Morgunblaðið - 13.05.2003, Side 13
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. MAÍ 2003 13
HAGNAÐUR Marels nam 665 þús-
undum evra, sem svarar til 56 millj-
óna króna, fyrstu þrjá mánuði ársins.
Á sama tímabili í fyrra nam hagn-
aður félagsins 485 þúsundum evra.
Hagnaðurinn hefur því aukist um
37% á milli tímabila.
Rekstrartekjur Marels á fyrsta
ársfjórðungi voru 24,1 milljón evra
sem er um 8% minnkun frá fyrra ári.
Fjárfestingar Marels voru í lág-
marki eða 400 þúsund evrur saman-
borið við 4,6 milljónir evra á sama
tíma í fyrra.
Handbært fé frá rekstri var 3,1
milljón evra. Samanburður á milli ár-
anna 2003 og 2002 mótast af áhrifum
gengisþróunar íslensku krónunnar.
Þannig var meðalgengi evru um 5,3%
lægra á fyrsta ársfjórðungi 2003 en
2002, Bandaríkjadalur um 22,7%
lægri nú og gengisvísitala krónunnar
um 11,5% hærri. Samdrátt í veltu má
að mestu leyti skýra með veikingu
dollars gagnvart evru en óvenjustór
hluti tekna samstæðunnar á tíma-
bilinu var í dollurum, að því er segir í
tilkynningu til Kauphallar Íslands.
Starfsmönnum fjölgar
á næstunni
„Verkefnastaða fyrirtækisins á
öðrum ársfjórðungi er með besta
móti. Sala á ýmsum nýjungum sem
kynntar voru á síðasta ári hefur
gengið vel, sérstaklega hefur sala á
nýrri tegund flokkunarkerfa fyrir
alifuglavinnslu gengið betur en gert
hafði verið ráð fyrir. Sölutregða er
þó á ýmsum mörkuðum félagsins
sem mótast af efnahagssamdrætti í
Bandaríkjunum og Evrópu. Sala í
alifuglaiðnaði hefur verið umfram
áætlun en sala til kjöt- og fiskiðnaðar
hefur verið minni en gert var ráð fyr-
ir það sem af er árinu. Í maímánuði
voru kynntar fjölmargar nýjar vörur
samstæðunnar, m.a. á sjávarútvegs-
sýningunni í Brussel, og eru bundnar
vonir við að þær glæði sölu til fiskiðn-
aðar.
Styrking íslensku krónunnar hef-
ur aftur á móti mjög neikvæð áhrif á
rekstur móðurfélags Marels á Ís-
landi eins og annarra útflutningsfyr-
irtækja. Brugðist verður við því með
áframhaldandi hagræðingaraðgerð-
um og leitað er leiða til þess að draga
úr kostnaði í íslenskum krónum,“ að
því er segir í tilkynningu.
Gert er ráð fyrir að starfsmönnum
samstæðunnar fjölgi aftur á næstu
mánuðum samfara aukningu í sölu.
Um síðustu áramót störfuðu 820
manns hjá Marel-samstæðunni en nú
í lok mars voru þeir 751 talsins.
Starfsmönnum mun aðallega fjölga í
erlendum dótturfélögum fyrirtækis-
ins.
Hagnaður
Marels
eykst
um 37%
JÓN Ásgeir Jóhannesson, forstjóri
Baugs, gagnrýndi nýja stefnu bresku
matvörukeðjunnar Iceland í breskum
fréttamiðlum í gær en Baugur ID er
stærsti hluthafi í Big Food Group sem
á Iceland. Iceland stefnir að því að
færa sig til á markaðnum í átt frá
lágverðsendanum. Þetta segir Jón
Ásgeir vera mistök.
Hann segir Iceland vera að fara í
öfuga átt og eiga eftir að finna fyrir
því hversu erfitt verði að keppa við
Tesco og Sainsbury’s. Hið sama segir
hann eiga við um Somerfield. Enn-
fremur segir hann marga breska
smásala vera of upptekna af vexti
fremur en að leggja áherslu á sjóð-
streymi og hagnað.
Iceland sagði hann að ætti að halda
sig við sölu á frosnum matvælum.
Keðjan hefur hins vegar tilkynnt að
farið verði í endurbætur á öllum 760
verslunum hennar til þess að skapa
aukið rými m.a. fyrir ferska matvöru.
Jón Ásgeir efast um að þær fjárfest-
ingar eigi eftir að skila sér, hvort sem
er hjá Iceland eða Somerfield.
Baugur á rúman 22% hlut í Big
Food Group, sem á Iceland-keðjuna
og Booker heildsöluna. Jón er sagður
hafa gefið stjórnendum Iceland álit
sitt á málinu en verið tekið fálega.
Sérfræðingar á breskum markaði
telja að þetta geti orðið til þess að
Baugur reyni að selja sinn hlut í fyr-
irtækinu.
Jón Ásgeir gagnrýnir
Iceland-keðjuna
Morgunblaðið/Kristinn
Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs, gagnrýndi nýja stefnu Iceland-
keðjunnar í viðtali við breska fjölmiðla nú um helgina.
Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt grein 3.5 í samþykktum félagsins.
Tillögur um breytingar á samþykktum félagsins:
Heimilisfang Baugs Group hf. verði að Túngötu 6, Reykjavík.
Heimild til stjórnar um hækkun hlutafjár félagsins um 100.000.000 kr.,
eitthundraðmilljónirkróna að nafnverði, sem nota skal til sameiningar
eða kaupa á hlutum í öðrum félögum, svo og að hluthafar falli frá
forkaupsrétti sínum vegna hækkunarinnar, verði framlengd til
31. maí 2004.
Heimild til stjórnar um hækkun hlutafjár félagsins um 10.000.000 kr.,
tíumilljónirkróna að nafnverði, sem nota skal til sölu hlutabréfa til
stjórnenda og starfsmanna samkvæmt kaupréttaráætlun stjórnar, svo
og að hluthafar falli frá forkaupsrétti sínum vegna hækkunarinnar,
verði framlengd til 31. maí 2004.
Tillaga um heimild stjórnar félagsins til kaupa á hlutabréfum í félaginu.
Umræður og afgreiðsla um önnur málefni sem löglega eru upp borin.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
B
A
U
2
07
70
05
/2
00
3
Aðalfundur Baugs Group hf.
verður haldinn á Hótel Nordica
þriðjudaginn 20. maí 2003 kl . 14.00.
Dagskrá, tillögur og ársreikningur félagsins auk annarra gagna munu liggja
frammi á skrifstofu félagsins að Túngötu 6, 101 Reykjavík, hluthöfum til sýnis,
viku fyrir aðalfund.
a.
b.
c.
Dagskrá fundarins verður sem hér segir:
1
2
3
4