Morgunblaðið - 11.05.2003, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 11.05.2003, Qupperneq 35
SKOÐUN MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11. MAÍ 2003 35 RAÐHÚS Dalsel - m. aukaíbúð Glæsilegt raðhús m. aukaíbúð í kjallara. Á miðh. er forst., snyrting, hol, stór stofa, eldhús og búr. Á efri hæð eru 3 herb., baðh. og hol. Í kj. er sér 3ja herb. íbúð. Húsið hef- ur allt meira og minna verið endurnýjað. Lóðin er mjög falleg, m.a. ný stein- hleðsla og heitur pottur. V. 19,9 m. 3332 HÆÐIR Miðbær - útsýnisíbúð Stór- glæsileg 162 fm „penthouse“-íbúð á tveimur hæðum. Mikil lofthæð, einstakt útsýni, tvennar svalir, lútað parket og flísar. Einstök íbúð með miklum stór- borgarbrag, tvö einkabílastæði. V. 28,5 m. 3302 4RA-6 HERB. Miðleiti - glæsilegt 4-5 herbergja glæsileg 127 fm endaíbúð á 3. hæð ásamt stæði í bílageymslu sem er innan- gengt í. Íbúðin skiptist í hol, stofu, borð- stofu, eldhús, þv.h., baðh. og 3 herb. Ákv. sala. V. 18,9 m. 3321 Fálkagata Snyrtileg og björt 4ra her- bergja íbúð ásamt sérgeymsluí kjallara. Íbúðin skiptist í hol, þrjú herbergi, eld- hús, baðherbergi og stofu. Mjög fallegt útsýni. V. 12,9 m. 3292 Flúðasel - 4-5 herb. Vorum að fá í sölu fallega 4ra-5 herb. 116 fm íbúð á 2. hæð í nýlega standsettu fjölbýli. Íbúð- in skiptist m.a. í stórt hol, stofu, borð- stofu og 3-4 herbergi. Yfirbyggðar svalir. Íbúðinni fylgir stæði í bílageymslu. V. 14,3 m. 3054 3JA HERB. Skaftahlíð - rúmgóð Vorum að fá í sölu mjög góða 95 fm íbúð á 1. hæð í litlu fjölbýli. Endurnýjað eldhús. Svalir til suðurs. V. 12,9 m.3320 Frostafold - bílskúr Falleg 80 fm 3ja herb. íbúð á jarðhæð með sérinn- gangi og sérgarði með verönd við Frost- afold auk 20 fm bílskúrs. Íbúðinni fylgir bílskúr. Eignin skiptist í forstofu, hol, eldhús, þvottahús/búr, baðherbergi, her- bergi og stofu. Sérgeymsla í kjallara og sameiginlegt þvottahús. V. 12,9 m. 3265 Kleppsvegur - útsýni Vorum að fá í sölu mjög fallega 77 fm 3ja herb. íbúð á 4. hæð í lyftuhúsi. Góðar suður- svalir. Mjög fallegt útsýni er úr íbúðinni til norðurs og suðurs. V. 10,9 m. 3312 Fífulind Mjög falleg 3ja herbergja u.þ.b. 90 fm íbúð á 2. hæð á þessum eftirsótta stað. Eignin skiptist m.a. í stofu, borðstofu, tvö herbergi, baðher- bergi og eldhús. Sólríkar suðursvalir. Gott skipulag. Eftirsóttur staður. V. 13,5 m. 3309 Dyrhamrar - glæsilegt útsýni 3ja herb. mjög falleg um 100 fm íb. á 2. hæð m. sérinng. af svölum. Íbúðin skipt- ist í stóra stofu m. útskotsglugga, tvö stór herb., stórt eldhús, stofu m. út- skotsglugga o.fl. V. 13,4 m. 3247 Naustabryggja Ný, glæsileg 87 fm 3ja herbergja íbúð á jarðhæð með stórri verönd (25 fm) auk stæðis í bílageymslu í nýju húsi sem tekið hefur verið í notkun í Naustabryggju. Eignin skiptist í hol, stofu, eldhús, baðherbergi og tvö her- bergi. Allar hurðir, innréttingar og gólf- efni eru úr eik. 3325 2JA HERB. Keilugrandi Falleg 52 fm 2ja her- bergja íbúð á jarðhæð sem skiptist í for- stofu, stofu, baðherbergi, svefnherbergi og eldhús.Þvottaherbergi er í sameign á jarðhæðinni. V. 8,9 m. 3272 Skeljagrandi - sérinng. Vorum að fá í sölu mjög fallega 66 fm íbúð á 3. hæð í fjölbýli. Íbúðinni fylgir stæði í bíla- geymslu. Sérinngangur af svölum. Góð- ar suðursvalir. V. 10 m. 3313 Gullsmári - eldri borgarar Vorum að fá í einkasölu fallega 62 fm íbúð á 6. hæð í nýlegu lyftuhúsi. Mikið útsýni. Svalir til vesturs. Tvær lyftur. Þjónusta er í húsinu. Íbúðin er laus strax. V. 12,9 m. 3282 Nökkvavogur Falleg 2ja herbergja íbúð í kjallara í tvíbýlishúsi við Nökkva- vog. Gott skipulag. Eftirsóttur staður. Stór garður. Húsið lítur vel út að utan. V. 8,4 m. 3323 Hlíðasmári 1-3 Til leigu/sölu Stórglæsilegt verslunar- og skrifstofuhúsnæði á besta stað í Smáranum í Kópavogi. Um er að ræða allt að 8.000 fm. Hvort hús um sig ca 4.000 fm. Möguleiki á að skipta í minni einingar. Næg bílastæði. Frábært útsýni. Sér- lega vönduð og fullbúin sameign. Allar nánari uppl. gefur Andres Pétur eða Ellert Bragi á skrifstofu. STJÓRN Leikfélags Reykjavíkur hefur viðurkennt að ákveðin mistök hafi verið gerð þegar samningur við borgina til næstu 12 ára var und- irritaður í janúar 2001. Borgaryf- irvöld hafa farið yfir rekstur LR og viðurkenna að í Borgarleikhúsinu sé ekki bruðlað með fé. ,,Það er enginn að tala um að það sé einhver óráðsía í þessum rekstri, það er vel haldið um spilin. Menn telja eyrinn og menn vita nákvæmlega hvaða tölur eru í gangi,“ segir borgarstjóri. (Visir.is 8. maí 2003) Er þá ekki ein- faldlega ljóst að borgin lagði fram óraunhæfa upphæð í reksturinn miðað við þær skyldur sem LR hef- ur á herðum skv. áðurnefndum samningi? Hvað telur borgin eðli- legt að rekstur Borgarleikhússins kosti miðað við þá starfsemi sem þar hefur verið undangengin ár? Allir geta tekið undir þá skoðun borgarstjóra að ekki er fýsilegur sá kostur að LR komi árlega og biðji um aukið framlag. LR seldi hlut sinn í Borgarleikhúsinu í janúar 2001 fyrir rúmar 200 milljónir og nýtti alla þá upphæð til að greiða upp gamlar skuldir. Skýtur sú stað- reynd ekki enn frekari stoðum undir það álit að LR hefur aldrei, þrátt fyrir umtalsvert sjálfsaflafé, hlotið þann stuðning frá borginni sem vera skyldi? Að reka leikhús á viðskiptagrund- velli. Það hefur verið reynt að reka hér markaðsleikhús með stuðningi Reykjavíkurborgar og eftir það æv- intýri sátu fjölmargir listamenn eft- ir með sárt ennið og margra mánaða ógreidd laun. Leikhúsrekstur getur ekki lotið hreinum og klárum við- skiptalögmálum. Leikhússtjóri legg- ur til ákveðið verkefnaval og á því eru byggðar áætlanir um kostnað og áætlaða innkomu. Áætlanir. Óvissu- þættirnir eru margir. Leikhúsið get- ur að sjálfsögðu staðið við áætlun um kostnað en þá er það hitt veiga- mikla atriðið, koma áhorfendur? Fást tekjur upp í kostnað? Marg- sinnis hefur það gerst að sýningar sem voru álitnar gangsýningar fá litla aðsókn og sýningar sem ekki var reiknað með að nytu almenn- ingshylli eru sýndar lengur en bjartsýnustu menn þorðu að vona. Þetta er og verður áhættusamur rekstur og því verður að koma til styrkur frá opinberum aðila því sjálfsaflafé er upphæð sem stundum er skv. áætlun, stundum meira, stundum minna. Það ætti líka að vera íhugunarefni fyrir borgaryfir- völd að í stað þess að greiða LR út árlegan styrk í skömmtum fengi Leikfélagið allan styrkinn 1. janúar ár hvert og gæti þá notið vaxta af heildarupphæðinni. Auðvitað verður LR að standa og falla með sínum áætlunum en styrkur borgarinnar er einfaldlega of lítill. Er ekki ein- falt mál að fara yfir nokkur rekstr- arár LR aftur í tímann og sjá út hvað vantar uppá til að dæmið gangi og komast þannig að því hvert raun- hæft framlag borginnar ætti að vera? Borgarstjóri talar um betri nýtingu hússins, ég hef þá trú að nýting Borgarleikhússins verði ekki öllu meiri, þarna er LR með allar sínar leiksýningar, Íslenski dans- flokkurinn hefur þarna aðstöðu fyrir æfingar og sýningar, frjálsir leik- hópar koma inn í húsið, að ótöldum öllum þeim sem leigja sali og að- stöðu leikhússins fyrir fundi, ráð- stefnur, fyrirlestra, tónleika, dans- sýningar, hárgreiðslusýningar, vörukynningar og svo mætti lengi telja. Ef borgarstjóri kemur auga á frekari nýtingarmöguleika þá tekur stjórn LR þeim ábendingum áreið- anlega fegins hendi. Að hafa tvö stór leikhús í borginni sem bæði hafa á sínum snærum ákveðinn fastan kjarna og svo laus- ráðið fólk er sá grundvöllur sem leikarar og aðrir leikhúslistamenn byggja starfsöryggi sitt á. Fjöldi fólks fer árlega í háskóla og menntar sig sem leikarar, leik- mynda- og búningahönnuðir, leik- stjórar og leikhúsfræðingar, hvers vegna styrkir hið opinbera slíkt nám ef það liggur ljóst fyrir að engin vinna er fyrir þetta fólk að námi loknu? Er litið á þessa háskóla- menntun sem tómstundagaman og þessu fólki sé best að finna sér „al- mennilega“ vinnu að námi loknu, hitt sé hægt að dunda við í frístund- um? Oft hafa heyrst raddir sem segja „Það er ekkert mál að setja upp leiksýningar fyrir eina milljón“. Ég er sammála, það er ekkert mál ef fólk er tilbúið til að gefa vinnuna sína, en það fyrirkomulag gengur aðeins í stuttan tíma, á meðan þú ert ungur, barnlaus og með engar fjárhagslegar skuldbindingar á bak- inu. Ef við viljum listamenn með reynslu þá verða þeir að hafa að ein- hverju að hverfa, von um launaða vinnu, það vinnur enginn í sjálfboða- vinnu alla starfsævina. Samningur LR við borgina segir að LR sé skylt að hýsa ákveðinn fjölda frjálsra leik- hópa á ári hverju. Stóru leikhúsin tvö hafa einnig ýtt undir starfsemi frjálsu leikhópanna því það er vel þekkt staðreynd að innan frjálsu leikhópanna starfa gjarnan leikarar sem eru líka í verkefnum hjá stóru leikhúsunum, ýmist sem fast- eða lausráðnir og hafa þá laun þaðan og það gerir þeim kleift að starfa með frjálsum leikhópum sem svo sann- arlega auðga menningu okkar og listalíf. Stuðningur borgar og ríkis við þá hópa er efni í annan pistil. Varðandi eldri leikara er það nú svo að leikhúsbókmenntirnar bjóða uppá flest hlutverk fyrir leikara á aldrinum 25–50 ára. Á þessu aldurs- bili eru einnig mun fleiri hlutverk fyrir karla en fyrir konur. Þegar fimmtugsaldri er náð finnur leikar- inn að eftirspurnin minnkar, hann er enn í fullu fjöri og vill gjarnan leika en hlutverkin eru fá og því verður það erfitt fyrir leikarann að uppfylla vinnuskyldu sína. Á þessu máli var tekið í síðasta kjarasamn- ingi LR og FÍL þar sem leikhúsinu er heimilt að nýta leikarann til ann- arra starfa innan leikhússins en bara að æfa og leika. Leikhúsið hef- ur því alla möguleika til að hafa leik- arann áfram í vinnu þó svo hann leiki ekki eins mörg hlutverk hann gerði þegar hann var 35 ára. Und- anfarin ár hefur LR staðið fyrir öfl- ugu barnastafi í þágu grunnskóla- barna í Reykjavík og umsjón með því starfi hefur haft „eldri leik- kona“. Þetta, eins og svo margt ann- að, lenti undir hnífnum þegar LR sagði upp fólki um síðustu mánaða- mót. Viðræður milli borgaryfirvalda og stjórnenda LR hafa staðið yfir lengi, starfshópar hafa verið gerðir út af örkinni til að leita lausna og ég er þess fullviss að LR-stjórnendur gera allt til að geðjast borgaryfir- völdum svo samningar náist, en á meðan er öll starfsemi LR í upp- námi, enginn veit hvað verður og áhyggjur mínar snúa að því að um- talsverður fjöldi listamanna og ann- arra leikhússtarfsmanna, s.s. sýn- ingarstjórar, ljósa- og hljóðmenn, hárgreiðslu- og förðunarfólk, smiðir, sviðsmenn og starfsmenn sauma- stofu, hafi misst vinnu sína til fram- búðar. Ég hvet borgarstjóra til að hraða samningaviðræðum við LR svo að þessari óvissu verði eytt. Það er gott að heyra að borgaryfirvöld kunna að meta það starf sem unnið er í Borgarleikhúsinu en spurningin er engu að síður sú – hvað er borgin tilbúin til að borga þannig að sá fag- legi metnaður og gæði menningar- starfsemi í Borgarleikhúsinu sem borgaryfirvöld meta svo mikils (Þórólfur Árnason Mbl. 9. maí 2003), fái áfram glatt hug og hjarta Reykvíkinga og landsmanna allra. HUGLEIÐINGAR VEGNA SVARS BORGARSTJÓRA TIL FORMANNS FÍL Eftir Hrafnhildi Theodórsdóttur „Ég hvet borgarstjóra til að hraða samninga- viðræðum við LR svo að þessari óvissu verði eytt.“ Höfundur er framkvæmdastjóri Fé- lags íslenskra leikara. VIÐSKIPTI mbl.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.