Morgunblaðið - 11.05.2003, Síða 6
FRÉTTIR
6 SUNNUDAGUR 11. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Í
AFGREIÐSLUNNI grípur stúlkan til Örþrifaráða, bókar úr
Rauðu seríunni. Annars er allt með kyrrum kjörum.
– Hvað varð um fiskabúrið, spyr blaðamaður mann sem er að
hlaupa aftur út í stressið.
– Komstu hingað síðast í gagnfræðaskóla? svarar hann og
brosir.
Lætur nærri. Þá voru krakkarnir óskaplega heillaðir af stóru og
miklu fiskabúri við innganginn að Vesturbæjarlauginni – heilli furðuver-
öld. Nú er búið að sleppa fiskunum eins og Keikó. En þó fiskarnir svamli
ekki lengur í fiskabúrinu, þá svamlar fólkið ennþá í lauginni og breiðir úr
sér í heitu pottunum. Það nýtur kvöldsólarinnar og segir fátt. Langur
vinnudagur er að baki.
Unga konan við hliðina á blaðamanni er voðalega ánægð með nýja
heilsuræktarátakið. Þetta er reyndar fyrsta sundferðin, en hún er búin
að kaupa sér árskort. Fyrir Íslendingum jafnast það á við ábyrgð-
arskírteini að reglulegri heilsurækt. Og nánast aukaatriði að mæta.
Hópur af skólastúlkum stendur upp úr heita pottinum og gengur að
kvennaklefanum. Þegar sú síðasta fer úr pottinum snúa strákarnir sér
við og mæna á eftir þeim.
Blaðamaður ákveður að skella sér aðeins í gufuna. Hann gengur inn
og hlammar sér makindalega á stólinn.
– Æ, hvað þetta er gott.
Svo lítur hann á manninn við hliðina á sér og segir:
– En það er nú ekkert voðalega heitt hérna.
Maðurinn brosir og blaðamaður áttar sig á því að hann er ekki kominn
lengra en í anddyri gufunnar.
Í gufunni er heitt. Og stórhættulegt að lenda í sam-
ræðum. Blaðamaður er svo vitlaus að láta það henda
sig. Og kemst að því í miðri sögu sessunautarins að
hann eigi eftir að stikna úr hita komist hann ekki út úr
gufunni. Sögumaðurinn er hinsvegar í essinu sínu. Og
jafnvel stystu setningar ætla aldrei að klárast. Nokkru
síðar kemst blaðamaður að því að lítill drykkjar-
brunnur fyrir utan gufuna er þar ekki fyrir tilviljun; hann er fyrsta
hjálp.
Gestirnir eru kallaðir upp úr lauginni klukkan tíu. Eins og kallað var
upp úr skólasundinu í gamla daga. Og skóladrengirnir þurrkuðu sér á
upphækkuðum palli í karlaklefanum. Margar hildir voru háðar um að
halda sínum sessi á pallinum, án þess að nokkur leiddi hugann að því
hvort betra væri að þurrka sér hátt uppi.
Stemmningin er allt önnur á morgnana en á kvöldin. Á morgnana eru
menn nývaknaðir og upplagðir fyrir átök dagsins. Þess gætir í samræð-
unum í heita pottinum, auk þess sem myndast hafa hópar fastagesta sem
þekkjast vel og taka smá skens ekki nærri sér. Þess vegna ákveður
blaðamaður að skella sér líka í sund í býtið morguninn eftir.
Það rennur sundlaugarvatn um æðarnar á Íslendingum. Í það
minnsta á manninum í sturtunni. Hann dásamar sundlaugarnar á Ís-
landi og líkir þeim við rauðvínið í Frakklandi og krárnar í Bretlandi. Svo
flýtir hann sér í pottana. Hann er með seinni skipunum og vill ekki fyrir
nokkra muni missa af öllum körlunum og kerlingunum. Ekki þegar
kosningar eru í nánd. Sundið má bíða.
Í pottinum er þröngt um manninn og orðið dettur sjaldan dautt niður.
– Sáuð þið hvað Ingibjörg Sólrún var glæsileg í auglýsingunni, segir
einn. Hún var í hvítu og veggirnir hvítir – allt hvítt.
– Nema sálin, skýtur annar inn í.
Ein kvennanna ýjar að því að við búum við einræði á Íslandi. Og er
greinilega að vísa til valdatíðar Davíðs Oddssonar.
– Ég held við séum bara sljó fyrir því, segir hún.
– Hefurðu einhvern tíma komið í einræðisríki? er hún spurð.
– Nei, svarar hún.
– Þá væri búið að loka þig inni núna.
Þannig ganga orðahnippingarnar fyrir sig, þar til einn pottverja segir:
– Æ, hættið nú, ég er kominn með í herðarnar.
Blaðamaður er hinsvegar kominn með rúsínuhendur. Sem lítil dóttir
hans uppgötvaði í fyrsta skipti í baðinu í síðustu viku. Henni krossbrá.
Hún lyfti höndum og sagði lengi á eftir með grátstafinn í kverkunum:
– Mamma – þurrka. Mamma – þurrka.
Morgunblaðið/Arnaldur
Sund í
sólarlaginu
SKISSA
Pétur Blöndal
fór í
Vesturbæjar-
laugina
HANDVERKSTÆÐIÐ Ásgarður
sem er verndaður vinnustaður
fyrir þroskahefta flutti í nýtt hús-
næði í Álafosskvosinni í Mos-
fellsbæ á föstudag.
Rekstur Ásgarðs hefur verið á
hrakhólum síðan húsnæði þess í
Lækjarbotnalandi í Kópavogi
brann í desember 2001 en síðan
þá hefur starfsemin verið í hús-
næði á gamla Kópavogshælinu.
„Við erum ánægð með húsið og
starfsmenn allir spenntir og glað-
ir,“ segir Þór Ingi Daníelsson,
forstöðumaður Ásgarðs, og bætir
við að allir taki þátt í að skipu-
leggja nýja vinnustaðinn.
Ásgarður hefur verið starf-
ræktur frá 1993 og þar vinna nú
20 þroskaheftir starfsmenn. Eft-
irspurn eftir starfi þar er tölu-
verð, að sögn Þórs. Aðal-
framleiðslan er tréleikföng sem
m.a. eru seld á leikskóla. „Við
reynum að hafa leikföngin úr ís-
lenskum veruleika, þau tengjast
gjarnan sjávar- og bændalífi.“
Líflegt og skemmtilegt
Óskar Albertsson hefur unnið í
Ásgarði í tíu ár og Birgir Örn
Björnsson í fjögur. Þeim líkar
báðum afar vel í vinnunni þar
sem þeir smíða leikföng. „Þetta
er svo líflegt og skemmtilegt
hérna,“ segir Óskar og bætir við
að gott sé að vera kominn í nýtt
hús. Þeir segja að nú taki við
mikil vinna áður en sumarfrí
hefjast en þá ætla starfsmenn-
irnir saman til Svíþjóðar þar sem
þeir munu sýna leikritið Draum á
jónsmessunótt. Birgir segir vinn-
una eiga hug sinn allan en Óskar
hefur önnur áhugamál, hefur t.d.
gefið út ljóðabók. En um hvað
yrkir hann? „Bara…sólina, vorið,
fuglasöng, ástina og lífið,“ svarar
hann.
Báðir hafa fylgst grannt með
kosningaumræðunni og ætluðu að
fylgjast með fram á nótt þar til
síðustu tölur liggja fyrir.
Ásgarður flytur í nýtt húsnæði í Mosfellsbæ
Framleiða leikföng úr
íslenskum veruleika
Morgunblaðið/Kristinn
Starfsmenn Ásgarðs við nýja húsið með sýnishorn af framleiðslunni.
LANDSVIRKJUN hefur lagt fram
skýrslu til Skipulagsstofnunar sem
inniheldur tillögu að matsáætlun
fyrir Bjarnarflagsvirkjun í Mý-
vatnssveit í S-Þingeyjarsýslu og
Bjarnarflagslínu 1, 132 kV há-
spennulínu milli Bjarnarflagsstöðv-
ar og Kröfluvirkjunar. Ráðgerir
Landsvirkjun að reisa 90 MW jarð-
varmavirkjun í Bjarnarflagi þar
sem hver áfangi yrði af stærðinni
20–40 MW. Samkvæmt tillögunni er
þessum framkvæmdum ætlað að
mæta aukinni raforkuþörf á al-
mennum markaði og vegna áforma
um aukna sölu á raforku til stóriðju
á næstu árum.
Vinna við mat á umhverfisáhrif-
um fyrirhugaðrar Bjarnar-
flagsvirkjunar og Bjarnarflagslínu 1
er unnin samkvæmt lögum um mat
á umhverfisáhrifum frá árinu 2000.
Stuðst er við fyrri matsskýrslu frá
árinu 2000 sem unnin var sam-
kvæmt eldri lögum um mat á um-
hverfisáhrifum. Þá var miðað við 40
MW jarðvarmavirkjun í Bjarnar-
flagi. Skipulagsstjóri ríkisins úr-
skurðaði framkvæmdirnar í frekara
mat með úrskurði sínum í júní árið
2000 og segist Landsvirkjun ætla að
hafa úrskurðarorðin til hliðsjónar í
þessari matsvinnu.
Ákvarðanir um áfangastækkanir
virkjunarinnar ráðast af viðbrögð-
um jarðhitakerfisins við orkuvinnsl-
unni og áhrifum fyrri áfanga á um-
hverfið, að því er segir í skýrslunni.
Orkugeta hvers áfanga er áætluð
160–320 gígavattstundir á ári sem
samsvarar 8.100 klukkustunda
rekstrartíma á fullu afli.
Háspennulínan er lögð til að
tengja virkjunina raforkuflutnings-
kerfi Landsvirkjunar. Mismunandi
útfærslur eru á legu línunnar og
verða þær bornar saman í mats-
skýrslu. Er talið líklegt að línan
verði að hluta loftlína og að hluta
jarðstrengur. Þá verða í mats-
skýrslu skoðaðir þrír staðir fyrir
stöðvarhús og önnur mannvirki í
grennd við Kísiliðjuna í Mývatns-
sveit, sem á meðfylgjandi korti eru
merktir sem kostir A, B og C.
Úrskurður í haust
Framkvæmdir í Bjarnarflagi eru
háðar leyfi frá nokkrum aðilum, þ.e.
iðnaðarráðherra, sveitarstjórn og
heilbrigðisnefnd Skútustaðahrepps
og Umhverfisstofnunar, en tillögu
að matsáætlun er hægt að kynna
sér nánar á vefsíðu Landsvirkjunar.
Gert er ráð fyrir að drög að mats-
skýrslu fari til Skipulagsstofnunar í
sumar og að úrskurður stofnunar-
innar liggi fyrir í lok október næst-
komandi.
Tillaga komin að matsáætlun fyrir Bjarnarflagsvirkjun
Áform um 90 MW jarð-
varmavirkjun í áföngum
TENGLAR
.....................................................
www.lv.is