Morgunblaðið - 27.04.2003, Síða 64
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 SUNNUDAGUR 27. APRÍL 2003 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
0
5
3
7
6
Fyrsta heimilið
www.bi.is
NÝ kynslóð hefur valizt í bankastjóra-
stóla í öllum stóru viðskiptabönkunum.
Með ráðningu Sigurjóns Þ. Árnasonar,
sem er tæpra 37 ára, í starf banka-
stjóra Landsbankans í síðustu viku er
meirihluti bankastjóra viðskiptabank-
anna undir fertugu. Bjarni Ármanns-
son, sem varð forstjóri Íslandsbanka
er hann sameinaðist FBA árið 2000, er
35 ára. Hreiðar Már Sigurðsson, for-
stjóri Kaupþings banka og verðandi
forstjóri sameinaðs banka Búnaðar-
bankans og Kaupþings, er 32 ára.
Allir Vökumenn
Keppinautarnir þrír hafa þekkzt frá
því á háskólaárum sínum fyrir rúmum
áratug, en þá voru þeir samherjar í
Vöku, félagi lýðræðissinnaðra stúd-
enta.
„Ég kynntist Sigurjóni og Bjarna
fyrst þegar ég hóf nám í Háskólanum
en þar voru þeir í forsvari fyrir Vöku
og Stúdentaráð. Við unnum allir tölu-
vert saman í undirbúningi fyrir kosn-
ingar til Stúdentaráðs árið 1991. Ég
held að við höfum allir haft mjög gam-
an af starfinu í Vöku og lært margt af
því, árangur okkar varð þó ekki betri
en svo að Vaka tapaði kosningunum
eftir margra ára sigurgöngu,“ segir
Hreiðar Már í viðtali við Morgunblaðið
í dag. Einnig birtast viðtöl við þá Sig-
urjón og Bjarna.
Ný kyn-
slóð bank-
ar upp á
Harðsnúið lið/14–16
STEINGRÍMUR J. Sigfússon, for-
maður Vinstrihreyfingarinnar –
græns framboðs, segir að skoða
þurfi að hvaða marki hugmyndir um
hálendisvegi samræmist verndun
hálendisins. „Við höfum alla fyrir-
vara á hugmyndum um að fara í
heilsársvegagerð með uppbyggðum
vegum yfir hálendið,“ segir Stein-
grímur í viðtali við Morgunblaðið í
dag. „Eins og málin standa eru mörg
miklu brýnni verk í samgöngum sem
þarf að ráðast í.“
Hann segir að ákveða þurfi hvern-
ig menn sjái fyrir sér framtíðartil-
högun mála á hálendinu. „Að hvaða
marki uppbygging vega er samrým-
anleg verndun hálendisins. Við tök-
um ekki undir áform um vegagerð
fyrr en fyrir liggur hvað menn ætla
með stofnun þjóðgarða á hálendinu
og framtíðarskipan mála þar.“
Steingrímur segist frekar reikna
með að á hálendinu verði lagðir
snyrtilegir vegir sem liggja í landinu
og varðveita „karakter“ óbyggðanna
sem myndi glatast með hraðbrautum
og sjoppum.
VG efins um heilsársvegi
Fólkið krefst/12
Hugmyndir um gerð uppbyggðra þjóðvega á hálendinu
LÖG íslensku rokkhljómsveitarinnar
Quarashi hafa talsvert verið notuð í er-
lendum kvikmyndum, sjónvarpsþáttum,
auglýsingum og tölvuleikjum að und-
anförnu. Lag hljómsveitarinnar,
„Stick’em up“, hljómar m.a. í bandarísku
kvikmyndinni 2 Fast 2 Furious sem vænt-
anleg er í kvikmyndahús og er framhald
The Fast and the Furious, sem sló í gegn
í kvikmyndahúsum árið 2001.
„Ég verð að viðurkenna að ég er ekki
alveg með það á hreinu hvar lögin okkar
hafa verið notuð, en það eru a.m.k.
nokkrir sjónvarpsþættir, kvikmyndir og
auglýsingar,“ segir Sölvi Blöndal Quar-
ashi-liði í samtali við Morgunblaðið. Lög
frá hljómsveitinni eru í a.m.k. þremur
tölvuleikjum þessu til viðbótar.
Lög Quarashi
notuð í kvik-
myndir og
sjónvarpsþætti
Hafa þetta lag/58
UNGIR einstaklingar, sumir talsvert innan
við tvítugt, hafa þurft meðferð á geðdeild
Landspítala – háskólasjúkrahúss vegna geð-
raskana sem rekja má til notkunar á vefauk-
andi (anabólískum) sterum sem gjarnan eru
notaðir af vaxtarræktarmönnum. Engilbert
Sigurðsson, yfirlæknir á geðsviði Landspít-
alans, segir að áreiðanlegar upplýsingar
skorti um hversu útbreidd neyslan sé hér á
landi. Ekki liggi fyrir nýlegar rannsóknir um
ólöglega steranotkun en slíkar rannsóknir séu
erfiðar í framkvæmd og túlkun. Fæstir vilji
t.d. viðurkenna notkunina fyrir sínum nán-
ustu eða fyrir heilbrigðisstarfsfólki fyrr en
notkun sé lokið eða sönnunargögnin blasi við,
nema ef alvarlegar aukaverkanir komi upp og
þeir neyðist til að segja frá steranotkuninni.
„Þetta er því í raun falið vandamál,“ segir
hann. Sá hópur sem noti stera viti oft talsvert
um hættur sem fylgi neyslu og forðist í
lengstu lög að leita sér læknishjálpar á rétt-
um forsendum. „Hingað hafa komið einstak-
lingar sem þverneita að hafa tekið stera eða
neytt ólöglegra fæðubótarefna svo sem „ripp-
er annars vegar skammtarnir sem menn taka
og hins vegar lundarfar notenda. Þeir sem
hafa mjög viðkvæma eða sveiflótta lund eru í
meiri hættu en jafnlyndir einstaklingar, segir
Engilbert.
Í tilraunum sem gerðar hafa verið erlendis
kemur í ljós að sögn Engilberts að hætta á
geðrænum vandamálum margfaldast þegar
skammtar stera eru auknir úr fjórföldum
uppbótarskammti í meira en áttfaldan upp-
bótarskammt, eða úr 4% í 19%. Aðspurður
segir Engilbert að hann telji algengast að
menn komist í tæri við efnin hjá fólki sem
þeir hitti á líkamsræktarstöðvum og vísar þar
m.a. til ummæla einstaklinga sem hafa við-
urkennt slíka neyslu í meðferð og í fjöl-
miðlum.
Þegar leitað var eftir upplýsingum um
dreifingu og sölu á sterum hjá Ásgeiri Karls-
syni, yfirmanni fíkniefnadeildar lögreglunnar
í Reykjavík, sagði hann að slík mál kæmu af
og til inn á borð hjá lögreglu. Dæmi væru um
að sterar hefðu fundist á líkamsræktarstöð en
hann vildi ekki tjá sig frekar um það mál.
ed fuel“ með efedr-
íni. Svo kemur allt
annað í ljós síðar
þegar þeir ákveða
að leggja spilin á
borðið,“ segir hann.
Sturlun og
þunglyndi
Þau geðrænu
vandamál sem fylgja
notkun vefaukandi
stera eru margþætt.
Notendur verða
gjarnan örir og
stundum viðskotaill-
ir og erfiðir í sam-
skiptum. Þunglyndi og sturlunareinkenni eru
einnig þekktur fylgifiskur steranotkunar. Það
sem ræður mestu um áhrifin á geðhag manna
Ungir steraneytendur hafa
þurft meðferð á geðdeild
Halda neyslunni
leyndri í lengstu lög
LÖGREGLAN víða um land opnaði hús sín
fyrir almenningi á lögregludeginum í gær,
sem haldinn er í tilefni 200 ára afmælis
hinnar einkennisklæddu lögreglu 15. apríl
síðastliðinn.
Sólveig Pétursdóttir dómsmálaráðherra
setti lögregludaginn formlega kl. 11 við
húsnæði ríkislögreglustjórans við Skúla-
götu og strax í kjölfarið sýndu sjö vopn-
aðir sérsveitarmenn ríkislögreglustjóra
færni sína er þeir réðust til inngöngu í
Lögreglukórinn var ekki langt undan og
tók lagið fyrir gesti og gangandi, en þess
má geta að kórinn hefur nýlokið við tón-
leikaferðir út á land og vortónleika á höf-
uðborgarsvæðinu. Þá var efnt til mynda-
samkeppni á meðal barna sem kynnt hefur
verið í grunnskólum borgarinnar.
Víða á landinu var margt um manninn á
lögreglustöðvum, þar sem menn gátu
kynnt sér starfið en ýmist var opnað fyrir
gestum kl. 11 eða 13.
bygginguna með því að hraðsíga úr þyrlu
Landhelgisgæslunnar og síðan niður eftir
húsveggjum áður en þeir fóru inn.
Þá var fangageymsla lögreglustöðv-
arinnar við Hverfisgötu höfð til sýnis og
almenningi enn fremur gefinn kostur á að
skoða ökutæki lögreglunnar. Börnum og
fullorðnum var boðið að setjast á lögreglu-
mótorhjól og inn í lögreglubíla, heilsa upp
á lögregluhunda og skoða margvísleg tól
og tæki lögreglunnar.
Sérsveitin sýnir kunnáttuna
Morgunblaðið/Sverrir
Sólveig Pétursdóttir dómsmálaráðherra umkringd vígalegum sérsveitarmönnum. Þörf er á að verja siglínurnar með teppi.
Opið hús hjá lögregluembættum um land allt á lögregludaginn