Morgunblaðið - 13.05.2003, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 13.05.2003, Blaðsíða 2
FRÉTTIR 2 ÞRIÐJUDAGUR 13. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ UMBOÐ TIL VIÐRÆÐNA Formenn Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins fengu í gær umboð sinna þingflokka til að hefja viðræður um áframhaldandi sam- starf í ríkisstjórn. Formennirnir gera sér vonir um að þær viðræður taki ekki langan tíma. Embættismenn hækka Kjaradómur hefur úrskurðað að frá 1. maí hækki laun embættis- manna um allt að 19%. Laun alþing- ismanna hækka um 18,7%, laun for- sætisráðherra um 19,3% en laun forseta Íslands hækka ekki. Þetta er þriðja hækkunin sem Kjaradómur úrskurðar um á tólf mánuðum. Sprengingar í Riyadh Fjórar öflugar sprengjur sprungu í Riyadh, höfuðborg Sádí-Arabíu, í gærkvöldi. Talið er að um hryðju- verk hafi verið að ræða. Ekki höfðu í gær borist upplýsingar um mann- tjón, en sjónarvottar sögðu marga hafa slasast. Ingibjörg varaformaður? Margrét Frímannsdóttir vill að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir taki við af henni sem varaformaður Samfylk- ingarinnar á landsfundi flokksins næsta haust. Össuri Skarphéðins- syni, formanni flokksins, líst vel á hugmyndina. Fjörutíu farast í Tétsníu Fjörutíu manns að minnsta kosti létust í sprengjutilræði í bænum Znamenskoye í rússneska sjálf- stjórnarhéraðinu Tétsníu í gær- morgun. Óttast er að tala látinna eigi eftir að hækka. Er þetta mann- skæðasta tilræðið í Tétsníu síðan uppreisnarmenn þar hétu því í mars að berjast gegn friðaráætlunum Rússlandsforseta. „Dr. Sýkill“ handtekinn Bandaríkjamenn sögðust í gær hafa handtekið konu er gegndi lyk- ilhlutverki í lífefnavopnaþróun Íraka í stjórnartíð Saddams Husseins. Konan, er nefnd hefur verið „dr. Sýkill“, er talin geta veitt upplýs- ingar um meinta framleiðslu Íraka á ólöglegum vopnum. Þriðjudagur 13. maí 2003 Prentsmiðja Morgunblaðsins blað C Fyrir heimilið Ólíkir hagsmunir Heppilegur verkfærakassi 19 Píanóleikur í fjölbýli 42 Óendanlegir möguleikar w w w .f rj a ls i. is Ráðgjafar okkar veita allar nánari upplýsingar. Þú getur komið við í Ármúla 13a, hringt í síma 540 5000 eða sent tölvupóst á frjalsi@frjalsi.is Ertu að kaupa, byggja eða breyta? Þú getur á auðveldan hátt samið um fasteigna- eða framkvæmdalán hjá Frjálsa fjárfestingarbankanum. Um er að ræða hagstætt lán, sem veitt er til allt að 30 ára gegn veði í fasteign. Dæmi um mánaðarlega greiðslubyrði af 1.000.000 kr.* Vextir % 6,50% 7,50% 8,50% 9,50% 10,00% 5 ár 19.600 20.000 20.500 21.000 21.200 15 ár 8.700 9.300 9.800 10.400 10.700 30 ár 6.300 7.000 7.700 8.400 8.800 *Lán með jafngreiðsluaðferð án verðbóta. Frjálsa fjárfestingarbankans Fasteignalán Allt að 80%veðsetningarhlutfallaf verðmæti fasteignar ÝMSIR byggingaraðilar sýna nú bæði Egilsstöðum og Fjarðabyggð meiri áhuga en áður og væntingar vegna fyrirhugaðra stórfram- kvæmda eru þegar farnar að hafa áhrif á fasteignamarkaðinn á þessu svæði. Byggingaraðilarnir eru bæði frá Egilsstöðum og annars staðar að á Austfjörðum og eins frá Akureyri og höfuðborgarsvæðinu. Margir frá Egilsstöðum eru líka þegar farnir að vinna við virkjunarframkvæmdirnar. Áhrifin af Kárahnjúkavirkjun eru þannig þegar farin að segja til sín. Fasteignaverð á Egilsstöðum hef- ur yfirleitt verið talsvert hærra en í Fjarðabyggð en líklegt þykir, að það eigi eftir að jafnast. Þetta kom fram í viðtali við Magn- ús Leópoldsson, fasteignasala í Fast- eignamiðstöðinni, en hann er nú með til sölu stóra landspildu eða 100 hekt- ara lands úr jörðinni Egilsstaðir. Óskað er eftir tilboðum. „Landið liggur á milli Fagradals- vegar og Eyvindaráss frá Hálslæk að Illamel,“ segir Magnús Leópoldsson. „Landið er mjög fallegt, vaxið skógi og kjarri með flötum á milli og við ána er gljúfur með klettum og klöppum.“ Meiri hreyfing Magnús kvað talsverða uppbygg- ingu hafa átt sér stað að undanförnu á Egilsstöðum og í nýju hverfi við göturnar Litluskóga og Kelduskóga væri búið að reisa mörg hús og þegar flutt inn í sum þeirra. Þá væru fram- kvæmdir hafnar við sjö hæða fjöl- býlishús, sem eflaust yrði mjög glæsileg bygging, er setja mundi svip á umhverfi sitt. „Ég finn fyrir ört vaxandi áhuga á góðu byggingarlandi á Austurlandi og það er að komast mikil hreyfing á allt á þessu svæði, ekki bara á Egilsstöðum og í Fjarðabyggð,“ sagði Magnús Leópoldsson. „Þeir eru margir, sem hafa hug á að vinna við virkjanaframkvæmdirnar, eins og fram hefur komið í atvinnuum- sóknum að undanförnu. Eftirspurn eftir húsnæði hlýtur því að aukast. Það er hins vegar enn allt of snemmt að spá með neinni vissu, hve mikil áhrif fyrirhugaðar stór- framkvæmdir eiga eftir að hafa á mannfjöldaþróun á þessu svæði og þá um leið á eftirspurn eftir íbúðarhús- næði og öðrum fasteignum. Enn eitt er víst. Áhrifin verða mikil og senni- lega varanleg. Þetta land við Egilsstaði, sem ég er með til sölu, gæti hentað vel fyrir margvíslega uppbyggingu, bæði fyrir íbúðarhús, atvinnuhúsnæði og opin- berar byggingar.“ Ört vaxandi áhugi á bygg- ingarlandi á Austurlandi Horft yfir Egilsstaði. Hjá Fasteignamiðstöðinni eru nú til sölu um 100 hektarar lands úr jörðinni Egilsstaðir, rétt fyrir austan kauptúnið. Óskað er eftir til- boðum. „Þetta land gæti hentað vel fyrir margvíslega uppbyggingu,“ segir Magnús Leópoldsson fasteignasali. ÍBÚAR í Þorlákshöfn eru nú nær 1.400 og fer fjölgandi. Vaxandi bær kallar á nýbyggingar og nú er að hefjast úthlutun á lóðum í nýju hverfi, Búðahverfi. Beðið hefur ver- ið eftir þessu hverfi, en það er ná- lægt grunnskólanum og leikskól- anum og einnig í grennd við sundlaugina og íþróttahúsið. Athygli vekja gatnaheiti í þessu nýja hverfi, en þau eru tengd nöfn- um Skálholtsbiskupa. Aðalgatan inn í hverfið heiti Biskupabúðir, en síðan koma Brynjólfsbúð, Finnsbúð, Gissurarbúð, Ísleifsbúð, Klængs- búð, Pálsbúð, Vídalínsbúð og Ög- mundarbúð. Í fyrsta áfanga verða byggðar rúml. 50 íbúðir af blandaðri gerð, raðhús, einbýli, parhús og fjórbýlis- hús. Gatnagerð á að vera að hluta til lokið fyrir 1. október nk. „Það er þegar búið að sækja um lóðir fyrir þrjú raðhús með fjórum íbúðum hvert og fyrir tvö einbýlis- hús,“ segir Sigurður Jónsson, skipulags- og byggingarfulltrúi í Þorlákshöfn. / 26 Þorlákshöfn                                                                  !"!#$! % " #$     &'( )*+ &'(  ) *+       !  "# $#!"%%& -%.$/#$ %"/++% 01%23+ 456#0!+ (1+1/7+ !+ 8+ 23+ '%" 9+ " ! :$+; % ":$+; $!+%.+ ! :$+; % ":$+;      '     (%<) "%"+$ +$ 1+=""+)>>>1+    ?" /@+AB * * * * " " "# " $ %    ()    *" /@AB   $, & $ -. -- " % -&% -#$$% -/01 -- -"-0, --0- B  2 !  3   ! # 1# --#!"%%& 8%"+#$! &" %""+ #     ##                        6+B   #  #  Þúsundir fasteigna af öllum stærðum og öllum gerðum alls staðar á landinu Gólfhiti ísókn Spurt og svarað 11 2003  ÞRIÐJUDAGUR 13. MAÍ BLAÐ B B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A ÁRANGUR LIÐA Í MEISTARABARÁTTUNNI FRÁ 1993 / B8, B9 BARÁTTAN um Íslandsmeistaratitilinn í knatt- spyrnu er að hefjast og verður eins og undan- farin ár eflaust hart barist. Fimm Reykjavík- urlið verða nú með í baráttunni – nýliðar Vals og Þróttar ásamt bikarmeisturum Fylkis, Fram og Íslandsmeisturum KR. Síðast voru fimm Reykjavíkurlið í efstu deild 1998 – ÍR, Þróttur, Valur, Fram og KR – og þar áður 1993 – Vík- ingur, Fylkir, Valur, Fram og KR. Önnur lið sem leika í efstu deild í ár eru ÍA, ÍBV, KA, Grindavík og FH en þau lið sem féllu úr deildinni síðastliðið keppnistímabil eru Keflavík og Þór á Akureyri. Nýtt nafn hefur verið tekið upp á efstu deild og heitir hún nú Landsbankadeildin. Liðin sem leika í efstu deild eru kynnt hér í blaðinu og er þar að finna ýmsar fróðlegar upp- lýsingar. Fimm lið frá Reykjavík Meistarabaráttan 2003 Morgunblaðið/Brynjar Gauti Jökull Elísabetarson, varnarmaðurinn ungi hjá KR, og Sævar Þór Gíslason, markahrókur Fylkisliðsins, í baráttu um knöttinn. Yf ir l i t Í dag Sigmund 8 Forystugrein 28 Viðskipti 12/13 Viðhorf 32 Erlent 14/16 Minningar 32/38 Höfuðborgin 17 Bréf 40 Akureyri 18 Dagbók 42/43 Suðurnes 19 Sport 44/47 Landið 20 Fólk 48/53 Neytendur 21 Bíó 50/53 Listir 22 Ljósvakar 54 Umræðan 24/27 Veður 55 * * * VERULEGA hefur dregið úr sitj- andafæðingum í gegnum leggöng á Kvennadeild Landspítala – háskóla- sjúkrahúss og eru nær öll börn sem eru í sitjandastöðu tekin með keis- araskurði. Í rannsókn sem Margrét Kristín Guðjónsdóttir læknanemi gerði í samvinnu við Þóru Stein- grímsdóttur kvensjúkdómalækni kom í ljós að sitjandafæðing um leg- göng eykur ekki hættuna á alvar- legri súrefnisþurrð hjá barninu við þær tilteknu aðstæður sem ríktu á Kvennadeild LSH á árunum 1996– 2000 en yfir það tímabil náði rann- sóknin. Rannsóknarhópurinn var allar konur sem fæddu fullburða einbura úr sitjandastöðu á Kvennadeildinni á rannsóknartímanum en þær voru 353 talsins. Þóra, sem kynnti rannsóknarnið- urstöðurnar á vísindadögum Land- spítala – háskólasjúkrahúss í gær, sagði að hugsanlega hefðu reglur deildarinnar haft þau áhrif að rann- sóknarniðurstaðan fór á þennan veg, en aðeins um 14% sitjandafæð- inga á rannsóknartímanum voru fyrirhuguð í gegnum leggöng. Af þeim enduðu 17% í bráðakeisara- skurði. Að sögn Þóru er misjafnt eftir löndum og jafnvel milli fæðing- ardeilda innan hvers lands, hvaða viðmið eru sett um hvort kona skuli fara í sitjandafæðingu um leggöng eða hvort gerður er keisaraskurður. Áhrifamikil grein í Lancet Þóra sagði að haustið 2000 hefðu sitjandafæðingar um leggöng nær alfarið lagst af á Kvennadeildinni og víðar um heim eftir að grein sem birtist í blaðinu Lancet greindi frá rannsóknarniðurstöðum um skaðleg áhrif slíkra fæðinga. Þóra sagði að alltaf ætti að líta á keisaraskurð sem neyðarúrræði. Þróunin nú benti til að konur sem gengju með barn í sitjandastöðu ættu ekkert val lengur, þær færu allar í keisaraskurð. Þá sagði Þóra hugsanlegt að með fækkun sitj- andafæðinga um leggöng væri hætta á að sú sérstaka tækni sem læknar þurfa að tileinka sér til að auðvelda sitjandafæðingar um leg- göng væri að hverfa. „En það er áfram þörf á þessari kunnáttu,“ sagði Þóra. Þóra sagði að lokum að bera þyrfti saman fæðingar barna í höf- uðstöðu og sitjandafæðingar til að fá úr því skorið hvort einhver mun- ur væri á slíkum fæðingum hvað varðar afdrif barnanna. Sitjandafæðingar um leggöng næstum aflagðar á Kvennadeild LSH Kunnáttan má ekki hverfa VEGAGERÐIN hefur auglýst útboð á smíði tveggja brúa yfir Skaftá. Gert er ráð fyrir að verkið hefjist í júní og því ljúki í desember en til- boð verða opnuð 2. júní. Áætlaður heildarkostnaður við brúa- og vegagerð er 103 milljónir króna. Að sögn Jakobs Hálfdánarsonar, minjavarðar hjá Vegagerðinni, verða nýju brýrnar fjórða kynslóð brúa yfir Skaftá en áin var brúuð í fyrsta sinn fyrir einni öld, árið 1903. Þá var byggð trébrú með boga yfir ána sem árið 1924 vék fyr- ir stálgrindarbrú með trégólfi. Sú brú stóð í tæp 30 ár, þar til byggðar voru steinsteyptar, einbreiðar brýr yfir ána árið 1953 sem standa enn í dag, hálfri öld síðar. Að sögn Jak- obs hafa þær staðist tímans tönn ágætlega en eru þó orðnar dálítið lúnar enda margbúið að gera við þær. Þær munu í sumar víkja fyrir nýju brúnum sem brúadeild Vega- gerðarinnar hefur hannað. Önnur brúin verður 20 metra löng og hin 26 metrar. Heildarbreidd brúnna verður 10,7 metrar. Tölvumynd/Vegagerðin Skaftárbrýr verða tvíbreiðar með gangbraut og grjótvörn til að verjast vatnavöxtum. Skaftá brúuð í fjórða sinn STÚLKAN sem lést í bílslysi í Vestmannaeyjum um helgina hét Anna Ragnheiður Ívars- dóttir og var til heimilis að Búa- staðabraut 5. Hún var á sautjánda aldursári og nem- andi í Framhaldsskólanum í Vestmannaeyjum. Lést í bílslysi MAÐURINN sem lést eftir fall fram af klettum við Hell- issand aðfaranótt föstudags hét Matthías Kristjánsson, til heimilis að Hábrekku 6, Ólafs- vík. Matthías var 27 ára gamall, fæddur þann 23. september 1975. Hann lætur eftir sig unn- ustu, þrjú börn og einn fóst- urson. Að sögn lögreglunnar í Ólafsvík féll hann um 7–8 metra ofan í stórgrýtta fjöru en ekki 11 metra eins og sagði í Morgunblaðinu á sunnudag. Lögregla segir tildrög slyssins í rannsókn. Lést eftir fall í klettum HÁLENDISVEGIR landsins eru óðum að opnast og eru sumir vegir nú þegar orðnir jeppafærir. Að sögn Björns Svavarssonar, eftirlitsmanns hjá Vegagerðinni, er útlit fyrir að vel flestir vegir verði orðnir færir í lok maí sem er um hálfum mánuði fyrr en vant er en vegirnir hafa verið að opnast um og eftir miðjan júní und- anfarin ár. Björn segir að þakka megi þetta óvenju mildum og snjó- léttum vetri. „Það er til dæmis orðið fært fyrir jeppa um Kjalveg að norðan og veg- urinn vestan Jökulsár á Fjöllum er opinn að hluta,“ segir Björn. Hann segist búast við því að fleiri vegir opnist þegar líða tekur á mánuðinn og nefnir sem dæmi Fjallabaksleið og Kjalveg að sunnan. Vegagerðin hefur byrjað vikulega útgáfu á kortum um færð á fjallveg- um á slóðinni www.vegagerd.is. Sýna þau að hvaða marki hálendis- vegir eru opnir fyrir umferð en ástand vega getur breyst mjög ört á þessum tíma árs. Björn segir að umferð um fjallvegi hafi aukist mikið síðustu ár en engar nákvæmar mælingar séu þó til um bílafjölda. Aðspurður segir Björn að þótt vegirnir séu nær eingöngu ætl- aðir jeppum og hærri bílum sé alltaf eitthvað um að menn fari á fjöll á fólksbílum. Hálendis- vegir opn- aðir fyrr en vanalega UMSÓKNARFRESTUR rann út um helgina um störf hjá ítalska verktaka- fyrirtækinu Impregilo við gerð stíflu og aðrennslisganga Kárahnjúkavirkj- unar. Alls bárust 2.762 umsóknir um þau tæplega 200 störf sem í boði eru að þessu sinni. Að sögn Ingibjargar Óðinsdóttur, ráðgjafa hjá Mannafli, sem vinnur úr umsóknunum í samstarfi við ráðning- arvefinn Vinnu.is, er ekki ljóst hve margir sóttu um einstök störf en vitað er að margir sóttu um fleiri en eitt og fleiri en tvö störf. Einkum var um að ræða störf við stjórnun vinnuvéla, sem krefjast iðnmenntunar, og störf sem ekki krefjast fagmenntunar. Ingibjörg segir að mikil vinna bíði við að fara í gegnum umsóknirnar. Niðurstöðurnar verði birtar á vefnum vinna.is, þangað sem umsóknir bár- ust, eins fljótt og mögulegt er. 2.762 um- sóknir um 200 störf
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.