Morgunblaðið - 11.05.2003, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 11.05.2003, Blaðsíða 29
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11. MAÍ 2003 29 ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N E H F/ SI A .I S H IR 2 11 05 0 5. 20 03 Bjarni Ármannsson forstjóri Íslandsbanka Helga Jónsdóttir borgarritari Reykjavíkurborgar Hannes Smárason aðstoðarforstjóri Decode Fundirnir verða á 3ju hæð Háskólans í Reykjavík, hefjast kl. 12:05 og lýkur laust fyrir kl. 13:00. Léttar veitingar verða í boði. Sjá nánar á www.ru.is Umsóknarfrestur um MBA nám er til 28. maí. www.ru.is/mba MBA Dagana 12.–14. maí verða haldnir opnir hádegisfundir þar sem MBA útskriftarnemar kynna lokaverkefni sín og draga af þeim stærri ályktanir. Lykilaðilar úr viðskiptalífinu flytja inngangsorð og taka þátt í umræðum. Hádegisfundirnir verða hver með sínu þema; á mánudeginum verður kastljósinu beint að nýsköpun, á þriðjudeginum velta menn fyrir sér opinbera geiranum og þeim áskorunum sem stjórnendur þar standa frammi fyrir og á miðvikudeginum verða bankar og fjármál fyrirtækja til umræðu. Hádegisfundirnir eru öllum opnir og eru þeir kjörið tækifæri fyrir þá sem vilja kynna sér þær kenningar og hugmyndir sem efst eru á baugi varðandi stjórnun og stefnumótun – og hvernig þær eru notaðar við ólíkar aðstæður í íslenskum veruleika. Magnús Orri Schram Sævar Kristinsson Ása Richardsdóttir Stefán Róbert Gissurarson Stéfán Hjörleifsson Magnús Pálmi Örnólfsson Hildur Hörn Daðadóttir Guðbjörg Pétursdóttir Hjörtur Eiríksson Rut Jónsdóttir MBA nemendur: MBA nemendur: MBA nemendur: Hádegisfundir 12.–14. maí Fundirnir verða á 3ju hæð Háskólans í Reykjavík, hefjast kl. 12:05 og lýkur laust fyrir kl. 13:00. Léttar veitingar í boði. Mánud. 12. maí Er vit í nýsköpun? Þriðjud. 13. maí Samkeppnishæfni opinbera geirans Miðvikud. 14. maí Fjármálamarkaðir á tímamótum GUÐRÚN Friðgeirsdóttir kveðst hafa skrifað þessar bernskuminningar fyrir börn sín. Ritgerð um sama efni, sem færði henni dálítil verðlaun, hafi síðan orðið sér hvatning til að gefa þetta út. Í inngangi þakkar hún mörgum sem aðstoðuðu hana á einn eða annan hátt við samantekt bókar- innar. Fleiri stoðum er því skotið undir frásögnina en minni hennar einu saman. Fjöldi fólks kemur við sögu. Víðast hvar er nafni, sem nefnt er, fylgt eftir með fáorðri mannlýsingu auk annars konar fróðleiks um hagi viðkomandi. Flest er það á jákvæðu nótunum. Þótt líf söguhetjunnar, sem ólst upp með einstæðri móður norður á Húsavík, hafi ekki einatt verið tek- ið út með sældinni, verður dagur hver bjartur í endurminningunni. Nágrannar, venslafólk og aðrir, sem við sögu koma, reynast henni undantekningarlítið vel, eru góðir og hjálpsamir, áreiðanlegir og um- talsfrómir. Lýsingar Guðrúnar á þessu góða fólki eru því fremur einhæfar; lofsamlegu ummælin minna hver á önnur. Þar af leiðir að saga hennar getur kallast breið en ekki sérlega djúp. Það er eins og vanti skuggana til að skerpa drættina í myndinni. Sumar eitt lenti hún hjá vondu fólki, að vísu. Ekki segir hún margt af innræti þess og útliti en því fleira af fram- ferði þess gagnvart sér, ellefu ára barninu. En hún lætur hjá líða að nefna það með nafni. Og það er miður. Höfundur á að standa eða falla með orðum sínum. Móðir Guðrúnar var verkakona. Hún varð því að strita myrkranna á milli til að sjá fyrir sér og börn- um sínum tveim. Afrakstur vinn- unnar gerði samt ekki meira en hrökkva fyrir brýnustu nauðþurft- um þar sem kaup kvenna var þá miklu lægra en karla. Eitt sinn vakti hún telpuna um miðja nótt til að aðstoða sig við jólabaksturinn. Vinnuálags og annarra aðstæðna vegna varð það verk ekki unnið á öðrum tímum sólarhrings. Þrátt fyrir annríkið lét móðirin þó eftir sér að syngja í kvennakór og sam- neyta fólki. Guðrún segir að jafnan hafi ver- ið svarað óljóst þegar talið barst að viðkvæmum fjölskyldumálum. Mátti sú nærgætnin heita meira en skiljanleg þar sem hún var þá barn að aldri. Ljóst er að hún hef- ur upp frá því tileinkað sér þessa gætni því samur er háttur hennar sjálfrar í þessum bernskuminning- um sínum. Hún hefur lag á að segja einungis hálfa söguna. Læt- ur þá lesandanum eftir að draga sínar ályktanir. Fyrstu árin á Húsavík var kreppan hvað hörðust eftir að Ís- lendingar höfðu – ofan á annað – misst saltfiskmarkaðinn á Spáni sem fleytt hafði þjóðinni upp úr dýpsta öldudalnum. Þrátt fyrir óáran þessa kveður Guðrún Hús- víkinga hafa sloppið öðrum skár þar sem þeir hafi þá getað nýtt fleiri úrræði sér til bjargar. Verka- lýðsmálin voru þá mjög á dagskrá. Víkur Guðrún að þeim í sérstökum kafla án þess þó að rekja þá sögu í þaula. Í öðrum kafla rifjar hún upp skólamálin, svo í héraði sem á landsvísu. Á sumrin var telpan send í sveit eins og þá var altítt. Búskapar- hættir og híbýlahættir til sveita voru þá víða með fornfálegu sniði. Og sjálfsþuftarbúskapurinn út- heimti enn sem fyrr stanslausan þrældóm. Að venju voru börn höfð til snúninga og léttari starfa undir eins og þau höfðu aldur og krafta til. Misjafnt var hvernig sumar- dvalarbörn tóku erfiðinu. Guðrún litla hefur verið nógu viljug og létt í lund til að samlagast umhverfinu og njóta tilbreytingarinnar. Raun- ar verður þess sjaldan vart á þess- um árum að hún hafi ekki sætt sig við kjör sín og aðstæður. Stríð og hernám færðu svo með sér peninga og ný úrræði. Unga stúlkan komst í menntaskóla. Sumarið áður hafði hún að sönnu lagt lykkju á leið sína, og það held- ur betur, verið vinnukona á reyk- vísku efnaheimili, fimmtán ára gömul. Þá er líka komið að nafn- gift bókarinnar: Norðanstúlka. Og það heiti getur aðeins átt við þenn- an eina kafla. Ennfremur bendir það til hliðsjónar af Atómstöðinni sem gerist í Reykjavík um sömu mundir. Atómstöðin fól í sér snarpa og neyðarlega þjóðfélags- ádeilu. Sama má segja um þennan kafla í bók Guðrúnar sem ber yf- irskriftina: Í vist hjá fínu fólki. Sárindin ber hún enn eftir með- ferðina, tæpum sextíu árum síðar. En þarna gafst henni svo sann- arlega færi á að skyggnast inn í veröld sem var. Það sem kom henni fyrir sjónir sem hroki og yf- irlæti var aðeins gamli tíðarandinn frá Evrópu sem fyrirfólk hafði tamið sér hér sem annars staðar. Guðrún þraukaði þarna sinn til- skilda tíma. Að því loknu hélt hún aftur norður yfir heiðar, frelsinu fegin. Og þar með lýkur þessari sögu Norðanstúlku. Um hæfileika Guðrúnar til að skrifa góðan texta þarf varla að efast. Hún hefur prýðisgott vald á íslensku máli. Og frásögn hennar er yfirhöfuð ljós og skýr. Og að lesa sögu bláfátækrar stúlku sem rís úr öskustó af eigin rammleik og lýkur magistersnámi við er- lendan háskóla er ævintýri sem engan lætur ósnortinn. Hins vegar hefði slík atorkukona mátt skipu- leggja verk sitt með meiri yfirsýn og kostgæfni þegar hún tók að færa í letur þessar endurminning- ar sínar. Sumt er þarna ofsagt, annað vansagt. Bókin hefði að skaðlausu mátt vera fimmtíu til hundrað síðum lengri. Og nafna- skrá hefði að sjálfsögðu aukið vægi hennar til mikilla muna. Bernskuárin blíð BÆKUR Endurminningar bernskusaga eftir Guðrúnu Friðgeirs- dóttur. 153 bls. Útg. höfundur. Prentun: Gutenberg. 2002. NORÐANSTÚLKA Erlendur Jónsson Moggabúðin Geisladiskahulstur, aðeins 700 kr. Moggabúðin Músarmotta, aðeins 450 kr. AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.