Morgunblaðið - 27.04.2003, Page 27
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27. APRÍL 2003 27
SÖNGHÓPURINN Voces Thules
og Björn Steinar Sólbergsson org-
anisti halda tónleika í Hallgríms-
kirkju á vegum Listvinafélags kirkj-
unnar í dag kl. 17, en yfirskrift
tónleikanna er „Lofað veri ljósið“.
Efnisskráin spannar átta aldir, frá
Leonin til Duruflé.
„Elsta verkið á efnisskránni er
Boðun Maríu eftir franska miðalda-
tónskáldið Leonin. Við erum að vissu
leyti að hugsa þessa tónleika sem óð
til upprisu vorsins og birtunnar –
sérstaklega í ljósi ástandsins í heim-
inum í dag,“ segir Sverrir Guðjóns-
son, einn meðlima Voces Thules.
Hann segir öll verkin á efnis-
skránni tengjast gregorsöng að ein-
hverju leyti, en aðalviðfangsefni tón-
leikanna er Missa cum jubilo op. 11
eftir Maurice Duruflé, sem er byggð
á sálmi til heiðurs Maríu guðsmóður.
Duruflé samdi verkið árið 1966 fyrir
baritón, einradda karlakór og hljóm-
sveit og umritaði einnig hljómsveit-
arþáttinn fyrir orgel. Björn Steinar
Sólbergsson organisti leikur því með
sönghópnum í verkinu. „Duruflé set-
ur gregorsönginn, þennan gamla
munkasöng, inn í verk sitt, Missa
cum jubilo, en verkið tileinkar hann
konu sinni. Hann tekur alla messu-
þættina að Credo undanskildu og
tvinnar mjög fallega saman orgel og
raddir. Samstarf okkar í Voces Thul-
es við Björn Steinar er því mjög
ánægjulegt fyrir okkur.“
Voces Thules-sönghópurinn hefur
sérhæft sig í miðaldatónlist og í
auknum mæli lagt áherslu á „týnda“
íslenska tónlist úr handritum, að
sögn Sverris. „Með hjálp góðra
manna erum við að finna tónlist í
gömlum handritum og setja hana
smám saman inn í efnisskrá okkar.
Þetta hefur spurst út fyrir landstein-
ana og við höfum fengið boð frá virt-
um tónlistarhátíðum erlendis vegna
þessa, en áhugi þeirra beinist fyrst
og fremst að þessari íslensku mið-
aldamúsík. Ég tel að margir Íslend-
ingar hafi ekki áttað sig á því að þar
er falinn mikill fjársjóður,“ segir
hann. Hópurinn mun flytja eitt ís-
lenskt miðaldaverk á tónleikunum í
Hallgrímskirkju í dag sem nefnist
Stabat mater. „Þetta verk tengist
líka Maríu guðsmóður, en það lýsir
því þegar hún stendur við krossinn á
Dolorosa-hæð. Verkið er úr gömlu
íslensku handriti og er útfært í þess-
um gamla fimmundastíl, sem þykir
mjög stérstakur og hefur greinilega
einangrast bæði hér og á eyjunum í
kringum Skotland.“
Sönghópurinn Voces Thules er
skipaður fimm karlsöngvurum.
Hann hefur sérhæft sig í flutningi
miðaldatónlistar og hafa virtar tón-
listarstofnanir boðið honum að halda
tónleika þar sem íslensk miðaldatón-
list er í öndvegi. Hópurinn hefur m.a.
komið fram á Listahátíðinni í Bergen
og hinni virtu tónlistarhátíð „Ut-
recht Early Music Festival“. Að und-
anförnu hefur Voces Thules unnið að
umfangsmiklum hljóðritunum á Þor-
lákstíðum til útgáfu á hljómdiskum.
Björn Steinar Sólbergsson hefur
verið organisti Akureyrarkirkju síð-
an 1986. Hann stundaði framhalds-
nám í orgelleik á Ítalíu og í Frakk-
landi þar sem hann útskrifaðist með
einleikarapróf í orgelleik (Prix de
virtuosité) árið 1986. Hann hefur
verið mjög virkur í tónlistarlífinu á
Akureyri og unnið að uppbyggingu
tónlistarlífs við Akureyrarkirkju.
Hann hefur haldið fjölda einleikstón-
leika hér heima og erlendis.
Morgunblaðið/Sverrir
Sönghópurinn Voces Thules heldur tónleika ásamt Birni Steinari Sólbergs-
syni organista í Hallgrímskirkju kl. 17 í dag á vegum Listvinafélagsins.
Óður til upprisu vorsins