Morgunblaðið - 27.04.2003, Side 61
GESTIR á sýningu systranna Ingibjargar, Þór-
unnar og Hjördísar Elínar (Dísellu) Lárusdætra
á tónlistardagskrá þeirri sem þær buðu uppá á
skemmtistaðnum NASA sl. laugardag og að
kvöldi síðasta vetrardags, voru sannarlega allt
annað en sviknir.
Dagskráin, sem þær kalla einfaldlega „Þrjár
systur – bland í poka“ og er auk þeirra flutt af
tónlistarmönnunum góðkunnu Jóni Ólafssyni,
Friðrik Sturlusyni og Jóhanni Hjörleifssyni, er
skemmtileg blanda af lögum úr ýmsum áttum,
innlendum sem erlendum, mörg hver í framandi
og forvitnilegum útsetningum.
Má þar nefna svo ólík lög sem „Swinging
Shepherd’s Blues“ (sem kvað vera uppáhaldslag
Lúðrasveitar Mosfellsbæjar, þar sem systurnar
hlutu sína þjálfun í trompetleik), „Einskonar
ást“ í óvæntri pólýglott-útfærslu, „Scatman“ í út-
setningu að fyrirmynd dönsku djasssveitarinnar
Axel Boys Quartet, „Life on Mars“ eftir David
Bowie, ABBA-klassík á borð við „Dancing
Queen“, og loks lög eins og „Lady Marmalade“,
og Sister Sledge-lagið „We Are Family“.
Tónlistar-, söng- og sviðshæfileikarnir, sem
systrunum eru greinilega í blóð bornir, nutu sín
til fulls þar sem þær ýmist spiluðu á trompet (og
reyndar margvísleg önnur hljóðfæri), sungu af
innlifun sem hreif áheyrendur upp úr stólunum,
og fóru með gamanmál á milli laga. Hvað söng-
Þrjár
systur heilla
Morgunblaðið/Jim Smart
Þeim systrum er margt til lista lagt.
inn varðar leyndi sér reyndar ekki, að Dísella er
sú þeirra systra, sem mesta áherzlu hefur lagt á
að þjálfa þann hæfileika. Á frumsýningunni var
stemmningin orðin slík í lokin, að áheyrendur
slepptu flytjendunum ekki fyrr en eftir tvö auka-
lög, og hefðu viljað meira.
Næsta sýning tónlistardagskrár Þriggja
systra verður á NASA sunnudagskvöldið 4. maí
næstkomandi.
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27. APRÍL 2003 61
Kvikmyndir.is
Sýnd kl. 6 og 8. B.i. 16. kl. 2 og 4. ísl. tal / kl. 6. ísl. tal / kl. 2. ísl. tal. Sýnd kl. 4. / Sýnd kl. 2.
HILARY SWANK
AARON ECKHART
DELROY LINDO
STANLEY TUCCI
Mögnuð hrollvekja frá
Stephen King sem engin má
missa af!
EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP Í ÁLFABAKKA KL. 3.45, 5.50, 8 OG 10.10. B.I. 16.
ÁLFABAKKI ÁLFABAKKI / KRINGLAN / AKUREYRI
Sýnd kl. 2. ísl. tal.
ÁLFABAKKI / KEFLAVÍK
Sýnd kl. 2 og 4. / Sýnd kl. 4. / Sýnd kl. 4
ÁLFABAKKI / AKUREYRI / KEFLAVÍK
kl. 6, 8 og 10. B.i. 14. / kl. 5.20, 8 og 10.30. B.i. 14. / kl. 10. B.i. 14. / kl. 10. B.i. 14.kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.10. B.i. 14. / kl. 5.50, 8 og 10.10. / kl. 6, 8 og 10. B.i. 14. / kl. 6, 8 og 10. B.i. 14.
ÁLFABAKKI / KRINGLAN / AKUREYRI / KEFLAVÍK ÁLFABAKKI / KRINGLAN / AKUREYRI / KEFLAVÍK
Tilboðkr. 500
ÁLFABAKKI
Radio X
Kvikmyndir.is
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111