Morgunblaðið - 27.04.2003, Qupperneq 24
24 SUNNUDAGUR 27. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ
eru 24 rúma deildir en í dag er önnur
deildin með 24 rúm opin og er
meðalaldur sjúklinganna þar 50 ár.
Hin deildin er með 14 rúm opin og er
sú deild eingöngu ætluð sjúklingum
með taugasjúkdóma og á henni er
meðalaldurinn 65 ár. „Flestir sjúk-
linganna á þeirri deild hafa fengið
heilablóðfall,“ segir Þórdís.
Deildirnar eru báðar sjö og fimm
daga deildir en hluti af endurhæf-
ingunni felst í að sjúklingarnir
treysti sér og geti sem fyrst dvalist
heima í eigin umhverfi. Á báðum
deildunum eru einnig dagsjúklingar.
Þverfagleg meðferð
Þórdís segir að áhersla sé lögð á
þverfaglega meðferð sjúklinganna
og er teymisvinna stór þáttur í með-
ferðinni. Í hverju teymi er læknir,
hjúkrunarfræðingur, sjúkra- og
iðjuþjálfi, félagsfræðingur og tal-
meinafræðingur, allt eftir þörfum
sjúklingsins.
„Það er mjög sterk hefð fyrir
teymisvinnu á endurhæfingardeild-
unum,“ segir Þórdís. „Í þeirri vinnu
er áhersla lögð á virka þátttöku
sjúklingsins og fjölskyldu hans og
hefur sérstakur teymisstjóri verið
ráðinn, sem heldur utan um þá
vinnu.“
Við komuna á Grensás taka lækn-
ir og umsjónarhjúkrunarfræðingur
á móti sjúklingnum. Farið er yfir
sjúkrasöguna með öðru fagfólki,
sem setur saman stundaskrá sjúk-
lingsins. Að viku liðinni eru mark-
mið næstu vikna eða langtímamark-
mið sett fram. Meðferðin er
endurmetin á tveggja til þriggja
vikna fresti eða eftir þörfum. Jafn-
framt eru haldnir fjölskyldufundir
eða fjölskyldudagar eftir þörfum en
oftast eru þeir haldnir þegar búið er
að móta heildarmeðferðina.
„Það er farið mjög markvisst yfir
meðferð sjúklingsins og séð til þess
að hann og þeir sem vinna með hon-
um keppi að sama marki,“ segir Þór-
dís.
Aðlagast í skjóli deildarinnar
Hún segir að fram hafi komið ósk
um að komið verði upp áfangaíbúð í
nágrenni Grensásdeildar. Þar gæti
sjúklingurinn og hans fjölskylda
dvalist um tíma og aðlagast breytt-
um aðstæðum í skjóli deildarinnar.
Þórdís segir að starfsmenn voni að
leyfi fáist fljótlega til að reka báðar
legudeildir Grensáss að fullu og að
jafnframt verði komið upp dagdeild
og öflugri göngudeild. Benti hún á
að 20 til 30 sjúklingar biðu að jafnaði
eftir að komast í meðferð. „Síðastlið-
inn vetur vann þverfaglegur hópur
starfsmanna ásamt innanhússarki-
tekt spítalans við að endurskipu-
leggja húsnæðið þannig að það nýtt-
ist sem best fyrir sjúklinga,
aðstandendur og starfsfólk,“ segir
Þórdís. „Vonandi verður hægt að
fara í þessar framkvæmdir á næsta
ári.“
Rúnar Björn Þorkelsson í þjálfun hjá Sólrúnu Sverrisdóttur sjúkraþjálfara, Önnu Björgu Kristbjörns-
dóttur aðstoðarkonu og Sigrúnu Knútsdóttur sjúkraþjálfara.
Þórunn Kristín Emilsdóttir ræðir við Sigþrúði Loftsdóttur og Eddu Valtýsdóttur iðjuþjálfa, en Sigurrós
M. Sigurðardóttir og Ingibjörg Ólafsdóttir baka í eldhúsi, sérhönnuðu fyrir fólk með skerta hreyfigetu.
Erla Þórólfsdóttir á leið í ökumat ásamt Guðbrandi Bogasyni ökukennara og
iðjuþjálfa.krgu@mbl.is
F R U M S
Nýr AVENSIS verður frumsýndur í sýningar -
sölum Toyota á Akureyri, Selfossi og í
Reykjanesbæ laugard. 26 apríl frá kl.12.00-
16.00 og sunnud. 27. apríl frá kl.13.00-16.00.
Nýr AVENSIS nýtur þess að vera af sterkum
stofni, hlaðinn fullkomnustu tækni frá Toyota.
Þú upplifir nýja fjöðrun og meira akstursöryggi,
öflugri og vandaðri vél og mun meiri munað
í allri innréttingu. Nýr AVENSIS er bæði
liprari og sterkari en áður og útlits hönnunin
er kraftmikil og fjaður mögnuð. Nýr Avensis
var kjörinn besti bíllinn í sínum flokki af hinu
kröfuharða bílatímiriti What Car í Bretlandi.
Vertu því viðbúin að allar þínar væntingar
verði uppfylltar. Það eru mörg einstök atriði
sem gera nýjan AVENSIS að fullkominni
gæðabifreið: sjálfvirkur regn skynjari á
þurrkum, tölvustýrð loftræsting í miðstöð,
klemmuvörn í rúðum, hágæða hljóm flutnings -
tækni og einn fullkomnasti fjöðrunar -,
hemlunar- og öryggisbúnaður sem fyrirfinnst
eru aðeins nokkur dæmi um þessi atriði.
Komdu og prófaðu. Komdu og upplifðu
nýjan AVENSIS. www.toyota.is
NÝR AVENSIS - Sannkallað meistaraverk