Morgunblaðið - 17.04.2003, Síða 45
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. APRÍL 2003 45
Spánn — Torrevieja
Til sölu nýlegt raðhús á tveim-
ur hæðum. 3 svefnherb.,
2 salerni, stofa og eldhús.
Verönd og þakverönd.
Mjög fallegur lokaður garður
með sundlaug fyrir framan
húsið. Stutt í alla þjónustu.
Góð eign á frábærum stað.
Upplýsingar í símum
896 4199/898 3006
stjóra Flugleiða, og fengu páskaegg og fleiri góðar
gjafir. Í framhaldi af því hjálpuðu krakkarnir for-
eldrum sínum við þeirra daglegu störf.
Það var því líf og fjör hjá Flugleiðum og aldrei að
vita nema þarna hafi verið flugstjórar og flugfólk
framtíðarinnar, segir í fréttatilkynningu.
EITT hundrað börn heimsóttu aðalstöðvar Flugleiða í
vikunni þar sem foreldrar þeirra vinna ýmis störf. Þau
kynntust starfsemi fyrirtækisins og fengu leiðbein-
ingar um öryggisatriði um borð í vélum félagsins og
prófuðu björgunarbáta, neyðarrennibraut og reykköf-
unargrímur. Börnin spjölluðu við Sigurð Helgason, for-
Ljósmynd/Jóhannes Long
Í heimsókn hjá Flugleiðum
Sýningin Bíladella 2003 Um
páskahelgina stendur Kvartmílu-
klúbburinn fyrir sýningunni Bíla-
dellu 2003, í sýningarsal B&L,
Grjóthálsi 1, dagana 18.–21. apríl nk.
Á sýningunni verða keppnisbílar,
götubílar, jeppar, mótorhjól og einn-
ig sér innflutt sýningartæki frá Sví-
þjóð. SPL Sound/Græju keppni
verður laugardaginn 19. apríl kl. 15
og er skráning á staðnum. Sterkustu
bræður Íslands lyfta bílum laug-
ardaginn 19. apríl kl. 17 og bílvélar
verða ræstar á 2 tíma fresti. Opið
verður kl. 11–22 föstudagin langa,
laugardaginn 19. apríl og annan
páskadag en páskadag verður opið
kl. 13–22.
Á MORGUN
Fuglaverndarfélagið býður upp á
vettvangsfræðslu í Grafarvogi
laugardaginn 19. apríl kl. 13 (fjara
kl. 13.55). Þessi mannfagnaður verð-
ur tileinkaður jaðrakönum og öðrum
vaðfuglum sem streyma til landsins
um þetta leyti. Jafnóðum verður
sagt frá sögu og ferðalögum lit-
merktra jaðrakana sem fyrir augu
ber. Íslenskir, breskir og franskir
vaðfuglasérfræðingar verða á staðn-
um til skrafs og ráðagerða.
Átak gegn stríði stendur fyrir
mótmælastöðu friðarsinna Laug-
ardaginn 19. apríl kl. 14 munu frið-
arsinnar safnast saman fyrir framan
Stjórnarráðið til að minna á and-
stöðu sína. Bergþóra Árnadóttir tek-
ur lagið og Sigþrúður Gunnarsdóttir
flytur ávarp. Boðið upp á kaffi og
kakó.
Á NÆSTUNNI
Páskaskákmót Samfylking-
arinnar Laugardaginn 19. apríl kl.
13 verður haldið hraðskákmót í
kosningamiðstöð Samfylkingarinnar
Hafnargötu 25. Keppt verður eftir
Monrad-kerfi í tveimur flokkum:
undir 18 ára og 18 ára og eldri.
Páskaegg í verðlaun. Allir velkomn-
ir.
Laugardagsfundur VG á Akureyri
Vinstrihreyfingin – grænt framboð í
Norðausturkjördæmi heldur fund
laugardaginn 19. apríl kl. 11 í kosn-
ingamiðstöðinni í Hafnarstræti 94.
Gestur fundarins er Hlynur Halls-
son myndlistarmaður sem skipar 3.
sæti VG í Norðausturkjördæmi.
Hlynur ræðir um jafnréttismál, mál-
efni nýrra Íslendinga, menningar-
mál og Evrópusambandið og kosn-
ingabaráttuna.
STJÓRNMÁL
MÁLVERKA- og höggmyndasýning
verður opnuð í Óðinshúsi á Eyrar-
bakka í dag, fimmtudag. Það eru
nokkrir félagar af Árborgarsvæðinu
sem kenna sig við Breiðumýri sem
sýna olíu-, akrýlverk, verk unnin
með blandaðri tækni og höggmynd-
ir. Listamennirnir heita Elfar Guðni,
Halldór Forni, Liston og Sverrir
Geirmundsson.
Sýningin verður opin um páskana
þ.e. frá 17. apríl til 21. apríl, frá 24.
apríl til 27. apríl og frá 1. maí til 4.
maí eða eftir nánara samkomulagi.
Myndlist
í Óðinshúsi
Vantaði nafn fermingarbarns
Vegna mistaka vantaði nafn eins
fermingarbarns í Grafarvogskirkju
sem fermist kl. 13.30 í dag, skírdag.
Fermd verður:
Theodóra Fanndal Torfadóttir,
Fjóluhlíð 10, Hafnarfirði.
Músíktilraunir
Rangt var farið með nafn hljóm-
sveitar og söngvara undir mynd sem
fylgdi grein um Músíktilraunir Hins
hússins og Tónabæjar í blaðinu í
gær. Söngvarinn á myndinni heitir
Þórður Gunnar Þorvaldsson, en
hann er söngvari hljómsveitarinnar
Amos. Þess má einnig geta að Þórð-
ur Gunnar var kosinn efnilegasti
söngvari Músíktilrauna 2003 og
hljómsveit hans lenti í 3. sæti.
LEIÐRÉTT
ÍSLANDSMÓT IFBB í fitness
verður haldið í Íþróttahöllinni á
Akureyri um næstu helgi. For-
keppnin hefst á föstudaginn 18.
apríl kl 17, þá fara karlar í gegn-
um upptog, dýfur og samanburð
en konurnar fara í gegnum sam-
anburð. Úrslitakeppnin verður
laugardaginn 19. apríl kl 17. Húsið
verður opnað kl 16 báða dagana.
Ný keppnisgrein verður á
mótinu en þar keppa konur í flokki
sem nefnist formfitness. Í form-
fitness er keppt í þremur lotum
sem allar byggjast á samanburði í
bikini og sundbolum. Í samræmi
við reglur IFBB alþjóðasambands-
ins verður keppnin lyfjaprófuð.
Síðar á þessu ári munu taka gildi
reglur um takmarkanir á þyngd
keppenda miðað við hæð í karla-
flokki, en sú regla er til þess að
sporna við þeirri þróun að kepp-
endur verði of vöðvamassaðir og
að þessi keppnisgrein þróist yfir í
vaxtarrækt, segir í fréttatilkynn-
ingu.
Íslandsmót
í fitness
á Akureyri
AFMÆLISFUNDUR AA-samtak-
anna verður haldinn að venju á
föstudaginn langa, 18. apríl, kl.
20.30 í Laugardalshöllinni. Húsið
opnað kl 19.30 og eru allir velkomn-
ir.
Nokkrir AA-félagar og gestur frá
Al-Anon samtökunum, sem eru
samtök aðstandenda alkóhólista
tala á fundinum. Kaffiveitingar
verða að fundi loknum.
AA-samtökin á Íslandi voru
stofnuð föstudaginn langa 1954, eða
fyrir 49 árum. Síðan hefur þessi
dagur verið hátíðar- og afmælis-
dagur samtakanna, alveg sama
hvaða mánaðardag hann ber upp á.
„AA-samtökin eru félagsskapur
karla og kvenna, sem samhæfa
reynslu sína, styrk og vonir, svo að
þau megi leysa sameiginlegt vanda-
mál sitt og séu fær um að hjálpa
öðrum til að losna frá áfengisböl-
inu.
Til þess að gerast AA-félagi þarf
aðeins eitt: Löngun til að hætta að
drekka. Inntöku- eða félagsgjöld
eru engin, en með innbyrðis sam-
skotum sjáum við okkur efnalega
farborða. AA-samtökin eru sjálf-
stæð heild og óháð hvers kyns fé-
lagsskap öðrum. Þau halda sig utan
við þras og þrætur og taka ekki af-
stöðu til opinberra mála. Höfuðtil-
gangur okkar er að vera ódrukkinn
og að styðja aðra alkóhólista til
hins sama.
Í dag eru starfandi um 330 deild-
ir um allt land, þar af í Reykjavík
163 deildir, erlendis eru 16 ís-
lenskumælandi deildir. Hver þess-
ara deilda heldur að minnsta kosti
einn fund í viku, og er fundarsókn
frá 10–20 manns og upp í 180
manns á fundi.
Hér í Reykjavík eru margir fund-
ir á dag og byrja fyrstu fundirnir
kl. 9.30 fyrir hádegi og þeir síðustu
um miðnætti. Þá eru 5 enskumæl-
andi fundir í Reykjavík, og 1 í
Keflavík
Upplýsingar um fundi og fund-
arstaði er hægt að fá á skrifstofu
AA–samtakanna, Tjarnargötu 20,
Reykjavík. Skrifstofan er opin alla
virka daga milli kl. 13 og 17. Síminn
er 551–2010. Einnig hafa AA-sam-
tökin símaþjónustu allan sólahring-
inn og er síminn er 895–1050,“ segir
í fréttatilkynningu.
Afmælisfundur AA-samtak-
anna á föstudaginn langa
KVENFÉLAGIÐ Vinahjálp afhenti
Daufblindrafélagi Íslands styrk 2.
apríl sl. að upphæð kr. 430.000 til
kaupa á Nokia GSM símum með
tónmöskvum og tölvuskjái til
félagsmanna Daufblindrafélagsins.
Vinahjálp er félagsskapur sem
hefur starfað í rúm 40 ár. Megin-
tilgangur félagsins var að stofna til
kynna á milli sendiherrafrúa hér á
landi og íslenskra kvenna. M.a. var
stofnaður bridshópur og sauma-
hópur.
Fjáröflun til góðgerðarmála hef-
ur m.a. einkennt starf Vinahjálpar.
Tekjurnar koma frá saumahóp,
bridshóp, páskahappdrætti ásamt
því að láta hluta aðgangseyris í
bridshóp renna til góðgerð-
arstarfsemi, segir í fréttatilkynn-
ingu.
Styrkur til Daufblindrafélags Íslands
SKÁTAHREYFINGIN hefur nú
dreift litlum íslenskum handfánum
ásamt bæklingi um meðferð íslenska
fánans til allra grunnskólabarna í
landinu í 2. bekk, þ.e. fæddra 1995.
Þetta er sjötta árið í röð sem öllum
börnum í 2. bekk grunnskóla er gefin
fánaveifa. Tíminn er valinn með há-
tíðarhöld Sumardagsins fyrsta í
huga en hefð er fyrir því að börn
mæti til hátíðarhaldanna með fána.
Fánadreifingin er árlegur liður í
fánaverkefni skátahreyfingarinnar
„Íslenska fánann í öndvegi“ sem far-
ið var af stað með á 50 ára lýðveld-
isafmæli Íslands 1994. Á því ári gaf
skátahreyfingin m.a. öllum grunn-
skólabörnum íslenska fánaveifu. Síð-
an þá hefur fjölmargt verið gert til
að gera veg íslenska fánans sem
mestan og uppfræða almenning um
meðhöndlun hans og notkun.
„Þá eru landsmenn hvattir til að
flagga í tilefni páskahátíðarinnar og
eru menn jafnframt minntir á að
Föstudaginn langa er venja að
flagga í hálfa stöng. Og síðan er auð-
vitað sumrinu fagnað með því að
flagga Sumardaginn fyrsta. Að síð-
ustu eru landsmenn hvattir til að
nota fánastangir sínar og öllum er
heimilt að flagga hvenær sem þeim
hentar utan hinna hefðbundnu fána-
daga og auðvitað flöggum við á fögr-
um degi,“ segir í fréttatilkynningu.
Skátar vilja
íslenska fánann
í öndvegi