréttamannafundi í Bagdad í gær. Sagði hann fólkið hafa orðið fórnarlömb klasasprengna. Bandarískar og breskar flug- vélar hófu að varpa sprengjum á Basra, sem er næst stærsta borg Íraks með um 1,2 milljónir íbúa, á laugardagsmorgun, og féllu fyrstu sprengjurnar á úthverfi en síðan var þeim beint að skotmörkum inni í borginni, að því er arabíska sjónvarpsstöðin Al-Jazeera greindi frá. ÁSTRALSKA ríkisútvarpið (ABC) staðfesti í gær að ástr- alskur sjónvarpsmyndatöku- maður, Paul Moran, hefði beðið bana þegar bílsprengja sprakk í Norður-Írak á laug- ardag. Þá eru þrír starfs- menn ITN í Bretlandi taldir af eftir að skotið var á þá ná- lægt borginni Basra. Breski fréttamaðurinn Terry Lloyd var við störf í Írak fyrir ITN, en ITN framleiðir fréttir við sjónvarpsstöðvarnar ITV, Five og Channel 4. Er talið víst að Lloyd, myndatökumaður hans, Fred Nerac, og túlkurinn Hussein Othman, hafi fallið er bandarískir hermenn skutu í átt að þeim í nágrenni borgarinnar Basra í suðausturhluta Íraks. Annar mynda- tökumaður, Daniel Demoustier, slapp lifandi og var honum bjargað í öruggt skjól af blaða- manni breska helgarblaðsins Mail on Sunday. Lloyd var reyndur fréttamaður, hafði komið víða við; m.a. flutt fréttir af átökum í Líbanon, Kosovo, Bosníu og Kambódíu. Hann hafði unn- ið fyrir ITN síðan 1983. Fjórir frétta- menn féllu Sydney, London. AFP. Terry Lloyd ALÞJÓÐANEFND Rauða krossins greindi frá því í gær að hún hefði farið fram á það við stríðandi aðila í Írak að þeir gæfu kost á að gert yrði við vatnsveituna í borginni Basra í suðurhluta landsins í kjölfar loftárása banda- manna á borgina í fyrradag. „Ástandið er alvarlegt þar sem bráða- birgðavatnsdreifikerfið annar einungis þörf- um hluta íbúa borgarinnar,“ sagði í tilkynn- ingu frá Rauða krossinum. Íbúar Basra eru um 1,2 milljónir. Írakar greindu frá því í gær að sjötíu og sjö óbreyttir borgarar hefðu fall- ið í loftárásunum á borgina og á fjórða hundrað særst. Vatnsveitan í Basra óvirk Genf. AFP. HUNDRUÐ íraskra hermanna leituðu í gær að flugmanni her- þotu bandamanna sem orðrómur var á kreiki um að hefði farist yfir Bagdad. Átti flugmaðurinn að hafa náð að skjóta sér út úr vélinni og svifið til jarðar í fallhlíf. Fjöldi fólks flykktist að til að fylgjast með aðgerðum hermanna en þeir skutu m.a. af byssum í Tígris-ána og leituðu jafnframt á bátum að flugmanninum. Bretar og Bandaríkjamenn neituðu því hins vegar alfarið að nokkur flugvéla þeirra hefði farist á þessum slóðum og sögðu að því gæti ekki verið um það að ræða að einn flugmanna þeirra hefði skotið sér út yfir Bagdad. Nokkrar arabískar sjónvarps- stöðvar sögðu flugmanninn reyndar hafa fundist og að annars væri leitað, en engar sjónvarpsmyndir voru sýndar þessu til sönn- unar.Reuters Leituðu flug- manns í Bagdad

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.