Morgunblaðið - 13.05.2003, Blaðsíða 19
SUÐURNES
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. MAÍ 2003 19
„SVÆÐIÐ þykir áhugavert. Við höfum þegar fundið
aukinn áhuga innlendra fyrirtækja til að setja þarna
upp starfsemi. Þá höfum við fengið fyrirspurnir frá er-
lendum stórfyrirtækjum sem vilja skoða möguleikana,“
segir Árni Sigfússon, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, um
hafnar- og iðnaðarsvæðið við Helguvík sem Reykjanes-
höfn er að kynna sem framtíðaratvinnusvæði bæjarins.
Verið er að deiliskipuleggja 55 hektara iðnaðarsvæði
við Helguvíkurhöfn, leggja vegi og grófjafna lóðir og
kynna möguleika svæðisins fyrir innlendum og erlend-
um fyrirtækjum. Árni Sigfússon segir að það hafi verið
gert í samvinnu við Hitaveitu Suðurnesja og Fjárfest-
ingarstofuna. „Í kynningu sýnum við fram á að iðn-
aðarsvæðið er vel staðsett á milli hafnar og flugvallar
og þar er hægt að útvega ódýra og umhverfisvæna
orku,“ segir Árni. Hann segir að sérstök áhersla sé
lögð á flugsækinn og hafnsækinn rekstur og starfsemi
sem þarf á mikilli orku að halda.
Töluverð starfsemi er þegar við höfnina, loðnu-
bræðsla og loðnuflokkunarstöð, steypustöð og sem-
entsinnflutningur, svo nokkuð sé nefnt. Verið er að
byggja flokkunar- og sorpbrennslustöð fyrir Suður-
nesin og sprengja lóð fyrir stálröraverksmiðju sem er-
lendir aðilar hyggjast byggja þarna. Þá verður lítilli ál-
bræðslu komið fyrir í hluta mjölskemmu loðnu-
verksmiðjunnar.
Atvinnustarfsemi beint á svæðið
Reykjanesbær hefur fallið frá áformum um að út-
hluta lóðum fyrir atvinnustarfsemi ofan Vallahverfis í
Keflavík. Kom fram hjá Árna á íbúafundi á dögunum
að óþarfi væri að klæða íbúðarbyggðina með iðnaðar-
svæðum þegar bærinn hefði yfir að ráða þessu góða at-
vinnusvæði við Helguvíkurhöfn. Jafnframt kom fram
að hugmyndin er að koma upp útivistarsvæði á milli at-
vinnusvæðisins í Helguvík og íbúðarbyggðarinnar í
Keflavík, til þess að minnka hættu á árekstrum þar á
milli.
Reykjaneshöfn markaðssetur iðnaðarsvæðið við Helguvík
Guðmundur Jónsson arkitekt sem starfar í Noregi sér fyrir sér að þannig geti Helguvíkursvæðið litið út í framtíð-
inni, þegar það hefur verið byggt upp, þar verði nokkurs konar iðnaðarborg. Uppbygging á svæðinu er þegar hafin.
Aukinn áhugi innlendra og
erlendra stórfyrirtækja
Helguvík
AKUREYRI
„ÞESSI upplýsingamiðstöð er mjög
mikilvæg fyrir svæðið og staðsetning
hennar er góð. Bókasafnið er mið-
stöð upplýsinga í bænum og aðstaða
hér því góð og sterk,“ sagði Árni Sig-
fússon, bæjarstjóri Reykjanesbæjar,
við opnun Upplýsingamiðstöðvar
Reykjaness sl. laugardag, en hún er
staðsett í Bókasafni Reykjanesbæj-
ar í Kjarna.
Reykjanesbær mun annast rekst-
ur stöðvarinnar í samvinnu við
Ferðamálaráð Íslands. Hlutverk
Upplýsingamiðstöðvar Reykjaness
er að annast upplýsingastarf um
ferðamál á Reykjanesi, en auk þess
er upplýsingamiðstöð í Leifsstöð,
sem þjónar öllum landshlutum og er
því eins konar landamærastöð.
Magnús Oddsson, framkvæmda-
stjóri Ferðamálaráðs, sagði við opn-
unina að það skipti sköpum að ferða-
menn fengju góðar upplýsingar.
„Hátt í 70% ferðamanna sem koma
til landsins eru á eigin vegum og leita
sér því sjálfir upplýsinga. Til þess að
ferðamennirnir viti um þá þjónustu
sem er í boði á svæðinu verða þeir að
fá um hana greinargóðar upplýsing-
ar. Með því móti eykst gjaldeyris-
streymið um svæðið.“
Með opnun Upplýsingamiðstöðvar
Reykjaness eru upplýsingamið-
stöðvar fyrir ferðamenn á Íslandi nú
orðnar 44. Upplýsingamiðstöðin
verður opin virka daga frá kl. 10 til
20 og á laugardögum kl. 10 til 16.
Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir
Árni Sigfússon og Magnús Oddsson klipptu á borða til að staðfesta formlega opnum upplýsingamiðstöðvarinnar.
Hulda Björk Þorkelsdóttir, forstöðumaður bókasafnsins, og Stefán Bjarkason framkvæmdastjóri héldu í borðann.
Upplýsingamiðstöð Reykjaness opnuð á bókasafninu
„Skiptir sköpum að
upplýsingar séu góðar“
Reykjanesbær
ATVINNUÁSTAND í Eyjafirði
hefur verið óvenjuslæmt í vetur að
mati Björns Snæbjörnssonar for-
manns Einingar-Iðju og telur hann
að horfur um sumarvinnu skólafólks
séu með dekkra móti. Hann segir
augljóst að skapa verði atvinnutæki-
færi fyrir ófaglært fólk í Eyjafirði
og kveðst öfunda Austfirðinga af
væntanlegum stóriðjuframkvæmd-
um.
„Þetta var slæmur vetur, en fer
hægt batnandi,“ sagði Björn.
Hann sagði að ástandið hefði
versnað bæði í Hrísey og Dalvík-
urbyggð. Þannig væru um 10 til 20
manns án atvinnu í Hrísey og nú ný-
lega hefði starfsfólki fækkað nokkuð
hjá Íslensku sjávarfangi. Óvissa
væru um framhaldið, en ekki væri
mikið um laus störf í Hrísey. Á Dal-
vík hefur að sögn Björns verið heil-
mikið atvinnuleysi í vetur, meira en
oft áður. Við það bætist svo óvissa
um hvort rekstur Íslandsfugls, sem
varð gjaldþrota síðla vetrar, verður
endurreistur. „Það er ennþá von og
verður á meðan varphænunum er
haldið á lífi,“ sagði Björn. Um síð-
ustu mánaðamót voru um 40 manns
á atvinnuleysisskrá í Dalvíkurbyggð
og hafði fjölgað um 20 milli mán-
aðamóta. „Þetta er mjög mikið at-
vinnuleysi miðað við það sem vana-
lega er í þessu byggðalagi,“ sagði
Björn. Í Ólafsfirði voru um mánaða-
mótin mars og apríl ríflega 30
manns á atvinnuleysisskrá en það er
svipað og verið hefur undanfarin 2
ár að sögn formanns Einingar-Iðju.
Hann sagði að einnig væri mikill
fjöldi fólks á atvinnuleysiskrá á Ak-
ureyri þó eitthvað hefði fækkað frá
því mest var á liðnum vetri. Nefndi
Björn að mikið væri um ungt fólk á
atvinnuleysisskrá og útlitið væri alls
ekki gott. „Mér sýnist sem útlitið sé
ekki gott fyrir þetta unga fólk með
sumarvinnu. Ég heyri að margir
ætli að draga saman ráðningar og
jafnvel loka um einhvern tíma,“
sagði Björn.
„Ég dauðöfunda Austfirðinga að
fá stóriðju, það er eitthvað sem okk-
ur vantar á Eyjafjarðarsvæðið ef við
ætlum að rétta atvinnulífið á svæð-
inu af. Það hefur margt verið vel
gert og auðvitað gleðilegt að margir
hafa fengið atvinnu í tengslum við
Háskólann og sjúkrahúsið, en það
vantar atvinnu fyrir ákveðna hópa.“
Björn taldi að áhrif stóriðjufram-
kvæmda myndu eflaust ná norður í
land þegar liði á árið, einkum varð-
andi ýmiskonar þjónustu, en ómögu-
legt að segja nú hve mikil þau yrðu.
Þá nefndi hann að uppbygging á Ak-
ureyri, t.d. við öldrunarstofnanir,
myndi skapa atvinnu, einkum fyrir
konur.
Mikil atvinna er á Grenivík og
sagði Björn það ljósa punktinn hvað
atvinnuástand í Eyjafirði varðar.
„Þetta er sá staður sem upp úr
stendur, það er gróska í atvinnulíf-
inu þar og menn eru að horfa á ýmsa
vaxtarbrodda í atvinnulífinu sem er
mjög jákvætt,“ sagði Björn.
Atvinnuleysisbætur
verða að hækka
Björn nefndi að vinna þyrfti bug á
atvinnuleysinu, en mörg dæmi væru
þess að fólk hefði verið án atvinnu í
1 til 2 ár og slíkt hefði afar slæmar
afleiðingar, ekki bara fyrir fjárhag
þess heldur líka fyrir samfélagið.
„Það er skelfilegt að horfa upp á
að fólk er að fá 77.500 krónur í at-
vinnuleysisbætur á mánuði. Að mínu
mati ætti fyrsta verk nýrrar ríkis-
stjórnar að vera það að hækka at-
vinnuleysisbæturnar,“ sagði Björn
og benti á að yfir 40% þeirra sem
sækja félagslega aðstoð hjá sveit-
arfélögum væri atvinnulaust fólk.
Víða óvenjuslæmt atvinnuástand
Horfur á sum-
arvinnu skóla-
fólks dökkar
SUMARSTARFIÐ hefst í
gamla bænum í Laufási á
morgun, 15. maí.
Frá og með þeim degi verð-
ur opið alla daga fram á haust
frá kl. 10–18. Þema opnunar-
dagsins er vinnuhjúaskildagi,
sá dagur sem vinnufólk í árs-
vist kom í vistina áður fyrr
eða fór úr henni. Vinnuhjúa-
skildagi var fyrst lengi vel
hinn 3. maí en fluttist síðan yf-
ir á 14. maí.
Á sýningu í Laufási á opn-
unardaginn verða munir,
dæmigerðir fyrir þá sem
vinnukonur áttu og höfðu með
sér á milli vista. Einnig verður
lesið valið efni um vinnuhjú,
störf þeirra og félagslega
stöðu. Dagskráin verður flutt
klukkan ellefu að morgni og
síðan endurtekin klukkan tvö
og fimm síðdegis.
Veitinga- og minjagripasala
í þjónustuhúsi staðarins verð-
ur opnuð sama dag.
Sumarstarf-
ið í Laufási
að hefjast
Vortónleikar deilda Tónlistarskól-
ans á Akureyri verða haldnir næstu
dag. Þannig verða tónleikar píanó-
deildar haldnir í Laugarborg á
morgun, 14. maí, kl. 18.30. Tónleikar
blásaradeildar verða á sal Tónlistar-
skólans kl. 18 fimmtudaginn 15. maí.
Tónleikar slagverksdeildar verða í
Giljaskóla kl. 17 laugardaginn 17.
maí og á sunnudag, 18. maí, verða
vortónleikar skólans þar sem yngri
nemendur koma fram kl. 14 og þeir
eldri kl. 16. Boðið verður upp á kaffi-
veitingar milli tónleika. Aðgangur að
öllum þessum tónleikum er ókeypis
og allir velkomnir.
Á NÆSTUNNI
Laufey Brá Jónsdóttir leikkona
fjallar um leiklist og börn á mömmu-
morgni sem verður í Akureyr-
arkirkju á morgun, miðvikudag, kl.
10 til 12. Dagskráin er liður í Kirkju-
listaviku sem hófst í kirkjunni á
sunnudag.
Á MORGUN
STAÐA jafnréttisfulltrúa var til um-
fjöllunar á fundi stjórnsýslunefndar
Akureyrarbæjar. Þar kom fram að
Oktavía Jóhannesdóttir og Valgerð-
ur H. Bjarnadóttir hefðu lagt fram
tillögu á fundi bæjarstjórnar nýlega,
um að flutningur jafnréttis- og fjöl-
skyldumála og þess starfsmanns
sem þeim sinnir, yfir á félagssvið, sé
í andstöðu við þróun í átt að sam-
þættu jafnréttis- og kynjasjónar-
miða í allt starf sveitarfélagsins.
Þá er í tillögunni lagt til að 100%
staða jafnréttisráðgjafa verði stað-
sett beint undir bæjarstjóra, við hlið
bæjarlögmanns, eins og staðan var
upphaflega á árunum 1991-1998.
Bæjarstjórn vísaði tillögunni til
stjórnsýslunefndar en þar var af-
greiðslu hennar frestað.
Jafnréttisráð-
gjafi heyri undir
bæjarstjóra