Morgunblaðið - 27.04.2003, Síða 51
BRÉF TIL BLAÐSINS
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27. APRÍL 2003 51
ÞAÐ verður gaman að kjósa í vor.
Nú þarf ekki að naga blýantinn í
kjörklefanum á meðan verið er að
ákveða hvar eigi að setja krossinn.
Valið er að þessu sinni auðvelt m.a.
vegna þess að það stendur ann-
arsvegar um gamaldags stjórnar-
hætti sem einkenndu mestan hluta
20. aldarinnar, og hinsvegar nú-
tímalega stjórnarhætti þar sem
stjórnað er með fólki í stað þess að
fólki sé stjórnað. Þetta eru stjórn-
arhættir sem hafa gefist vel í fyr-
irtækjum og á vinnustöðum og
verða væntanlega einnig ríkjandi í
landsstjórnum á nýbyrjaðri öld.
Þessi vinnubrögð hafa verið tíðkuð
við stjórn Reykjavíkurborgar sein-
ustu 9 árin. Þau tóku við af staðn-
aðri stjórn sem áður hafði ríkt, þar
sem borgin var rekin nánast eins
og einkafyrirtæki Sjálfstæðis-
flokksins og að því er virtist undir
einvaldsstjórn. Þetta vakti undrun
mína þegar ég fluttist heim seint á
níunda áratugnum eftir áratuga bú-
setu í vestrænu lýðræðisríki, þar
sem ég fylgdist vel með stjórn-
málum. Um þetta grundvallaratriði,
þ.e. stjórnum með fólki en ekki á
fólki, standa m.a. kosningarnar í
vor og á þessu hefur Ingibjörg Sól-
rún Gísladóttir ítrekað vakið máls.
Þau nærri því sefasjúku viðbrögð
sem þetta hefur vakið hjá andstæð-
ingum hennar eru með ólíkindum
og hljóta að vekja undrun allra sem
ekki eru alveg skyni skroppnir eða
haldnir pólitísku ofstæki. Þó tók
steininn úr í nýlegri grein í Morg-
unblaðinu þar sem málflutningi
Ingibjargar Sólrúnar var líkt við
þær persónulegu árásir sem tíðk-
uðust í stjórnmálabaráttunni á fyrri
hluta síðustu aldar. Það var ógeð-
fellt að sjá í þessari grein níðst á
löngu látnum nafngreindum stjórn-
málaforingja. Rökstudd gagnrýni á
stjórnunarstíl forsætisráðherrans
er ekki persónuleg árás á hann.
Hann er vafalaust hinn vænsti
maður, en ekki hafinn yfir gagn-
rýni fremur en aðrir dauðlegir
menn. Hins vegar hafa andstæð-
ingar Ingibjargar Sólrúnar haft í
frammi beinar persónulegar árásir
á hana, kallað hana svikula mann-
eskju, ótrúverðuga, ekki treystandi
o.s.frv., o.s.frv. Því miður gaf for-
sætisráðherrann tóninn þegar hann
í ávarpi sínu til þjóðarinnar á einu
helgasta kvöldi ársins, gamlárs-
kvöldi, fór með hálfkveðna vísu í
þessa veru. Síðan hefur þessi söng-
ur haldið áfram samkvæmt þeirri
kenningu að sé sami óhróðurinn
endurtekinn nógu oft fari fólk að
trúa honum. Sá sem þetta ritar hef-
ur aldrei hitt Ingibjörgu Sólrúnu
Gísladóttur né talað við hana, en
lengi fylgst með störfum hennar.
Hún hefur komið mér fyrir sjónir
sem leiftrandi gáfuð, heilsteypt
manneskja með óvenjulega forystu-
hæfileika sem koma best í ljós í
samstarfi við annað fólk, sem fær
líka að njóta sín.
Í stjórnmálabaráttu eru góð mál-
efni og háleit markmið nauðsynleg
en ekki nægileg. Það þarf styrka
forystu til þess að sigra í kosn-
ingum og hrinda stefnumálum í
framkvæmd. Annars falla þau
dauð. Nú höfum við sem viljum
réttlæti í okkar þjóðfélagi slíka for-
ystu. Það er skylda okkar að sam-
einast og tryggja henni sigur hinn
10. maí.
HALLDÓR ÞORMAR,
prófessor emeritus.
Áfram Ísland –
undir forystu Ingi-
bjargar Sólrúnar
Frá Halldóri Þormar:
HVAÐ veldur háum vöxtum og mikl-
um mun á innláns- og útlánsvöxtum,
þrátt fyrir að búið sé að hagræða,
sameina bankastofnanir og fram-
kvæma sparnaðaraðgerðir hjá bönk-
um og sparisjóðum mörg undanfarin
ár?
Ef litið er á vaxtatölur sem birtast í
dagblöðum þessa dagana virðist
munur út- og innlánsvaxta ótrúlega
mikill og spurt er hvernig skiptist
þessi vaxtamunur á milli rekstrar
bankastofnana og eigenda (hluthafa)
þeirra? Að auki eru svo „þjónustu-
gjöld“ sem innheimt eru af mestallri
þjónustu við viðskiptavini og eru
verulegar upphæðir. Hverjir taka
ákvarðanir um þessa gjaldtöku, eru
þetta e.t.v. geðþóttaákvarðanir eig-
enda og stjórna þessara fjármála-
stofnana?
Við lestur á „Sérriti Seðlabankans
nr. 3 1998 um verðtryggingu láns-
fjármagns og vaxtastefnu á Íslandi“,
eftir Bjarna Braga Jónsson, kemur í
ljós að lánakerfið er svo flókið og
breytilegt að ekki er auðvelt fyrir
hinn almenna viðskiptamann að
fylgjast grannt með því sem gerist á
þessu sviði. Þó er ljóst að oft eru
vaxtabreytingar réttlættar sem við-
nám gegn verðbólgu og það getur
verið rétt í sumum tilvikum en ekki
alltaf.
Með setningu laga nr. 13 frá 10.
apr. 1979 um stjórn efnahagsmála,
nefnd „Ólafslög“, fjallar 7. kafli um
verðtryggingu lánsfjár og sparifjár.
Stjórnvöld lofuðu því hátíðlega við
það tækifæri að aldrei yrði mismunur
á kaupgjaldi og lánskjörum og ef svo
færi mundi það leiðrétt reglulega.
Algjört vaxtafrelsi var svo innleitt í
tveimur áföngum 1984 og 1986 en áð-
ur voru í gildi lög um bann við okri og
dráttarvexti frá 1933 sem leyfðu 5,6
eða 8% hámarksvexti eftir tegund
lána. Kannski er rétt og nauðsynlegt
að koma þeim lögum á aftur?
Misgengi kaupgjalds og lánskjara
hefur valdið fólki ómældum erfiðleik-
um við að láta áætlanir um húsbygg-
ingar standast. Þetta á fyrst og
fremst við um launafólk því atvinnu-
rekendur hafa fengið frjálsar hendur
til að auka við tekjur sínar og lána-
möguleika og oftar en ekki getað
beint kostnaðinum út í verðlagið.
Það má eflaust finna því stað að
þetta mikilvæga atriði um misgengi
kaupgjalds og launa sé einn þáttur í
vaxandi fátækt á Íslandi.
Seðlabanki Íslands gefur út leið-
beinandi vaxtatölur sem peninga-
stofnanir fara eftir „ef þeim sýnist“
og þá vega hagsmunir bankanna
e.t.v. þyngst.
Ákvörðun vaxtastigs er fyrst og
fremst pólitísk ákvörðun og það þýð-
ir að við erum ofurseld ákvörðunum
misviturra stjórnmálamanna sem
fara með stjórn þessa mikilvæga
málaflokks. Það er ekki að undra þótt
hart sé barist um eignarrétt yfir
þessum „gróðavélum“ sem bankarnir
eru.
Framundan eru miklir óvissutímar
í vaxtamálum því skoðanir manna á
þeim eru mjög á reiki, en vexti
(vaxtamun) verður að lækka til sam-
ræmis við það sem gerist hjá öðrum
þjóðum, það er réttmæt krafa al-
mennings.
SVAVAR GUÐNI
GUNNARSSON,
fjarkennari,
Borgarhrauni 21, Hveragerði.
Ísland er hávaxtasvæði
Frá Svavari Guðna Gunnarssyni:
Fyrirtæki til sölu:
Fyrirtækjadeild Hússins hefur vaxið hratt síðustu árin og hefur gott orðspor
fyrir traust og fagleg vinnubrögð. Starfsfólk fyrirtækjadeildarinnar hefur
bæði menntun á sviði viðskipta og reynslu af rekstri þeirra.
Kaup og sala fyrirtækja er frábrugðin fasteignasölu á margan hátt og kaup-
endur jafnt og seljendur hafa eðlilega litla reynslu í þeim efnum. Við viljum
gjarnan deila okkar reynslu með því að einfalda og útskýra þá hagfræði
sem ræður á þessum markaði. Það er ástæða þess að við höfum tekið
saman marvíslegan fróðleik sem er að finna á heimasíðu okkar,
www.husid.is:
Hvernig gerast fyrirtækjakaup?
Hvað ber að varast.
Hlutverk fyrirtækjasala.
Verðlagning fyrirtækja.
Greiðslufyrirkomulag.
Skilgreiningar og hugtök.
Við sölu fyrirtækja er gagnkvæmur trúnaður mikilvægur og við gefum því
ekki upplýsingar um fyrirtæki í síma. Við viljum fá kaupendur til okkar og
kynnast þeim, en með því móti getum við einnig þjónað þeim betur. Vin-
samlega hringið áður og pantið tíma. Síminn er 533 4300 en einnig er
hægt að nota tölvupóstinn: jens@husid.is
Eftirfarandi eru stuttar lýsingar á nokkrum fyrirtækjum, sem eru fáanleg,
en við auglýsum ekki nema brot af þeim fyrirtækjum sem höfum til sölu.
Heildverslun með pípulagningavörur. Góð umboð.
Gott þjónustufyrirtæki í Keflavík.
Viðgerðarverkstæði fyrir vélar og rafmagnstæki. Ábyrgðarviðgerðir fyrir
stórt verslunarfyrirtæki. Þægilegur og öruggur rekstur fyrir 1—2 starfs-
menn.
Bónstöð í atvinnuhverfi. Upplagt fyrir hörkuduglega. Gott verð.
Snyrtilegur og fallegur söluturn með videó, gott tækifæri fyrir samhenta
fjölskyldu. Verð 8 m. kr.
Hjólbarðaverkstæði sem sinnir einnig viðgerðum, vel tækjum búið.
Stórt arðbært þjónustufyrirtæki í byggingariðnaði.
Rótgróið framleiðslufyrirtæki með ljósabúnað, upplagt sem sameining-
ardæmi.
Höfum ýmis góð sameiningartækifæri fyrir stærri fyrirtæki.
Stór sérhæfð trésmiðja með góðan hagnað. 10 starfsmenn. Gott tæki-
færi fyrir fyrirtæki í svipaðri starfsemi.
Þekkt sérverslun með 100 m. kr. ársveltu. Rekstrarhagnaður 14 m. kr.
Atvinnutækifæri. Rótgróinn pylsuvagn í atvinnuhverfi. Opnunartími virka
daga kl. 10—17. Ágætar tekjur, auðveld kaup.
Matvöruverslun, bensínsala og veitingarekstur í Búðardal. Eigið hús-
næði. Ársvelta er nú tæpar 200 m. kr. og hefur farið vaxandi með hverju
ári. Góður hagnaður um margra ára skeið og mjög heilbrigður rekstur.
Sérstaklega hentugt fyrir stóra fjölskyldu eða tvenn hjón.
Rótgróið iðnfyrirtæki með 230 m. kr. ársveltu. EBIDTA 19 m. kr.
Fullbúin naglaverksmiðja með nýjum tækjum sem passar í lítið húsnæði
eða jafnvel bílskúr. Búðið er að skoða ýmsar leiðir í framleiðslunni út frá
hagkvæmni og hráefnisverði. Hægt er að bæta við framleiðslulínuna vél
sem raðar nöglunum í plastbelti til nota í skotbyssur. Þessi litla verksmiðja
þyrfti tvo starfsmenn, einn í framleiðslu og annan í sölu. Hentar vel til flutn-
ings út á land og gæti verið tilvalin sem viðbót við skyldan rekstur. Ásett
verð er 3,5 m. kr. og er innifalið í því verði ca 7 tonna af vír.
Heildverslun með iðnaðarvélar. Mikil tækifæri framundan.
Teygjustökk. Allur búnaður, þjálfun og viðskiptasambönd. Mikill hagnaður.
Meðeigandi óskast að veitingahúsi í miðbænum. Æskilegur kokkur,
þjónn eða maður vanur veitingarekstri.
Blómabúð í nýju hverfi í Kópavogi.
Skyndibitastaðurinn Kebab-húsið í Kringlunni.
Myndlistargallerí við Laugaveg. Meðeign kemur til greina.
Kaffihús með vínveitingaleyfi við Laugaveg. Verð 6 m. kr.
Rótgróin ritfangaverslun í verslunarmiðstöð, góður rekstur og skemmti-
legt tækifæri.
Skoðið nýja heimasíðu fyrirtækjadeildar
með ítarlegri söluskrá og gagnlegum fróðleik:
www.husid.is
Suðurlandsbraut 50 (Bláu húsin v/Faxafen)
Sími 533 4300, GSM 820 8658