Morgunblaðið - 11.05.2003, Side 24
Konunglega kapellan.
um herbergjanna breytt til annara
nota og þegar konungsfjölskyldan
hætti að búa í höllinni á 18. öld var
hluta eldhúsanna breytt í íbúðir fyrir
starfsfólk, sem fékk ókeypis húsnæði
gegn því að sjá um viðhald á höllinni
og görðum hennar. Árið 1991 voru
eldhúsin síðan færð aftur í uppruna-
legt horf og er borðbúnaður þeirra til
að mynda frá 16. öld. Eldhúsunum
var þá á sínum tíma skipt niður í 15
deildir, m.a. krydddeild, kökudeild,
brauðdeild og svo mætti lengi telja,
en starfsfólk þeirra vann á neðri hæð-
inni og svaf á þeirri efri.
Upphaflega var suðuherbergið svo
nefnda stærðarinnar herbergi, en á
17. öld var því skipt niður í minni her-
bergi. Kjötherbergið er fyrst þessara
nýju herbergja, en þar eru nú geymd
uppstoppuð dýr. Næst kemur suðu-
herbergið og má þar finna stærðar-
innar koparpott, sem tekur 300 lítra
af vatni, en potturinn var notaður til
að búa til soð og sjóða kjöt. Í fisk-
herberginu var fiskurinn síðan
geymdur í tunnum sem voru fylltar
upp með þörungum. En fiskeldi var
einnig iðkað í vötnum garða hallar-
innar og var fiskurinn þá veiddur
þegar átti að elda hann. Fiskur var til
að mynda á borðum á páskaföstunni,
á föstudögum og stundum á miðviku-
dögum.
Yfirkokkurinn var ábyrgur fyrir
eldhúsunum í heild sinni, en hann
hafði 12 undirkokka og 12 aðstoðar-
menn á sínum snærum. Stóru eldhús-
unum er skipt í þrjú herbergi og
geymir það fyrsta hellur frá 19. öld,
en þeim var komið fyrir í arni sem var
í herberginu eftir að eldhúsunum
hafði verið breytt í vistarverur. Í mið-
herberginu er annar arinn og er sá
ekki upprunalegur. Grillið er hins
vegar upprunalegt frá 17. öld líkt og
kolahellurnar og vélrænu spjótin eru
sömuleiðis upprunaleg. Þriðja her-
bergið er það elsta og er það frá 1514.
Þegar komið er út úr stóru eldhús-
unum er gengið inn í þjónustuher-
bergið, en þar má sjá inn í krydd-
unarherbergið þar sem mikilvægasti
maturinn var kryddaður og skreyttur
áður en hann var borinn á borð. Úr
þjónustuherberginu var maturinn
síðan borinn á borð í borðstofunni og
líffvarðasalnum. Í kjallarunum voru
svo m.a. vín- og bjórgeymslur hall-
arinnar, en um 300 tunnur af bjór og
álíka magn af víni var drukkið í
Hampton Court árlega.
Íbúðir konungs
Íbúðir konungs voru gerðar fyrir
Vilhjálm III í lok 17. aldar, en áður
voru þetta vistarverur Hinriks VIII.
Upphaflega vildi Vilhjálmur láta rífa
Hampton Court og reisa þar nýtísku-
legri byggingu en til þess skorti bæði
tíma og peninga og voru íbúðir kon-
ungs og drottningar þess í stað gerð-
ar upp í suður- og austurálmum hall-
arinnar. Í dag eru íbúðirnar eins og
þær voru gerðar upp fyrir Vilhjálm.
Veggmyndir í breiðstiga hallarinn-
ar eru verk ítalska málarans Antonio
Verrio og eru frá því um 1700. Í líf-
varðarherbergi konungsins sá kon-
unglega lífvarðasveitin en liðsmenn
hennar eru betur þekktir undir heit-
inu „Beefeater“, um að „hvorki
ókunnugir, flækingar né illviljaðir“
kæmust inn í íbúðir konungs. Verð-
irnir voru 100 talsins og voru 40 á
vakt á mismunandi vöktum. Í lífvarð-
arherberginu eru 3.000 vopn og tré-
listaverkin á veggjunum eru verk
Grinling Gibbons.
Dagstofa konungs var stundum
notuð sem áheyrnarherbergi, þótt yf-
irleitt hafi áheyrnir farið fram í
einkaherbergi konungs. Í dagstof-
unni er stærðarinnar málverk frá
1701 eftir Sir Godfrey Kneller af Vil-
hjálmi III á hestbaki og yfir arninum
er málverk af James Hamilton eftir
Daniel Mytens frá um 1624, en Ham-
ilton gegndi ýmsum störfum fyrir
Jakob I (1603–1625). Á veggjum má
þá finna tvö af mikilvægustu vegg-
teppum Hampton Court, en þau lét
Hinrik VIII gera fyrir Whitehall höll-
ina í kringum 1540. Vilhjálmur III
flutti veggteppin síðan til Hampton
Court árið 1700.
Í borðstofunni snæddi Vilhjálmur
III stundum ásamt hirðmönnum sín-
um og þegar konungur borðaði þar
var komið þar fyrir stóru borðstofu-
borði. Í einkaherbergi konungsins
voru síðan haldnar aðalathafnirhall-
arinnar, en þar var m.a. tekið á móti
sendiherrum og hirðathafnir fóru þar
fram. Einkaherbergi konungs eyði-
lagðist næstum því algjörlega í elds-
voðanum árið 1986, en þó náðist að
bjarga húsgögnunum áður en loftið
féll og hefur herbergið nú verið gert
upp að nýju. Veggteppin sem það
prýða lét Hinrik VIII gera og sýna
þau sögu Abrahams, en málverkið yf-
ir arninum er af Elísabetu drottningu
Bohemíu, dóttur Jakobs I og systur
Karls I (1625–1649), og er verk Gerr-
itt van Honthorst. Í hinu stóra svefn-
herbergi konungs var konungur síð-
an klæddur á hverjum morgni í
viðurvist hirðmanna sinna. Svefnher-
bergið er prýtt gylltum húsgögnum,
loftið myndskreytt af Antonio Verrio
og speglarnir teljast þeir fallegustu í
vistarverunum. Kertastjakarnir á
veggjum herbergisins eru þá eftir-
mynd hinna upprunalegu kerta-
stjaka, sem nú eru geymdir í Buck-
ingham-höll. Hið litla svefnherbergi
konungs var algengari svefnstaður
fyrir konung en stóra svefnherberg-
ið. Á hillu yfir arninum er kínverskt
og japanskt postulín, sem Maria II
(1689–1694) safnaði og loftið mynd-
skreytti Antonio Verrio. Í vinnuher-
bergi konungs tók konungur síðan á
móti ráðherrum, en skrifborðið til-
heyrði Vilhjálmi III og á borðinu eru
skjöl undirrituð af honum. Til vinstri
við herbergið er 17. aldar salerni,
sem að öllum líkindum var notað af
Karli II (1649–85).
Einkastigi Vilhjálms III var breið-
ur stigi sem leiddi niður til vistarver-
anna á neðri hæðinni, en þegar komið
er niður stigann má sjá lítið herbergi
sem geymir muni tengda Vilhjálmi
III og hirð hans. Í litla herberginu
austanmegin dvaldi hins vegar greif-
inn af Albemarle þegar Vilhjálmur
III var fjarverandi. Málverkin í því
herbergi eru frá tímum Vilhjálms III,
en í litla miðherberginu eru einnig
Svefnherbergi konungs. Borðstofan.
24 SUNNUDAGUR 11. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Kynning á matsskýrslum
Landsvirkjun kynnir skýrslur um mat á umhverfisáhrifum virkjana í Þjórsá við
Urriðafoss og Núp í opnu húsi í Brautarholti á Skeiðum, að Laugalandi í Holtum
og í stjórnstöð Landsvirkjunar í Reykjavík.
Í Brautarholti á Skeiðum þann 13. maí frá kl. 14 til kl. 22
Að Laugalandi í Holtum þann 14. maí frá kl. 14 til kl. 22
Í stjórnstöð Landsvirkjunar við Bústaðaveg þann 15. maí frá kl. 14 til kl. 20
Í opnu húsi verða kynntar niðurstöður mats á umhverfisáhrifum.
Einnig gefst tækifæri til að ræða við fulltrúa Landsvirkjunar og ráðgjafa fyrirtækisins.
Virkjanir í Þjórsá við Urriðafoss og Núp
og breytingar á Búrfellslínum 1 og 2
Matsskýrslur ásamt sérfræðiskýrslum eru aðgengilegar á heimasíðu Landsvirkjunar: www.lv.is