Morgunblaðið - 11.05.2003, Qupperneq 47
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11. MAÍ 2003 47
MIKIÐverðurgamanaðupplifa
næstu fjögur árin, mið-
að við allt sem lofað
hefur verið í kosn-
ingaslag liðinna vikna.
Nú verða orðin sett í
framkvæmd, tekið á
brotalömum í sam-
félaginu og allt gert
betra og fegurra og
réttlátara en verið hef-
ur. Það sögðu að
minnsta kosti allir
flokkar, og engin
ástæða til að ætla, að
það verði svikið. Þetta er reynd-
ar skrifað fimmtudaginn 8. maí,
þannig að ég veit ekkert um úr-
slit. En það skiptir engu máli, því
sigurvegari kosninganna 2003
hlýtur að vera þjóðin öll.
Lífskjör munu batna stórlega,
atvinnuleysi heyra sögunni til,
biðlistum ungs fólks og aldraðra
eftir sómasamlegri þjónustu
verður útrýmt, og fátæktinni
meira að segja líka, þeirri mestu
í Evrópu, vel að merkja, að því er
fréttir herma. Nú geta landflótta
Íslendingar brátt snúið heim aft-
ur og alið börn sín upp hér, í stað
þess að verða að dúsa í öðrum
löndum, með sorg í hjarta og
ygglda brún. Og mæður á öllum
aldri fagna þessum degi sínum í
meiri gleði en ella. Hlutur þeirra
mun nefnilega einnig verða rétt-
ur, loksins.
Hvílík breyting! Ætti ég hatt,
myndi ég í snarhasti taka hann
ofan og bugta mig.
Að vísu rifust frambjóðendur
dálítið og skömmuðust í kosn-
ingabaráttunni, töldu hina á villi-
götum og allt það, í hinum ná-
kvæmari útlistunum á leiðunum
að gósenlandinu, en það gleymist
vafalaust fljótlega, því hver og
einn sá jafnframt, að eitthvað
róttækt yrði að gera í skiptingu
þjóðarkökunnar, til að allir
fengju sanngjarnan hlut. Og það
skiptir jú öllu máli. Það markmið
hlýtur líka að verða áfram sam-
eiginlegt, vil ég trúa, þegar inn í
sali Alþingis kemur á haustdög-
um. Að ætla annað væri að gera
lítið úr þeim, sem mælt hafa.
Ekki ætla ég að vera í þeim hópi.
Já, það er rétt sem orðtakið
forna geymir, batnandi fólki er
vissulega best að lifa. Ef fer sem
horfir erum við að sjá hér á eyj-
unni okkar litlu í norðurhöfum
eitthvað í líkingu við það sem í
helgri bók, nánar tiltekið í 11.
kafla Jesaja, er lýst á þennan
veg:
Þá mun úlfurinn búa hjá lambinu og pard-
usdýrið liggja hjá kiðlingnum, kálfar, ung
ljón og alifé ganga saman og smásveinn
gæta þeirra. Kýr og birna munu vera á
beit saman og kálfar og húnar liggja hvorir
hjá öðrum, og ljónið mun hey eta sem
naut. Brjóstmylkingurinn mun leika sér við
holudyr nöðrunnar, og barnið nývanið af
brjósti stinga hendi sinni inn í bæli horn-
ormsins.
Nú verða allir í landinu vinir.
Og hvað er þá að óttast?
Ef maður staldrar aðeins við
og hugleiðir þessi undur og stór-
merki, umbreytinguna, ham-
skiptin, jákvæðnina sem hefur
verið í garð alls á Íslandi á síð-
ustu vikum, einkum þó hins smáa
og veika, er ég samt ekki alveg
frá því, að affærasælla hefði ver-
ið fyrir landsmenn að hafa þetta
örlítið minna og jafnara, í stað
þess að fá allan kærleikann núna,
eins og holskeflu. Slíkt getur ver-
ið erfitt að höndla, eftir tómlæti
fyrri áratuga. En eflaust mun
þetta breytast líka og renna í
þann farveg á komandi tímum,
þegar augu stjórnmálamanna
hafa nú loks opnast jafn rækilega
og orð þeirra bera vitni um.
Í 6. kafla Matteusarguðspjalls
er þetta að finna:
Augað er lampi líkamans. Sé auga þitt
heilt, mun allur líkami þinn bjartur. En sé
auga þitt spillt, verður allur líkami þinn
dimmur. Ef nú ljósið í þér er myrkur, hví-
líkt verður þá myrkrið.
Í 2. kafla Orðskviðanna segir
aukinheldur um ráðvendnina og
grandvarleikann:
Son minn, ef þú veitir orðum mínum við-
töku og geymir boðorð mín hjá þér, svo að
þú ljáir spekinni athygli þína, hneigir
hjarta þitt að hyggindum, já, ef þú kallar á
skynsemina og hrópar á hyggindin, ef þú
leitar að þeim sem að silfri og grefst eftir
þeim eins og fólgnum fjársjóðum, þá munt
þú skilja, hvað ótti Drottins er, og öðlast
þekking á Guði. Því að Drottinn veitir
speki, af munni hans kemur þekking og
hyggindi. Hann geymir hinum ráðvöndu
gæfuna, er skjöldur þeirra, sem breyta
grandvarlega, með því að hann vakir yfir
stigum réttarins og varðveitir veg sinna
guðhræddu. Þá munt þú og skilja, hvað
réttlæti er og réttur og ráðvendni, í stuttu
máli, sérhverja braut hins góða. Því að
speki mun koma í hjarta þitt, og þekking
verða sálu þinni yndisleg.
Og í 21. kafla sömu bókar er
ritað:
Sá sem ástundar réttlæti og kærleika,
hann öðlast líf, réttlæti og heiður.
Allt er þetta gott veganesti og
hollt inn á þá brautir, sem fram-
undan liggja og senn verða
troðnar glaðbeittum fótum allra
þingmanna, hvar í flokki sem
þeir kunna að eiga heima, til
betrumbóta á velferðarkerfinu
okkar.
Eitt samt að lokum. Ef svo
ólíklega vildi til, að einhver hafi
gerst of yfirlýsingaglaður í kosn-
ingabaráttunni, hafi í ógáti misst
sig í æsingi þessa leiks, sem póli-
tíkin er, eða m.ö.o. stundað óá-
byrgt hjal í eyru kjósenda, er
rétt að minna á, að fæst orð bera
minnsta ábyrgð.
Til hamingju með daginn, Ís-
lendingar! Og sérstakar kveðjur
til ykkar, mæður!
Nú verður sko gaman að lifa!
Loforðin
Þá eru kosningar búnar og íslenskt þjóðlíf
tekur senn að færast í eðlilegt horf á ný.
Sigurður Ægisson er á mæðradeginum glaður
í bragði yfir að þessi orrahríð er nú afstaðin
og lítur á fyrirheitin sem gefin voru og munu
að sjálfsögðu efnd.
sigurdur.aegisson@kirkjan.is
Staður Nafn Sími 1 Sími 2
Akranes Jón Helgason 431 1347 431 1542
Akureyri Skrifstofa Morgunblaðsins 461 1600
Bakkafjörður Stefnir Elíasson 473 1672
Bifröst Engilbert Aron Kristjánsson 435 0145 690 2918
Bíldudalur Pálmi Þór Gíslason 456 2243
Blönduós Gerður Hallgrímsdóttir 452 4355 868 5024
Bolungarvík Nikólína Þorvaldsdóttir 456 7441 867 2965
Borgarnes Þorsteinn Viggósson 437 1474 898 1474
Breiðdalsvík María Jane Duff 475 6662
Búðardalur Anna María Agnarsdóttir 434 1381
Dalvík Halldór Reimarsson 466 1039 862 1039
Djúpivogur Sara Dís Tumadóttir 478 8161 847 5572
Egilsstaðir Páll Pétursson 471 1348 471 1350
Eskifjörður Björg Sigurðardóttir 476 1366 868 0123
Eyrarbakki R. Brynja Sverrisdóttir 483 1513 699 1315
Fáskrúðsfjörður Jóhanna Sjöfn Eiríksdóttir 475 1260/853 9437/475 1370
Flateyri Hjördís Guðjónsdóttir 456 7885
Garður Álfhildur Sigurjónsdóttir 422 7310 846 8123
Grenivík Ólína H. Friðbjarnardóttir 463 3131
Grindavík Kolbrún Einarsdóttir 426 8204 426 8608
Grímsey Ragnhildur Hjaltadóttir 467 3148
Grundarfjörður Bjarni Jónasson 438 6858/854 9758/894 9758
Hella Brynja Garðarsdóttir 487 5022 895 0222
Hellissandur/Rif Lára Hallveig Lárusdóttir 436 6889/436 1291/848 1022
Hnífsdalur Auður Yngvadóttir 456 5477 893 5478
Hofsós Bylgja Finnsdóttir 453 7418 893 5478
Hólmavík Ingimundur Pálsson 451 3333 893 1140
Hrísey Siguróli Teitsson 466 1823
Húsavík Bergþóra Ásmundsdóttir 464 1086 893 2683
Hvammstangi Gunnar Þorvaldsson 451 2482 894 5591
Hveragerði Erna Þórðardóttir 483 4421 862 7525
Hvolsvöllur Helgi Ingvarsson 487 8172/893 1711/853 1711
Höfn Ranveig Á. Gunnlaugsdóttir 478 2416 862 2416
Innri-Njarðvík Eva Gunnþórsdóttir 421 3475 821 3475
Ísafjörður Auður Yngvadóttir 456 5477 893 5478
Keflavík Elínborg Þorsteinsdóttir 421 3463 896 3463
Kirkjubæjarkl. Birgir Jónsson 487 4624 854 8024
Kjalarnes Haukur Antonsson 566 8378 895 7818
Kópasker Hrönn Guðmundsdóttir 465 2112
Laugarás Jakop Antonsson 486 8983
Laugarvatn Berglind Pálmadóttir 486 1129 865 3679
Neskaupstaður Sólveig Einarsdóttir 477 1962 848 2173
Ólafsfjörður Árni Björnsson 466 2347 866 7958
Ólafsvík Laufey Kristmundsdóttir 436 1305
Patreksfjörður Björg Bjarnadóttir 456 1230
Raufarhöfn Alda Guðmundsdóttir 465 1344
Reyðarfjörður Guðmundur Fr. Þorsteinsson 474 1488/892 0488/866 9574
Reykholt Bisk. Guðmundur Rúnar Arneson 486 8797
Reykhólar. Ingvar Samúelsson 434 7783
Reykjahlíð v/Mýv. Margrét Hróarsdóttir 464 4464
Sandgerði Sigurbjörg Eiríksdóttir 423 7674 895 7674
Sauðárkrókur Ólöf Jósepsdóttir 453 5888 862 2888
Selfoss Jóhann Þorvaldsson 482 3375 899 1700
Seyðisfjörður Hanna Lísa Vilhelmsdóttir 472 1102 690 2415
Siglufjörður Sigurbjörg Gunnólfsdóttir 467 1286 467 2067
Skagaströnd Þórey og Sigurbjörn 452 2879 868 2815
Stokkseyri Kristrún Kalmansdóttir 867 4089
Stykkishólmur Erla Lárusdóttir 438 1410 690 2141
Stöðvarfjörður Sunna Karen Jónsdóttir 475 8864
Suðureyri Tinna Sigurðardóttir 456 6244
Súðavík Ingibjörg Ólafsdóttir 456 4936
Tálknafjörður Sveinbjörg Erla Ólafsdóttir 456 2676
Varmahlíð Ragnar Helgason 453 8134 867 9649
Vestmannaeyjar Jakobína Guðlaugsdóttir 481 1518 897 1131
Vík í Mýrdal Hulda Finnsdóttir 487 1337 698 7521
Vogar Hrönn Kristbjörnsdóttir 424 6535 557 5750
Vopnafjörður Svanborg Víglundsdóttir 473 1289 473 1135
Ytri-Njarðvík Eva Gunnþórsdóttir 421 3475 821 3475
Þingeyri Þór Lini Sævarsson 456 8353
Þorlákshöfn Ragnheiður Hannesdóttir 483 3945 483 3627
Þórshöfn Ragnheiður Valtýsdóttir 468 1249
Dreifing Morgunblaðsins
Hér eru upplýsingar um þá sem dreifa blaðinu á landsbyggðinni
LÆKNAVAKTIR
BARNALÆKNIR er til viðtals á stofu í Domus Medica á
kvöldin v.d. kl. 17–22, lau., sun. og helgid., kl. 11–15.
Upplýsingar í s. 563 1010.
BRÁÐAMÓTTAKA fyrir þá sem ekki hafa heimilislækni
eða ná ekki til hans opin kl. 8–17 v.d. S. 543 2000 eða
543 1000 um skiptiborð.
LÆKNAVAKT miðsvæðis fyrir heilsugæsluumdæmin í
Reykjavík, Seltjarnarnesi, Kópavogi, Garðabæ og Hafn-
arfirði, í Smáratorgi 1, Kópavogi. Mótttaka kl. 17–23.30
v.d. og kl. 9–23.30 um helgar og frídaga. Vitjanabeiðni og
símaráðgjöf kl. 17–08 v.d. og allan sólarhringinn um
helgar og frídaga. Nánari upplýsingar í s. 1770.
SJÚKRAHÚS REYKJAVÍKUR: Slysa- og bráðamóttaka í
Fossvogi er opin allan sólarhringinn fyrir bráðveika og
slasaða s. 543 1000 um skiptiborð / 543 2000 beinn sími.
TANNLÆKNAVAKT – neyðarvakt um helgar og stórhá-
tíðir. Símsvari 575 0505.
VITJANAÞJÓNUSTA læknis í heimahús. Alla v.d. kl. 10–
16. Símapantanir og ráðgjöf kl. 8–20 í síma 821 5369.
LÆKNALIND, Bæjarlind 12, Kópavogi. Einkarekin lækn-
isþjónusta. Vaktþjónusta alla virka daga kl 08–17. Uppl.
í síma 520 3600 og á heimasíðu www.laeknalind.is
APÓTEK
LYF & HEILSA: Austurveri við Háaleitisbraut. Opið kl. 8–
24, virka daga, kl. 10-24 um helgar. Sími 581 2101.
APÓTEKIÐ: LYFJA, Lágmúla: Opið alla daga ársins kl. 8–
24. S. 533 2300.
LYFJA, Smáratorgi: Opið alla daga ársins kl. 8–24. Sími
564 5600.
BORGARAPÓTEK: Opið alla daga til kl. 24, virka daga kl.
9–24 og um helgar kl. 10–24. Sími 585 7700. Læknasími
585 7710 og 568 1250. Fax: 568 7232.
Milli kl. 02 og 8 er lyfjaþjónusta á vegum læknavaktar.
NEYÐARÞJÓNUSTA
NEYÐARMÓTTAKA vegna nauðgunar er opin allan sólar-
hringinn, s. 525 1710 eða 525 1000.
EITRUNARUPPLÝSINGASTÖÐ er opin allan sólarhring-
inn. S. 525 1111 eða 525 1000.
ÁFALLAHJÁLP. Tekið er á móti beiðnum allan sólar-
hringinn. S. 525 1710 eða 525 1000 um skiptiborð.
BAKVAKT Barnaverndarnefndar Reykjavíkur er starf-
rækt eftir kl. 16.15 virka daga, allan sólarhringinn aðra
daga. Sími 892 7821, símboði 845 4493.
HJÁLPARSÍMI Rauða krossins, fyrir þá sem þjást af dep-
urð og kvíða og eru með sjálfsvígshugsanir. Fullum
trúnaði heitið. Gjaldfrjálst númer: 1717, úr öllum símum.
TRÚNAÐARSÍMI RAUÐAKROSSHÚSSINS. Ráðgjafar-
og upplýsingasími ætlaður börnum, unglingum og að-
standendum þeirra. Nafnleynd. Opið allan sólarhr.
Gjaldfrjálst númer: 1717 – Netfang: husid@redcross.is
VINALÍNA Rauða krossins, s. 561 6464. Grænt númer
800 6464, er ætluð fólki 20 og eldri sem þarf einhvern til
að tala við. Svarað kl. 20–23.
BILANAVAKT BORGARSTOFNANA, sími 5 800 430 tek-
ur við tilkynningum um bilanir og liðsinnir utan skrif-
stofutíma.
NEYÐARSÍMI FORELDRA 581 1799 er opinn allan sólar-
hringinn. Vímulaus æska- Foreldrahús.
Neyðarnúmer fyrir
allt landið - 112
HUGVEKJA
ÞAÐ voru hressir krakkar úr
leiksólanum Austurborg sem
heimsóttu Morgunblaðið og
kynntu sér starfsemina. Krakk-
arnir eru allir á 6. aldursári og
eru að fara í skóla næsta vetur.
Krakkar úr
Austurborg
í heimsókn