Morgunblaðið - 24.03.2003, Page 27

Morgunblaðið - 24.03.2003, Page 27
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. MARS 2003 27 MÁNUDAGUR 24. MARS Bifröst kl. 12:30 – Málstofa Magnús Stefánsson, Halldór Ásgrímsson, Dagný Jónsdóttir, Kristinn H. Gunnarsson, Herdís Á. Sæmundardóttir, Eydís Líndal Finnbogadóttir. Akureyri kl. 20:30 – Hótel KEA Jón Kristjánsson, Valgerður Sverrisdóttir, Dagný Jónsdóttir. Fundarstjóri: Sigfús Karlsson. Selfoss kl. 20:30 – Hótel Selfoss Guðni Ágústsson, Hjálmar Árnason, Helga Sigrún Harðardóttir. Fundarstjóri: Árni Magnússon. Hvolsvöllur kl. 20:30 – Hlíðarendi Ísólfur Gylfi Pálmason, Eygló Þóra Harðardóttir, Björn Ingi Hrafnsson. Fundarstjóri: Bergur Pálsson. vinna - vöxtur - velferð Fundaferð Framsóknarflokksins 2003 til aukinnar velferðar Leggjum áfram leiðina FRAMSÓKNARFLOKKURINN STJÓRN Íslensku menntasamtak- anna (ÍMS) hefur sent frá sér yfirlýs- ingu vegna umfjöllunar fjölmiðla um málefni leikskólans Tjarnaráss í Hafnarfirði, en ÍMS annast rekstur skólans. „Undangengið fjölmiðlafár hefur valdið ÍMS miklum vonbrigðum og ekki síst að stjórn ÍMS, starfsmenn og foreldrar heyrðu fyrst um fram- vindu mála í fjölmiðlum. 1. Ólíkt því sem haldið hefur verið fram af fræðslustjóra Hafnarfjarðar, er samningur ÍMS við bæjaryfirvöld til 23 ára, þar af eru fyrstu þrjú árin tilraunatímabil. Þrjú ár eru því ekki endalok samningsins, heldur sá tími þar sem fjögur sjálfkrafa 5 ára tíma- bil ættu að hefjast, í júní 2004. 2. Allir þessir atburðir hafa byggst á því að leikskólastjóri og aðstoð- arleikskólastjóri hafa sagt upp störf- um. Okkur grunar að áhætta upp- sagnaraðila sé engin, líkt og var í tilfelli Áslandsskóla. 3. Bæjaryfirvöld virðast hafa haft uppi hugmyndir um yfirtöku, en virð- ast að þessu sinni vilja að við biðjum um hana. Þess vegna hafa bæjaryf- irvöld reynt allt til að gera okkur erf- itt fyrir starfslega og fjárhagslega að við neyðumst kannski til að hætta að eigin frumkvæði. Svo virðist sem hluti af aðferðum bæjaryfirvalda sé að koma slæmu orðspori á ÍMS. Annars hefðu þau ekki blandað fjöl- miðlum í málið að svo stöddu. 4. Til dæmis skulda bæjaryfirvöld ÍMS í heildina 50 milljónir króna sem að mestu tengist yfirtökunni á Ás- landsskóla. Á svipuðum tíma og við fengum uppsagnir stjórnenda í hend- ur fengu ÍMS einnig bréf frá bæj- aryfirvöldum þess efnis að ákvæðum um útreikninga á þjónustufé sem bæjaryfirvöld hafa borgað síðan í ágúst 2001 hefði verið breytt. Þrátt fyrir að þeir hafi athugað hvern ein- asta reikning mánaðarlega og sam- þykkt og sýnt okkur í byrjun samn- ingstíma hvernig útreikningarnir færu fram, segjast bæjaryfirvöld nú hafa borgað okkur töluvert of mikið. 5. Bæjaryfirvöld hafa enn og aftur látið afstöðu foreldra afskiptalausa. Sjónarmið foreldra voru ekki lykilat- riði þá og virðast ekki heldur ætla að verða það nú. Til dæmis hefur hvorki verið gerð könnun á afstöðu foreldra eða starfsfólks, til að fá fram sjón- armið allra áður en svo mikilvæg ákvörðun er tekin, fremur en að láta þar skoðanir nokkurra einstaklinga ráða úrslitum. ÍMS hefur heldur ekki fengið í hendur neinar kvartanir frá trúnaðarmanni í eitt og hálft ár, svo að það kemur okkur mjög á óvart að heyra um skýrslu hennar í fjölmiðl- um, án afrits til ÍMS, sem réð starfs- fólkið. 6. Þegar framkvæmdastjóri ÍMS hitti starfsmenn einslega eftir upp- sagnirnar tvær, komst hún að því að sumir starfsmanna vildu að bærinn tæki yfir rekstur leikskólans, en aðr- ir ekki, en langflestir vildu einfald- lega starfsfrið svo hægt væri að halda starfinu áfram. Ef bæjaryfir- völd tækju yfir rekstur leikskólans er lítil von til að stefna leikskólans myndi halda áfram. 7. ÍMS hefur setið fundi með áhugasömum aðilum til að fá stað- gengil í starf leikskólastjóra og ætla að auki að auglýsa í lok marsmán- aðar. ÍMS hefur borgað sínum starfsmönnum að meðaltali hærri laun fyrir sama vinnuframlag hvort sem var í Áslandsskóla eða Tjarn- arási en starfsmenn ÍMS eru félagar í KÍ. 8. Tjarnarás er væntanlega best búni leikskóli landsins með vönduð- um kennslugögnum. Samtökin hafa lagt mikið fé í áhöld, stofnkostnað og þjálfun. ÍMS hefur fengið hámennt- aða sérfræðinga erlendis frá til þjálf- unar starfsfólks s.s. prófessor í fjöl- greindarkennslu ásamt því að þjálfari í Montessori-fræðum kom og starfaði í 6 mánuði. ÍMS eru nú í við- ræðum við tvo Montessori kennara. Annan sem flytur erlendis frá og myndi styðja við kennslu- og upp- byggingu skólastarfsins. Reiknað er með að eins og undanfarin tvo ár muni allt starfsfólk ÍMS (Tjarnaráss) sækja ráðstefnu á þeirra vegum, þar sem heimsþekktur fyrirlesari og frumkvöðull fjölgreindarkenningar- innar dr. Howard Gardner verður aðalfyrirlesari eins og fram kemur á heimasíðu samtakanna. 9. Stjórn ÍMS harmar árásir á framkvæmdastjóra ÍMS, sem hefur mætt gagnrýni með hugrekki og án ásakana og heldur áfram að einblína á framtíðarsýn sína á möguleika í menntun barna sem hún hefur unnið að á Íslandi síðan 1997. Hún flutti til Íslands fyrir einu og hálfu ári, með það að markmiði að skapa fordæmi með Áslandsskóla og Tjarnarási og hefur tekið bæði fjárhagslegar og persónulegar áhættur sem sjálfboða- liði, vegna þess hve staðfastlega hún trúir á möguleika þessarar stefnu. Frumkvöðulsstarf hennar hefur truflast og tafist vegna skammsýnna stefnumótenda í bæjarfélaginu sem hafa ekki áhuga á slíkri tilraunastarf- semi. Það er okkur ljóst að bæjaryf- irvöld vilja ekki að ÍMS eða skólum samtakanna gangi vel. Til dæmis voru 96% foreldra ánægðir með grunnskólastarfið á miðju fyrsta ári. ÍMS fengu einnig verðlaun frá for- eldrafélagi Hafnarfjarðar fyrir tóm- stundastarf á sínu fyrsta starfsári. Okkar afstaða er að ÍMS hafi skapað frábæran leikskóla, eins og yfirmað- ur foreldraráðs hefur einnig nefnt, hún sagði að undangengið ár hafi verið „ótrúlegt“. Þetta ár var fyrsta starfsár ÍMS. Hún sagði einnig: „þú munt líka sjá að við höfum verið mjög ánægðar með marga hluti sem ÍMS hefur gert (á þessu ári) en stöð- ugleiki er markmið okkar vegna barnanna og það er aðalástæða þess að við höfum komist að þessari nið- urstöðu.“ Það sem kemur stjórn ÍMS á óvart er að á meðan ekkert kemur fram í uppsögnunum tveimur né í bréfi full- trúa stjórnar foreldrafélagsins um samstarfsörðugleika við fram- kvæmdastjóra, hefur fræðslustjóri látið hafa eftir sér í fjölmiðlum að það sé ástæða erfiðleikanna og upp- sagnanna. ÍMS krefst þess að fræðslustjóri sanni þessar ærumeið- ingar gagnvart framkvæmdastjóra. Það er vægast sagt óheppilegt þegar einstaklingar sem eru við völd fylgja ekki eftir grundvallarreglum svo sem meðalhófsreglu og rann- sóknarreglu. Sérstaklega hefði þó átt að gæta þess að ræða við þá sem eiga mestra hagsmuna að gæta þ.e.a.s. foreldra barnanna sem um ræðir áð- ur en gripið er til svo stórra aðgerða aðgerða. ÍMS stjórnast ekki af pólitískum markmiðum. Við erum þó viss um að hefði Hafnarfjarðarbæ verið stjórnað af bæjaryfirvöldum sem væru fylgj- andi þessu rekstrarformi, sem er al- gengt meðal annarra þjóða, væri hvorki Áslandsskóli né Tjarnarás í þeirri stöðu sem þeir eru í í dag. ÍMS munu ekki gefa verkefnið upp á bátinn að ástæðulausu. Það sem skiptir ÍMS mestu er álit for- eldranna. Líkt og ÍMS létu gera Gallup-könnun á síðasta ári sem sýndi fram á að meirihluti foreldra vildi halda verkefninu gangandi þrátt fyrir yfirlýsingar bæjarstjóra og uppsagnirnar í Áslandsskóla, höfum við skipulagt könnun fyrir foreldra leikskólabarna nú. Vegna þessa hafa ÍMS lagt til að þau sjónarmið sem fram koma úr könnun til foreldra verði höfð að leið- arljósi á fundi fræðsluráðs á miðviku- dag jafnvel þótt þau sjónarmið verði önnur en í Gallup-könnuninni á síð- asta ári. Nú fer ÍMS fram á það að bæjaryfirvöld gefi foreldrum, starfs- fólki og ÍMS staðfestingu á því að þau hyggist ekki taka yfir rekstur skólans núna eða að ári liðnu og muni standa við langtímaákvæði samn- ingsins. Þetta er nauðsynlegt fyrir velferð barnanna og skólans. Þetta yrði án vafa betri leið til að tryggja leikskólanum stöðugleikann, sem for- eldrar og allir aðrir vilja, frekar en yfirtaka. Með þessu móti yrði unnt að halda áfram með þá stefnu sem leikskólinn hefur tekið hingað til, en breytt stefna og breytt fram- kvæmdastjórn reksturs myndi hins vegar valda mun meiri truflun fyrir börnin. Stjórn Íslensku menntasamtakanna telur að unnið sé gegn starfi samtakanna Bæjaryfirvöld með hugmynd- ir um að yfirtaka skólann AÐALFUNDUR Félags íslenskra nuddara samþykkti ályktun þar sem gagnrýnt er afskiptaleysi stjórn- valda af rekstri erótískra nuddstofa. „Félagsmönnum í FÍN er annt um starfsheiti sitt, nuddari, og telja það vanvirðingu að blanda því við rekst- ur fyrrgreindra stofa. Að gefnu til- efni fordæmir fundurinn yfirvöld fyrir að láta viðgangast rekstur svo- kallaðra erótískra nuddstofa,“ segir í ályktun fundarins. Vísað er í þessu sambandi til fréttar í DV 20. mars. „Samkvæmt íslenskum lögum er sala á kynlífi ólögleg. Eftir lýsingu DV er ekki um annað að ræða en sölu á kynlífi. Fundurinn skorar á yfir- völd að kynna sér þá starfsemi sem fram fer á þessum stofum. Mikil óánægja ríkir hjá félagsmönnum FÍN vegna auglýsinga á erótísku nuddi undir yfirskriftinni „nudd“ og er það eindregin ósk félagsins að að- hafst verði í þessum málum.“ Vanvirðing að kalla „erótískt nudd“ nudd Ályktun frá Félagi íslenskra nuddara APALFUNDUR Skógræktarfélags Hafnarfjarðar verður haldinn annað kvöld, þriðjudaginn 25. mars, í Sverrissal í Hafnarborg, menningar- og listastofnun Hafnarfjarðar. Hefst hann klukkan 20. Fundurinn hefst með venjulegum aðalfundarstörfum en að lokinni afgreiðslu þeirra verða tekin fyrir önnur mál. Að loknu fundar- og kaffihléi mun Brynjólfur Jónsson, framkvæmda- stjóri Skógræktarfélags Íslands, flytja erindi, sem hann nefnir Ávext- ir Kamtsjatka. Í því mun hann fjalla í máli og myndum um árangur söfn- unarferðar, sem farin var til þessara fjarlægu slóða árið 1998. Félagar í Skógræktarfélagi Hafn- arfjarðar og aðrir áhugamenn um skógrækt og uppgræðslu lands eru hvattir til að mæta á fundinn. Aðalfundur Skógrækt- arfélags Hafnarfjarðar Erindi um Kamtsjatka RÚMLEGA þrjár milljónir króna söfnuðust í landssöfnun sem Zontaklúbbarnir á Íslandi efndu til dagana 7. til 8. mars til styrkt- ar Stígamótum og systursam- tökum þeirra, Aflinu á Akureyri. Zonta-konur seldu barmnælur á vinnustöðum og í stórmörkuðum. Söfnunarfénu verður varið til stuðnings konum sem leiðst hafa út í vændi, og til fræðslu- og for- varnarstarfs sem lýtur að vændi og mansali. Söfnunarféð var afhent á laug- ardag á landsfundi Zonta- klúbbanna sjö á Íslandi, í safnaðarheimili Seltjarnarnes- kirkju. Zonta er heimshreyfing kvenna í stjórnunarstörfum, stofnuð í Bandaríkjunum 1919. Zonta- klúbbar eru í 69 löndum í öllum heimshlutum, en alls eru um 33.000 konur meðlimir í samtök- unum, þar af rúmlega 200 á Ís- landi. Zonta hefur það að mark- miði að bæta hag kvenna um allan heim og sinna réttinda- málum þeirra. Á Íslandi starfa Zonta-klúbbar í Reykjavík, Hafnarfirði, Ísafirði, Akureyri og Selfossi. Morgunblaðið/Árni Sæberg Sigríður Dagbjartsdóttir, svæðisstjóri Zontasambandsins á Íslandi, afhend- ir forsvarsmönnum Stígamóta og Aflsins söfnunarféð að viðstöddum for- mönnum Zontaklúbba af landinu öllu. Zontaklúbbarnir afhenda söfnunarfé

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.