Morgunblaðið - 27.04.2003, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 27.04.2003, Blaðsíða 38
UMRÆÐAN 38 SUNNUDAGUR 27. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ Kaffihús á Laugavegi til sölu Nýlegt huggulegt og smekklega innréttað með fullt vínveitingaleyfi. Sæti fyrir 35. Kaffi, kökur, brauð, Crepes, smáréttir, öl og sterkir drykkir. Verð aðeins 6 millj. Skipti möguleg. Sími 588 5160 Til leigu mjög gott 100 til 400 fm verslunarhúsnæði á jarðhæð með stórum verslunargluggum og innkeyrsludyrum í sama húsi og höfuð- stöðvar Sparisjóðs Kópavogs. Hægt er að leigja húsnæðið í einingum frá um 100 fm. Húsið er frábærlega staðsett og hefur húsnæðið mikið auglýsingagildi frá Reykjanesbraut. Suðurlandsbraut 54, við Faxafen, 108 Reykjavík. Sími 568 2444, fax 568 2446. Ingileifur Einarsson lögg. fasteignasali. HLÍÐASMÁRI 19 - TIL LEIGU GRENSÁSSVEGUR TIL LEIGU Einstakt tækifæri. Til leigu jarðhæðin í þessu vandaða glæsilega húsi samt. 130 fm. Ein besta staðsetning sem völ er á, mjög góða aðkoma, næg bílastæði. Mögulegt er merkja húsið áberandi að utan. Upplýsingar veitir Magnús Gunnarsson í s. 588 4477 eða 822 8242 Ingólfur G. Gissurarson, logg. fast. www.valholl.is - Opið virka daga frá kl. 9-17.30. Jörðin er í Haukadal í Dalasýslu og er í u.þ.b. 150 km fjarlægð frá Reykjavík. Landið er rúmlega 800 hektarar að stærð (öll jörðin er ca 1.618 ha). Engin hús fylgja þessum helmingi jarðarinnar, en rækt- uð tún tilheyrandi eigninni eru ca 5-10 ha. Þarna er mjög gott rjúpnaland, berjaland og fjallagrös, einnig er þarna ákjósanlegt land fyrir sumarbústaði. Tilboð óskast. Uppl. gefur Melkorka, umboðsmaður Hóls í Dalasýslu, í símum 434 1223 og 869 9265. Óskað eftir tilboði í lóð og bygg- ingarrétt. Það liggur fyrir leyfi um að byggja ca 580 fm húsnæði á lóðinni og fylgja tryggingabætur lóðinni að upphæð 51 millj. Allar nánari uppl. eru veittar á fasteignasölunni Hóli, sími 595 9000. Hálf jörðin SMYRLHÓLL í Dalabyggð er til sölu Byggingaverktakar Laugavegur 40 Skúlagata 17, Rvík  595 9000 Hlíðasmári 15, Kóp.  595 9090 holl@holl.is • www.holl.is Opið virka daga kl. 9-18, laugard. kl. 12-14. Hlíðasmári 1-3 Til leigu/sölu Stórglæsilegt verslunar- og skrifstofuhúsnæði á besta stað í Smáranum í Kópavogi. Um er að ræða allt að 8.000 fm. Hvort hús um sig ca 4.000 fm. Möguleiki á að skipta í minni einingar. Næg bílastæði. Frábært útsýni. Sér- lega vönduð og fullbúin sameign. Allar nánari uppl. gefur Andres Pétur eða Ellert Bragi á skrifstofu. Borgartúni 22, 105 Reykjavík, sími 5-900-800. Opið hús í dag - Bárugata 17, neðri hæð og rými í kjallara Ólafur B. Blöndal, löggiltur fasteignasali Vorum að fá í sölu 106 fm neðri hæð í þessu reisulega húsi ásamt ca 50 fm rými í kjallara og 37 fm bílskúr. Hæðin er í ágætu standi en þarfnast standsetningar að hluta. Rýmið í kjallaranum er að hluta með aðgangi að sameign en um er að ræða 3 góð sérherbergi sem í dag eru nýtt sem íbúð. Verð 19,5 millj. Guðrún sýnir eignina í dag á milli kl. 15 og 17. ÞAÐ hefur vakið verðskuldaða at- hygli að Alþýðusamband Íslands hefur í tillögum sínum í velferðar- málum hvatt til aukinnar fjölbreytni í rekstrarformum í heilbrigðisþjón- ustu. Með þessari stefnubreytingu hafa samtökin tekið undir hugmynd- ir Sjálfstæðisflokksins um aukið samstarf ríkis og einkaaðila um rekstur í heilbrigðisþjónustu. Þessar hugmyndir fela í sér að rík- ið ber, hér eftir sem hingað til, ábyrgð á fjármögnun þjónustunnar og tryggir að allir hafi aðgang að henni óháð efnahag. Jafnframt setji heilbrigðisyfirvöld staðla um þjón- ustuna og hafi eftirlit með gæðum hennar. ASÍ hvetur til einkarekstrar ASÍ hvetur til þess að ríkið geri í auknum mæli samkomulag við einkaaðila um að veita tiltekna þjón- ustu með útboðum, þjónustusamn- ingum eða öðrum hætti. Þessari stefnubreytingu ASÍ fagna sjálfstæðismenn sérstaklega. Hún er í öllum atriðum í samræmi við samþykktir landsfunda Sjálf- stæðisflokksins á síðustu árum um skipulag heilbrigðisþjónustunnar. Almannaþjónusta Í nýrri landsfundarályktun Sjálf- stæðisflokksins um heilbrigðismál segir m.a. eftirfarandi um skipulag heilbrigðisþjónustu: „Sjálfstæðisflokkurinn vill við- halda almannatryggingum og að greitt sé úr sameiginlegum sjóðum fyrir heilbrigðisþjónustu. Almanna- tryggingar greiði fyrir þjónustu við sjúklinga, hvort sem hún er veitt af ríki eða öðrum aðilum, t.d. með þjón- ustusamningum. Sjúkrastofnanir, ríkisreknar sem einkareknar, og sjálfstætt starfandi heilbrigðis- starfsmenn selji þjónustu sína og greiðslur verði í samræmi við kostn- að, óháð því hvort reksturinn er á vegum hins opinbera eða einkaaðila. Tryggja þarf jafna rekstrar- og sam- keppnisstöðu þessara aðila. Landsfundurinn hvetur til aukins samstarfs opinberra aðila og einka- aðila um rekstur einstakra þátta í heilbrigðisþjónustu með það að markmiði að hagkvæmni og kostir einkarekstrar fái notið sín sem víð- ast. Fundurinn telur að í heilbrigð- isþjónustu, jafnt sem öðrum atvinnu- greinum, sé þörf fyrir framtak einstaklinga og minnkandi opinber- an rekstur. Fundurinn leggur sér- staka áherslu á fjölbreytt rekstrar- form og valmöguleika í heilsugæslu auk tilfærslu verkefna í heilsugæslu og einstakra verkefna í sjúkrahús- þjónustu frá ríki til annarra aðila.“ Áhrif á stefnu annarra flokka Ljóst er að stefnubreyting ASÍ hefur þegar haft áhrif innan stjórn- málaflokka, sem eru vinstra megin við Sjálfstæðisflokkinn. Í stefnuskrá Framsóknarflokks- ins um heilbrigðismál segir að þjón- ustusamningar um einstaka þætti í heilbrigðisþjónustu komi til greina hér eftir sem hingað til. Framsókn- arflokkurinn hafnar „einkavæðingu í heilbrigðiskerfinu“, en talsmenn flokksins hafa skilgreint það sem „tvöfalt heilbrigðiskerfi, eitt fyrir þá ríku og annað fyrir hina fátæku“. Sjálfstæðismenn eru einnig mót- fallnir slíkum hugmyndum. Núver- andi stjórnarflokkar eru því sam- mála um þá stefnu að auka samstarf ríkis og einkaaðila í heilbrigðisþjón- ustu og má í því sambandi benda á að heilbrigðisráðherra Framsóknar- flokksins samdi fyrir nokkrum árum við einkaaðila um rekstur hjúkrun- arheimilisins Sóltúns og stóð nýlega fyrir útboði á þjónustu heilsugæslu- stöðvarinnar í Salahverfi í Kópavogi. Samfylkingin líka! Samfylkingin segir í stefnuskrá sinni um skipulag heilbrigðisþjón- ustunnar að „… rekstrarform þarf að velja með tilliti til aðstæðna hverju sinni. Forsenda verktöku og rekstrar einkaaðila á þessum sviðum er ætíð að ekki sé hægt að kaupa sér forgang, þjónusta rýrni ekki, kostn- aður sjúklinga aukist ekki og kostn- aður ríkisins minnki“. Sjálfstæðismenn geta tekið undir þessar hugmyndir. Hins vegar hlýt- ur það að vekja athygli að Samfylk- ingin, sem hefur almennt barist gegn einkarekstri í heilbrigðis- og menntakerfum, hefur nú breytt um stefnu og er tilbúin að opna á slíkt samstarf milli ríkis og einkaaðila innan heilbrigðisþjónustunnar að gefnum forsendum, sem við öll get- um samþykkt. Vinstri grænir fastir fyrir Um vinstri græna er það að segja að þeir telja að öll heilbrigðisþjón- usta eigi að vera á höndum ríkisins. Þeir eru á móti því að aðrir en rík- isstarfsmenn veiti þessa þjónustu. Samstaða um breytingar Það er sérstakt ánægjuefni að þessar skynsamlegu hugmyndir, sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur lengi haldið fram, hafa hlotið hljóm- grunn innan verkalýðshreyfingar- innar. Áhugamenn um framgang og velferð heilbrigðisþjónustunnar hljóta einnig að fagna því að víðtæk samstaða virðist vera meðal flestra stjórnmálaflokka um nauðsynlegar breytingar á skipulagi heilbrigðis- þjónustunnar eftir alþingiskosning- ar. Var kominn tími til! Stefnubreytingu fagnað! Eftir Ástu Möller „Það er sér- stakt ánægjuefni að þessar skynsam- legu hugmyndir, sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur lengi haldið fram, hafa hlotið hljómgrunn innan verkalýðshreyf- ingarinnar.“ Höfundur er þingmaður Sjálfstæð- isflokksins og er í 5. sæti flokksins í Reykjavíkurkjördæmi norður. Vöggusæn gur vöggusett PÓSTSENDUM Skólavörðustíg 21  sími 551 4050  Reykjavík
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.