Morgunblaðið - 13.05.2003, Blaðsíða 1
ÞINGFLOKKAR Sjálfstæðisflokksins og Fram-
sóknarflokksins veittu í gær formönnum sínum,
Davíð Oddssyni og Halldóri Ásgrímssyni, umboð
til viðræðna um áframhaldandi stjórnarsamstarf
flokkanna. Formennirnir gera sér vonir um að
þær viðræður taki ekki langan tíma. Áhugi er á
því í þingflokki sjálfstæðismanna að Davíð Odds-
son leiði næstu ríkisstjórn og hjá framsóknar-
mönnum er áhugi fyrir því að Halldór Ásgríms-
son verði næsti forsætisráðherra.
Halldór sagði við fréttamenn eftir fund fram-
sóknarmanna að það hefði verið algjör einhugur
meðal þingmanna flokksins um að veita honum
umboð til að hefja formlegar viðræður við Sjálf-
stæðisflokkinn um ríkisstjórn. „Það voru allir
þingmenn sem studdu þá tillögu mína,“ sagði
hann. Inntur eftir því hvaða málefni hann hygðist
leggja áherslu á í þeim viðræðum sagði hann of
snemmt að segja til um það. „Við erum ekki farin
að undirbúa það. En við munum að sjálfsögðu
leggja áherslu á þau málefni sem við vorum að
kynna í okkar kosningabaráttu.“
Halldór svaraði því til aðspurður að margir
framsóknarmenn hefðu áhuga á því að hann yrði
forsætisráðherra í nýrri ríkisstjórn „og mér þyk-
ir vænt um það,“ sagði hann. Spurður hvort hann
myndi setja það sem skilyrði, að hann yrði for-
sætisráðherra, sagðist hann ekki ætla að tjá sig
meira um það á þessu stigi. „Ég mun leggja
áherslu á málefnin og að við náum saman vel
starfhæfri ríkisstjórn. Það er aðalatriðið.“
Áhugi á heilbrigðisráðuneytinu
Davíð Oddsson sagði í samtali við Morgunblað-
ið eftir þingflokksfund sjálfstæðismanna að sam-
þykkt hefði verið samhljóða að veita honum um-
boð til að hefja stjórnarmyndunarviðræður við
Framsóknarflokkinn og formann hans.
Aðspurður hvort sjálfstæðismenn myndu gera
kröfu um ákveðin málefni sagði Davíð að á þing-
flokksfundinum hefðu allir þingmenn verið beðn-
ir um að leggja fram sínar skoðanir. „Menn komu
þar fram með sín sjónarmið og sín viðhorf og ég
punktaði hjá mér þær áherslur sem í þingflokkn-
um voru. Það verður vegarnesti fyrir mig.“ Davíð
sagði að ekki hefði komið fram krafa um að setja
framsóknarmönnum skilyrði í þessum efnum
„enda vita menn hér í þessum þingflokki að mér
líst ekki á slíkan framgang; að mæta með skilyrði
og stilla mönnum upp við vegg“.
Davíð sagðist hafa fundið að hann nyti fulls
trausts í þingflokknum til að ræða við framsókn-
armenn um þessi málefni. „Ég verð síðan að
koma til baka með niðurstöðuna til þingflokksins,
til að fá hana samþykkta, hver sem hún verður.“
Davíð leiði ríkisstjórnina
Davíð sagði að á þingflokksfundinum hefði ver-
ið rætt um hugsanlega skiptingu ráðuneyta milli
flokkanna. „Menn lögðu fram sínar áherslur í
þeim efnum,“ sagði hann. „Það voru ýmsir sem
mæltu fyrir því að við sæktumst frekar eftir einu
ráðuneyti frekar en öðru og svo framvegis.“ Dav-
íð sagði að rætt hefði verið hvort heilbrigðisráðu-
neytið ætti nú að koma í hlut sjálfstæðismanna.
„Það var eitt af því sem var nefnt núna og reynd-
ar fleiri, þannig að þetta er allt opið.“
Davíð sagði að Halldór Ásgrímsson hefði ekki
nefnt þann möguleika að hann færi í forsætisráð-
herrastól: „Nei, hann hefur ekki nefnt það við
mig, ennþá a.m.k.“ Davíð sagði að á fundinum
hefði komið fram mikill vilji til að hann leiddi
stjórnina áfram. „Ég hygg að flestir þingmenn
sem hafi tjáð sig hafi talað fyrir því, en eins og ég
segi, það er eðlilegt að allt sé uppi á borðinu.“
Davíð og Halldór hittast á ríkisstjórnarfundi í
dag, þriðjudag, og segja að þar verði ákveðið hve-
nær þeir muni hittast til að hefja formlega við-
ræður um stjórnarsamstarf.
Davíð og Halldór fá umboð til viðræðna um óbreytt stjórnarsamstarf
Stefnt að því að viðræð-
ur taki ekki langan tíma
Fyrstu þing-
flokksfundirnir
NOKKRIR nýir þingmenn Framsóknarflokks
og Sjálfstæðisflokks sátu fyrsta þingflokksfund
sinn í gær en alls munu 18 nýir menn setjast á
þing. Á efri myndinni má sjá (frá vinstri) sjálf-
stæðismennina Sigurð Kára Kristjánsson,
Birgi Ármannsson, Guðlaug Þór Þórðarson,
Guðjón Hjörleifsson og Bjarna Benediktsson.
Til hliðar fagna framsóknarmennirnir Siv
Friðleifsdóttir og Birkir Jón Jónsson, en hann
er yngsti þingmaðurinn, fæddur árið 1979, og
er í Norðausturkjördæmi. Á milli þeirra sést í
annan ungliða framsóknarmanna í Norðaust-
urkjördæmi, Dagnýju Jónsdóttur.
Einhugur meðal
þingflokka beggja
stjórnarflokka
Morgunblaðið/Kristinn
STOFNAÐ 1913 128. TBL. 91. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 13. MAÍ 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Drottning
línudansins
Söngveisla í Íslensku
óperunni í kvöld Listir 22
Meistara-
baráttan
Staða liða við upphaf knatt-
spyrnuvertíðar Íþróttir C1—16
BANDARÍKJAMENN
tilkynntu í gær að
fyrrverandi yfirmað-
ur lífefnahernaðar-
áætlunar Íraka, kona
að nafni Rihab Rash-
id Taha, stundum
kölluð „dr. Sýkill“,
hefði verið handtek-
inn. Fyrr í mán-
uðinum var önnur
kona er gegndi lyk-
ilhlutverki í lífefnavopnaáætlun Íraka
handtekin. Sú hafði verið uppnefnd „frú
Miltisbrandur“.
Taha er ekki á listanum yfir þá 55
Íraka sem Bandaríkjamönnum er mest í
mun að hafa uppi á – en 19 þeirra hafa
nú náðst – en hún er talin geta veitt
mikilvægar upplýsingar um það hvort
stjórn Saddams Husseins hafi unnið að
þróun ólöglegra vopna.
Taha er 47 ára og lærði örverulíffræði
í Bretlandi og var hátt ett í Baath-flokki
Saddams. Bandaríkjamenn hafa sagt að
hún hafi stjórnað tilraunum Íraka til að
nota banvæna miltisbrandsbakteríu sem
vopn.
„Dr. Sýkill“
handtekinn
Bagdad. AFP.
Rihab Rashida Taha,
eða „dr. Sýkill“.
Mætur á
Mozart
FÉLAGAR í Írska lýðveldishernum
(IRA) kröfðust í gær að hafin yrði
rannsókn innan samtakanna eftir
að í ljós kom að yfirmaður innra
öryggis þeirra var í 20 ár breskur
njósnari. Að sögn írskra fjölmiðla
óttast IRA-liðar að fleiri breskir
njósnarar hafi náð viðlíka frama
innan IRA. Njósnarinn sem gekk
undir dulnefninu „Stakeknife“ er
talinn tengjast allt að 40 morðum.
Nokkur bresk og írsk dagblöð
greindu frá réttu nafni mannsins á
sunnudag. Hann mun heita Alfredo
Scappaticci og er sagður hafa ver-
ið flugumaður bresku herleyni-
þjónustunnar er hann reis til æðstu
metorða innan IRA. Þar hafi hann
starfað í rúm 20 ár og þegið rúmar
níu milljónir króna á ári að launum
frá breskum stjórnvöldum. Sagt er
að Scappaticci hafi verið fluttur á
laun frá Norður-Írlandi á sunnu-
dag nokkrum tímum áður en nafn
hans var birt. Í gær var þó haft eft-
ir ættmennum hans að hann væri
enn á Norður-Írlandi og óstað-
festar fregnir hermdu að til hans
hefði sést í Belfast.
Hlutverk „Stakeknife“ hjá IRA
var að hafa uppi á, yfirheyra,
pynta og drepa IRA-liða sem veittu
Bretum upplýsingar. Sagði í
fyrrnefndum blöðum að hann hefði
sem slíkur tengst um 40 morðum.
Til að ekki kæmist upp um hann er
breski herinn sagður hafa leyft að-
ild hans að morðunum, sem flest
voru framin á N-Írlandi. „Stake-
knife“ er sagður hafa verið „öfl-
ugasta tækið“ í 30 ára stríði
breskra stjórnvalda við Írska lýð-
veldisherinn og veitt ómetanlegar
upplýsingar.
Talsmenn Norður-Írlandsmála-
ráðuneytis bresku ríkisstjórnar-
innar neituðu að tjá sig um málið
en þjóðernissinnar á N-Írlandi
kváðust í gær hafa farið formlega
fram á skýringar Breta. Upplýs-
ingar um starfsemi Scappaticci
voru sagðar „mjög alvarlegar“.
Krafist var upplýsinga um njósnir
breskra stjórnvalda á Norður-
Írlandi og hugsanlega vitneskju
þeirra um hefndarmorð innan IRA.
Ónefndur viðmælandi írska blað-
ins The Irish Times sagði í gær
ótta ríkjandi innan IRA um að fleiri
hátt setta flugumenn Breta væri að
finna innan samtakanna. „Rann-
saka þarf hvernig þessi maður náði
slíkum frama, hver hækkaði hann í
tign og hver tryggði að hann gat
gegnt þessari stöðu svo lengi án
þess að grunsemdir vöknuðu,“
sagði þessi viðmælandi blaðsins.
Fleiri breskir njósnarar innan IRA?
Breskur njósnari starfaði í 20 ár
innan Írska lýðveldishersins
Sprenging-
ar í Riyadh
Riyadh, Washington. AP, AFP.
FJÓRAR öflugar sprengjur sprungu í
Riyadh, höfuðborg Sádí-Arabíu, í gær-
kvöldi, og að sögn þarlendra öryggismála-
fulltrúa slösuðust að minnsta kosti fimmtíu
manns. Talið er að um hryðjuverk hafi verið
að ræða.
Bandaríska utanríkisráðuneytið kvaðst
hafa heimildir fyrir því að þetta hefðu verið
bílsprengjur, þrjár hefðu sprungið við
húsaþyrpingar þar sem vestrænir ríkis-
borgarar byggju og ein við höfuðstöðvar
bandarísk-sádí-arabísks fyrirtækis. Nánari
upplýsingar lágu ekki fyrir í gærkvöldi um
hvort einhverjir hefðu látist eða hverra
þjóða hinir slösuðu væru.
Í byrjun mánaðarins varaði bandaríska
utanríkisráðuneytið Bandaríkjamenn við
því að fara til Sádí-Arabíu því að njósn hefði
borist um að hryðjuverkahópar væru að
undirbúa tilræði við vestræna ríkisborgara
þar. Colin Powell, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, er væntanlegur til Riyadh í
dag.
♦ ♦ ♦
Scooter Lee hyggst leika listir
sínar á Íslandi Fólk 53