Morgunblaðið - 17.04.2003, Síða 2
FRÉTTIR
2 FIMMTUDAGUR 17. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ
SÞ Í LYKILHLUTVERKI
Leiðtogar nokkurra Evrópuríkja
hafa sameiginlega lagt til að Evr-
ópusambandið gefi út yfirlýsingu
um að Sameinuðu þjóðirnar, SÞ,
verði í lykilhlutverki við endur-
uppbyggingu í Írak. George Bush
hefur hvatt til þess að viðskipta-
banni SÞ á Írak verði aflétt að
fullu.
Neikvæð ávöxtun
Raunávöxtun eigna Lífeyr-
issjóðs verslunarmanna í erlendum
hlutabréfum hefur frá árinu 1994
verið neikvæð um 12,1%. Tap varð
einnig á erlendum fjárfestingum
Lífeyrissjóðsins Framsýnar og
Lífeyrissjóðs Norðurlands.
Skrökvað um faraldur
Talið er að lungnabólgufarald-
urinn í Kína sé miklu meiri en þar-
lend stjórnvöld hafi látið í veðri
vaka. Vísindamenn hafa áhyggjur
af því að fram sé komið nýtt og
skæðara afbrigði sjúkdómsins.
Munur á s júkrasjóðum
Mikill munur er á réttindum
sjúkrasjóða stéttarfélaganna. Sam-
kvæmt könnun Starfsgreina-
sambandsins nema greiðslur
sjúkradagpeninga frá 840 til 4.200
króna. Þá geta greiðslur varað frá
90 og upp í 300 daga í senn. End-
urspeglar þessi munur einnig mis-
munandi fjárhag sjúkrasjóðanna.
Ís lenskt framboð
Magnús Jóhannesson, ráðuneyt-
isstjóri í umhverfisráðuneytinu,
hefur boðið sig fram í starf for-
stjóra Alþjóðasiglingamálastofn-
unarinnar.
Ólöglegar veiðar
Af 29 skipum sem voru á karfa-
veiðum á Reykjaneshrygg í gær
voru 13 frá ríkjum utan Norð-
austur-Atlantshafsfiskveiðinefnd-
arinnar, NEAFC. Landhelgisgæsl-
unni ber að tilkynna ólöglegar
veiðar til aðildarríkja NEAFC sem
geta beitt þessi skip hafnbanni.
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS FIMMTUDAGUR 17. APRÍL 2003 Á netinu mbl.is/vidskipti BLAÐ B
VIÐSKIPTABLAÐ MORGUNBLAÐSINS
S É R B L A Ð Á F I M M T U D Ö G U M U M V I Ð S K I P T I , S J Á V A R Ú T V E G & A T H A F N A L Í F
MENNTUN SJÓMENNSKA ÖRYGGISMÁL
Líklegt er að 500
manns útskrifist úr
námi í viðskiptatengdu
námi árlega.
Tvær ungar stúlkur
hafa aflað sér réttinda til
skipstjórnar og
vélstjórnar.
Verið er að prófa nýja
gerð björgunarbáta
fyrir farþegaferjur
út af Breiðafirði.
EINN SKÓLI/4 KALLA MIG/6 TILRAUNIR/9
DÖNSKU fjölskyldurnar sem ráða
mestu í stóru fyrirtækjasamsteypunum
A.P. Möller, Carlsberg, Bang &Olufsen
og Novo Nordisk voru uggandi vegna
fundar núverandi og tilvonandi aðildar-
ríkja ESB í Aþenu í gær. Á fréttavef
norska viðskiptablaðsins Dagens nær-
ingsliv í gær sagði að á meðan aðal-
umræðuefnið í Evrópu sé stríðið í Írak og
stækkun ESB hafi fjölskyldurnar mestar
áhyggju af því hvort hægt verði að við-
halda því fyrirkomulagi að hlutabréf sam-
steypnanna skiptist áfram í svonefnd A-
og B-bréf. Fjölskyldurnar vilji áfram
geta ráðið því sem þær ráða í samsteyp-
unum á grundvelli A-bréfanna á sama
tíma og félögin séu skráð í kauphöllum.
Danska blaðið Politiken hefur greint
frá því að Grikkir, sem nú fara með for-
mennsku í ESB, vilji að sá forgangur
sem A-bréf í þessum fjölskyldufélögum
hafi nú missi sína sérstöku stöðu. Svíar
eru sagði þeir einu sem telji koma til
greina að greiða atkvæði með Dönum
gegn þessari tillögu Grikkja. Dönsku fjöl-
skyldurnar eru sagðar óttast að hin
grónu dönsku fjölskyldufyrirtæki muni
falla í hendur útlendinga verði breytingar
gerðar.
V I Ð S K I P T I
Danskar
eignafjöl-
skyldur ugg-
andi vegna
fundar ESB
Óttast að fyrirtæki falli í hendur
útlendinga
Morgunblaðið/Sverrir
Carlsbergfyrirtækið er meðal þeirra fyrirtækja
sem dönsku fjölskyldurnar ráða mestu í.
SJÖFN hf. hefur keypt hluta-
bréf Kaldbaks fjárfestingar-
félags hf. í Nýju kaffibrennslunni
ehf., Akva ehf. og Fjárstoð ehf.
Jafnframt hefur Sjöfn hf. keypt
eignarhluti Baldurs Guðnasonar
og Steingríms Péturssonar í Stíl
ehf. og Ferðaskrifstofu Akureyr-
ar ehf.
Áætluð heildarvelta Sjafnar og
tengdra félaga eftir ofangreindar
fjárfestingar er 1,5 milljarðar og
eigið fé er 366 milljónir króna,
sem samsvarar 49% eiginfjár-
hlutfalli.
Baldur Guðnason, fram-
kvæmdastjóri Sjafnar, segir að
eftir þessi kaup Sjafnar verði
starfsmenn um 200 talsins hjá
fyrirtækinu og tengdum fé-
lögum. „Þessi kaup eru hluti af
stefnumörkun Sjafnar hf. að fjár-
festa í atvinnurekstri með verð-
mætaaukningu og breytingar-
stjórnun að leiðarljósi,“ segir
hann. Baldur segir að megin-
markmið með þessum fjárfest-
ingum sé að efla og styrkja rekst-
ur viðkomandi eininga og ná
fram samlegðaráhrifum.
Stærri verkefni
Eiríkur S. Jóhannsson, fram-
kvæmdastjóri Kaldbaks, segir að
salan á þessum hlutabréfum séu í
samræmi við þá stefnu félagsins
að einbeita sér að stærri verk-
efnum. „Um leið lítum við á
kaupin á hlutafé í Sjöfn sem eitt
af þessum stærri verkefnum, en
við höfum átt afar ánægjulegt og
gott samstarf við Baldur Guðna-
son og hans fólk. Við sjáum mörg
tækifæri í að gera það samstarf
meira og nánara,“ segir hann.
Hann segir að ætlunin sé að gera
Sjöfn að virku félagi í umbreyt-
ingarverkefnum.
Í sameiginlegri fréttatilkynn-
ingu frá félögunum segir: „Með
þessum kaupum hefur Sjöfn hf.
fylgt eftir nýrri stefnumörkun
um að fjárfesta í fyrirtækjum
með því markmiði að auka verð-
mæti og hámarka arðsemi auk
þess sem lögð verður áhersla á að
ná fram samlegðaráhrifum í
rekstri núverandi fyrirtækja og
keyptra fyrirtækja.
Sala Kaldbaks á ofangreindum
félögum er í samræmi við stefnu-
mörkun félagsins um að einfalda
eignasafn félagsins þannig að fé-
lagið einbeiti sér að stærri en
færri verkefnum. Hluti kaup-
verðsins er greiddur með hluta-
fjáraukningu í Sjöfn hf. og mun
eignarhlutur Kaldbaks verða
50%. Hluthafar Sjafnar hf. eftir
breytinguna eru eftirfarandi:
Kaldbakur fjárfestingar-
félag hf. 50%
Eyfirðingur ehf., í eigu
Baldurs Guðnasonar, 41,7%.
Eignarhaldsfélagið Stíll
ehf., sem er í eigu Baldurs
Guðnasonar og Steingríms Pét-
urssonar, 8,3%.
Stjórnarformaður Sjafnar hf.
verður Eiríkur S. Jóhannsson,
framkvæmdastjóri verður Bald-
ur Guðnason og Steingrímur Pét-
ursson verður aðstoðarfram-
kvæmdastjóri og tveir þeir
síðarnefndu munu í sameiningu
annast daglega stjórnun á Sjöfn
hf. og yfirstjórn dótturfélaga og
veita daglegt aðhald og eftirlit
með öllum þáttum starfseminnar
ásamt lykilmönnum í hverri ein-
ingu. Jafnframt munu þeir fylgja
eftir stefnumörkun og framtíðar-
sýn stjórnar félagsins með leit að
nýjum tækifærum og fjárfesting-
um sem efla munu núverandi ein-
ingar eða færa inn nýjar einingar
sem uppfylla skilyrði um arðsemi
og vöxt og styðja við stefnumörk-
un Sjafnar hf.
Stefnt er að því að Sjöfn hf. og
dótturfélög reki sameiginlegar
vörudreifingarmiðstöðvar á Ak-
ureyri og í Reykjavík.“
Styrkir iðnað á Akureyri
„Með ofangreindum kaupum
verður til ein stærsta iðnfyrir-
tækja samsteypa landsins sem
hefur burði til að efla og styrkja
íslenskan iðnað og starfsemi iðn-
aðar á Akureyri.
Með stærðarhagkvæmni og
hagræðingu mun Sjöfn hf. hafa
möguleika á innri vexti með auk-
inni sókn og nýtingu fjármuna
sem myndast út úr sameiginleg-
um rekstri samstæðu Sjafnar
hf.“
Kaldbakur eignast
helming í Sjöfn
Sjöfn kaupir hlutabréf Kaldbaks í Nýju kaffibrennslunni, Akva og Fjárstoð
Morgunblaðið/Kristján
Eiríkur S. Jóhannsson og Baldur Guðnason skrifuðu undir samninginn í gær.
Miðopna: Kalla mig elskuna sína eftir nokkra daga
Hrossagaukinn er skemmtilegur fugl sem gaman er
að fylgjast með úti í náttúrunni, en fuglinn er í aðal-
hlutverki í nýjustu mynd Dúa Landmark og náðist
pörunardans hans m.a. á mynd. 2
Agaður
hrossagaukur
„Sama rósin sprettur aldrei aftur“
Morgunblaðið/RAX
Töluverð eftirspurn er eftir antikmunum hér á landi. Fjóla Magnúsdóttir, sem rekur Antikhúsið við Skólavörðustíg, er
í hópi þeirra fyrstu sem hófu slíkan rekstur. Guðrún Guðlaugsdóttir ræddi við Fjólu um þessa starfsemi, aðdraganda
hennar og þýðingu, – um uppvöxt hennar og baráttu við að eignast húsnæði og koma sér áfram í lífinu. 20
Brjálað páskafjör á 4 síðum Barna- blaðsins
Fimmtudagur
17. mars 2003
Prentsmiðja
Morgunblaðsins
Breska leikstjóranum Danny Boyle skaut upp
á stj́örnuhimininn með Trainspotting. Hann
er mættur á ný með samtímamynd, sem að
þessu sinni gerist í auðri Lundúnaborg. 18
Veröldin 28
dögum síðar
William Goldman og Robert Towne teljast báðir til
handritsmeistara Hollywood. Nýjustu myndir
beggja, Dreamcatcher og Recruit, eru nú sýndar í
kvikmyndahúsum hér á landi. 12
Handritsmeistarar
Hollywood
Mæðrastyrksnefnd lyfti grettistaki í málefnum
kvenna, en fyrir daga nefndarinnar var sveitastyrk-
urinn eina úrræði þeirra kvenna sem ekki gátu séð
sér og börnum sínum farborða. 4
75 ára barátta
Mæðrastyrksnefndar
Yf ir l i t
Í dag
Sigmund 8 Menntun 40
Erlent 12/20 Minningar 41/43
Höfuðborgin 22 Skák 45
Akureyri 24 Bréf 46/47
Suðurnes 28 Kirkjustarf 49
Landið 30 Dagbók 48/49
Forystugrein 32 Fólk 54/61
Listir 36/38 Bíó 58/61
Menntun 40 Ljósvakamiðlar 62
Forystugrein 32 Veður 63
* * *
Morgunblaðinu í dag fylgir auglýs-
ingablaðið „Haust 2003“. Blaðinu er
dreift um allt land.
GENGI krónunnar hækkaði um
0,62% í rúmlega fimm milljarða
króna viðskiptum í gær, sam-
kvæmt upplýsingum frá Lands-
bankanum. Gengisvísitala krón-
unnar var 120,05 stig í upphafi
dags og 119,30 stig í lok dags.
Gengisvísitalan fór lægst í 118,95
og hefur ekki farið svo lágt síðan
27. nóvember 2000. Vísitalan hefur
lækkað um 3% síðasta mánuðinn.
Gengi krónunnar hækkar eftir því
sem vísitalan lækkar. Gengi krón-
unnar hækkaði um 0,33% í fyrra-
dag, í tiltölulega líflegum viðskipt-
um, að því er fram kom í frétt frá
Greiningu Íslandsbanka í gær.
„Ástæðu styrkingarinnar má eink-
um rekja til ummæla forsætisráð-
herra um að hægt verði að auka
þorskkvótann um 30 þús. tonn á
næsta fiskveiðiári. Eins og fjallað
var um í Morgunkorni ÍSB í gær
[fyrradag] mun kvótaaukning auka
hagvöxt á þessu og næsta ári og
draga úr slaka á vinnumarkaði,“
segir í fréttinni.
Þá segir að gengisvísitala krón-
unnar hafi einungis farið niður fyr-
ir 120 stig þrjá daga á þessu ári; 6.
og 7. febrúar og síðan 28. mars.
„Þegar vísitalan fór niður fyrir 120
í febrúar síðastliðnum hafði hún
ekki farið jafnlágt – krónan ekki
verið jafnverðmikil – síðan í árslok
2000.“
Gengið ekki hærra
síðan árið 2000
ERNA Guðlaugsdóttir var útnefnd
ungfrú Reykjavík og krýndi Man-
úela Ósk Harðardóttir, ungfrú
Reykjavík og ungfrú Ísland í fyrra,
arftaka sinn á skemmtistaðnum
Broadway í gærkvöldi.
Tinna Alavis varð í öðru sæti og
Helena Eufemía Snorradóttir í því
þriðja. Berglind Helga Bergsdóttir
var kjörin ljósmyndafyrirsæta árs-
ins, Miriam Sif Vahabzadehl vin-
sælasta stúlkan og Íris Dögg Ein-
arsdóttir varð hlutskörpust í
símakosningu áhorfenda Stöðvar 2.
Erna Guð-
laugsdóttir
útnefnd
Ungfrú Reykjavík 2003
KARLMAÐUR á þrítugsaldri var
stöðvaður á 183 km hraða á Norð-
austurvegi sunnan við Ystafell í
Þingeyjarsveit í gærkvöldi. Var
hann á leið austur á firði. Hann var
sviptur ökuleyfi á staðnum og fær
háa sekt að sögn lögreglunnar á
Húsavík. Þá stöðvaði hún tvo aðra
ökumenn fyrir hraðakstur, annar ók
á 124 km hraða og hinn var rétt yfir
110.
Tekinn á
183 km
hraða
SÉRA Anna Sigríður Pálsdóttir
afhjúpaði brjóstmynd af föður
sínum, dr. Páli Ísólfssyni, í for-
rými Salarins í Kópavogi í gær-
kvöldi í tengslum við tónleika þar
sem öll 42 sönglög hans voru
flutt. Það voru Hanna Dóra
Sturludóttir, Finnur Bjarnason og
Nína Margrét Grímsdóttir sem
fluttu sönglögin. Brjóstmyndina
gerði Ragnar Kjartansson og gáfu
aðstandendur Páls Salnum hana.
Morgunblaðið/Sverrir
Brjóstmynd af Páli
Ísólfssyni afhjúpuð
Söngvar sem/38
MAGNÚS Jóhannesson, ráðuneytis-
stjóri í umhverfisráðuneytinu, hefur
boðið sig fram í starf forstjóra Al-
þjóðasiglingamálastofnunarinnar
(International Maritime Organiza-
tion eða IMO). Frá þessu er m.a.
greint í blaðinu Lloyd’s List sem er
eitt víðlesnasta blaðið innan siglinga-
geirans. Þar segir að Magnús hafi
lagt fram róttækustu tillögurnar um
umbætur af þeim þremur sem hafa
boðið sig fram í starf forstjóra. Auk
Íslands bjóða Nígería og Grikkland
fram fulltrúa, en Grikkinn hefur
gegnt starfi aðstoðarforstjóra um
hríð og Nígeríubúinn hefur sömu-
leiðis starfað á vegum IMO í nokk-
urn tíma.
Kosið verður um frambjóðendur í
framkvæmdaráði IMO um miðjan
júní en þar sitja fulltrúar 40 ríkja.
Magnús sagði í samtali við Morg-
unblaðið að framboð hans hefði verið
samþykkt innan ríkisstjórnarinnar
enda sé það einstakra ríkisstjórna að
bjóða fram menn í starfið.
Magnús segist vera á þeirri skoð-
un að IMO standi á ákveðnum tíma-
mótum og ný viðfangsefni blasi við.
„Eftir atburðina 11. september fóru
menn að horfa á siglingageirann í
allt öðru ljósi og gerðu sér betur
grein fyrir hvað hann var og er raun-
verulega varnarlítill gagnvart mögu-
legum hryðjuverkum. Stofnunin hef-
ur nú sett reglur í þessum efnum og
viðfangsefni næstu mánaða og miss-
era er að koma þessum nýju reglum í
framkvæmd. Fram til þessa að hafa
menn einkum unnið að því að tryggja
öryggi sjómanna og varnir gegn
mengunarslysum en núna snúast
viðfangsefnin um það að verja skipin
gegn hugsanlegum árásum.“
Íslendingur
í forstjóra-
framboði
Alþjóðasiglingamála-
stofnunin
♦ ♦ ♦
STEFNT er að því að ljúka sam-
komulagi EFTA-ríkjanna og Evr-
ópusambandsins um aðlögun EES-
samningsins að stækkun ESB í byrj-
un maí. Samkvæmt upplýsingum
Morgunblaðsins hefur verið boðaður
fundur í vinnuhópi samningsaðila
um sjávarútvegsmál mánudaginn 28.
apríl og er stefnt að því að ljúka mál-
inu á formlegum samningafundi síð-
ar í vikunni eða í vikunni á eftir.
Lítil von um meiri
innflutningskvóta
Pólland hefur gert athugasemdir
við þau samkomulagsdrög, sem fyrir
liggja, og vill að innflutningskvótar
fyrir norskar og íslenzkar síldar-
afurðir verði rýmkaðir. Samkvæmt
heimildum blaðsins telja EFTA-rík-
in varla raunhæft að slíkt náist fram,
þar sem sú breyting myndi setja
aðra þætti samkomulagsins í upp-
nám.
Norska dagblaðið Aftenposten
hefur eftir Günter Verheugen, sem
annast stækkunarmálin í fram-
kvæmdastjórn ESB, að hann sé viss
um, að samningar um stækkun EES
takist strax eftir páska. Verheugen
ætlar að ræða við stjórnvöld í Pól-
landi í næstu viku.
Stefnt að samn-
ingum um EES
í byrjun maí
Stækkun EES/20