Morgunblaðið - 24.04.2003, Qupperneq 60
FRÉTTIR
60 FIMMTUDAGUR 24. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ
NEMENDUR grunnskólans í
Fljótshlíð hafa ásamt kennurum
sett upp leiksýningu sem sýnd
verður í dag, sumardaginn fyrsta,
kl. 14 í Goðalandi. Um er að ræða
leikgerð nokkurra valinna kafla úr
Njálssögu, en leikinn sömdu nem-
endur sjálfir í samráði við kennara
skólans. Foreldrar barnanna
saumuðu búninga og smíðuðu leik-
tjöld og leikmuni. Allir nemendur
skólans, 21 talsins, taka þátt í leik-
ritinu.
Foreldrafélagið annast kaffiveit-
ingar að leiksýningu lokinni.
Njáluleik-
sýning nem-
enda Fljóts-
hlíðarskóla
KVENFÉLAGIÐ Vinahjálp afhenti
Daufblindrafélagi Íslands styrk 2.
apríl sl. að upphæð kr. 430.000 til
kaupa á Nokia GSM-símum með
tónmöskvum og tölvuskjái til fé-
lagsmanna Daufblindrafélagsins.
Vinahjálp er félagsskapur sem
hefur starfað í rúm 40 ár. Megin-
tilgangur félagsins var að stofna
til kynna á milli sendiherrafrúa
hér á landi og íslenskra kvenna.
M.a. var stofnaður bridshópur og
saumahópur.
Fjáröflun til góðgerðarmála hef-
ur m.a. einkennt starf Vinahjálpar.
Tekjurnar koma frá saumahóp,
bridshóp og páskahappdrætti
ásamt því að láta hluta aðgangs-
eyris í bridshóp renna til góðgerð-
arstarfsemi, segir í fréttatilkynn-
ingu.
Morgunblaðið/Golli
Frá vinstri: Kristíne Eide, Magnea Waage, Doris Tómasson frá Vinahjálp, Svanhildur Anna Sveinsdóttir, formað-
ur DBFÍ, Sigrún Kristinsdóttir daufblindraráðgjafi og Vala Thoroddsen frá Vinahjálp.
Styrkur til Daufblindrafélags Íslands
HANDBÓK bænda er komin út í 53.
skipti. Handbókin er útbreitt rit á
meðal bænda og annarra sem koma
að landbúnaði og hefur að geyma
ýmsan fróðleik um landbúnaðarmál,
lærðar greinar, uppflettiefni og hand-
hægar upplýsingar.
Bókin í ár er með nokkuð breyttu
sniði þó hún sé í meginatriðum lík
fyrri árgöngum. Sérstakur kafli um
áætlunargerð í landbúnaði er í Hand-
bók bænda í ár.
Meðal annars efnis má nefna um-
fjöllun um heimarafstöðvar, golfvelli
til sveita, viðskiptaáætlanir í landbún-
aði, ýmsa kostnaðarútreikninga, járn-
ingar og hófhirðu og viðhald og
hreinsun vatnsbóla.
Bændasamtökin hafa gert átak í
sölu bókarinnar á síðustu vikum og
hefur áskrifendum fjölgað um tæp
10%. Upplagið er 2.000 eintök en út-
gefendur stefna á enn frekari út-
breiðslu bókarinnar. Höfðað hefur
verið til fjölbreyttari markhópa en áð-
ur. Bókin hefur t.d. sérstaklega verið
kynnt fyrir hestamönnum, skógrækt-
arfólki og aðilum í ferðaþjónustunni.
Handbók bænda fæst í áskrift hjá
Bændasamtökunum og einnig í bóka-
verslunum Pennans – Eymundsson
um land allt, segir í fréttatilkynningu.
Handbók bænda
í nýjum búningi
UNGLIÐAHREYFING Samfylk-
ingarinnar, UJR, hefur sent frá sér
ályktun um æskulýðsmál þar sem
segir meðal annars:
„Ungir jafnaðarmenn í Reykja-
vík, ungliðahreyfing Samfylkingar-
innar, hvetja til þess að lögin um
æskulýðsmál (nr.24 frá 1970) verði
tekin til gagngerrar endurskoðunar
á komandi kjörtímabili. Ljóst er að
núgildandi lög taka alls ekki mið af
hinum miklu breytingum sem orðið
hafa í tómstundamálum ungs fólks á
undanförnum 33 árum.
Frá því að lögin voru sett hafa
verið opnaðar yfir 80 félagsmið-
stöðvar um land allt, þar af 13 í
Reykjavík. Sjö menningarmiðstöðv-
ar eru starfandi og unnið er að
stofnun tíu slíkra miðstöðva til við-
bótar út um landið. Jafnframt hafa
kröfur um fagleg vinnubrögð og
menntun starfsfólks aukist og komið
hefur verið á fót námi í tómstunda-
rfræðum við bæði HÍ og KHÍ. Um
er að ræða afar mikilvægan mála-
flokk en æskulýðsstarfsemi, önnur
en íþróttir, tekur til sín u.þ.b. 7% af
útgjöldum sveitarfélaga og fer þetta
hlutfall sífellt vaxandi.“
UJR vill ný lög um æskulýðsmál
BARNA- og kammerkór Biskups-
tungna gaf nýlega út geisladiskinn
Spjallað við bændur. Á honum er að
finna mörg lög sem fólk á öllum aldri
hefur gaman að, segir í fréttatilkynn-
ingu. Með kórnum á disknum syngja
Sigrún Hjálmtýsdóttir, Diddú og
Valgeir Guðjónsson og ýmsir vinsæl-
ir tónlistarmenn spila undir.
Stjórnandi kórsins er Hilmar Örn
Agnarsson. Á sumardaginn fyrsta,
fimmtudaginn 24. apríl, verða haldn-
ir útgáfutónleikar í Aratungu kl. 15.
Ýmislegt verður til skemmtunar;
kórinn syngur lög af disknum og
Bændabandið spilar, hlutavelta, kaffi
og gómsætar kökur. Aðgangseyrir
og kaffi fyrir fullorðna 2.000 kr. og
fyrir börn á grunnskólaaldri 1.000 kr.
Útgáfutón-
leikar í
Aratungu
2 fyrir
Fljúgðu í vestur!
Nú er tækifærið til að nýta
afar hagstætt gengi dollarans!
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
I
C
E
20
89
3
04
/2
00
3
Freistandi ferðatilboð í maí
Síðasti söludagur 4. maí
til USA
Baltimore
Verð frá 41.520 kr.
Verð á mann
Innifalið: Flug, flugvallaskattar og þjónustugjöld
Boston
Verð frá 39.400 kr.
New York
Verð frá 39.400 kr.
Minneapolis/St. Paul
Verð frá 44.720 kr.
Flugfargjald
Helgarpakkar
Flug og gisting í 3 nætur
Verð á mann í tvíbýli
Innifalið: Flug, flugvallaskattur, þjónustugjöld og gisting
Baltimore
Verð frá 49.920 kr.
á Days Inn Inner Harbor
Boston
Verð frá 49.900 kr.
á Hotel Copley Square
New York
Verð frá 48.700 kr.
á Hotel Cosmopolitan
Minneapolis/St. Paul
Verð frá 49.200 kr.
á Hotel Clarion
Baltimore 2.-6. maí
Verð 45.020 kr. á mann
4 nætur í tvíbýli á Days Inn Inner Harbor
Innifalið: Flug, flugvallaskattar, þjónustugjald og gisting
Sértilboð
New York 10.-14. maí
4 nætur í tvíbýli á Hotel Cosmopolitan
Innifalið: Flug, flugvallaskattar, þjónustugjald og gisting
Verð 44.100 kr. á mann
Sértilboð
Ferðatímabil: 1. maí - 2. júní (síðasta heimkoma).
Sölutímabil: 21. apríl - 4. maí.
Tilgreint verð er með afslætti.
Tveir verða að ferðast saman fram og tilbaka.
Í auglýstu verði er m.v. lágmarksdvöl aðfaranótt
sunnudags og hámarksdvöl í 4 daga.
Einnig í boði önnur flugfargjöld, 2 fyrir 1, með
rýmri skilyrðum um hámarksdvöl.
Þessi tilboð gefa 4.200-5.000 ferðapunkta
Sjá nánari upplýsingar um hótel á
www.icelandair.is/usa
Hafið samband við söluskrifstofur Icelandair eða í fjarsölu
Icelandair í síma 50 50 100 (svarað mánud. - föstud. kl. 8-
20, laugard. frá kl. 9-17 og á sunnud. frá kl. 10 - 16).
Icelandair tekur við ferðaávísun MasterCard
og orlofs ávísunum VR í pakkaferðir.
VR orlofsávísun
Munið ferða-
ávísunina