Morgunblaðið - 27.04.2003, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 27.04.2003, Blaðsíða 36
UMRÆÐAN 36 SUNNUDAGUR 27. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði   Magnús Emilsson löggiltur fasteignasala LÆKJARBERG - EINB. - HF. Nýkomið í einkasölu glæsilegt nýlegt pallbyggt einbýli með innbyggðum rúmgóðum bílskúr, sam- tals 301 fm. Arinn í stofu, sólskáli, glæsilegt nýtt eldhús og baðherbergi, glæsilegur verðlaunagarð- ur, góð staðsetning. Verð 35 millj. KIRKJULUNDUR - 3JA - GBÆ Nýkomin í einkasölu glæsileg ca 100 fm endaíbúð á neðri hæð í 2ja hæða húsi. Parket, sérinngangur og sérgarður. Stutt í alla þjónustu. Bílskýli. Verðtilboð. 92575 GOÐASALIR - KÓPAV. - PARH. Nýkomið í einkasölu glæsilegt tvílyft par- hús með innbyggðum bílskúr, samtals ca 185 fm. Sérsmíðaðar vandaðar innrétting- ar, parket, náttúruflísar á gólfum, suð- ursvalir. Frábært útsýni og staðsetning. Áhv. húsbréf. Verð 24,5 millj. Borgartúni 22, 105 Reykjavík, sími 5-900-800. Sumarbústaður í landi Kiðjabergs Ólafur B. Blöndal, löggiltur fasteignasali Vorum að fá í sölu vandaðan 58 fm bústað í landi byggingameist- ara við Kiðjaberg í Grímsnesinu. Um er að ræða fullbúið hús, 58 fm að grunnfleti ásamt ca 25 fm rislofti. Húsið stendur á 1 ha leigulóð með fallegu útsýni yfir Hvítá og víðar. Verönd er 60-70 fm. Rennandi vatn, rafmagn o.fl. Stutt á hinn vel þekkta og fal- lega golfvöll í landi Kiðjabergs. Verð 10,0 millj. Góð kjör. Uppl. á fasteign.is eða hjá Jóni í síma 6-900-505. Ingólfur G. Gissurarson, logg. fast. - www.valholl.is - Opið virka daga frá kl. 9-17.30. 250 fm skrifstofur, 5 hæð. Einstakt tækifæri. Glæsilegar fullbúnar skrifstofur við Reykjavíkurhöfn. Frábært útsýni, allt nýtt, nýtt parket, eldhús, gardínur, tölvulagnir og fl. Laust strax. Uppl. veitir Magnús Gunnarsson, s. 588 4477 eða 822 8242. Tryggvagata - 101 Rvík TIL LEIGU VORIÐ 2000 gengu í gildi ný lög um fæðingar- og foreldraorlof á Íslandi. Með lögunum var stigið stærsta skref í jafnréttisbaráttu kynjanna sem stigið hefur verið frá því að konur fengu kosninga- rétt árið 1915. Góð reynsla Fæðingarorlofslögin fólu í sér lengingu fæðingarorlofs úr sex mánuðum í níu mánuði og fá for- eldrar greidd 80% af launum sín- um. Konur og karlar eiga nú orðið sama rétt til fæðingarorlofs og hefur reynsla síðustu þriggja ára verið sú að vel yfir 80% karlmanna nýta sér rétt sinn til fæðingaror- lofs. Með lögunum er hlúð að ís- lenskum barnafjölskyldum og loks- ins er viðurkennt að karlmenn eru líka foreldri og atvinnulífið verður að taka tillit til þess. Draga úr launamun kynjanna Um leið hafa lögin í för með sér að konur og karlar verða jafn- verðmætir starfskraftar á vinnu- markaðnum. Fram að þessu hafa margir vinnuveitendur litið á kon- ur sem kostnaðarsaman starfs- kraft þar sem þær hafa þurft að vera miklu meira frá vinnu en karlar vegna barneigna. Afleiðing- in hefur verið sú að konur hafa orðið að krefjast lægri launa en karlar til að fá vinnuna og hafa ekki verið í eins góðri aðstöðu til að krefjast launahækkunar. Fæð- ingarorlofslögin muni efalítið draga verulega úr þessum óút- skýrða launamun kynjanna þar sem sá þáttur sem brotthvarf kvenna á vinnumarkaði umfram karla vegna barneigna mun minnka stórlega. Sömu sjónarmið eiga við um framgang kvenna á vinnumarkaði. Það er orðið löngu tímabært að útrýma launamun kynjanna og með setningu fæðingarorlofslag- anna var stigið afar mikilvægt skref í þá átt. Jafnrétti í verki Þrátt fyrir að Ísland sé án efa eitt af þeim löndum í heiminum þar sem jafnrétti kvenna og karla er komið hvað lengst er enn nokk- uð í land til að fullkomið jafnrétti náist. Með fæðingarorlofslögunum tryggði ríkisstjórn Davíðs Odds- sonar foreldrum og verðandi for- eldrum þessa lands rétt til besta fæðingarorlofs sem til er í heim- inum. Með lögunum sýndi Sjálf- stæðisflokkurinn að hann er flokk- ur sem lætur sig jafnréttis- og fjölskyldumál varða og tekur á málunum með verkum en ekki bara orðum. Þetta vita konur sem standa loksins jafnfætis karlmönn- um á vinnumarkaði og feður sem fá loksins að njóta þess að fylgjast með nýfæddum börnum sínum fyrstu mánuðina. Besta fæðing- arorlof í heimi Eftir Margréti Einarsdóttur „Fæðingar- orlofslögin muni efalítið draga veru- lega úr þess- um óútskýrða launa- mun kynjanna.“ Höfundur er lögfræðingur. SKORTUR á fagmennsku hefur einkennt störf Halldórs Ásgrímsson- ar utanríkisráðherra. Á yfirstand- andi kjörtímabili var breytt reglum um stjórnsýslu ráðuneyta sem var til þess að allir alþjóðasamningar sem undirritaðir eru fyrir Íslands hönd heyra nú undir hann. Þar með eru samningar á málasviði fagráðuneyta settir undir geðþóttavald hans. Hann getur slegið á frest að lögfesta samninga eins og Árósasamninginn um umhverfismál, upplýsingaskyldu og þátttöku almennings í ákvörðun- artöku eða með öllu hunsað samn- inga hagsmunaaðila eins og um lax- averndunarsamning NASCO. Á þingi Framsóknarflokksins sem haldið var nýlega var sitthvað tínt til sem ráðherrar flokksins gátu státað af í þjóðmálum. Hugur virðist þó ekki fylgja máli. Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra taldi sér t.d. það til ágætis að hafa stutt framgang laga um samkeppnismál. Á sama tíma var úrskurðað að fyr- irtæki sem heyrir beint undir ráð- herrann, Flugstöð Leifs Eiríkssonar hf. (FLE), hefði brotið gegn sam- keppnislögum á fjölmörgum sviðum viðskipta. Í kjölfarið héldu fulltrúar ráðherrans því síðan blákalt fram í greinargerðum að aðgerðir hans væru yfir samkeppnislög hafnar. Þegar Alþingi setti lögin um FLE vöruðu hagsmunaaðilar ráðherrann hvað eftir annað við því að aðferða- fræði hans væri ófagleg og andstæð markmiðum samkeppnislaga. For- maður vinstrigrænna var sama sinn- is. Ráðherra taldi sig þrátt fyrir það geta veitt stjórnarmönnum FLE heimild til að mismuna rekstrarað- ilum í flugstöðinni, og í þessu tilfelli að verðlauna erlenda framleiðslu með viðskiptatækifærum á kostnað innlendrar. Hagsmunaaðilar hafa síðan marg- oft bent utanríkisráðherra á að hann fari villur vegar og sýnt honum fram á mistök stjórnarmanna FLE. Úr- skurður Samkeppnisráðs var skýr og FLE er þar talin hafa misbeitt markaðsráðandi stöðu sinni. Á nýlegum aðalfundi FLE hafði Halldór Ásgrímsson tækifæri til að breyta um stefnu, fara að lögum og skipa nýja stjórnarmenn, fagmenn í viðskiptum eins og algengt er orðið hér á landi þegar siðferðisreglur og viðskiptalög eru brotin. Þess í stað leggur hann blessun sína yfir mis- tökin og verðlaunar stjórnarmenn með áframhaldandi stjórnarsetu. Áfrýjunarnefnd samkeppnismála hefur nú kveðið upp þann dóm að fyrri úrskurður Samkeppnisráðs skuli standa. Eftir stendur ráð- herrann berskjaldaður og allir við- komandi verða fyrir tjóni, ekki síst flugstöðin á Keflavíkurflugvelli sem verður að þola enn einn ímyndar- skellinn. Utanríkisráðuneytið hefur litla fagþekkingu á umhverfismálum, samgöngumálum og verslunar- rekstri og á ekkert endilega að hafa hana. Í stjórnartíð sinni hefur utan- ríkisráðherra gengið enn lengra út af braut fagmennskunar en áður hef- ur þekkst. Utanríkisráðuneytið á að hætta að stunda ferðaþjónustu, hætta að ráðskast með smásölu- rekstur, sölur útflutningsvara og laxveiðimál svo tekin séu fáein dæmi sem ráðherra utanríkismála hefur verið með fingurna í – illu heilli. Ráðherra fagleysis Eftir Orra Vigfússon Höfundur er framkvæmdastjóri Sprota sem fyrir hönd fjárfesta keypti hlut ríkisins í Íslenskum markaði af framkvæmdanefnd um einkavæðingu á Íslandi. Hann er jafnframt varaformaður stjórnar Íslensks markaðar hf. „Utanríkis- ráðuneytið hefur litla fagþekkingu á umhverf- ismálum, samgöngu- málum og verslunar- rekstri og á ekkert endilega að hafa hana.“ Steypusögun Vegg- og gólfsögun Múrbrot Vikursögun Malbiksögun Kjarnaborun Loftræsti- og lagnagöt Hreinlæti og snyrtimennska í umgengni BT-SÖGUN Sími 567 7544 • Gsm 892 7544 Mörkinni 3, sími 588 0640. Opið mán-fös kl.11-18 - lau kl. 11-15 Brúðkaupsgjafir Br úð ar gj af al is ta r
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.