Morgunblaðið - 11.05.2003, Side 34
SKOÐUN
34 SUNNUDAGUR 11. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN
einn flokka í þessu landi á stefnu sem
boðar fráhvarf frá sósíalistískri mið-
stýringu heilbrigðismála. Í sjálfstæð-
isstefnunni er virðingin fyrir einstak-
lingnum, sjálfstæði hans og frelsi
aðalatriði en forræðishyggja, mið-
stýring og ríkisrekstur eru andstæð-
ur hennar. Stefna flokksins í heil-
brigðismálum hefur mótast á
Landsfundum gegnum árin með eft-
irfarandi aðalatriði meir en áratug:
Dregið verði úr miðstýringu og
rekstri á vegum heilbrigðisráðuneyt-
isins. Heilbrigðisútgjöld verði að-
greind frá öðrum útgjaldaliðum rík-
issjóðs. Sjúkratryggingar
einstaklinga verði endurvaktar.
Kostnaður við alla heilbrigðisþjón-
ustu verði ljós. Skipulagning og fjár-
hagsleg ábyrgð færist frá ríki til
stofnananna sjálfra. Aukin fjöl-
breytni verði í rekstrarfyrirkomu-
lagi. Valfrelsi einstaklinga verði
tryggt.
Ónotuð stefna
Sá er þó galli á að stefna flokksins
hefur ekki verið notuð. 12 ára ríkis-
stjórnarforysta Sjálfstæðisflokksins
hefur þar ekki dugað til. Meirihluti
heilbrigðisþjónustunnar, sá langdýr-
asti, þ.e. sjúkrahúsin en einnig heilsu-
gæslan, hefur verið í ánauð ríkisrek-
innar miðstýringar í áratugi. Er það
umfangsmesti ríkisrekstur í landinu.
Orðið ánauð er sterkt orð en þó við
hæfi. Minnast má hins „skelfilega
ástands“ stofnanabundinni þjónustu
barna- og unglingageðlækninga sem
nýlega blasti við fréttaljósum. For-
stjóri ríkisspítalanna hafði þó löngum
reynt að fela ástandið með einskonar
fjölmiðlabanni á yfirlækna. Langir
biðlistar af ýmsu tagi umkringja rík-
isspítalana. Aðrir biðlistar innan spít-
alanna. Heilsugæslustöðvakerfið, áð-
ur óskabarn, er í vanda, víða lamað og
lemstrað af ofstjórn miðstýringar.
Nýjustu fréttir um hina úreltu rík-
iseinokun greina frá ársbið eftir
heyrnartækjum hjá viðkomandi rík-
isstofnun. Fyrirtæki við hliðina getur
stytt biðina í fáar vikur en þar nýtur
sjúklingurinn ekki niðurgreiðslu
Tryggingastofnunar ríkisins.
Meðan ríkisreknu þjónustukerfin
virka seint eða ekki eru það sjálfstætt
starfandi stofur og stofnanir sér-
fræðilækna og annarra heilbrigðis-
starfsmanna sem æ oftar bjarga mál-
um og halda uppi þjónustustiginu.
Þar er hinn raunverulegi vöxtur og
framþróun í heilbrigðisþjónustunni
síðari ár. Þjónusta þessi getur kostað
almenning talsvert þrátt fyrir
greiðsluþátttöku sjúkratrygginga en
er afar ódýr hvað varðar opinbert fé.
Kostar aðeins rúm 4% af því skattfé
sem fer til allra heilbrigðismála.
Þjónustan er persónuleg og þótt hún
anni sjaldnast vaxandi eftirspurn er
hún þjónustumiðuð og aðgengileg og
það hefur fólk metið.
Ríkisforsjá er
aldrei treystandi
Haustið 2001 kynnti fjármálaráð-
herra fjárlagafrumvarp með 18 millj-
arða tekjuafgangi ríkissjóðs og
brosti. Forsætisráðherra sagði að
miðað við þá góðu stöðu væri ástæða
til að hyggja að heilbrigðismálum og
sérstaklega geðheilbrigðisþjónustu.
„Enginn sér eftir því fé sem fer til
heilbrigðismála.“ Menn glöddust,
sumir gætilega en þóttust þó greina
fyrirheit í einlægni þessara orða.
Leiðari Morgunblaðsins fagnaði. Ein-
hverjir liðir höfðu þó ekki ratað inn í
fjárlagadæmið og skömmu síðar rann
upp hinn frægi 11. september með
eftirmálum sínum, m.a. kröfum um
ríkisábyrgðir á stórhækkuðum
tryggingum flugfélaga. Um sama
leyti var geðdeildum á ríkisspítölum
lokað í allstórum stíl sem hefði getað
verið í lagi hefði eitthvað komið í stað-
inn. Svo var ekki. Vandræði geð-
sjúkra jukust og dreifðust um sam-
félagið. Í niðurskurði á fjárlaga-
frumvarpinu var undir áramót
ákveðið að hækka komugjöld
(minnka tryggingar) sjúklinga sem
leituðu þjónustu hjá læknum utan
spítala til að létta með því byrðar rík-
isins. Eftir áramótin krafðist ASÍ
lækkunar á framfærslukostnaði sem
kominn var yfir ,,rauða strikið“ og
voru þá komugjöld sjúklinganna
lækkuð aftur til að bjarga vísitölunni.
Þessi saga segir einfaldlega að heil-
brigðiskerfið ríkisrekna er notað sem
hagstjórnartæki hvenær sem er.
Tryggingar í höndum ríkisins eru
engar öruggar tryggingar. Fjöl-
skylda í fjárþröng hefði ekki skorið
niður tryggingar sínar og öryggi.
Sagan lýsir einfaldri afstöðu stjórn-
málamanna sem líta á heilbrigðismál
sem útgjöld, ölmusukerfi, ,,velferð“.
Þá lýsir hún barnslegri trúgirni á rík-
isforsjána sem alltaf bregst. Barns-
trúnni á jólasveininn. Trúin á ,,rétt-
læti“ og forsjá að ofan er sterk.
Minnir á meðvirk börn vanhæfra for-
eldra vön endalausum vanefndum.
Tryggingar eða
ríkiseinokun og skömmtun
Sjúkratryggingar okkar, áður
nefndar sjúkrasamlög, stóðu eitt sinn
að mestu undir öllum kostnaði við
heilbrigðismál. Eru þær nú svipur
hjá sjón. Þær nutu áður persónulegr-
ar ábyrgðar eigenda sinna, einstak-
linganna, sem greiddu til þeirra beint
þriðjung kostnaðar, sveitarfélagið
annan, ríkið þann þriðja. Fólk greiddi
þau gjöld jafnan fyrst allra gjalda.
,,Sjúkrasamlögin komu eins og send-
ing af himnum ofan fyrir fátækt fólk,“
sagði dr. Bjarni Jónsson á Landakoti
en dr. Bjarni var ungur læknir í
Reykjavík þegar þau komust á. Ekki
verður rakið hér hvernig Íslendingar
glutruðu forræði þessara trygginga
úr höndum sér alla leið niður í rík-
issjóð vegna oftrúar á opinbera
forsjá.
Sjúkratryggingar okkar eru vissu-
lega ennþá til með takmarkað hlut-
verk þó en mjög mikilvægar til að
auðvelda fólki greiðslur fyrir heil-
brigðisþjónustu utan sjúkrahúsa.
Þær eru varðveittar í Trygginga-
stofnun ríkisins. Tryggingahugtakið
hefur varðveist í aðalatriðum. En
framlög til sjúkratrygginga okkar
eru óskilgreint skattfé skammtað
okkur til baka með fjárlögum.
Skammturinn er venjulega búinn
löngu fyrir áramót. Upphefjast þá
deilur um hvort fólk skuli hætta að
veikjast, sjálfstætt starfandi læknar
skuli hætta að vinna, gefa afslátt eða
vinna ókeypis til áramóta.
Fólk sem hefur komið sér upp alls-
konar tryggingum, lífeyrissjóðum og
heyrir daglega auglýstar líf- og
sjúkdómatryggingar fyrir alla fjöl-
skylduna hlýtur að spyrja æ oftar:
,,Hver er trygging mín í þessu kerfi
sem ég er alltaf að borga í gegnum
skatta og sagt er kosta 100 milljarða á
ári? Á ég einungis rétt á biðlistum?
Fæ ég aldrei heimilislækni aftur? Get
ég orðið öruggari? Myndu auka-
tryggingar virka? Get ég keypt mér
viðbótartryggingu við eitthvað sem
breytist sífellt og enginn samningur
er til um?
Mikilvægustu verkefni stjórnmála-
manna þegar kemur að heilbrigðis-
þjónustu eru einkum tvö. Annars
vegar að ákvarða með lögum hver
skuli vera lágmarksskyldutrygging
hvers íslensks ríkisborgara. Hins
vegar að skilgreina hverjar trygging-
ar okkar eru svo að fólk viti hvað það
hefur og geti bætt við sig tryggingum
af skynsemi ellegar tryggt sig hjá
öðrum en ríkinu.
Hvernig eru raunverulegar
sjúkratryggingar?
Sá sem hefur raunverulega sjúkra-
tryggingu hefur skýran rétt. Hann
hefur tryggt sér rétt til að fá lækn-
ishjálp, hjúkrun, sjúkraflutning og
sjúkrahúsvist án tafar og eftir þörf-
um sé slíkt yfirleitt fáanlegt þar sem
hann er staddur á jörðinni. Trygging-
arkort hans er hliðstætt viðskipta-
kortum. Hann er neytandi með rétt
og fjárhagslegt vægi. Ekki réttlaus
þurfamaður á biðlista eða sjúklingur
úti á gangi á yfirfullum spítala.
Trygging þessi hlýtur að vera tak-
mörkuð að einhverju leyti, innihalda
sjálfsábyrgð eða tilgreinda takmark-
aða ábyrgð á annan hátt, en samn-
ingar þar um eiga að vera skýrir eins
og í alvöru viðskiptum.
Kosningar
Nú boða allir flokkar lækkun
skatta, sumir minni ríkisútgjöld. En
allir vita að betur þarf að gera í sam-
göngumálum, félagsmálum, land-
helgis-, fangelsis-, dóms- og lögreglu-
málum, mennta- og menningarmál-
um og sannarlega í vanræktum
heilbrigðismálum. Ófyrirséð mál
gætu komið upp og krafist forgangs.
Heilbrigðismál í höndum ríkisins og
án raunverulegra trygginga eru óvar-
in í þessari samkeppni.
Nýjung ASÍ
Svonefnd velferðarnefnd ASÍ, ger-
ir ráð fyrir miðstýringu áfram og
reiðir sig mjög á heilsugæsluna til að
auka hagkvæmni, séstaklega til að
minnka kostnað og vöxt hinnar vin-
sælu þjónustu sjálfstætt starfandi
sérfræðinga. Vill nefndin vekja upp
gamlan draug, tilvísanaskylduna.
Þarna gætir þekkingarleysis á þeirri
staðreynd hve hagkvæm sérfræði-
þjónustan er sem og á þeirri hörðu
staðreynd að heilsugæslan er víða
fjarri því að ráða við verksvið sitt. Til-
vísanaskylda myndi þýða meiri vinnu
heilsugæslunnar, tafir og snúninga
fyrir sjúka og aukinn kostnað allra.
Þarna er þó merk nýjung á ferð.
Valfrjálst stýrikerfi nefnist sú hug-
mynd velferðarnefndarinnar að efn-
aðra fólk og þeir sem ekki geta beðið
megi komast framhjá draugnum
beint til sérfræðinga með því að af-
sala sér tryggingarétti sínum. Þótt
þetta sé skrítið réttlæti er hér með
fellt úr gildi það heilaga boðorð mið-
stýringarmanna að enginn megi
stytta biðröð með því að kaupa sig út
úr henni öllum til hagsbóta.
Tillögur sjálfstæðismanna
Í nýrri stjórnmálaályktun segir svo
um heilbrigðismál. „Landsfundur
leggur áherslu á að allir landsmenn
búi við jafnrétti og valfrelsi og njóti
fullkomnustu heilbrigðisþjónustu
sem á hverjum tíma eru tök á að
veita. Ríkisvaldið skal tryggja öllum
landsmönnum þennan rétt og bera
ábyrgð á fjármögnun heilbrigðisþjón-
ustu.“
Þessar inngangssetningar virðast í
fljótu bragði bjóða upp á miklar van-
efndir ríkisins ef ekki ,,ánauð mið-
stýringar“ áfram. Ríki sem hefur tek-
ist á hendur að veita öllum íbúum alla
mögulega heilbrigðisþjónustu hefur
tekið að sér bæði óskynsamlegt og
óendanlegt verkefni. Upplýstir ein-
staklingar geta flestir og eiga að bera
ríka ábyrgð á eigin heilsu og trygg-
ingum. Óhollur lífsstíll kostar heilsu
og endalausa heilbrigðisþjónustu.
Fjöldi hugmynda fylgir þó í álykt-
uninni og ganga flestar í þá átt að
minnka ríkisrekstur og dreifa
ábyrgð. Lagt er til að öll stig öldr-
unarþjónustu færist yfir til sveitarfé-
laga. Þar geta þau mál notið eðlilegr-
ar ábyrgðar og skynsemi heima-
manna. Sama ætti að gilda um
heilsugæslu.
Í ályktun um tryggingamál segir:
,,Landsfundur leggur áherslu á það
grundvallaratriði að allir borgarar
eigi jafnan rétt á heilbrigðisþjónustu.
Fundurinn telur að breyta þurfi kerfi
sjúkratrygginga á þann veg að ljóst
sé að um raunverulegt trygginga-
kerfi sé að ræða þar sem menn njóta
tiltekinna skilgreindra réttinda til
heilbrigðisþjónustu sem þeir hafa
greitt fyrir með iðgjöldum. Skattar
lækki sem nemi iðgjöldum til sjúkra-
trygginga. Í stað fastra fjárlaga verði
rekstur í heilbrigðisþjónustu fjár-
magnaður með greiðslum fyrir unnin
verk og þjónustu. Réttindi þeirra sem
ekki geta greitt iðgjöld verði tryggð.
Hvatt er til þess að einstaklingsfram-
takið verði nýtt á sem flestum sviðum
í rekstri heilbrigðisþjónustu til þess
að sem mestri hagkvæmni verði náð,
sjúklingum til hagsbóta.“
Samhjálparhugsjónin og sjálfstæð-
isstefnan fara hér saman.
Sjúklingar,
neytendur með rétt
Neytendur heilbrigðisþjónustu
þurfa að vera sjúkratryggðir. Aðeins
þannig hafa þeir rétt og valfrelsi.
Sem handhafar raunverulegra, skil-
greindra sjúkratrygginga hafa sjúk-
lingar fjárhagslegt vægi og sjálfstæði
og eru ekki einungis skattgreiðendur
og réttlitlir þiggjendur á biðlistum
fjárvana ríkisrekinna stofnana. Slík
stefna varðveitir virðingu og sjálf-
stæði einstaklingsins þótt hann verði
sjúkur. Stuðlar að sjálfstæði heil-
brigðisstofnana og styrkir samfélag-
ið. Slík stefna getur staðið undir nafni
sem sjálfstæðisstefna í heilbrigðis-
málum.
SJÁLFSTÆÐISSTEFNA
Í HEILBRIGÐISMÁLUM
Eftir Ingólf S.
Sveinsson
„Meirihluti
heilbrigð-
isþjónust-
unnar, sá
langdýrasti,
þ.e. sjúkrahúsin en
einnig heilsugæslan,
hefur verið í ánauð
ríkisrekinnar mið-
stýringar í áratugi.“
Höfundur er læknir í Reykjavík.
Sími 552 1400
fax 552 1405
Laugavegi 170, 2. hæð, 105 Reykjavík
Viðar Böðvarsson
viðskiptafræðingur
löggiltur fasteignasali
Heimasíða: www.fold.is - Netfang: fold@fold.is
Barmahlíð 46
Opið hús í dag milli
kl. 13.00 og 15.00
Erna og Haraldur taka vel á móti ykkur. Er-
um með mjög góða 94 fm miðhæð ásamt
bílskúr í góðu steinsteyptu húsi. Tvö góð
herbergi, stofa og borðstofa. Fallegt mer-
bau-parket á gólfum. Suðursvalir. Skipt
verður um þakjárn á kostnað seljanda. Áhv.
8,5 millj. húsb. og bygg.sj. Verð 15,9 millj.
Frábærlega staðsett einbýlishús með bílskúr gegnt Akureyri með
útsýni um allan Eyjafjörð. Húsið er 220 fm með 200 fm verönd í
kringum húsið, heitir pottar inni og úti. Þetta er hús fyrir vandláta,
stórar fj, vinahóp eða stéttarfélög. Myndir á holl.is
Akureyri
EKRA EYJAFIRÐI
Vilhelm Jónsson
Fasteignasalan Hóll
Hafnarstræti 83
600 Akureyri
s. 461 2010 & 891 8363
GSM 896 8232
LANGAMÝRI 28 - GBÆ
Björgvin og Hrönn taka á móti áhuga-
sömum í dag og sýna glæsilega +85 fm
íbúð á 2. hæð auk 23,4 fm bílskúrs. Parket
og flísar á gólfum, góð lofthæð, góðar
svalir. Mjög vandaðar sérsmíðaðar inn-
réttingar. Björt og góð íbúð á frábærum
stað rétt hjá skóla og íþróttasvæði. Algjör
draumastaður fyrir krakkana.
Verið velkomin.
OPIÐ HÚS Í DAG FRÁ KL. 15-17