Morgunblaðið - 13.05.2003, Síða 20
LANDIÐ
20 ÞRIÐJUDAGUR 13. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
! !
" !
#
#$ %
# #$ %
AÐALFUNDUR Rauðakrossdeild-
ar Árnessýslu fyrir árið 2002 var
haldinn nýlega á Flúðum.
Fram kom í skýrslu formannsins,
Tómasar Þóris Jónssonar, að deildin
sinnir flestum þáttum rauðakross-
starfs eins og gert er á landsvísu.
Deildin sinnir öldruðum með virku
heimsóknarstarfi og mörg námskeið
um skyndihjálp eru haldin, m.a. með
barnfóstrum og nemendum í níunda
og tíunda bekkjum grunnskóla.
Neyðarvörnum er einnig sinnt og
var námskeið fyrir fjöldahjálpar-
stjóra haldið á síðastliðnu ári. Þá er
alþjóðastarfið ofarlega á verkefna-
listanum og hafa Sunnlendingar og
Suðurnesjamenn sameinast á þeim
vettvangi en verkefnin eru aðallega í
Júgóslavíu. Blóðsöfnun hefur farið
fram á Selfossi og fatasöfnun er eitt
af mörgum verkefnum deildarinnar.
Þá kom m.a. fram í skýrslu for-
mannsins að tveir sjúkraflutninga-
bílar eru staðsettir í Árnessýslu en
deildin sinnir sjúkraflutningum í
sýslunni og þriðji bíllinn er til staðar
í eigu heilsugæslustöðvanna á svæð-
inu sem hægt er að grípa til í neyð-
artilfellum.
Það er krafa deildarinnar að hún
fái tvo nýja sjúkrabíla á árinu, það er
að endurnýja eldri bílinn sem fyrir
er og bæta við nýjum bíl til að anna
því álagi sem hvílir á sjúkraflutning-
um í sýslunni. Það er skýlaus krafa
deildarinnar að endurnýja sjúkrabif-
reiðarnar reglulega. Hér getur
mannfjöldinn orðið allt að 60 þúsund
um helgar yfir sumartímann en hér
eru margir fjölsóttustu ferðamanna-
staðir landsins.
Of fáir
sjúkra-
bílar
Hrunamannahreppur
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Núverandi stjórn Rauðakrossdeildar Árnessýslu, f.v. Guðný Sigurðar-
dóttir, Marianne Brandsson Nielson, Tómas Þórir Jónsson formaður og
Skarphéðinn Haraldsson. Á myndina vantar Eirík Jóhannsson.
KASSAKLIFUR er að verða vinsæl
íþrótt en ungmenni á Þórshöfn
spreyttu sig á henni í íþrótta-
miðstöðinni Verinu um helgina.
Skátafélagið Goðar stóð fyrir klifr-
inu og reyndu krakkarnir að kom-
ast sem hæst upp en urðu að hætta í
26 kassa hæð af þeirri einföldu
ástæðu að ekki voru til fleiri kass-
ar. Það tókst því ekki að slá Íslands-
metið sem er 36 kassar þegar síðast
var vitað. Þetta þótti hin besta
skemmtun en er þó varla fyrir þá
sem þjást af lofthræðslu.
Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir
Sigurður Kári komst upp á 26 kassa
en fleiri kassar voru ekki til.
Kassaklifur
í Verinu
Þórshöfn
FYRSTU helgina í maí héldu for-
stöðumenn eldhúsa heilbrigðis-
stofnana á Íslandi aðalfund sinn í
Vestmannaeyjum. Forstöðumenn
eldhúsanna tveggja í Vestmanna-
eyjum, Eðvarð Þór Jónsson, hjá
Heilbrigðisstofnun Vestmanna-
eyja, og Tómas Sveinsson, hjá
Dvalarheimili aldraðra, Hraunbúð-
um, höfðu veg og vanda af komu
hópsins til Vestmannaeyja. Auk
hefðbundinna aðalfundarstarfa
voru flutt fræðsluerindi og þá
kynntu birgjar vörur sínar og
þjónustu fyrir forstöðumönnunum.
Hópnum var boðið til vörukynn-
ingar hjá Höllinni í Vestmanna-
eyjum þar sem Grímur kokkur
kynnti vörur þær sem Höllin fram-
leiðir fyrir neytendamarkað. Þá
fór hópurinn ásamt mökum í hefð-
bundnar skoðunarferðir um
Heimaey og siglingu hringinn í
kringum Eyjar.
Félag yfirmanna eldhúsa heil-
brigðisstofnana á Íslandi er fimm
ára og eru stofnanirnar 60 talsins.
Hópurinn allur með mökum setti
því töluverðan svip á bæinn þá
daga sem fundurinn stóð. Á fund-
inum var María Bergvinsdóttir,
forstöðumaður eldhúss Fjórðungs-
sjúkrahússins á Akureyri, endur-
kjörin formaður.
Ársfundur yfirmanna eld-
húsa heilbrigðisstofnana
Vestmannaeyjar
ÍTÖLSKU sendiherrahjónin á Ís-
landi, Marilena og A.G. Mochi
Onory di Saluzzo, gerðu nýlega
stuttan stans á Hellnum á ferð sinni
um Snæfellsnes. Mochi Onory hef-
ur verið sendiherra Ítalíu á Íslandi
í tæp fjögur ár með aðsetur í Ósló.
Hann sagði að hann kæmi hingað til
lands ekki sjaldnar er fjórum til
fimm sinnum á ári, en á öðrum tím-
um sinnti Pétur Björnsson ræðis-
maður málum sendiráðsins.
Mochi Onory sendiherra sagði að
tengsl Ítalíu og Íslands hefðu auk-
ist á síðustu fjórum árum, bæði á
sviðum viðskipta, menningar og
ferðaþjónustu. Stærstu viðskipta-
tengslin væru auðvitað vegna
Kárahnjúkavirkjunar þar sem
ítalska fyrirtækið Impregilo mun
sjá um stóra verkþætti þar. Í
tengslum við þá framkvæmd munu
margir Ítalir dvelja hér á landi í
skemmri eða lengri tíma. Aðspurð-
ur um það hvort ekki þyrfti þá að
kenna Austfirðingum ítölsku,
brosti sendiherrann við og sagði að
ítalska ríkisstjórnin hefði látið
duga að kosta lektor í ítölsku við
Háskóla Íslands en það væri aldrei
að vita hvað gerðist fyrir austan.
Stjórnmálalega segir sendiherr-
ann að samskiptin séu góð. For-
sætisráðherrar beggja landa hafi
skipst á heimsóknum og þekkist því
persónulega. Jafnframt segir hann
að á alþjóðlegum ráðstefnum sé
ekki óvanalegt að fulltrúar Ítalíu og
Íslands sitji hlið við hlið og því hafi
myndast góð tengsl milli landanna
og fulltrúa þeirra.
Ítalir áhugasamir
um Ísland
Sendiherrann sagði að sífellt
fleiri Ítalir sæktust eftir því að
koma til Íslands sem ferðamenn.
Aukinn áhugi væri á náttúru-
tengdri ferðaþjónustu og Ítalir
væru að gera sér betur grein fyrir
hinni sérstæðu náttúru landsins.
Eini annmarkinn á þessu væri að
ekki væri beint flug allt árið á milli
Íslands og Ítalíu, en sendiherrann
sagðist vona að úr því rættist.
Hann segist sjálfur alltaf ferðast
eitthvað um Ísland þegar hann
kemur hingað í embættiserindum
og nýtur þá leiðsagnar ítalska ræð-
ismannsins, Péturs Björnssonar, og
eiginkonu hans, Guðrúnar Vil-
hjálmsdóttur, sem voru með sendi-
herrahjónunum í för á ferð þeirra
um Snæfellsnesið.
Morgunblaðið/Guðrún Bergmann
Ítölsku ræðismannshjónin og ítölsku sendiherrahjónin á Íslandi.
Ítalski sendi-
herrann á Hellnum
Hellnar
NOKKUR hópur karla og
kvenna kemur saman tvisv-
ar á ári hverju og syngur og
spilar fyrir íbúa á dval-
arheimilinu Kirkjuhvoli á
Hvolsvelli. Eru þetta
Rangæingar ýmist brott-
fluttir eða búandi á svæðinu
og leika þeir og syngja á ým-
is hljóðfæri s.s. gítar, píanó
og saxófón. Fólkið er á öll-
um aldri og er markmiðið
með þessu að gleðja og lífga
upp á tilveruna hjá þeim
sem eldri eru og eru aðal-
lega spiluð lög sem vinsæl
voru um miðja síðustu öld.
Morgunblaðið/Steinunn Ósk
Hópurinn sem skemmtir á dvalarheimilinu Kirkjuhvoli. Má hér m.a. sjá Guðjón
Tómasson, Pálma Eyjólfsson, Grétar Þorsteinsson, Margréti Jónu Ísleifsdóttur,
Sigurð Sigmundsson, Ísólf Gylfa Pálmason, Tómas Grétar og Jón Guðjónsson.
Syngja og
spila fyrir
aldraða
Rangárþing eystra