Morgunblaðið - 17.04.2003, Síða 50

Morgunblaðið - 17.04.2003, Síða 50
ÍÞRÓTTIR 50 A FIMMTUDAGUR 17. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ Opna Scanvermótið mán. 21. apríl Golfklúbbur Grindavíkur 1. sæti 35.000 kr. gjafabréf frá Golfbúðinni í Hafnarfirði. 2. sæti 20.000 kr. gjafabréf frá Golfbúðinni í Hafnarfirði. 3. sæti 15.000 kr. gjafabréf frá Golfbúðinni í Hafnarfirði. 4. sæti 10.000 kr. gjafabréf frá Golfbúðinni í Hafnarfirði. 5. sæti 5.000 kr. gjafabréf frá Golfbúðinni í Hafnarfirði. Næst holu á 4./17. 8.000 kr. gjafabréf frá Golfbúðinni í Hafnarfirði. Næst á 8. holu 8.000 kr. gjafabréf frá Golfbúðinni í Hafnarfirði. Þátttökugjald á lið er aðeins 4.000 kr. Hámarksforgjöf er 24 - Ræst verður út frá kl 8.00 Skráning er á www.golf.is Einnig verður skráning í síma 426 8720 á mótsdegi. Upplýsingar í síma 895 9997. Texas Scramble ÚRSLIT CARL Lewis féll á lyfjaprófum í þrígang árið 1988, segir Wade Ex- um við bandaríska íþróttatímaritið Sports Illustrated en hann hafði yf- irumsjón með lyfjaprófum banda- rískra íþróttamanna á árunum 1991–2000. Lewis var bestu íþrótta- maður á sínu sviði á árunum 1984– 1992 og vann til fjölda verðlauna í spretthlaupum og einnig í lang- stökki. Exum er með skjöl í sínum fórum sem staðfesta að Lewis hafi notað örvandi efni á þessum tíma og bandaríska Ólympíunefndin hafi ætlað að útiloka hann frá keppni á Ólympíuleikunum í Seoul árið 1988. Þar sigraði Lewis í 100 metra hlaupi eftir að Ben Johnson, sem kom fyrstur í mark, varð uppvís að notkun ólöglegra efna. Í skjölunum kemur fram að Lew- is hafi beðið Ólympíunefndina að gefa sér tækifæri á ný þar sem um væri að ræða mistök af hans hálfu. Talsmaður Lewis segir að hann hafi aldrei fallið á lyfjaprófi og ásakanir Exum séu úr lausi lofti gripnar. Exum segir ennfremur að allt að 100 íþróttamenn hafi fallið á lyfjaprófum á þessum tíma án þess að nokkuð hafi verið gert í þeirra málum. Í flestum tilfellum var um að ræða örvandi efni en ekki vaxt- arhormón. Carl Lewis féll á lyfjaprófum JAFNTEFLI varð niðurstaðan í stórslag toppliða ensku úrvals- deildarinnar í knattspyrnu í gær- kvöld en bæði lið skoruðu 2 mörk í leiknum. Ruud Van Nistelrooy kom United yfir í fyrri hálfleik, Ashley Cole virtist vera sá sem jafnaði metin fyrir Arsenal í upphafi þess síðari en knötturinn hafði viðkomu í Thierry Henry – sem fékk markið skráð á sig. Arsenal komast yfir með marki frá Henry á 62. mínútu en Manchester United jafnaði met- in í næstu sókn liðsins er Ryan Giggs skallaði í netið af stuttu færi. Sol Campbell varnarmanni Arsenal var vísað af leikvelli eftir brot á Ola Gunnar Solskjær en Campbell mun missa af fjórum af alls fimm leikjum Arsenal á lokasprettinum. Ryan Giggs leikmaður Man- chester Untied sagði við Sky- sjónvarpsstöðina eftir leikinn að mikið verk væri enn eftir hjá báð- um liðunum á leið þeirra að meist- aratitlinum. „Það eru nokkrir leik- ir eftir og ég er viss um að einhver stig eiga eftir að tapast. Við eigum erfiðan leik gegn Blackburn og þeir eiga að leika gegn Middles- brough á útivelli. Það getur því margt gerst á lokasprettinum,“ segir landsliðsmaðurinn frá Wales en Arsenal á einn leik til góða á Manchester United sem er með þremur stigum meira en meist- aralið sl. árs. Thierry Henry markaskorari Arsenal-liðsins tók upp hanskann fyrir varnarmanninn Sol Campbell sem fékk að líta rauða spjaldið fyr- ir að því er virtist að slá Ola Gunn- ar Solskjær í andlitið. Campbell á yfir höfði sér fjögurra leikja bann. „Sá eini sem virtist sjá eitthvað at- hugavert við þetta var aðstoð- ardómarinn og hann virtist sjá að sér þegar við ræddum við hann eft- ir atvikið,“ sagði Henry sem við- urkenndi að fyrra markið hefði verið heppni en hann var ekki á því að um rangstöðu hefði verið að ræða í því síðara. „Allir leikir sem eru eftir verða bikarúrslitaleikir í okkar augum og það sama gildir um Manchester United en við erum í ágætri stöðu enn þrátt fyrir jafn- teflið,“ sagði Henry. Fjörugt á Highbury KNATTSPYRNA Deildabikarkeppni karla: Fífan: ÍBV - FH..........................................14 Fífan: KR - Keflavík...................................16 Í DAG KNATTSPYRNA Deildabikarkeppni karla: EFRI DEILD, B-riðill: Haukar – Víkingur R............................3:1 Sævar Eyjólfsson 3 – Daníel Hafliðason. Fylkir – Grindavík ................................1:0 Arnar Þór Úlfarsson. Staðan: Grindavík 6 4 1 1 14:4 13 Þróttur R. 6 3 1 2 21:15 10 Víkingur R. 6 3 1 2 10:10 10 Fylkir 6 2 3 1 7:7 9 ÍBV 5 3 0 2 7:4 9 Haukar 6 2 1 3 9:18 7 Valur 6 2 0 4 6:10 6 FH 5 0 1 4 6:13 1 Neðri deild, A-riðill: Fjölnir – Árborg ..................................10:2 England Arsenal – Manchester United................... Staðan: Man. Utd 34 21 8 5 63:31 71 Arsenal 33 20 8 5 69:36 68 Newcastle 33 19 4 10 57:43 61 Chelsea 33 17 9 7 60:32 60 Everton 33 16 8 9 43:38 56 Liverpool 33 15 10 8 49:35 55 Blackburn 33 14 10 9 43:37 52 Tottenham 33 13 8 12 47:47 47 Middlesbro 33 12 10 11 42:35 46 Charlton 33 13 7 13 41:46 46 Southampton 32 11 12 9 35:33 45 Man. City 33 12 6 15 40:51 42 Leeds 33 11 5 17 46:48 38 Aston Villa 33 10 8 15 36:40 38 Fulham 33 10 8 15 35:46 38 Birmingham 33 10 8 15 31:44 38 Bolton 33 8 11 14 36:48 35 West Ham 33 7 11 15 37:56 32 WBA 33 5 6 22 22:52 21 Sunderland 33 4 7 22 20:54 19  Leikir sem eftir eru hjá Arsenal og Manchester United: Arsenal: Middlesb. (Ú), Bolton (Ú), Leeds (H), Southampton (H), Sunderland (Ú). Manchester United: Blackburn (H), Tott- enham (Ú), Charlton (H), Everton (Ú). 1. deild: Derby – Millwall ....................................1:2 2. deild: Peterborough – Cardiff .........................2:0 Ítalía Bikarkeppni, undanúrslit, seinni leikur: Roma – Lazio .........................................1:0 Holland Bikarkeppni, undanúrslit: Feyenoord – Ajax ..................................1:0 Frakkland Deildabikarkeppni, undanúrslit: Marseille – Mónakó ...............................0:1 HANDKNATTLEIKUR Þýskaland Willstätt/Schutterwald – Lemgo ......30:33 Nordhorn – Minden ...........................38:34 Pfullingen – Göppingen .....................26:24 KÖRFUKNATTLEIKUR NBA-deildin Leikir í fyrrinótt: Toronto – Miami ..............................99:103 New York – Indiana ........................93:109 Chicago – Philadelphia ..................115:106 Houston – Memphis...........................97:86 Portland – Phoenix ........................120:102 LA Lakers – Denver......................126:104  VERON mun hefja æfingar með Manchester United í næstu viku og er vonast til þess að hann geti leikið með liðinu síðari leik liðsins gegn Real Madrid í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Real Madrid vann fyrri leik liðana á Spáni, 3:1.  LÖGREGLAN í Toronto í Kan- ada segir að þrír leikmenn NBA- liðsins Milwaukee Bucks séu tengd- ir líkamsárás sem átti sér stað í Toronto. Leikmennirnir eru Jason Caffey, Sam Cassell og Gary Pay- ton.  ALLEN Iverson, leikmaður Philadelphiu 76’ers er í svipaðri að- stöðu en bifreið í hans eigu var not- uð til þess að aka með mann sem hafði særst af völdum byssukúlu sem skotið var fyrir utan nætur- klúbb í borginni. Iverson hefur ver- ið þekktur sem vandræðagemlingur í NBA-deildinni en fékk uppreisn æru á dögunum er hann var valinn í landslið Bandaríkjanna sem stefnir á Ólympíuleikana í Aþenu á næsta ári.  MICHAEL Finley er ekki lengur á lista Dallas Mavericks sem hefur að geyma meidda leikmenn og mun Finley vera klár í slaginn þegar úr- slitakeppnin hefst. FÓLK Fyrsta hrinan var í höndum stúd-enta, þeir náðu 10:1 forystu með miklum krafti án þess að Stjörnumenn vissu hvaðan á sig stóð veðrið. Þrátt fyrir að Garðbæingar tækju sig á dugði það ekki til og ÍS vann 25:15. Heimamenn komu betur undirbúnir í næstu lotu og höfðu forystu framan af en misstu síðan taktinn og forystu til ÍS 17:15 en tókst að snúa blaðinu við á ný og vinna 25:22 svo að staðan var jöfn, 1:1. Þriðja lota var síðan Garðbæinga, sem höfðu forystu þar til yfir lauk, 25:15. Stúdentar bitu duglega frá sér í fjórðu lotu enda ekki seinna vænna. Þeir náðu strax forystu og þó heimamönnum tækist að ná forystu gestanna niður í þrjú stig var lið stúdenta ákveðnara og vann örugglega 25:15. Því varð oddalota og þar þarf að- eins að ná 15 stigum í stað 25 eins og í fyrri lotunum fjórum svo að góð byrjun skiptir miklu máli. Stjarnan komst í 5:1 en gestirnir lögðu samt ekki árar í bát og náðu að saxa for- skotið niður í tvö stig. Hinsvegar er nær dró leikslokum tókst Stjörnu- mönnum að halda gestunum í nokk- urra stiga fjarlægð og gera út um leikinn 15:11. „Við höfum verið lengi í öðru sæti og tími til kominn að vinna, við ákváðum að gera það núna til að taka alla titla,“ sagði Vignir Hlöð- versson þjálfari og fyrirliði Stjörn- unnar eftir leikinn. „Við unnum ÍS í tveimur síðustu leikjum í vetur svo við vissum að við gátum alveg unnið þá nú. ÍS hefur verið með yfirburði undanfarin ár en núna eftir sigur- leikina tvo vorum við líklegir til að vinna.“ Það var samt ekki að sjá í byrjun þegar heimamenn voru ekki sannfærandi, eins og tölur á stiga- töflunni staðfestu. „Við byrjuðum illa í fyrstu hrinu þegar það var eitt- hvað smá stress. Ég tel að við höfum verið þyrstari í sigur og auk þess sterkara lið ef við höfum sjálfir trú á því. Ég var aldrei smeykur um að tapa leiknum niður í úrslitahrinunni. Hún er svo stutt að ef við náum góðu forskoti eru allar líkur á að vinna,“ bætti Vignir við en hann átti góðan leik, spilaði af klókindum og skilaði mörgum stigum. Bróðir hans Ró- bert Hlöðversson var einnig drjúgur og átti marga góða skelli. Stúdentar voru sprækir í byrjun en tókst ekki að fylgja því eftir þeg- ar mótspyrna mótherja þeirra hófst fyrir alvöru. „Það er alltaf svona sveiflur í blaki og mikilvægara að hafa hausinn í lagi en vöðvana,“ sagði Zdravko Demire þjálfari og leikmaður ÍS eftir leikinn. „Varn- arleikur okkar var ekki nógu góður, við erum vanir að loka meira fyrir skot en það gekk illa. Við áttum möguleika á sigri en dómarar gera tvö mistök. Það er mannlegt og við gerðum þau líka svo það var allt í lagi. Það eru að koma nýir menn í liðið og nógur tími til að undirbúa okkur fyrir næsta tímabil, þá tökum við báða bikarana.“ Einar Ásgeirs- son byrjaði vel en fataðist flugið og munar um minna. Davíð Búi Hall- dórsson átti einnig góðan leik. Morgunblaðið/Golli Vignir Hlöðversson, fyrirliði Stjörnunnar, fagnar fyrsta Íslands- meistaratitli Garðabæjarliðsins á hefðbundinn hátt. Stjarnan rauf sigurgöngu ÍS STJARNAN rauf í gærkvöldi þriggja ára sigurgöngu ÍS í blaki eftir æsispennandi fimm lotu leik í Garðabænum og hampaði Íslands- meistaratitli í fyrsta sinn. Garðbæingar voru hikandi í byrjun en náðu sér á strik þar til þeir höfðu unnið oddalotuna 15:11 og leikinn því 3:2. Stjarnan varð einnig deildarmeistari og á eftir úrslitaleik við HK í bikarkeppninni svo Garðbæingar geta unnið þrefalt í ár. Stefán Stefánsson skrifar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.