Morgunblaðið - 27.03.2003, Page 58
ÍÞRÓTTIR
58 FIMMTUDAGUR 27. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ
DON Hutchison, landsliðsmaður
Skota í knattspyrnu og leikmaður
West Ham, segir að Skotar verði að
leika af mikilli ástríðu í leiknum við
Íslendinga á Hampden Park í Glas-
gow á laugardaginn. Berti Vogts,
landsliðsþjálfari Skota, húðskamm-
aði sína menn eftir ósigurinn á móti
Írum í síðasta mánuði og segir
Vogts að lærisveinar sínir verði að
spila af meiri ábyrgð í leiknum við
Íslendinga og Litháa en þeir gerðu
í þeim leik.
Vogts kallaði landsliðsmenn sína
á fund í fyrrakvöld þar sem menn
fengu að tala hreint út en Vogts
fannst vanta allan vilja og barátt-
uneista í leiknum við Íra sem Írar
sigruðu í, 2:0.
„Þar sem í okkar röðum eru eng-
ar stórstjörnur eins og hjá mörgum
liðum þá verðum við að spila af
ástríðu, af mikilli einbeitingu og
vera fullir eldmóðs. Ég ætla ekki að
segja frá því sem gerðist hjá okkur
á fundinum en hann var mjög gagn-
legur, bæði fyrir okkur leikmenn
og sömuleiðis fyrir þjálfarann. Við
vorum eðlilega gagnrýndir eftir
leikinn við Íra enda leikurinn sá lé-
legasti hjá skoska landsliðinu í
langan tíma og því er mikilvægt að
menn snúi bökum saman og mæti af
fullum krafti í komandi leiki sem
eru mjög mikilvægir. Við skuldum
stuðningsmönnum okkar betri
frammistöðu og vonandi styðja þeir
vel við bakið á okkur. Með sigri á
Íslendingum gerum við vonir
þeirra um að ná öðru sætinu í riðl-
inum mjög litlar og að sama skapi
getum við gert okkur góðar vonir
um að verða í öðru sætinu á eftir
Þjóðverjum þegar upp verður stað-
ið í haust,“ segir Hutchison.
Reuters
Bertie Vogts kallaði
sína menn saman á
þriðjudaginn.
Verðum að spila af ástríðu
og eldmóði gegn Íslandi DANIRNIR Allan Borgvardt og Tommy
Nielsen, sem verið hafa til reynslu hjá úr-
valsdeildarliði FH-inga í knattspyrnu í vik-
unni, héldu af landi brott í gær. Í fartesk-
inu höfðu þeir meðferðis samningstilboð
frá FH-ingum sem vilja fá þá í sínar raðir
sem fyrst. Leikmennirnir eru á mála hjá
danska úrvalsdeildarliðinu AGF en félagið
hefur gefið leikmönnum leyfi til að spila
með Hafnarfjarðarliðinu ef um semst.
Danirnir léku æfingaleik með FH á móti
ÍBV í fyrrakvöld. Eyjamenn höfðu betur,
5:3, og skoraði Borgvardt tvö af mörkum
FH en Gunnar Heiðar Þorvaldsson, leik-
maður U-21 árs landsliðsins, gerði betur
því hann skoraði fjögur af mörkum Eyja-
manna.
Danirnir með
tilboð frá FH
BERTI Vogts, landsliðsþjálfari
Skota í knattspyrnu, sem kallaði
landsliðshóp sinn saman á þriðju-
daginn – var þá með tvær æfingar,
hefur gert eina breytingu á lands-
liðshópi sínum fyrir leikinn gegn Ís-
lendingum. Framherjinn Scott
Dobie, félagi Lárusar Orra Sigurðs-
sonar hjá WBA, er meiddur og valdi
Vogts Andy Gray, Bradford í hans
stað. Gray lék sinn fyrsta landsleik
fyrir Skota í síðasta mánuði en þá
lék svokallað framtíðarlið Skota
vináttuleik við Tyrki sem fór, 1:1.
Gray skoraði mark Skotanna og er
markahæsti leikmaður Bradford á
leiktíðinni með 14 mörk.
Breyting
hjá Vogts
KÖRFUKNATTLEIKUR
Njarðvík – Keflavík 97:101
Íþróttahúsið í Njarðvík, úrslitakeppni
karla, Intersportdeildin, undanúrslit – ann-
ar leikur, miðvikudagur 26. mars.
Gangur leiksins: 2:0, 6:7, 10:12, 18:20,
22:21, 29:23, 29:25, 34:29, 34:38, 39:38,
41:40, 41:45, 44:48, 46:48, 50:51, 56:55,
61:60, 65:67, 71:70, 75:77, 75:82, 83:84,
87:86, 87:91, 89:97, 91:100, 97:101.
Stig Njarðvíkur: Páll Kristinsson 24, Teit-
ur Örlygsson 20, Friðrik Stefánsson 15,
Halldór Karlsson 13, Gregory Harris 12,
Ragnar Ragnarss. 8, Sigurður Einarss. 3,
Ólafur A. Ingvason 1, Þorstein Húnfjörð 1.
Fráköst: 18 í vörn, 17 í sókn.
Stig Keflavíkur: Damon Johnson 41, Ed-
mund Saunders 26, Falur Harðarson 11,
Guðjón Skúlason 8, Gunnar Einarsson 8,
Jón N. Hafsteinsson 4, Sverrir Þór Sverr-
isson 3.
Fráköst: 22 í vörn, 10 í sókn.
Villur: Njarðvík 23 – Keflavík 23.
Dómarar: Helgi Bragason og Rögnvaldur
Hreiðarsson.
Áhorfendur: Um 440.
NBA-deildin
Leikir í fyrrinótt:
Cleveland – Golden State .................124:103
Atlanta – LA Lakers...........................91:108
Minnesota – Miami..............................108:91
San Antonio – Milwaukee...................107:94
Portland – Washington.........................91:95
HANDKNATTLEIKUR
Þýskaland:
Kiel – GWD Minden..............................26:20
Eisenach – Lemgo.................................29:28
Gummersbach – Flensborg..................22:21
ÚRSLIT
HANDKNATTLEIKUR
1. deild karla, Esso-deild:
Austurberg: ÍR - KA..................................20
Digranes: HK - Stjarnan ...........................20
Framhús: Fram - Valur .............................20
Akureyri: Þór A. - Grótta/KR ...................20
Kaplakriki: FH - Víkingur.........................20
Varmá: UMFA - Haukar ...........................20
Vestmannaeyjar: ÍBV - Selfoss ................20
KÖRFUKNATTLEIKUR
Úrslitakeppni karla, undanúrslit:
Grindavík: UMFG - Tindastóll.............19.15
KNATTSPYRNA
Reykjavíkurmót kvenna:
Kaplakriki: FH - Fjölnir............................19
Í KVÖLD
EVERTON hefur sent formlega
kvörtun til enska knattspyrnu-
sambandsins vegna meintra orða
sem Alan Wiley, dómari á leik liðs-
ins við Arsenal á dögunum, við-
hafði. Wiley á að hafa beðið fjórða
dómarann um að fylgjast sér-
staklega með Duncan Ferguson, en
hann kom inn á sem varamaður
seint í leiknum. Svona lagað finnst
forráðamönnum Everton ekki rétt-
látt og segja að þó svo Ferguson sé
ákafur í að sigra og harður í horn
að taka sé ekki ástæða til að hafa
sérstakar gætur á honum, slíkt sé
ekki viðhaft gagnvart öðrum leik-
mönnum.
David Moyes, stjóri Everton, seg-
ir á heimasíðu félagsins að hann
hafi ekki tekið eftir þessu þegar
það gerðist en hann hafi hins vegar
fengið mörg símtöl og tölvupóst frá
fólki sem segist hafa heyrt dóm-
arann biðja fjórða dómarann um að
hafa sérstakar gætur á Ferguson.
„Ég ræddi um þetta við dómara-
nefndina innan knattspyrnu-
sambandsins og fékk þau svör að
dómarinn hefði varað aðstoðardóm-
ara sinn við því að í kjölfar þess að
Ferguson kom inn á mætti búast við
tæklingum víðar um völlinn en ella.
Þetta sætti ég mig ekki við og
spurði hvort svona vinnubrögð
væru viðhöfð þegar aðrir leikmenn
ættu í hlut,“ sagði Moyes og bætti
því við að hann væri óhress með Al-
an Wiley, sérstaklega vegna þess að
honum fannst hann dæma leikinn
ágætlega þótt hann væri ekki alveg
sáttur með að sigurmarkið hefði
ekki verið dæmt af.
Everton kvartar vegna dómara
Landsliðið fór beint á létta æfinguá ágætum háskólavelli í Glas-
gow. Í dag æfir það tvisvar á heima-
velli úrvalsdeildar-
liðsins Patrick
Thistle, sem er ör-
skammt frá dvalar-
stað liðsins í skosku
stórborginni, og síðan aftur í fyrra-
málið, en síðdegis á morgun verður
æft á sjálfum Hampden Park.
Aðstæður í Skotlandi eru mjög
góðar, milt veður og 10-15 stiga hiti
og útlit fyrir að sú veðrátta haldist
næstu daga.
Mikill áhugi virðist fyrir leiknum,
enda hefur hann geysilega þýðingu
fyrir bæði liðin í baráttunni um ann-
að sætið í undanriðli Evrópukeppn-
innar.
Skoskir fjölmiðlar sátu um Íslend-
ingana í gær, bæði á flugvellinum og
síðan á æfingunni, og beindist mesta
athyglin að Eiði Smára Guðjohnsen,
Guðna Bergssyni og Atla Eðvalds-
syni, landsliðsþjálfara. Skotar áttu í
fyrstu von á að fá 30-35 þúsund
áhorfendur á leikinn en talsmenn
skoska knattspyrnusambandsins
sögðu í gær að þeir hefðu fundið fyr-
ir meiri stemmningu en þeir áttu von
á og þeir væru farnir að gera sér
vonir um að fylla leikvanginn glæsi-
lega sem rúmar 52 þúsund áhorfend-
ur, en þar var einmitt háður úrslita-
leikurinn í Meistaradeild Evrópu á
síðasta ári.
Allir 18 leikmenn íslenska liðsins
sem komnir eru til Glasgow eru til-
búnir í slaginn á laugardaginn. Eng-
in alvarleg meiðsli hrjá þá, nokkrir
eiga við smávægilega fótkvilla að
stríða, eins og gengur og gerist þeg-
ar langt er liðið á keppnistímabilið,
en sjúkraþjálfari og læknir liðsins
telja að ekki sé um nein vandamál að
ræða.
Morgunblaðið/Kristinn
Skoskir fjölmiðlamenn umkringdu Eið Smára Guðjohnsen, leik-
mann Chelsea, þegar hann kom úr flughöfninni í Glasgow í gær.
Góðar
aðstæður
í Glasgow
ÍSLENSKA landsliðið í knattspyrnu kom til Glasgow í gær og hóf þar
með undirbúning sinn fyrir Evrópuleikinn gegn Skotum á Hampden
Park á laugardaginn. Þar eiga Íslendingar harma að hefna eftir
ósigurinn gegn Skotum, 2:0, í fyrri leik þjóðanna á Laugardalsvell-
inum í haust. Þetta er þriðji leikur Íslands í undankeppni EM en eftir
áðurnefnt tap vann íslenska liðið góðan sigur á Litháum, 3:0, og er
því með þrjú stig eftir tvo fyrstu leikina.
Víðir
Sigurðsson
skrifar frá
Glasgow
Árni Gautur
er tilbúinn
ÁRNI Gautur Arason, lands-
liðsmarkvörður, kennir sér
einskis meins eftir aðgerðina
á olnboganum sem hann
gekkst undir fyrir skömmu.
Guðmundur Hreiðarsson,
sem sér um undirbúning
markvarða landsliðsins,
sagði eftir æfingu í gærkvöld
að Árni væri í mjög góðu
standi. „Við létum reyna
virkilega vel á olnbogann á
æfingunni og hann kastaði
sér á alla bolta og er greini-
lega alveg óhræddur og
virkilega tilbúinn,“ sagði
Guðmundur.
GEIR Þorsteinsson, fram-
kvæmdastjóri KSÍ, Eggert
Steingrímsson, gjaldkeri
sambandsins, og Ellert B.
Schram, forseti ÍSÍ, fóru í
gær til Rómar þar sem þeir
sitja ársþing Knattspyrnu-
sambands Evrópu, UEFA, í
dag. Geir og Eggert sem
fulltrúar Íslands og Ellert
sem heiðursfulltrúi en hann
sat í stjórn UEFA um langt
árabil og starfar enn í nefnd
á vegum sambandsins. Í Róm
hitta þeir fyrir Eggert Magn-
ússon, formann KSÍ, sem sit-
ur nú þingið sem stjórn-
armaður í UEFA.
Fjórir á
UEFA-þingi