Morgunblaðið - 27.04.2003, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 27.04.2003, Qupperneq 4
FRÉTTIR 4 SUNNUDAGUR 27. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ Netsalan ehf., Garðatorgi 3, 210 Garðabæ Sími 565 6241, 544 4210 - fax 544 4211, netf.: netsalan@itn.is Heimasíða: www.itn.is/netsalan. Opið á virkum dögum frá kl. 10–18. Opið í dag, sunnudag frá kl. 11-16 McLOUIS HÚSBÍLAR Fyrsta sending UPPSELD - önnur á leiðinni SÖLU- OG KYNNINGARSÝNING Innifalið í verði 100.000 kr. úttektarávísun í nýrri verslun sem verður opnuð í maí. Fellihýsin eru tilbúin á götuna með bremsubúnaði. Takmarkað magn. Til afgreiðslu strax Epic 1906 9 fet. Verð kr. 798.000 *himinn fylgir ekki STÓRTILBOÐ VIKING FELLIHÝSI SÍÐASTI DAGUR! * SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN mælist með mest fylgi stjórnmála- flokkanna eða 34,6% og fengi 23 þing- menn skv. niðurstöðum fylgiskönn- unar sem Fréttablaðið birti í gær. Samfylkingin mælist með 32,9% fylgi í könnuninni og fengi 21 þing- mann. Framsóknarflokkurinn nýtur stuðnings 12,8% kjósenda skv. könn- uninni og fengi átta þingmenn, Vinstrihreyfingin – grænt framboð mælist með 7% fylgi og fengi fjóra þingmenn. Frjálslyndi flokkurinn mælist nú þriðji stærsti flokkurinn með 11,1% fylgi, og fengi sjö þing- menn skv. könnuninni. T-listi Krist- jáns Pálssonar mælist með 1% fylgi á landsvísu og nær ekki kjörnum manni í Suðurkjördæmi skv. könnun- inni og Nýtt afl mælist með 0,5% fylgi. Könnunin var gerð sl. fimmtudag. Í úrtaki voru 1.200 manns og tóku 76% aðspurðra afstöðu. Sjálfstæðisflokkur mælist stærstur SÝSLUMAÐURINN á Seyðisfirði telur ekki þörf á að fjölga í föstu starfsliði embættisins eingöngu vegna þess að ný og stærri Norræna hefur verið tekin í notkun. Hann hefur óskað eftir því á fjárlögum að bætt verði við tveimur stöðugildum lögreglu- manna vegna umsvifanna við Kárahnjúkavirkjun og álver og segir að þeir menn muni einnig nýtast við eft- irlit með farmi og farþegum ferj- unnar. Gert er ráð fyrir að um 25.000 manns komi með Norrænu til lands- ins á þessu ári, helmingi fleiri en í fyrra. Nýja ferjan, sem kom í jómfrúarferð til Seyðisfjarðar á þriðjudag, er tvöfalt stærri en gamla ferjan og tekur hátt í 500 fleiri farþega. Reglubundnar sigl- ingar hingað hefjast 15. maí. Lárus Bjarnason, sýslumaður á Seyðisfirði, segir að lögregla og toll- gæsla muni bregðast jafnóðum við hugsanlegri fjölgun farþega. Eftirlit við ferjuna hafi verið miðað við fjölda farþega og þannig verði það áfram. Sjö lögreglumenn eru fastráðnir við embættið, þar af einn á Vopna- firði, auk tollvarðar. Þá er hægt að kalla til þrjá héraðslögreglumenn og starfsmenn á sýsluskrifstofunni hafa einnig sinnt eftirliti. Einnig hefur alþjóðadeild ríkislögreglu- stjóra veitt embættinu aðstoð auk þess sem tollverðir frá tollstjóran- um í Reykjavík hafi komið austur með fíkniefnaleitarhund, nánast í hverri siglingu ferjunnar. Ferjur eru erfiðar til tollleitar og að mörgu leyti eru bifreiðar hent- ugar til smygls, m.a. vegna þess að smyglarinn hefur nægan tíma til að koma varningi fyrir í bílnum. Að- spurður segir Lárus að tolleftirlit verði með svipuðum hætti og verið hefur. Reynt sé eftir mætti að fletta ofan af smygli. Lárus hefur sótt um að á fjárlögum 2004 verði gert ráð fyrir tveimur lögreglu- mönnum til viðbótar við embættið vegna aukinna umsvifa í tengslum við Kárahnjúkavirkjun. Hann minnir ennfremur á að eft- irlit með millilandaflugi og vopnaleit á Egilsstaðaflug- velli sé á könnu embættisins en fyrirsjáanlegt sé að flug þangað muni aukast vegna virkjunarframkvæmdanna. Hefur óskað eftir að fá yfirlögregluþjón Fyrir komandi sumar hefur rík- islögreglustjóri gefið vilyrði um að fleiri sumarafleysingamenn verði ráðnir en venja hefur verið til. Ekki er þó brugðist jafnvel við öllum beiðnum. Lárus segir að ítrekað hafi verið óskað eftir því að yfirlögreglu- þjónn verði ráðinn til embættisins en án árangurs. Það sé í sjálfu sér rannsóknarefni hvers vegna leyfi hafi ekki fengist, embætti sem séu sambærileg að stærð hafi yfirlög- regluþjón án þess að þurfa að fást við eftirlit með millilandaflugi og -siglingum. Brugðist verður jafn- óðum við fjölgun farþega Sýslumaðurinn á Seyðisfirði um nýja og stærri Norrænu Morgunblaðið/Pétur Kristjánsson ÞRÁTT fyrir að Andrésar Andar leikunum á skíðum hafi verið aflýst vegna snjóleysis í Hlíðarfjalli, hélt hópur barna úr skíðadeild Víkings, foreldrar og systkini sínu striki og fjölmenntu til Akureyrar. Alls fóru á annað hundrað Víkingar norður og komu þeir flestir til bæjarins á miðvikudag og halda heim á leið í dag. Hópurinn gerði sér ýmislegt til skemmtunar og í fyrradag var haldið til Hríseyjar. Það var því líf og fjör í eynni og ekki annað að sjá en að allir skemmtu sér vel þrátt fyrir snjóleysið.Morgunblaðið/KristjánKrakkarnir úr skíðadeild Víkings brostu út að eyrum á bryggjunni í Hrísey í gær og skemmtu sér greinilega vel. Víkingar héldu sínu striki SÓLVEIG Pétursdóttir, dóms- og kirkjumálaráðherra, segir vilja rík- isins standa til þess að þjóðkirkjan verði formlegur eigandi að prests- setrum og prestssetursjörðum en deilt sé um þá fjárhæð sem ríkið ætti að leggja kirkjunni til vegna fyrri tíma. Hún segist vongóð um að samningar náist milli ríkis og þjóð- kirkju um málið en viðræður geti þó tekið tíma. Í Morgunblaðinu í gær var greint frá gagnrýni sr. Halldórs Gunnars- sonar, sóknarprests í Holti, sem sit- ur í samninganefnd kirkjunnar um kirkjueignir. Benti hann á að þó að samningar hefðu náðst um kirkju- jarðir árið 1997 stæði eftir að semja um prestssetrin sjálf og ekkert ræki í þeim viðræðum við ríkið. Sólveig segir rétt að síðastliðið haust hafi slitnað upp úr viðræðum um stöðu prestssetra en hún sé von- góð um að viðræður verði teknar upp aftur. Ný samninganefnd, sem biskup Íslands veiti forstöðu, hafi verið valin af hálfu kirkjunnar en þrjú ráðuneyti, forsætis-, fjármála- og dóms- og kirkjumálaráðuneyti, sinni málinu fyrir hönd ríkisins. „Það stendur vilji til þess af hálfu ríkisins að þjóðkirkjan verði form- legur eigandi en ekki aðeins um- ráðandi að þessum prestssetrum og prestssetursjörðum sem eru um 80 talsins,“ segir Sólveig. „Aðalágrein- ingurinn hefur staðið um þá fjárhæð sem ríkið ætti að leggja kirkjunni til vegna eldri tíma. Þess utan voru ör- fá önnur atriði sem ekki var búið að finna lausn á, s.s. um stöðu Þing- valla, en byggingaráform á þessum sögufræga stað nærri núverandi kirkju eru viðkvæm og vandmeðfar- in.“ Skiptar skoðanir á uppgjöri og bótum Hún segir ýmislegt þurfa að skoða sérstaklega í þessu sambandi, m.a. hvernig eigi að afmarka prestsset- ursjarðirnar, hvaða hlunnindi fylgi þeim o.s.frv. og það taki sinn tíma. Hins vegar sé fullur vilji af hálfu rík- isins til að finna lausn á málinu. Í Morgunblaðinu í gær sagði Hall- dór að ríkið hefði selt fjölda jarða sem voru eign þjóðkirkjunnar án þess að hafa haft til þess heimild. Innt eftir þessu segir Sólveig að landbúnaðarráðuneytið hafi á sínum tíma farið með umsjón sumra jarðanna. „Í dag eru skiptar skoð- anir á uppgjöri og bótum fyrir þess- ar jarðir og rétt ríkisins til að ráð- stafa þessum landareignum á sínum tíma. Með samningum milli kirkj- unnar og ríkisins um kirkjujarðir fékk þjóðkirkjan yfirráð yfir þeim en getur þó ekki selt þær án sam- þykkis Alþingis. Þetta eru flókin mál sem munu verða hluti af þeim samn- ingaviðræðum sem vafalaust verða teknar upp fljótlega aftur,“ segir hún. Dóms- og kirkjumálaráðherra segir fullan vilja hjá ríkinu til að taka á ný upp viðræður við þjóðkirkjuna Kirkjan verði formlegur eigandi prestssetra FRAMKVÆMDIR eru nú hafnar hjá Loftorku í Borgarnesi við stækk- un verksmiðju fyrirtækisins um helming eða í 5.000 fm. Loftorka Borgarnesi ehf. er alhliða verktaka- fyrirtæki á sviði byggingamann- virkja og sérhæfir sig í framleiðslu á forsteyptum hlutum úr steinsteypu, steinsteyptum einingum til húsbygg- inga og steinrörum í holræsi. Reiknað er með að verksmiðjan verði tilbúin í ágúst og nú þegar hafa fyrstu pantanir borist frá Vegagerð- inni sem ætlar að nota þessi stóru rör í Kolgrafarfjörð. Jafnframt hefur Loftorka framleiðslu á forspenntum plötum sem eru kallaðar holplötur. Starfsmenn eru nú 70 og fer fjölg- andi. Verksmiðjan stækkuð Borgarnesi. Morgunblaðið. Morgunblaðið/Guðrún Vala
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.