Morgunblaðið - 13.05.2003, Qupperneq 12
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
12 ÞRIÐJUDAGUR 13. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
E
H
F/
SI
A
.I
S
H
IR
2
11
05
0
5.
20
03
Bjarni Ármannsson
forstjóri Íslandsbanka
Helga Jónsdóttir
borgarritari Reykjavíkurborgar
Fundirnir verða á 3ju hæð Háskólans í Reykjavík,
hefjast kl. 12:05 og lýkur laust fyrir kl. 13:00.
Léttar veitingar verða í boði. Sjá nánar á www.ru.is
Umsóknarfrestur um MBA nám er til 28. maí.
www.ru.is/mba
MBA
Dagana 12.–14. maí verða haldnir opnir hádegisfundir þar sem MBA útskriftarnemar kynna
lokaverkefni sín og draga af þeim stærri ályktanir. Lykilaðilar úr viðskiptalífinu flytja inngangsorð
og taka þátt í umræðum.
Hádegisfundirnir verða hver með sínu þema; á mánudeginum verður kastljósinu beint að nýsköpun,
á þriðjudeginum velta menn fyrir sér opinbera geiranum og þeim áskorunum sem stjórnendur þar
standa frammi fyrir og á miðvikudeginum verða bankar og fjármál fyrirtækja til umræðu.
Hádegisfundirnir eru öllum opnir og eru þeir kjörið tækifæri fyrir þá sem vilja kynna sér þær
kenningar og hugmyndir sem efst eru á baugi varðandi stjórnun og stefnumótun
– og hvernig þær eru notaðar við ólíkar aðstæður í íslenskum veruleika.
Magnús Pálmi
Örnólfsson
Hildur Hörn
Daðadóttir
Hjörtur
Eiríksson
MBA nemendur: MBA nemendur:
Hádegisfundir
12.–14. maí
Fundirnir verða á 3ju hæð Háskólans í Reykjavík,
hefjast kl. 12:05 og lýkur laust fyrir kl. 13:00. Léttar veitingar í boði.
Þriðjud. 13. maí
Samkeppnishæfni
opinbera geirans
Miðvikud. 14. maí
Fjármálamarkaðir
á tímamótum
Rut
Jónsdóttir
Sævar
Kristinsson
Stefán Róbert
Gissurarson
FJÁRFESTINGAFYRIRTÆKIÐ
Permira hefur gert óformlegt
kauptilboð í bresku verslunarkeðj-
una Debenhams. Tilboðið hljóðar
upp á 1,5 milljarða punda eða um
176 milljarða íslenskra króna. Það
jafngildir því að Permira greiði
425 pens fyrir hvern hlut í Deben-
hams eða sem nemur tæpum 500 ís-
lenskum krónum á hlut.
Sé miðað við lokagengi hluta-
bréfa í Debenhams á föstudag felst
28 prósenta yfirverð í tilboðinu.
Gengi bréfa í Debenhams var
330,75 pens á hlut við lokun mark-
aða á föstudag en hækkaði um 24%
vegna tíðindanna um hugsanleg
kaup Permira á keðjunni.
Lokagengi bréfanna í gær,
mánudag, var 409,25 pens á hlut
sem er um 480 íslenskar krónur.
Ekki mun vera um formlegt
kauptilboð að ræða af hálfu
Permira en í frétt Reuters um mál-
ið kemur fram að Debenhams hafi
þegar skipað óháða nefnd yfir-
manna til að fjalla um hugsanleg
tilboð í verslunarkeðjuna.
Fjármálasérfræðingar telja verð-
ið sem Permira er tilbúið að greiða
fyrir Debenhams sanngjarnt. Þó er
talið mögulegt að fleiri tilboð ber-
ist. Tölurnar 450–460 pens á hlut
eru nefndar sem líkleg verðtilboð
frá öðrum en Permina. Debenhams
rekur 102 verslanir í Bretlandi og á
Írlandi. Eina íslenska útibúið er
verslun Baugs í Smáralind í Kópa-
vogi. Baugur hefur umboð fyrir
Debenhams á öllum Norðurlönd-
unum en á ekki hlut í keðjunni
sjálfri.
Debenhams-keðjunni hefur
gengið betur að fóta sig á þessu ári
en mörgum öðrum breskum smá-
sölukeðjum. Hagnaður á fyrri
helmingi uppgjörsársins nam 96,5
milljónum punda eða ríflega 11
milljörðum króna og jókst um 4,8%
frá sama tíma árið áður.
Permira er verðbréfafyrirtæki
sem hefur yfir 17 fjárfestinga-
sjóðum að ráða. Á undanförnum
þremur árum hefur fyrirtækið sett
fjárfestingar á smásölumarkaði á
oddinn. Meðal arðsamra viðskipta
Permira eru kaup á heimilis-
vörukeðjunni Homebase af J.
Sainsbury fyrir 750 milljónir punda
árið 2000. Þegar Permira seldi
Homebase í nóvember síðastliðnum
fékk fyrirtækið um 900 milljónir
punda fyrir sinn snúð.
Miklar hræringar hafa verið á
breskum smásölumarkaði og hafa
samrunar og yfirtökur aukist.
Mörg fyrirtæki hafa lækkað í verði.
Gengi bréfa í Debenhams hefur þó
ekki verið hærra í eitt og hálft ár.
Yfirtöku-
tilboð í
Deben-
hams
Reuters
Samningar við þekkta tískuhönnuði – eins og Jasper Conran sem sýndi á
tískuviku í London fyrr á árinu – eru taldir eiga stóran þátt í velgengni
Debenhams. Fjárfestingafyrirtækið Permira er tilbúið að greiða 28% yfir-
verð fyrir hlutabréf smásölukeðjunnar.
STJÓRN Selfridges hefur sam-
hljóða ákveðið að samþykkja tillögu
kanadíska milljarðamæringsins,
Galon Weston, um yfirtökutilboð
sem hljóðar upp á 598 milljónir
punda (70,2 ma.kr.) í peningum eða
392,25 pens á hvern hlut. Tillagan
felur í sér að 387 pens verði greidd út
auk þess sem greiddur verði 5,25
pensa arður. Þá yfirtaki Weston 30
milljóna punda skuld frá Selfridges.
Tilboðið sem lagt er til er nokkru
hærra en búist hafði verið við en get-
gátur voru uppi um að boðin yrðu um
375 pens á hlut eða alls 570 milljónir
punda (tæpir 70 ma.kr.).
Talsmenn fyrirtækisins hafa lýst
ánægju sinni með tillöguna. Haft er
eftir stjórnarformanninum á FT.com
að hún sé sanngjörn og endurspegli
styrk fyrirtækisins. Jafnframt hefur
forstjóri þess, sem fór fyrir öðrum
hópi áhugasamra kaupenda, sagst
vera ánægður og ætla að starfa
áfram.
Hér er þó ekki um bindandi tilboð
að ræða enda tíðkast í Bretlandi að
leggja hugsanlegt tilboð fyrst fyrir
stjórn fyrirtækis og fá samþykki
hennar og meðmæli áður en form-
legt tilboð er lagt fram til hluthafa.
Baugur Group á um 0,5% hlut í
Selfridges síðan í janúar sl. Meðal-
gengi í þeim viðskiptum var um 233
pens á hlut.
Beðið eftir viðbrögðum
Nú eru aðrir áhugasamir að íhuga
hvort þeir eigi að bjóða hærra verð
en Weston. Skoski frumkvöðullinn
Tom Hunter hefur verið þeirra á
meðal en talið er líklegt að hann
muni draga sig í hlé. Hins vegar bíða
menn átekta eftir því hvað íranski
fasteignabaróninn Robert Tcheng-
uiz gerir en þess er jafnvel vænst að
hann muni biðja hluthafa um að
hinkra við þar til tilboð berst frá
honum. Ennfremur segir BBC
fréttavefurinn frá því að sögur hafi
gengið á fjármálamarkaði í London
þess efnis að Baugur væri að setja
saman tilboð í fyrirtækið.
Galen Weston á m.a. keðju tísku-
verslana á Írlandi og tólf deildar-
skiptar lúxusstórverslanir í Kanada.
Gengi hlutabréfa í Selfridges
hækkaði um 12% í Kauphöllinni í
London í gær og var lokaverð þeirra
398 pens.
Stjórn Selfridg-
es samþykkir
yfirtökutillögu
AFKOMA af rekstri Afls fjár-
festingarfélags var 94,8 millj-
ónir króna á fyrstu þremur
mánuðum ársins. Afkoma fé-
lagsins á sama tímabili árið
2002 var rúmar 276 milljónir
króna. Nam innleystur hagnað-
ur 54,5 milljónum og óinnleyst-
ur hagnaður 40,2 milljónum
króna.
Hlutafé félagsins var 1.888
milljónir króna í lok mars. Eig-
ið fé nam samtals 3.230 millj-
ónum króna sem er meira en á
sama tíma í fyrra. Eiginfjár-
hlutfall félagsins 31. mars var
86,2% en var 99,4 sama dag
2002.
Framsetningu rekstrar-
reiknings hefur verið breytt frá
fyrra reikningsári en í tilkynn-
ingu frá félaginu segir að breyt-
ingin hafi ekki áhrif á eigið fé
eða niðurstöðu rekstrarreikn-
ings.
Heildarhagnaður á hverja
krónu hlutafjár á tímabilinu frá
janúar til mars sl. nam 0,05 en í
fyrra var sama tala 0,15. Hlut-
hafar í lok mars 2003 voru 3.400
og áttu þrír hluthafar yfir 10%
hlut. Landsbanki Íslands hf. og
Þorsteinn Vilhelmsson eiga
19,5% hlut hvor og Ránarborg
ehf. á 15,3%.
Stærsti eignarhlutur Afls
þessa stundina er 10,2% hlutur
í Granda hf.
Afl með 95
milljóna
afkomu GERT er ráð fyrir að hundruð hlut-hafa mæti á fund með stjórnendum
hins hollenska Ahold í dag. Fundur-
inn er sagður vera fyrsta tækifæri
hluthafa til að láta í ljós reiði sína
vegna bókhaldssvika sem fyrirtækið
varð uppvíst að í febrúar síðastliðn-
um.
Ofmetnar tekjur þessa þriðja
stærsta matvörufyrirtækis heims
nema um 64 milljörðum íslenskra
króna, eða um 880 milljónum dollara,
samkvæmt fréttavef BBC. Meðal
eigna fyrirtækisins er hollenska mat-
vörukeðjan Albert Heijn, sem er sögð
jafnstór hluti af daglegu lífi og menn-
ingu í Hollandi og vindmyllur og túl-
ípanar. Hollenskir hluthafar eru sér-
lega óánægðir enda eru hlutabréf í
Ahold ein þau útbreiddustu í Hol-
landi. Bókhaldssvikin voru þó helst í
gegnum bandaríska matardreifingar-
fyrirtækið U.S. Foodservice sem er í
eigu Ahold. Tveir af yfirmönnum þess
fyrirtækis hafa þegar verið látnir
fara. Ekki er ljóst í hverju breyting-
arnar sem boða á á fundinum í dag
felast. Stjórnendur eru sagðir ætla að
kynna viðamiklar breytingar á stjórn-
kerfi fyrirtækisins. Í frétt FT um
fundinn segir að stokka verði duglega
upp í framkvæmdastjórn fyrirtækis-
ins og yfirstjórn þess, eigi að takast
að endurvinna traust hluthafa. Ef-
laust hafa hluthafar mestan áhuga á
að fá skýringar á því hvers vegna fyr-
irtækið ofmat tekjur sínar í þrjú ár og
hvernig fyrirtækið ætlar að stuðla að
hækkun virðis hlutabréfanna.
Gengi bréfa í Ahold var tvöfalt
hærra en það er nú áður en upp
komst um svikin.
Ahold fund-
ar í dag
VELTA breska verslunarfyrirtækis-
ins Somerfield, sem Baugur á tæpan
3% hlut í, var umfram væntingar á
fjárhagsárinu sem lauk 26. apríl sl., að
því er fram kom í tilkynningu frá fé-
laginu fyrir helgi.
Heildarveltan, sem hefur verið
áætluð 5 milljarðar punda, jókst um
0,7%, velta Somerfield-keðjunnar
jókst um 0,9% og velta Kwik Save-
keðjunnar jókst um 1,3%. Salan á
seinni helmingi fjárhagsársins var
heldur meiri en á þeim fyrri.
Stjórn Somerfield hafnaði nýlega
yfirtökutilboði í félagið en talið er að
sömu aðilar muni gera aðra tilraun til
yfirtöku. Nú verði boðnar 600 millj-
ónir punda (70 ma.kr.) í stað 510 (60
ma.kr.) áður eða 110-120 pens á hlut í
stað 103 pensa. Sérfræðingar á bresk-
um markaði telja að slíkt tilboð gæti
fengið hljómgrunn hjá stjórninni.
Talsmenn Somerfield segja mikil
tækifæri vera til hagræðingar víðs
vegar um fyrirtækið, lækkunar á
kostnaði og aukinnar skilvirkni. Þeir
hafa einnig gefið í skyn að selja eigi
nokkuð af fasteignum félagsins og í
sumum tilvikum verði húsnæðið leigt
af kaupendum.
Aukin velta Somerfield