Morgunblaðið - 11.05.2003, Side 39
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11. MAÍ 2003 39
IÐJUÞJÁLFAR í heilsugæslu
gætu sinnt eftirfylgd frá sjúkrahúsi
og endurhæfingu í daglegum athöfn-
um í heimahúsi og nærumhverfi í ná-
inni samvinnu við heimahjúkrun, fé-
lagsþjónustuna og sjúkraþjálfara og
þannig komið í veg fyrir endurinn-
lagnir.
Það sem hvatti okkur til að skrifa
þessa grein er vöntun á eftirfylgni og
gætu endurinnlagnir verið ein af or-
sökum þess. Vegna skorts á úrræð-
um úti í þjóðfélaginu er sjúklingur
útskrifaður heim meðan hann bíður
eftir frekari endurhæfingu og engin
þjálfun tekur við í athöfnum daglegs
lífs í heimahúsi. Hættir þá sjúklingn-
um til að missa tileinkaða færni. Eft-
irfylgni í nágrannalöndum okkar
hefur skilað sér í aukinni færni skjól-
stæðinga við iðju og lægri kostnaði
samfélagsins.
Aldraðir eiga að hafa aðgang að
þjónustu iðjuþjálfa samkvæmt lög-
um um heilbrigðisþjónustu nr. 97 frá
1990 í grein 19.1.
Sannreynt er að aldraðir geta ver-
ið lengur heima sé þeim veitt viðeig-
andi þjónusta og stuðningur.
Í lögum um málefni aldraða 1999
nr. 125 er kveðið á um að styðja skuli
aldraða til að búa heima eins lengi og
kostur er og að þeir njóti þjónustu
sem samræmist þörfum þeirra. Enn
hafa ekki náðst samningar við heilsu-
gæslustöðvarnar um að ráða iðju-
þjálfa til að sinna hluta af þessari eft-
irfylgni.
Aðeins einn iðjuþjálfi er ráðinn við
heilsugæsluna í Reykjavík. Ástandið
er aðeins betra á landsbyggðinni.
Ávinningur af heimatengdri
endurhæfingu
Endurhæfing sem fer fram á
heimili skjólstæðings og nærum-
hverfi veitir öryggi, eykur áhuga-
hvöt og skjólstæðingurinn horfist í
augu við viðfangsefnið í réttum að-
stæðum. Þekkt umhverfi er sérstak-
lega vel til þess fallið að vinna með
vitræna skerðingu. Nálgunin er
skjólstæðings- og iðjumiðuð þar sem
tilgangur endurhæfingar verður
augljósari og möguleiki á að vinna
markvissar að málefnum hvers og
eins. Markmiðið er að efla og við-
halda færni skjólstæðingsins svo
hann verði sem mest sjálfbjarga við
athafnir daglegs lífs, s.s. eigin umsjá
og (heimilis)störf/innkaup. Iðjuþjálf-
ar kanna einnig áhugasvið skjól-
stæðinga sinna og koma að tóm-
stundaiðkun þeirra.
Hópur eldra fólks verður fyrir því
óláni að brjóta sig heimafyrir og í
nærumhverfi og verður hræddur við
að hreyfa sig og brotna enn frekar.
Fólkið einangrar sig félagslega,
hreyfir sig sem minnst, sem aftur
leiðir til þess að líkamleg og fé-
lagsleg færni þess skerðist enn frek-
ar. Þarna er eftirfylgd og endurhæf-
ing í daglegum athöfnum í heimahúsi
nauðsynleg og gæti komið í veg fyrir
endurinnlagnir. Að líta á skjólstæð-
inginn sem iðjuveru með hlutverk í
stað þess að gera hann vanvirkan
viðtakanda þjónustu.
Í Danmörku héldu iðjuþjálfar
námskeið með starfsmönnum fé-
lagsþjónustunnar til að fræða þá um
skjólstæðinginn sem iðjuveru og
gefa þeim innsýn í mikilvægi þess að
hvetja hann til að vera virkur þátt-
takandi í eigin lífi og daglegri iðju í
stað þess að gera hann vanvirkan
viðtakanda þjónustu. Iðja gerir okk-
ur að því sem við erum – iðja gefur
lífinu gildi.
Framtíðarsýn okkar
varðandi eftirfylgd
Á Norðurlöndunum vinna flestir
iðjuþjálfar sem sjá um eftirfylgd hjá
sveitarfélagi. Við sjáum fyrir okkur
iðjuþjálfa starfa í heilsugæslunni.
Heimatengd endurhæfing er það
sem koma skal og getur verið liður í
meðferðarúrræðum utan stofnan-
anna. Einstaklingur gæti útskrifast
fyrr heim og þyrfti ekki að liggja eins
lengi á bráðasjúkrahúsi og staðan er
í dag, þar sem færni hans skerðist og
hann einangrast félagslega
Í útskriftaráætlun teymis yrði
tenging við heimahjúkrun, fé-
lagsþjónustu, sjúkraþjálfara og iðju-
þjálfa.
Iðjuþjálfi myndi sjá um endurmat
og þjálfun og veita ráðgjöf um áhrif
sjúkdóma, t.d. heilabilunar, og færn-
iskerðingu skjólstæðings við daglega
iðju ásamt notkun hjálpartækja til
aðstandenda, félagsþjónustunnar og
heimahjúkrunar. Einnig varðandi
vinnuumhverfi, líkamsbeitingu, ferli/
flutning og orkusparandi vinnuað-
ferðir við aðhlynningu. Þetta gæti
dregið úr tíðum mannaskiptum í
heimaþjónustu sem er einkar áber-
andi á heimilum sjúklinga með mikla
andlega og/eða líkamlega færn-
iskerðingu, aukið vellíðan, öryggi og
ánægju starfsmanna. Tíð manna-
skipti í heimaþjónustu valda álagi
bæði á sjúkling og aðstandendur.
(Hanna Lára Steinsson, Öldrun – 21.
árg. 1. tbl. 2003.)
Hvernig gæti þjónusta iðjuþjálfa
skilað sér í lægri samfélagslegum
kostnaði? Jú, því meira sjálfbjarga
sem skjólstæðingurinn er við dag-
lega iðju því minna þarf hann á þjón-
ustu heimahjúkrunar og félagsþjón-
ustunnar að halda og þannig er hægt
að auka þjónustu við þá sem þurfa á
hjálp að halda. Með nánari samvinnu
fagstéttanna teljum við að hægt yrði
að spara tíma, peninga og auka gæði
þjónustunnar við sjúklinga og að-
standendur. Hlutverk iðjuþjálfa á
bráðasjúkrahúsi felst fyrst og fremst
í því að meta færni sjúklinga og út
frá því þörf fyrir hjálpartæki og
frekari endurhæfingu og er eftir-
fylgni því ekki í þeirra höndum.Til-
boð um þjónustu iðjuþjálfa utan
sjúkrastofnana þekkist varla og er
það grófleg mismunun að okkar
mati. Nú eru kosningar í nánd, hvetj-
um við því ráðamenn þjóðarinnar til
að skoða þennan málaflokk.
Eftir Birgitte Korsgaard,
Hafdísi Sverrisdóttur
og Lindu E. Pehrsson
„Tilboð um
þjónustu
iðjuþjálfa
utan sjúkra-
stofnana
þekkist
varla og er það grófleg
mismunun að okkar
mati.“
Höfundar eru iðjuþjálfar á LSH,
Fossvogi.
Samvinna fagstétta,
lægri samfélagslegur
kostnaður, betri þjónusta
HafdísBirgitte
Linda E.
Veitingahúsið DINER-INN,
Ármúla 21, er til sölu
Opnunartími hefur verið frá kl. 7.30-17 alla virka daga. Morgunmat-
ur og hádegismatur. Einnig bakkamatur í hádeginu. Staðurinn er
vel búinn tækjum og búnaði. Fullkomið veislueldhús. Allt er til stað-
ar fyrir minni samkvæmi, afmæli o.fl. Þetta er gullið tækifæri fyrir
gott verð. Verð aðeins kr. 6,5 milljónir.
Allar upplýsingar gefur
Halldór á fasteignasölunni Hóli
í síma 595 9095.
Opið virka daga kl. 9-18
laugard. kl. 12-14
Skúlagata 17
Sími 595 9000
Fax 595 9001
holl@holl.is
www.holl.is
Jón Hólm Stefánsson,
sími 896 4761.
Ef þú þarft að selja eða kaupa
bújörð hvar á landi sem er
hafðu þá endilega samband
við okkar mann,
Jón Hólm bónda,
sem aðstoðar þig
með bros á vör.
Bújarðir
FASTEIGNA
MARKAÐURINN
ÓÐINSGÖTU 4. SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17.
Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/
Jón Guðmundsson, sölustjóri, lögg. fasteigna- og skipasali.
Þjóðgarðurinn Þingvöllum
Sumarhús á vatnslóð
Sölusýning í dag, sunnudag, frá kl. 13-18
Afar vel staðsett sumarhús niður við Þingvallavatn innan þjóðgarðs Þing-
valla. Húsið er í landi Kárastaða við Neðristíg nr. 11 og stendur á 5.000 fm
grónu landi á einstökum stað og nýtur mikils útsýnis frá húsinu. Húsið er
60 fm alls með um 40 fm verönd. Gríðarlega fallegt og stórbrotið umhverfi.
Bátaskýli og bátur fylgja. Verð 20,9 millj. Eignin verður til sýnis í dag,
sunnudag, frá kl. 13-18. Verið velkomin.
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði Glæsileg húseign. Nýkom-
in í einkasölu glæsileg
húseign á tveimur hæð-
um, samtals 505 fm. Um
er að ræða húsnæði Nýja
viðskipta- og tölvuskólans
í Hafnarfirði. 1. hæð, jarð-
hæð, 287 fm fullinnréttað
skrifstofuhúsnæði. Efri
hæð 216 fm fullinnréttuð
skrifstofuhæð. Vel staðsett eign örstutt frá Fjarðarkaup-um og
Bæjarhrauninu. Góð aðkoma og næg bílastæði. Selst í einu eða
tvennu lagi. Verð 43 millj.
Magnús Emilsson löggiltur fasteignasala
Hólshraun 2 - Hafnarfirði - skrifstofuh.
Opið hús
Gullsmári 8
3ja herb. 89 fm íbúð á 5. hæð
Til sýnis og sölu sérlega glæsileg og björt 89 fm,
3ja herbergja útsýnisíbúð á fimmtu hæð í mjög góðu lyftu-
húsi á þessum eftirsótta stað.
Verð 13,9 millj. Áhv. 4,0 millj.
Stefán verður með heitt á könnunni og tekur
vel á móti þér og þínum í dag, sunnudag, milli kl. 14.00
og 18.00 (bjalla 501).
Fasteignasala Brynjólfs Jónssonar,
sími 511 1555.
www.fotur.net
Moggabúðin
Músarmotta, aðeins 450 kr.
Alltaf á þriðjudögum
Moggabúðin
Stuttermabolir, aðeins 1.000 kr.