Morgunblaðið - 13.05.2003, Page 15
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. MAÍ 2003 15
Laugavegi 63, sími 551 4422
Fallegar
sumarkápur
Maura
CLARE Short, ráðherra þróunarað-
stoðar í bresku stjórninni, sagði af
sér embætti í gær vegna óánægju
með þá afstöðu forsætisráðherrans,
Tonys Blairs, að ætla ekki að krefjast
þess að ný ályktun öryggisráðs Sam-
einuðu þjóðanna kvæði á um hlutverk
SÞ við stjórn Íraks.
Short sakaði Blair um það í afsagn-
arbréfi sínu að hafa svikið loforð um
að sjá til þess að SÞ færu með stjórn
mála í Írak, nú þegar ríkisstjórn
Saddams Husseins hefur verið
steypt af stóli, en ekki Bandaríkja-
menn. Þá sakaði hún Blair og Jack
Straw utanríkisráðherra um að hafa
„leynilega“ lagt drög að nýrri álykt-
un öryggisráðsins sem væri í hróp-
legu ósamræmi við loforð sem gefin
hefðu verið í þinginu.
Talsmenn forsætisráðherrans vís-
uðu ásökunum Short hins vegar á
bug og sögðu Blair engin loforð hafa
gefið henni. Sögðu þeir einnig að af-
staða stjórnarinnar
hefði aldrei verið sú að
SÞ færi fyrir málum í
Írak, heldur að um
samstarf hlutaðeigandi
aðila yrði að ræða.
Amos tekur við
Short hafði áður hót-
að afsögn en hún var
afar ósátt við herför
Breta og Bandaríkja-
manna í Írak. Blair
hefur þegar skipað arf-
taka hennar í embætti,
Amos barónessu. Hún
er fyrsta blökkukonan
til að taka sæti í ríkis-
stjórn á Bretlandi. Hefur hún setið í
lávarðadeild breska þingsins frá
1997.
Clare Short sagði af sér
London. AFP.
Clare Short Amos barónessa
UM 46 þúsund bæjarstarfsmenn í 60
borgum og bæjum í Stokkhólmi hófu
vikulangt verkfall í gær. Þetta er
fjórða verkfall bæjarstarfsmanna í
Svíþjóð á einum mánuði og hafa þau
haft áhrif á sjúkrahús, dagheimili og
sorphirðu. Til þessa hafa þó aðeins
nokkur hundruð manns lagt niður
vinnu í viku í senn en verkföllin hóf-
ust eftir að slitnaði upp úr viðræðum
milli fulltrúa verkalýðsfélaga og
samninganefndar sveitarstjórna í
Svíþjóð hinn 23. apríl.
Sum sjúkrahús urðu að loka deild-
um í gærmorgun og fresta aðgerð-
um. Sjúkraliðar, almennir starfs-
menn og aðstoðarmenn á rann-
sóknarstofum lögðu niður vinnu en
gjörgæsludeildir og neyðarmóttökur
störfuðu eðlilegar. Engir læknar eða
hjúkrunarfræðingar hafa tekið þátt í
verkfallsaðgerðunum.
Verkfallsmennirnir, sem eru fé-
lagar í bandalagi bæjarstarfsmanna
þar sem eru um 600 þúsund fé-
lagsmenn, krefjast 5,5% launahækk-
unar en vinnuveitendur hafa boðið
3,2%. Samningafundir fóru fram um
helgina fyrir milligöngu sáttasemj-
ara en hvorki gekk né rak.
Göran Persson forsætisráðherra
hefur sagt að hann hafi skilning á
kröfum bæjarstarfsmannanna en
ríkisstjórnin ætli ekki að leggja fram
fé til að greiða fyrir launahækkun-
um.
Um 46.000 sænsk-
ir bæjarstarfs-
menn í verkfalli
FILIP Vujanovic vann öruggan sig-
ur í forsetakosningum sem haldnar
voru í Svartfjallalandi um helgina,
fékk meira en 65% greiddra at-
kvæða. Vujanovic er núverandi for-
seti þingsins í Svartfjallalandi og
liðsmaður Lýðræðisflokks sósíal-
ista, sem fer með stjórn mála í land-
inu um þessar mundir.
Þetta er í þriðja skipti á sex mán-
uðum sem kjósendur í Svartfjalla-
landi gera tilraun til að velja for-
seta en tvær þær fyrri, í desember
sl. og í febrúar á þessu ári, mistók-
ust vegna þess að kjörsókn reyndist
ekki nægilega mikil til að nið-
urstöður teldust gildar. Raunar var
kjörsókn aðeins um 48% að þessu
sinni, en lögum hefur nú verið
breytt þannig að krafan um meira
en 50% kjörsókn hefur verið felld
niður.
Boðar þjóðaratkvæða-
greiðslu um sjálfstæði
Vujanovic, sem er 49 ára, er
bandamaður Milos Djukanovic for-
sætisráðherra og raunar var Vuj-
anovic sjálfur forsætisráðherra
Svartfjallalands í eina tíð. Þeir eru
báðir hlynntir fullu sjálfstæði
Svartfjallalands – en landið er í
ríkjasambandi við Serbíu – og í gær
sagði Vujanovic í viðtali við Assoc-
iated Press að innan þriggja ára
myndi hann láta fara fram þjóð-
aratkvæðagreiðslu í landinu um
það hvort ríkjasambandinu yrði
viðhaldið, eða hvort lýsa ætti Svart-
fjallaland sjálfstætt ríki.
Vujanovic kjörinn for-
seti í Svartfjallalandi
Podgorica. AFP.
APFilip Vujanovic fagnar sigri á sunnudag.
ÞAÐ var ungverskur stjórnarerind-
reki að nafni Vilmos Böhm sem upp-
lýsti sovésku leyniþjónustuna um
samvinnu Raouls Wallenbergs við
Bandaríkjamenn og Breta, eftir að
Rauði herinn hafði hertekið Ung-
verjaland í janúar 1945. Þetta kom
fram í frétt vefútgáfu sænska dag-
blaðsins Dagens Nyheter í gær.
Wallenberg notaði Böhm sem
milligöngumann sinn við bandamenn
í vestri en Böhm var hins vegar tvö-
faldur í roðinu og kom upplýsingun-
um áfram til sovésku leyniþjónust-
unnar. Það var svo snemma á
sjöunda áratugnum sem sænska
leyniþjónustan komst að því að
Böhm hefði verið njósnari fyrir Sov-
étríkin þrátt fyrir að tengja njósna-
starfsemi hans ekki við Wallenberg.
Að því er fram kemur í nýrri bók
sænska öryggismálasérfræðingsins
Wilhelms Agrell, sem frétt Dagens
Nyheter byggist á, hefur líklega ver-
ið mikilvægara fyrir sænsk yfirvöld
á dögum kalda stríðsins að hylma yf-
ir samstarf landsins við Bandaríkin
en upplýsa það.
Samstarfs-
maður sveik
Wallenberg