Morgunblaðið - 11.05.2003, Blaðsíða 41
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11. MAÍ 2003 41MORGUNBLAÐIÐ
þannig viðraði. Fjöldi þessara sum-
argesta hefur haldið tryggu sam-
bandi við húsbændurna á Ökrum og
komu mörg þeirra þangað í heim-
sóknir með börnin sín og rifja upp
ánægjustundirnar frá dvölinni þar.
Ólafur var góður bóndi og var öll
vinna hans við búskapinn vel skipu-
lögð og skilaði búið góðum árangri.
Hann var ákaflega laginn og hafði
yfigripsmikla þekkingu á öllum bú-
vélum og tækjum. Hann gerði sjálf-
ur við allar sínar vélar og hélt þeim
í góðu ásigkomulagi.
Á Ökrum stendur mjög gömul
kirkja sem er sóknarkirja sveitar-
innar. Ólafi var ákaflega annt um
kirkjuna sína og eru ótaldar allar
þær stundir sem að hann varði til
þess að kirkjan mætti ávallt líta
sem best út og ekki taldi hann eftir
sér að veita öllum þeim liðsinni sem
þangað þurftu að sækja, bæði sókn-
arbörnum og prestum og í lang-
flestum tilfellum voru allir kirkju-
gestir velkomnir að þiggja veitingar
hjá þeim hjónum að loknum athöfn-
um í kirkjunni. Það varð Ólafi til
sérstakrar ánægju að sjá kirkjuna
sína jafn fallega útlítandi eins og
hún er nú í dag, en á síðustu árum
hefur farið fram meiri háttar við-
gerð og endurnýjun á kirkjunni
bæði utan og innan og átti hann
drjúgan þátt í því að sú viðgerð
komst í framkvæmd.
Ólafur hafði mikið yndi af hljóm-
list og söng. Hann hafði fágaða
bariton rödd sem naut sín mjög vel í
samsöng. Hann var einkar háttvís
maður í framkomu og hlýr í viðmóti.
Hann var fastur fyrir í skoðunum
og lét aldrei hrekja sig af leið sann-
færingar sinnar, en var viðræðu-
góður og rökfastur.
Nú er Ólafur vinur minn allur. Á
bak við fátæklegan búning þessara
kveðjuorða minna eru geymdar
hugsanir og tilfinningar sem ekki er
auðvelt að setja á blað, en eftir lifir
minninginn um sérstakan persónu-
leika og drengskaparmann sem
ávallt var köllun sinni trúr. Þegar
hann er horfinn af sjónarsviðinu er-
um við öll sem næst honum stóðu
fátækari og söknum góðs vinar.
Jón Þór Jóhannsson.
Þegar ég sest niður núna þegar
hann Óli er dáinn koma margar
minningar upp í hugann frá æsku-
árum mínum á Ökrum. Ég kynntist
Óla þegar ég var aðeins 7 ára göm-
ul. Þau hjónin Inga og Óli ráku
sumardvalarheimili fyrir börn á
Ökrum ásamt búskap og var ég eitt
þeirra lánsömu barna sem þar
dvöldust á hverju sumri. Við feng-
um að taka þátt í bústörfum og man
ég sérstaklega hve Óli var þolin-
móður að dröslast með okkur
krakkana á heyvagninum fram og
til baka í miðjum heyskap. Og með-
an brúsapallurinn var og hét leyfði
hann okkur oft að koma með sér
þegar hann fór með mjólkina.
Á haustin þegar sumardvölinni
lauk spurði hann mig hvort ég
kæmi ekki aftur næsta sumar.
Mér þótti vænt um þá kveðju.
Þegar ég var orðin unglingur vann
ég á sumrin við bústörfin og mér til
mikillar gleði treysti Óli mér, borg-
arbarninu, til að sjá um mjaltir og
fara í leitir.
Þetta eru aðeins örfá brot af
þeim góðu minningum sem ég á um
Óla.
Óli var afskaplega dagfarsprúður
og rólegur maður. Hann fór aldrei
með neitt fleipur, var traustur sam-
ferðamaður og góður bóndi. Að leið-
arlokum vil ég þakka Óla fyrir alla
þá hlýju og alúð sem hann sýndi
mér og fjölskyldu minni alla tíð.
Ég votta Ingu eiginkonu hans og
fjölskyldu samúð mína.
Guð blessi þig elsku Óli minn og
varðveiti minningu þína.
Kveðja
Oddný.
hógværð en þó reisn í fasi. Björg bjó
um langt skeið við dvínandi heilsu
sem reyndi mjög á þrek hennar en
eiginmaðurinn reyndi af fremsta
megni að létta henni lífið, stytta
henni stundirnar, hlúa að henni og
hjúkra á allan hátt, sem gerði henni
mögulegt að dveljast heima nánast
til hinstu stundar.
Ég vil að lokum þakka Björgu
kynnin góðu og bið henni blessunar
á nýju tilverustigi um leið og ég
votta eiginmanni, börnum, systkin-
um og öðrum aðstandendum dýpstu
samúð.
Blessuð sé minning hennar.
Eyþór Ólafsson.
Í dag er 29. mars. Það sem maður
hafði hálft í hvoru búist við í mörg ár
gerðist svo snögglega að ekkert okk-
ar hafði áttað sig fyrr en öllu var lok-
ið. Hverju var heldur við að búast
þar sem amma var annars vegar?
Búin að sigrast á krabbameini í tví-
gang, fyrir utan allt annað, og ég
held að ég hafi hálft í hvoru verið
farin að líta á hana sem einhvern
órjúfanlegan hluta af tilverunni.
En allt hefur sinn endi og núna
var ég að koma heim eftir kveðju-
stund á spítalanum. Eitthvað er
samt öðruvísi en það ætti að vera,
sólin skín eitthvað svo óvenju skært
og bræðir ekki bara snjóinn heldur
mildar líka sorgina. Einhvern veginn
finnst mér að þetta einstaklega fal-
lega veður sem er í dag sé að minna
mig á það, að í stað þess að syrgja
ætti ég frekar að gleðjast ömmu
vegna fyrir að hafa hlotið hvíldina.
Vegna veikinda hennar undanfar-
ið sáumst við ekki eins oft og báðar
hefðum kosið. Ég veit að samt sem
áður saknaði hún þess að sjá ekki
mig og krakkana, sérstaklega hana
nöfnu sína, og afa, sem hún var svo
stolt af. En núna getur hún bara
„kíkt við“ þegar hana langar til án
þess að spyrja kóng eða prest.
Amma var oft veik síðustu árin en
það er þó ekki þannig sem ég mun
muna hana. Það sem upp úr stendur
í minningunni er amma í sólskins-
skapi, syngjandi eða raulandi yfir
hverju því sem hún tók sér fyrir
hendur, hvort sem það var handa-
vinna eða eitthvert húsverk.
Hún óskaði þess að verða jörðuð í
kyrrþey, þannig að ég er nú ekki al-
veg viss um hvernig henni myndi
líka þessi opinberu blaðaskrif mín
en … verð ég ekki bara að stóla á að
„markvörðurinn“ í strákahópnum fái
fyrirgefningu? Elsku Ari afi og
langafi, eða langi-afi (risastóri afi,
eins og strákarnir skildu það einu
sinni). Við vitum að það er tómlegt í
húsinu núna, en ég vona að við Stef-
án og langafabörnin þín getum fyllt
eitthvað upp í það tómarúm, þó ekki
væri nema að hluta til.
Sigurlaug.
Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengdamóðir,
amma og langamma,
SIGRÍÐUR NARFHEIÐUR
JÓHANNESDÓTTIR,
Tjarnargötu 22,
Keflavík,
verður jarðsungin frá Keflavíkurkirkju mánu-
daginn 12. maí kl. 14.00.
Kransar og blóm vinsamlegast afþökkuð, en
þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á Blindrafélagið.
Ingi Þór Jóhannsson,
Ásrún Ingiþórs Ingadóttir,
Ingvi Ingiþórs Ingason,
Ágúst Ingiþórs Ingason, Borgný Seland,
Jóhann Ingiþórs Ingason, Sigríður Óskarsdóttir,
Þórir Gunnar Ingason, Jónína Sigríður Jóhannsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
MAGNÚS JÓNSSON,
Snorrabraut 56,
Reykjavík,
sem lést föstudaginn 2. maí verður jarðsunginn
frá Bústaðarkirkju þriðjudaginn 13. maí
kl. 13.30.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á Hjartavernd.
Jón Magnússon, Þuríður Gísladóttir,
Rósa Magnúsdóttir, Brynjólfur Heimisson,
Kristbjörg Kristjánsdóttir, Agnar Guðlaugsson,
Magnús Björn Magnússon, Svala Hafsteinsdóttir,
Ingibjörg Herta Magnúsdóttir, Halldór Kristjánsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Bróðir okkar og afi minn,
ÓLAFUR JÓNSSON,
sem andaðist á elli- og hjúkrunarheimilinu
Grund fimmtudaginn 1. maí, verður jarðsung-
inn frá kapellunni í Fossvogi mánudaginn
12. maí kl. 15.00.
Unnur Ósk Jónsdóttir,
Guðbjörg Jónsdóttir,
Eygló Jónsdóttir,
Óli Garðar Jónsson,
Agnes Baldvinsdóttir.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
AÐALSTEINN THORARENSEN
fv. kennari,
Háholti 23,
Hafnarfirði,
sem lést þriðjudagsins 6. maí, verður
jarðsunginn frá Hallgrímskirkju mánudaginn
12. maí kl. 13.30.
Þeir, sem vildu minnast hins látna, láti KFUM og K njóta þess.
Hrönn Thorarensen,
Sigríður Rut Thorarensen, Þórhallur Sigurðsson,
Kristján S. Thorarensen, Málfríður Vilhelmsdóttir,
Friðrik J. Thorarensen,
Vilhelmína S. Thorarensen, Ingimar Þ. Friðriksson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Hjartans þakkir fyrir þá vináttu og hlýhug, sem
okkur hefur verið sýndur við andlát og útför
móður okkar, tengdamóður, ömmu og lang-
ömmu,
KRISTÍNAR SIGURÐARDÓTTUR,
Hjallabraut 33.
Guð blessi ykkur öll.
Sigurður Þór Garðarsson,
Grétar Már Garðarsson, Soffía Karlsdóttir,
Kristinn Garðarsson, María Sigurðardóttir,
Særún Garðarsdóttir, Magnús Jóhannsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Hjartkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
JÓN ELLIÐI ÞORSTEINSSON,
Hringbraut 48,
Keflavík,
verður jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju þriðju-
daginn 13. maí kl. 14.00.
Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á
Krabbameinsfélagið.
Erla F. Sigurbergsdóttir,
Inger Linda Jónsdóttir, Davíð Baldursson,
Oddný Indíana Jónsdóttir, Birgir Hrafnsson,
Bryndís Jónsdóttir, Hilmir Snær Guðnason,
Brynjar Steinn Jónsson, Bylgja Dís Erlingsdóttir
og barnabörn.
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma
ELÍN MARGRÉT ÞORKELSDÓTTIR,
Skjöldólfsstöðum,
sem lést sunnudaginn 4. maí sl., verður
jarðsungin frá Egilsstaðakirkju þriðjudaginn
13. maí kl. 14.00.
Blóm og kransar eru afþakkaðir, en þeir, sem
vilja minnast hennar, eru beðnir að láta Sjúkrahúsið á Egilsstöðum njóta
þess.
Jarðsett verður í Hofteigskirkjugarði.
Bergþóra S. Sölvadóttir, Víkingur Guðmundsson,
Jóhanna A. Lúðvígsdóttir,
Vilhjálmur Þ. Snædal, Ásta Sigurðardóttir,
Elín Þ. Snædal,
Anna Sigríður Þ. Snædal,
Þorkell Þ. Snædal,
Þorsteinn Þ. Snædal, Ágústa Axelsdóttir,
ömmubörn og langömmubörn
Elskuleg móðir okkar, dóttir, systir, mágkona
og frænka,
ÞÓRANNA RÓSA JENSDÓTTIR,
lést á Lions Gate sjúkrahúsinu í Vancouver,
Kanada, mánudaginn 5. maí.
Minningarathöfn verður í Fella- og Hólakirkju
mánudaginn 12. maí kl. 17.00.
Ómar Kristján Sykes,
Stefán Þór Sykes,
Pétur Benjamin Roy,
Kristjana Lillian Roy,
Sigurbjörg Schram Kristjánsdóttir,
Sigurður Ágúst Jensson, Renae Jensson,
Sigrún Jensdóttir Larson, Gordon Larson,
Ásdís Jensdóttir, Ísleifur Ingimarsson,
Kristjana Ragna Jensdóttir, Guðjón Hjartarson,
Viðar Jensson, Inga Lára Birgisdóttir,
Guðbjörg Jensdóttir, Ragnar Antonsson
og frændfólk.