Morgunblaðið - 27.04.2003, Side 47

Morgunblaðið - 27.04.2003, Side 47
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27. APRÍL 2003 47 Reiki-, heilunar- og sjálfstyrkingarnámskeið Skráning á námskeið í síma 553 3934 kl. 10–12 virka daga. Guðrún Óladóttir, reikimeistari. Hvað fá þátttake ndur út úr slíkum námsk eiðum? Læra að nýta sér orku til að lækna sig (meðfæddur eiginleiki hjá öllum) og/eða koma sér í orkulegt og tilfinningalegt jafnvægi. Læra að beita hugarorkunni á jákvæðan og uppbyggilegan hátt í staðinn fyrir að beita henni til niðurrifs. Læra að hjálpa öðrum til þess sama. 3.–4. maí. 1. stig – Helgarnámskeið Námskeið í Reykjavík Auktu styrk þinn til að ná betri stjórn á lífi þínu og líðan 5 kvölda námskeið í Reykjavík þann 30. apríl, 1. og 2. maí, 7.-8. maí. Námskeið til sjálfshjálpar í uppbyggingu á persónustyrk þínum. Námskeiðinu verður svo fylgt eftir með mánaðarlegum fræðslu- og vinnufundum. FUNDUR FERÐAÞJÓNUSTUNNAR með FRAMBJÓÐENDUM STJÓRNMÁLAFLOKKANNA Samtök ferðaþjónustunnar boða til fundar á Hótel Sögu (Sunnusal) mánudaginn 28. apríl kl. 16:00. Gestir fundarins verða: Árni Mathiesen frá Sjálfstæðisflokki Halldór Ásgrímsson frá Framsóknarflokki Ingibjörg Sólrún Gísladóttir frá Samfylkingunni Jóhanna B. Magnúsdóttir frá Vinstri hreyfingunni grænu framboði Jón Magnússon frá Nýju afli Sigurður Ingi Jónsson frá Frjálslyndaflokknum Fundarstjóri verður Einar Bollason Frambjóðendur reifa stuttlega stefnu flokka sinna í málefn- um sem tengjast ferðaþjónustunni og svara fyrirspurnum. Svör flokkanna við 10 spurningum sem Samtök ferðaþjón- ustunnar höfðu áður sent þeim munu liggja frammi á fundin- um. Félagsmenn Samtaka ferðaþjónustunnar og annað áhuga- fólk um ferðaþjónustu er hvatt til að mæta á fundinn og nota tækifærið til að spyrja fulltrúa stjórnmálaflokkanna sem nú óska eftir því að ráða ferðinni og ákveða starfsumhverfi greinarinnar. NÝSKÖPUNARSJÓÐUR þarf fjár- muni til um tveggja til þriggja ára til þess að uppfylla þær væntingar sem markaðurinn gerir til hans, að sögn Gunnars Arnar Gunnarssonar, framkvæmdastjóra sjóðsins. Gunnar Örn segir að sjóðurinn hafi fjárfest í um 100 fyrirtækjum frá stofnun, en þó margar áhuga- verðar hugmyndir fæðist hjá frum- kvöðlum sé Nýsköpunarsjóður að breytast í vörslusjóð, í ljósi fjár- hagsstöðu hans, og hann hafi ekki burði til að taka þátt í fleiri nýjum verkefnum að sinni. Sjóðurinn hafi fjárfest mikið á undanförnum árum, jafnvel umfram getu, en þörfin hafi verið mikil. Fáir áhættufjárfestar, fyrir utan Nýsköpunarsjóð, hafi tekið þátt í fjármögnun nýsköpun- ar- og sprotafyrirtækja hér á landi undanfarin tvö ár. Þegar sjóðurinn hafi verið stofnaður hafi honum ver- ið lagðir til fjórir milljarðar króna í eigið fé en samkvæmt lögum um sjóðinn hafi hann ekki heimild til að ganga á þá fjármuni, reka eigi sjóð- inn fyrir ávöxtun þess fjár. Verkefni sjóðsins nú sé því fyrst og fremst það að sjá um eignir sjóðsins, fylgja þeim enn betur úr hlaði og reyna að selja þær um leið og tækifæri gefist. Fá þannig aftur fjármuni inn í hringrásina til að geta haldið áfram að fjárfesta í nýjum nýsköpunar- og sprotafyrirtækjum. „Markmiðið er að viðhalda stofnfénu,“ segir Gunn- ar Örn. Hlutverk Nýsköpunarsjóðs er að stuðla að nýsköpun í samfélaginu og taka þátt í fjármögnun nýsköpunar- fyrirtækja. Sjóðurinn má ekki eiga meira en 50% hlutafé í einu fyr- irtæki og ekki fjárfesta í því fyrir meira en sem nemur 4% af stofnfé sjóðsins. Gunnar Örn segir að frá því að fjármagn hafi minnkað á markaðnum eftir mikinn uppgang 1999 og 2000 hafi sjóðurinn reynt að brúa bilið, en nú sé svo komið að sjóðurinn hafi ekki bolmagn til að halda áfram á sömu braut. Gunnar Örn bendir á að það sé eðli nýsköp- unarfyrirtækja að þau fyrirtæki sem ekki gangi verði gjaldþrota fyrr en þau sem gangi eða þau sem hægt sé að selja. Sjóðurinn hafi rýrnað vegna gjaldþrota fyrirtækja en lítið sé byrjað að selja fyrirtæki sem nái árangri enda taki það ný fyrirtæki a.m.k. fimm til 10 ár að verða að seljanlegum einingum. „Það verður því sáralítið um nýfjár- mögnun í nýsköpunaráætlunum okkar fyrir næstu ár. Við verðum aðallega í því að reyna að styðja áfram þau fyrirtæki sem eru áhuga- verð og lofa góðu,“ segir Gunnar Örn og minnir á að meðalaldur fyr- irtækja í eigu sjóðsins sé tvö til þrjú ár. Renndu blint í sjóinn Að sögn Gunnars Arnar renndu menn nokkuð blint í sjóinn við stofnun sjóðsins og telur hann að menn hafi ekki gert sér grein fyrir þeirri miklu undiröldu nýsköpunar sem sé til staðar. Í því sambandi megi nefna athugun sem Háskólinn í Reykjavík hafi tekið að sér að gera á næstu árum, m.a. í samstarfi við Nýsköpunarsjóð og fleiri, en um sé að ræða samanburð á frumkvöðla- starfsemi á milli landa. Þar komi í ljós að staðan á Íslandi sé mjög góð. Sama sjáist jafnframt í svonefndu Þjóðarátaki til nýsköpunar sem sjóðurinn standi að í samstarfi við mörg fyrirtæki. Þar sé hugmyndin að aðstoða fólk eða fyrirtæki við að búa til viðskiptaáætlun um nýja við- skiptahugmynd. Um 600 manns og fyrirtæki hafi tekið þátt í þessu verkefni árlega frá 1999, en verk- efnið hefði ekki verið í gangi í fyrra og í ár væru um 1.200 skráðir í það. „Það kraumar undir, allir eru sam- mála því að það þurfi að gera eitt- hvað, en sjóðurinn sem á að sinna því hlutverki hefur ekki fjárhags- lega burði til þess,“ segir Gunnar. „Það þarf meiri fjármuni inn í sjóð- inn til að halda nauðsynlegri sam- fellu. Það þarf að brúa um tveggja til þriggja ára tímabil og að því tímabili liðnu ættu fjárfestingarnar að vera farnar að skila sér aftur inn til sjóðsins.“ Hann leggur áherslu á að framlagt fé í nýsköpunarfyrir- tæki séu ekki glataðir peningar heldur hluti af hringrásinni. „Við sjáum mörg skemmtileg fyrirtæki sem geta skilað góðum arði í náinni framtíð,“ segir hann. „Ábyrgð okkar er að viðhalda verðmætinu og halda hringrásinni gangandi.“ Nýsköpunarsjóður að breytast í vörslusjóð BJÖRGUNARDEILDIN Káraborg á Hvammstanga tók nýlega formlega í notkun nýtt húsnæði. Nýbyggingin sem er við Höfðabraut 30 er sam- byggð við eldra hús, sem tekið var í notkun árið 1992. Alls er því hús- næði sveitarinnar 312 fm. Nýbyggingin er byggð úr límtré, með stálklæðningu, 144 fm að stærð. Mestu hluti vinnu við bygg- inguna var unninn í sjálfboðavinnu af félögum sveitarinnar, og þakkaði formaðurinn, Gunnar Örn Jak- obsson, fyrir afar fórnfúst starf. Sr. Guðni Þór Ólafsson blessaði húsið, Guðmundur Jóhannesson, formaður byggingarnefndar, lýsti bygging- arferli hússins, en meðal annarra ræðumanna voru Bjarni Stefánsson sýslumaður og Jón Gunnarsson for- maður Slysavarnafélagsins Lands- bjargar. Kvenfélagið Björk á Hvammstanga gaf sveitinni pen- ingagjöf í tilefni dagsins. Morgunblaðið/Karl Sigurgeirsson Björgunarstöð Káraborgar er orðin hið veglegasta hús. Björgunarstöðin stækkuð Hvammstanga. Morgunblaðið.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.