Morgunblaðið - 11.05.2003, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11. MAÍ 2003 19
ÁRIÐ 1940 útskrifaðist égúr Verslunarskólanum ogseinni hluta sumars ferég að vinna á Morgun-
blaðinu sem aðstoðargjaldkeri og
fannst mér ég hafa gott kaup, og
pabbi minn átti afmæli í október,
svo ég ætlaði að gefa honum virki-
lega góða afmælisgjöf, þannig að
hann gæti orðið hreykinn af mér
og við kannske náð saman.
Í Austurstræti rétt hjá Morg-
unblaðshúsinu hafði meistari Kjar-
val vinnustofu sína, en hann stóð
oft í dyrum hússins þegar hann
tók sér hlé frá vinnu sinni, fékk
sér ferskt loft og talaði við fólk.
Ávallt er ég gekk fram hjá honum
tók hann „ofan“ fyrir mér og sagði
„góðan daginn“. Svo var það einn
daginn að ég bið vinkonu mína að
koma með mér upp í vinnustofu
Kjarvals, ég ætli að panta hjá hon-
um mynd til að gefa pabba í af-
mælisgjöf (ég var 18 ára). Fórum
við upp og banka ég og kemur
Kjarval til dyra og býður okkur
inn, segi ég honum erindi mitt,
hann verður hugsi, en spyr hvað
pabbi minn geri og segi ég honum
að hann hafi verið sjómaður. Segir
þá Kjarval „þá skal ég sýna þér
mynd af fallegu skipi,“ fer á bak
við tauhengi sem rúmið hans var á
bak við og sækir þangað mynd
sem hékk við rúm hans, var þetta
úrklippa úr Morgunblaðinu inn-
römmuð í gulllitan ramma og
prentað undir, „skútan Björgvin,
eigandi og skipstjóri Ellert Kr.
Schram“. Verður mér að orði, „en
skrýtið, þetta er afi minn.“ Horfir
þá Kjarval á mig og segir „út, ver-
ið sælar“. Vissi ég ekki hvað hafði
skeð.
„Viltu brjóstsykur?“
Liðu svo nokkrir dagar, en þá
kemur Kjarval upp á loft í gamla
Morgunblaðshúsinu. Hann vissi að
ég vann þar, opnar allar dyr, rit-
stjóranna, blaðamannanna og að
lokum þar sem ég sit við skrif-
borðið mitt. Hann sagði ekki neitt
við mig annað en „viltu brjóstsyk-
ur“ svo fór hann. Varð mikil kátína
á ritstjórn út af þessu, ég sagðist
ekki vita hvað ylli. En svo þegar
hann fór að endurtaka brjóstsyk-
ursferðirnar, sagði ég blaðamönn-
unum að ég hefði pantað málverk
hjá Kjarval. Þeir hlógu að mér og
stríddu mér og spurðu hvort ég
vissi á hvað hann seldi svona
myndir. Kvað ég nei við. En þeir
sögðu að ég yrði mörg ár að vinna
fyrir myndinni, runnu nú á mig
tvær grímur.
Svo kemur að því að Kjarval
kemur og biður mig að koma út til
sín eftir vinnu. Ég fékk engan til
að koma með mér og var dauð-
kvíðin að fara. En þegar ég kem,
hafði hann raðað hringinn í kring-
um vinnustofuna nýmáluðum
myndum, margar þeirra voru af
skipum. Segir nú Kjarval að ég
eigi að velja þá sem mér finnist
fallegust. Að athuguðu máli bendi
ég á eina (Sálnaflutning). Hann
segir „þú valdir vel“. Segir hann
mér nú að myndin heiti „Sálna-
flutningur“ og bendir mér á stór-
an boga, eins og hlið lengst til
vinstri og segir að þetta sé
„Gullna hliðið til himna“ og bát-
urinn á myndinni hafi siglt í gegn
með mennina eða sálirnar í bátn-
um, en bendir svo á eina veru sem
stendur á klettum við ströndina og
segir „þetta er vond sál, sem ekki
fékk far“.
„Þú átt ekkert að borga“
Líða svo enn nokkrir dagar og
kemur þá Kjarval með málverkið
innrammað og innpakkað og réttir
mér. Ég fer hreinlega að titra en
get komið út úr mér, að ég hafi
heyrt að hægt væri að semja um
greiðslur og hvort hann vilji
semja. Þá segir hann „þú átt ekk-
ert að borga, þú gafst mér in-
spiration, ég hef ekki málað skip í
mörg ár, og hefði ekki málað þess-
ar myndir ef ég hefði ekki hitt
þig.“ Varð ég yfir mig ánægð og
létti mikið hvað varðaði peningana.
Hlakkaði ég til að gefa pabba
myndina. En þegar að því kom,
varð ég harmi lostin því hann
sagði bara „kallar þú þetta skip,
ég hef aldrei séð skip með svona
stafn, og svo eru þetta engir
menn, farðu bara með myndina
upp í herbergi þitt ef þér þykir
þetta fallegt“. Elsku pabbi hafði
mjög marga kosti, en skilning á
list hafði hann ekki.
Eignaðist afi minn Ellert gjöf
frá Kjarval úrklippuna innrömm-
uðu af skútunni, ásamt kvæðabók-
um eftir Kjarval. Pabbi gaf mér þá
mynd en hafði gleymt því og hana
gaf hann svo syni mínum Árna
Tómasi, sömu myndina. En mál-
verkið gaf ég Kristjáni Tómasi
syni mínum m.a. sem þakklæti fyr-
ir allt sem hann og kona hans
gerðu fyrir mig og föður hans.
Morgunblaðið/Sverrir
Að sögn Kjarvals sýnir myndin Gullna hliðið til himna og bát sem siglt hafi í gegn með sálirnar.
Jónína Vigdís Schram reyndist
Kjarval innblástur.
Sálnaflutningur
Margar sögur eru til tengdar Jóhannesi S. Kjarval listmálara,
enda setti hann verulega mark sitt á íslenskt menningar- og
listalíf á 20. öldinni. Jónína Vigdís Schram segir hér frá sam-
skiptum sínum við listamanninn og aðdraganda þess að hún
eignaðist málverkið „Sálnaflutning“ eftir Kjarval.
Höfundur er fyrrverandi læknaritari.