Morgunblaðið - 11.05.2003, Blaðsíða 53
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11. MAÍ 2003 53
Skólavörðustíg 12, Bergstaðastrætismegin, sími 551 9090
Næg bílastæði, Bílastæðahúsið Bergstaðir. Ekkert stöðumælagjald um helgar
PS. Þú getur sparað þér sporin!
Heimsendingarþjónusta, símar 561 3030 og 551 9090
Mæðradagsblómaúrvalið
er hjá okkur
Kvöldverður á
Naustinu fylgir
mæðradags-
blómvendinum
frá okkur.
Hamingjuóskir á mæðradaginn!
Í tilefni mæðradagsins bjóðum við þér að borða á
Naustinu.
Með kveðjuValur og BinniGildir frá 11. maí til 11. júní alla daga, lau. og sun. fyrir kl. 20
2 fyrir 1
Á DÖGUNUM fór
fram Húsavíkurmót-
ið í handknattleik þar
sem kepptu drengir
og stúlkur í 5. flokki
og að sögn Jóhanns
Kristins Gunnars-
sonar í mótsstjórn
tókst mótið vel í
flesta staði. Þetta
mun vera í 13. skipti
sem það er haldið og
var mót-ið að þessu
sinni styrkt af Norð-
lenska matborðinu
ehf. Mótið er einn af
stærstu íþróttavið-
burðum ársins á
Húsavík og jafn-
framt eitt það
stærsta á landinu hjá
þessum aldursflokki
handknattleiksiðk-
enda. Það var því
mikið fjör og mikið
gaman á Húsavík
meðan á mótinu stóð
enda var búist við um
500 gestum til bæjar-
ins í tengslum við
það. Þar af voru
keppendur um 400
frá 10 félögum en alls
komu 42 lið víða af á
landinu.
Góðir gestir, þeir Arnór Atlason
og Andras Stelmokas úr meistara-
flokksliði KA í handbolta, mættu
svo í íþróttahöllina á Húsavík í
mótslok og aðstoðuðu við verðlauna-
afhendinguna.
Stúlkur A-lið:
1. sæti: Fram,
2. sæti: Fylkir, 3. sæti: Stjarnan,
Stúlkur B-lið:
1. sæti: Fram,
2. sæti: Stjarnan, 3. sæti: Fylkir,
Stúlkur C-lið:
1. sæti: Fylkir 2,
2. sæti: Haukar, 3. sæti: Fylkir 1,
Strákar A-lið:
1. sæti: Víkingur,
2. sæti: ÍR, 3. sæti: FH,
Strákar B-lið:
1. sæti: Höttur,
2. sæti: Fram, 3. sæti: FH,
Strákar C-lið:
1. sæti: ÍR, 2. sæti: Fram, 3. sæti:
Völsungur 1.
Þá fékk Höttur á Egilsstöðum
verðlaun fyrir prúðasta lið mótsins
og Fram fyrir það skemmtilegasta
en þau verðlaun voru veitt fyrir
besta atriðið á kvöldvöku mótsins.
Lífið var ekki bara handknattleik-
ur hjá krökkunum þessa fjóra daga
sem mótið stóð yfir því þau heim-
sóttu m.a. hvalasafnið, fóru í bíó og
sund auk þess sem haldið var diskó-
tek og áðurnefnd kvöldvaka.
Það var líf og fjör í Íþróttahöllinni á Húsavík á dög-
unum á meðan á handknattleiksmótinu stóð og
þessir ungu Húsvíkingar voru meðal þeirra sem
skemmtu sér vel. Þeir heita f.v. Gísli Páll Helgason,
Hrannar Björn Steingrímsson, Haukur Sigur-
geirsson og Ármann Örn Gunnlaugsson.
Fjörugt handknatt-
leiksmót á Húsavík
Húsavík. Morgunblaðið.
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Alltaf á
þriðjudögum