Morgunblaðið - 24.03.2003, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 24.03.2003, Blaðsíða 21
gat. Það var alltaf gaman að koma með þýskubókina og við afi lásum hana yfir, kafla eftir kafla. Og svo fengum við okkur saman ís. Okkur þótti hann ansi góður. Þú sagðir alltaf að það væri sama hvað maður væri saddur eftir góða máltíð, alltaf gæti maður bætt á sig ísnum. Vonandi tökum við í spilin aftur einhvern daginn, hver veit. Bið að heilsa afa. Jón Helgi. Þótt ég hafi ekki kynnst þér eins mikið og ég hefði viljað þekkti ég þig nóg til að finna hlýjuna þína og umhyggjuna. Ég kom stundum í pössun til þín á Austurbrún, og það- an á ég margar góðar minningar, hvernig uppþvottavélin var full af krukkum undir rifsberjasultu, um brjóstsykurinn inni í fataskáp og ég gleymi þér aldrei sitjandi á kollin- um við endann á eldhúsborðinu. Þú hefur kennt mér margt, og lagðir þung lóð á vogarskálarnar við að gera mig að almennilegum manni, þótt verkinu sé ekki enn alveg lokið. Það varst þú sem kenndir mér að spila, og þökk sé þér að ég get núna verið fjórði maðurinn í brids. Þú kenndir mér líka að fara með bæn- irnar sem hafa hjálpað mér í mörg- um tilvikum. Á seinustu árum hefur svo verið ótrúlega gott að heim- sækja þig, sjá brosið þitt og halda í höndina þína. Drottinn veiti þeim hina eilífu hvíld og hið eilífa ljós lýsi þeim. All- ar sálir trúaðra framliðinna hvíli í friði sakir miskunnar Guðs. Amen. Guðbergur Geir. Oss héðan klukkur kalla, svo kallar Guð oss alla til sín úr heimi hér. Þá söfnuð hans vér sjáum og saman vera fáum í húsi því, sem eilíft er. (V. Briem.) Látin er í Seljahlíð kær frænka mín, Sigríður Hansdóttir. Það fór ekki fram hjá okkur að hún þráði þá stund að komast sem fyrst til fund- ar við sinn góða vin og eiginmann. Við erum sannfærð um að henni líð- ur vel, Siggeir hennar hefur tekið á móti henni fagnandi. Faðir Sigríðar, Hans Kristjáns- son, var mikill Súgfirðingur og þeg- ar Suðureyrarkirkja var vígð árið 1937 var hann einn af þremur sem gáfu skírnarfont í kirkjuna. Hann stóð líka fyrir söfnun meðal burt- fluttra Súgfirðinga sem gáfu tvær kirkjuklukkur, allan ljósabúnað, tvær ljósakrónur og vegglampa. Hans stofnaði fyrstu sjóklæðagerð- ina sem starfrækt var á Íslandi árið 1924 og var hún fyrst í Súganda- firði. Árið 1928 stofnaði hann Sjó- klæðagerð Íslands í Reykjavík ásamt fleirum en fáir vita að 66°N tengjast heimabyggðinni hans. Sigríður var fædd í Súgandafirði og hélt alla tíð sambandi við sína fæðingasveit. Hún var meðal þeirra sem stofnuðu Súgfirðingafélagið í Reykjavík og fylgdist vel með því starfi. Ég man hvað mér fannst hún alltaf vera vel klædd og eiga fallegt heimili. Seinna varð hún svo tengdamóðir Auðar dóttur minnar svo sam- bandið milli okkar varð meira eftir að við vorum orðnar ömmur sömu barnanna. Sigríður var alltaf glöð og kát, ekta dama. Hún naut þess spila bridds með góðum félögum. Þau hjónin ferðuðust mikið og hún kunni að segja frá mörgu skemmti- legu sem þau kynntust erlendis. Árið 1981 bauð hún okkur nokkr- um frænkum sínum heim til að ræða um ættarmót Suðureyrarætt- arinnar, en það eru afkomendur afa hennar Kristjáns Albertssonar út- vegsbónda frá Suðureyri. Þetta fjöl- menna ættarmót var svo haldið á Hótel Sögu og var mjög ánægju- legt. Svona var hún framtakssöm, vildi að ættingjarnir hittust og lærðu að þekkja uppruna sinn. Elsku Sigga, við munum ávallt minnast þín með virðingu og þökk fyrir allt það góða sem þú gafst okk- ur. Sigrún Sturludóttir. MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. MARS 2003 21 ✝ Þorgeir Jónssonlæknir fæddist á Húsavík 24. mars 1916. Hann lést á Landspítalanum í Fossvogi 16. mars síðastliðinn. Foreldr- ar hans voru Jón Baldvinsson frá Garði í Aðaldal og kona hans Aðalbjörg Benediktsdóttir frá Auðnum í Laxárdal. Þeim varð 9 barna auðið en 7 komust á legg. Þau eru: Bene- dikt, Guðný María, Baldvin, Unnur, Eðvarð, Ásmund- ur og Egill, sem öll eru látin. Þorgeir kvæntist Ester Þor- steinsdóttur frá Blikalóni á Mel- rakkasléttu 1942. Hún lést 1996. Börn þeirra eru: María Aðal- björg, maki Jón Atli Kristjánsson, börn þeirra Kristján og Kolbrún Vala; Guðrún, maki Erlingur Hjálmarsson, börn Guðrúnar, Ester og Þóra Gerður; Jón Aðal- steinn, maki Lára Thors, þeirra börn Gylfi og Freyr, önnur börn Jóns Aðalsteins, Hedí, og Þorgeir. Þorgeir varð stúdent frá Menntaskólanum á Akureyri 1938. Lauk læknisprófi frá Há- skóla Íslands 1947. Nám í spænsk- um málvísindum og bókmenntum við Háskóla Íslands 1978-1981 og próf þaðan 1981. Héraðs- læknir í Kópaskers- héraði 1947-1948. Héraðslæknir í Þingeyrarhéraði 1949-1965. Heimilis- læknir með stofu í Domus Medica, jafn- framt því að vera læknir á geðdeild Borgarspítalans 1965-1993. Í stjórn læknafélags Vestur- lands nokkrum sinnum á árunum 1950-1965. Í hreppsnefnd Þing- eyrarhrepps 1958-1962. Formað- ur Leikfélags Þingeyrar frá stofnun þess. Meðstofnandi Ítalsk-íslenska félagsins í Reykja- vík. Eftir að Þorgeir hætti læknis- störfum hellti hann sér út í fé- lagsstarf eldri borgara í Gjá- bakka í Kópavogi. Hann var mjög virkur í Hananú hópnum, og for- maður Nafnlausa leikhópsins. Virkur þátttakandi í leiklist bæði á sviði og í sjónvarpi. Útför Þorgeirs verður gerð frá Kópavogskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13.30. Tengdafaðir minn Þorgeir Jóns- son er látinn. Ég kynntist honum fyrst 1965 er ég fór að slá mér upp með elstu dóttur hans, Maríu, konu minni. Mér var strax tekið eins og einum af fjölskyldunni og þannig var það alla tíð. Fjölskyld- an hafði á þeim árum, er ég kynnt- ist henni, flutt frá Þingeyri til Reykjavíkur, en Þorgeir var hér- aðslæknir í Þingeyrarhéraði frá 1949 til 1965 eða í 15 ár. Í minningu hans var tíminn á Þingeyri toppurinn á hans starfs- og athafnasemi. Hann fluttist til Þingeyrar 1949, þá nýútskrifaður læknir, með tengdamóður minni Ester Þorsteinsdóttur og dætrun- um Maríu og Guðrúnu. Starf hér- aðslæknisins á þessum árum reyndi svo sannarlega á þolrif hins unga læknis og konu hans. Hann þurfti að annast víðfeðmt hérað, með heiðum og ófærum, héraðs- skólann á Núpi, breska togara sem oft komu á Þingeyri og Auðkúlu- hrepp í Arnarfirði, ásamt Þingeyr- arkaupstað. Auk þess að vitja fólks um allt héraðið, rak hann sjúkra- skýli á Þingeyri, þar sem hann skar upp fólk, tók á móti börnum og læknaði. Þegar ég spurði hann um þennan tíma varð hann hugsi og svaraði: „Ég var farsæll í mín- um lækningum á Þingeyri.“ Miðað við lækningar nútímans gerðu menn á borð við Þorgeir krafta- verk á hverjum degi. Þorgeir unni listum og fegurð. Hann var það sem kalla má „lífs- kúnstner“. Hann var vel hagmælt- ur og samdi mikið af ljóðum, hann var músíkunnandi, hafði einlægan áhuga á leiklist og þannig mætti telja áfram. Á Þingeyri fékk hann útrás fyrir þessa sköpunargleði sína. Þar setti hann upp leikrit, stóð fyrir tónleikum og marghátt- aðri menningu. Hann var ákaflega stoltur af því að hafa stækkað svið- ið í samkomuhúsinu til að þar mætti hafa alvöru leiksýningar. Þorgeir talaði oft um hina fjöl- mörgu vini sína fyrir vestan og sinn fagra Dýrafjörð. Þegar fjölskyldan flutti til Reykjavíkur vorið 1965 hófst nýtt tímabil athafnasemi. Tengdapabbi byggði sitt draumahús á Sunnu- braut 29 í Kópavogi. Hann fór að læra og vinna við geðlækningar og vann um árabil á geðdeild Borg- arspítalans, auk þess að vera heim- ilislæknir með aðstöðu í Domus Medica. Hann hellti sér út í mála- nám, tók háskólapróf í spænsku og lærði ítölsku. Músíkin var ekki langt undan frekar en fyrri daginn og var alltaf stór þáttur í hans lífi. Þorgeir var máttarstólpi sinnar fjölskyldu, hann var læknirinn, til hans leituðu allir með sína krank- leika. Mér var oft spurn hvernig hann gæti risið undir þessu öllu. Hann var í mínum huga stórmenni, maður sem vildi öllum gott gera. Eftir að tengdamamma dó, kynntist Þorgeir annarri konu, Margréti Sigurðardóttur, mikilli kjarnorkukonu. Þau áttu saman góð og skemmtileg ár og voru pott- urinn og pannan í starfi eldriborg- ara í Gjábakka í Kópavogi. Mar- grét og fjölskylda hennar reyndust Þorgeiri, sannir vinir og gleðigjaf- ar. Ég minnist Þorgeirs sem góðs vinar, sem trúði á tengdason sinn og treysti honum, þrátt fyrir að við værum ákaflega ólíkir menn. Það rifjast upp fyrir mér margvísleg atvik. Fljótlega eftir að við kynnt- umst var mér boðið í sunndags- bíltúr með fjölskyldunni. Bíllinn var tveggja dyra Volvo af bestu gerð, en tengdapabbi hafði mjög gaman af bílum. Í lok bíltúrsins steig Þorgeir út, ég sat afturí og ætlaði á eftir honum og lét höfuðið ganga á undan. Hann tók ekki eftir mér, var vanur að skella aftur hurðinni, sem hann gerði af mikl- um krafti, beint á höfuðið á mér. Þetta var algert óviljaverk en hefði mátt túlka sem skilaboð til verð- andi tengdasonar. Lífsgleði Þorgeirs og atorka er okkur öllum sem honum kynntust fyrirmynd. Hann vildi lifa sínu lífi lifandi og halda á lofti því sem var fallegt og innihaldsríkt. Þórbergur Þórðarson tengdist fjölskyldunni og tengdapabbi blandaði einu sinni fyrir hann Þor- láksdropa. Hver veit nema þessir tveir „lífskúnstnerar“ hafi nú hist aftur á „astralplaninu“ og drekki saman sína Þorláksdropa. Ég vil koma á framfæri bestu þökkum fjölskyldunnar til þeirra sem önnuðust Þorgeir í veikindum hans á lungnadeild Landspítalans í Fossvogi. Jón Atli Kristjánsson. Fyrir u.þ.b. sjö árum hitti ég dansfélaga ömmu minnar, hann Þorgeir. Þau höfðu bæði misst maka sína og deildu þau svipuðum áhugamálum. Samband þeirra þró- aðist í mikla vináttu og gerðu þau alveg ótrúlega margt saman á þessum árum. Auðvitað héldu þau áfram að dansa og þau léku saman í tveimur leikritum. Þau voru dug- leg að ferðast, innanlands sem ut- an. Það leið varla sá dagur sem þau tvö höfðu ekki eitthvað skemmtilegt á prjónunum. Þegar ég kemst á þeirra aldur ætla ég að vona að ég geti haft það jafn gott og þau. Í haust byrjaði amma að passa dóttur mína, hana Sóleyju Mar- gréti, fyrir mig nokkrum sinnum í viku. Alltaf tók hann Þorgeir vel á móti okkur og í hvert skipti sem við komum lét hann falleg og vel valin orð falla um hana. Við fjallavötnin fagurblá er friður, tign og ró. Í flötinn mæna fjöllin há með fannir, klappir, skóg. Þar líða álftir langt í geim með ljúfum söngva klið, og lindir ótal ljóða glatt í ljósrar nætur frið. (Hulda.) Ég er þakklát fyrir það að hún amma mín hefur haft góðan vin til þess að vera með síðastliðin ár og er ég viss um að hann Þorgeir er nú þegar farinn að sprella á leik- sviðum skýjanna. Sæunn Svanhvít. „Að þeim sem ekki hafa tök á að áorka neinu sér til farsældar í líf- inu verði sérhvert aldursskeið þungbært! Þeim sem á hinn bóginn leita lífsins gæða hið innra með sér verður ekkert það vandmeðfarið sem lögmál lífsins hefur í för með sér. Á það einkum við um ellina sem allir vilja höndla en fárast svo yfir þegar hennar verður vart.“ Það er ekki undarlegt að þetta setningarbrot skuli koma upp í hugann þegar ég skrifa örstutta minningargrein um vin minn Þor- geir Jónsson lækni. Og það er ekki undarlegt að vitnað sé í stjórnmálamann í þess- um línum núna þegar margir þing- menn leita endurkjörs, en setn- ingarbrotið er eftir erlendan stjórnmálamann sem einmitt var að leita endurkjörs og skrifaði þá „Bókina um ellina“. Þessi litla bók er eftir stjórnmálamanninn og heimspekinginn Marcús Túleníus Ciceró. Það var þessi gríski stjórnmála- maður og heimspekingur eða hug- myndafræði hans sem leiddi okkur Þorgeir saman í hópi fólks í Kópa- vogi sem hafði þá sannfæringu að jarðvegurinn væri tilbúinn undir plæginguna. En hér á ekki að predika heldur minnast Þorgeirs læknis og hennar Margrétar. Ævintýri þeirra var ótrúlegt bæði í starfi og ekki síður í gleðinni. Þegar farið var um allt landið og andi „Hana nú“ sveif yfir landinu. Hrafn Sæmundsson. Í huganum hljómar þessi hlátur sem er glettinn og ljúfur í senn og ég sé glaðlegan mann sem pírir augun af svo miklu afli að engu er líkara en andlitið ætli að hverfa inní eigin ímynd og týnast í tilveru sinni. Úti er sólskin, við sitjum í borðstofunni, það er síðdegiskaffi við Sunnubrautina. Ég hnoða sam- an vísu, Þorgeir hlær, einhver seg- ir frá einu af atvikum dagsins, Þor- geir skellir uppúr og segir: – Jæja gæskur, þurfti hann að nota log- andi eldspýtu til að gæta að því hvort bensínið væri búið? Og hvar er dúnkurinn núna, hvar er báta- skýlið og hvar er drengurinn? Hann hlær óskaplega, tekur bak- föll og slær sér á lær. Í huganum hljómar hægur róm- ur, Þorgeir ræðir við okkur strák- ana um Sókrates og Plató; Sat- úrnus og Plútó. Umræðuefnin eru óþrjótandi – Egla eða Andrómetra, Suðursveit eða Síríus, allt er hægt að ræða. Þorgeir situr við endann á borðstofuborðinu, sólin lýsir sjó- inn og milli heimspekilegra vanga- veltna hljómar hlátur og í andliti eru augun pírð af innlifun og ein- lægni. Að syrgja það að þessir dagar séu farnir og horfnir virðist í fljótu bragði sjálfsagt. En þegar heims- mynd sú sem Þorgeir leyfði mér að gægjast í er skoðuð verður mér ljóst að án tilurðar sæludaganna væri tilveran tóm, og í hjartanu verð ég að gleðjast yfir því að hafa orði vitni að því þegar þeir ljúfu dagar liðu hjá. Eins er það með þetta guðdómlega fólk sem maður hittir á lífsleiðinni, þegar það deyr þá sækir sorgin í hjartað, en um leið og maður áttar sig á því að hláturinn fær áfram að hljóma um óendanlegar víddir alheimsins, þá verður manni ljóst að einlæg gleði er það eina sem hjartað skal fylla. Stundum eru augnablikin svo dýrmæt að það er hreinasta græðgi að sakna þeirra. Í huganum hljómar þessi glað- legi hlátur, Þorgeir pírir augun af svo miklum gáska að andlitið hverfur, hláturinn hljómar og þeir sem við borðstofuborðið sitja trúa því í barnslegri einlægni að gleði- stundirnar komi alltaf aftur. Vertu sæll, Þorgeir minn. Láttu nú augun þín ljóma og lýsa veginn og láttu nú hláturinn hljóma hinu megin. Kristján Hreinsson, skáld. Góður vinur og félagi, Þorgeir Jónsson læknir, er genginn. Það var fyrir tveimur árum að stofnaður var vinnuhópur að Gjá- bakka í Kópavogi. Þessi hópur nefnist Skapandi skrif, og er ætlaður þeim, sem hafa gaman af ljóðum og vilja sjálfir reyna að tileinka sér ljóðlistina. Þorgeir var með í hópnum frá byrjun. Þrátt fyrir nokkuð háan aldur og heilsubrest, sem hann átti við að stríða, þá lét hann ekki sitt eftir liggja í félagsskapnum. Hann las okkur ljóðin sín á sinn einstaka hátt, og enginn orti róm- antískari ljóð en Þorgeir. Hann var ótrúlega harður af sér, glaðvær og góður félagi, sem við munum sakna. Er ferðast þú núna um framandi vegi mót framréttri kærleikans hönd, ég trúi þú siglir á silfurfleyi að sólríkri draumaströnd. Við sendum fjölskyldu og vinum innilegar samúðarkveðjur. Fyrir hönd félaga í Skapandi skrif, Gjábakka, Kópavogi. Sigurlaug Ó. Guðmundsdóttir. Lærðu á kláp þinn og lát ei allt þér fyrir brjósti brenna. Flest bál er kalt þeim, sem þora og nenna. (Þorsteinn Valdemarsson.) Þessar ljóðlínur okkar ástsæla skálds komu upp í hugann þegar mér var tjáð að Þorgeiri Jónssyni, lækni hefði orðið að ósk sinni og fengið hljótt andlát. Þorgeiri kynntist ég í fé- lagsstarfinu í Gjábakka. Þorgeir var þá gamall maður, bráðskarpur og áræðinn eldhugi. Hann hafði strax mikinn áhuga fyrir því opna félagsstarfi sem fram fer í Gjá- bakka og ræddum við oft um hvað þetta fyrirkomulag gæfi fólki mörg tækifæri til að njóta lífsins. Þorgeir var fæddur foringi og fljótlega eftir að hann varð einn af „fastagestunum“ tók hann forystu í mörgum þáttum starfsins. Hann, ásamt Margréti, var frumkvöðull á miklum mótunartímum í fé- lagsstarfi aldraðra í Kópavogi. Þorgeir var mikill unnandi lista hvort sem var myndlist, sönglist eða ritlist og var vel skáldmæltur. Hann var mikill söng- og dans- maður, víðlesinn og tilfinningarík- ur. Hann lærði á sinn kláp og með súrefniskútinn í eftirdragi eða á bakinu tók hann þátt í öllu sem hann vildi njóta og njóta var hægt. Hann þorði og vildi og var nær til hinstu stundar virkur þátttakandi í daglegri starfsemi Gjábakka. Því sakna nú margir vinar í stað. Elsku Margrét og aðrir syrgj- endur. Guð blessi ykkur og gefi ykkur styrk til að lifa lífinu áfram lifandi því við trúum að það hafi verið hans ósk. Blessuð sé minning Þorgeirs Jónssonar. F.h. starfsmanna Gjábakka Sigurbjörg Björgvinsdóttir. ÞORGEIR JÓNSSON

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.