Morgunblaðið - 13.05.2003, Page 33

Morgunblaðið - 13.05.2003, Page 33
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. MAÍ 2003 33 tíð okkar í Arnarnesinu, kom Hauki frændi syngjandi inn úr dyrunum til að fá sér einn kaffibolla áður en hann fór til vinnu. Og jafnvel þótt morg- unninn væri ekkert sólbjartur, heldur hreinlega rigning, þá söng hann samt! Það voru kannski ekki allir heimilis- menn jafnhressir Hauka svona snemma dags, en fyrr en varði var komið bros á alla við morgunverðar- borðið. Dagurinn varð betri. Maður var bara í sólskinsskapi það sem eftir var dags. Svona var Hauki. Hann var einhver lífsglaðasti maður sem við höfum nokkru sinni kynnst. Og hann hreif fólk með sér. Lagstúfur hér, gamansaga þar, og hláturinn var svo smitandi að maður réð ekkert við sig og hreifst með. Hauki, sem á sínum yngri árum var einhver besti íþróttamaður í Evrópu, var ekkert sérlega mikið fyrir að eyða kröftum í óþarfa íþróttasprikl svona síðustu fimmtíu ár ævinnar eða svo. Hann var einu sinni spurður hvort það kæmi aldrei yfir hann löngun til að fara út að hlaupa eða hreyfa sig núna á þessum tímum líkamsræktar og eróbikks. Þá sagði Hauki: „Jú, það kemur einstaka sinnum yfir mig. En þá sest ég í stólinn, lygni aftur aug- unum og það líður ljúflega hjá!“ Hauki tók daginn jafnan snemma og geislaði hreinlega af orku og skemmtilegheitum. Stundum hnippti hann í mann og sagði: „Veistu, að ég sef hreinlega ekki fyrir gáfum! Og ef það gerist, að ég festi blund, hrekk ég óðara upp aftur út af kröftum!“ Þessu fylgdi síðan Haukahlátur. Pabbi og Haukur voru óvenjulega nánir bræður. Segja má að þeir hafi nánast verið óaðskiljanlegir í næstum þrjá aldarfjórðunga. Þeir bjuggu sér heimili hlið við hlið í Arnarnesinu og við nutum þess, krakkarnir, að hafa þetta mikla nábýli við Hauk og Ellí og stelpurnar þeirra. Á vissan hátt má segja að við höfum verið svo lánsöm að eiga tvo pabba og það eru ekki ýkj- ur, að okkur þótti jafnvænt um Hauka og okkur þykir um foreldra okkar. Það er afskaplega skrítin og tóm- leg tilfinning núna, þegar Hauki er búinn að kveðja okkur. Það var sjald- an talað um annaðhvort Örn eða Hauk. Þeir voru nánast eins og eitt. „Brødrene Braun“ var nafnið, sem þeir gáfu sér sjálfir. Þegar maður fer að hugsa út í þetta þá er það nokkuð merkilegt, að jafn sterkir karakterar og þeir eru báðir, hvor í sínu lagi, skuli jafnan hafa verið teknir sem ein heild. Auðvitað spilar þar inn í að þeir voru eineggja tvíburar, sem á yngri árum voru svo líkir, að það var ekki fyrir ókunnuga, eða ómannglögga, að þekkja þá í sundur. Ekki hefur það heldur dregið úr, að Clausenbræður voru ekki bara líkir í útliti. Þeir voru sannir vinir og félagar. Hins vegar voru þeir á margan hátt ólíkir og alls ekki alltaf sammála þótt skoðanir þeirra væru eindregnar og lífssýn þeirra sú sama. Það eina, sem kom í veg fyrir, að þeir fæddust inn í Sjálf- stæðisflokkinn, var sú staðreynd að Sjálfstæðisflokkurinn var ekki stofn- aður fyrr en tæpu ári eftir að þeir fæddust. Hann Haukur hafði mjög heil- steypta og heilbrigða lífssýn. Hann var frjálslyndur íhaldsmaður af gamla skólanum. Hann var sjálfstæð- ismaður af bestu gerð og það var síð- ur en svo leyndarmál. Á hans tann- læknastofu fengu framsóknarmenn ekki deyfingu, sagði hann. Og hann stóð við það. Stórvinur hans frá barn- æsku, Steingrímur Hermannsson, var til dæmis aldrei deyfður í stólnum hjá Hauki. Þetta var reyndar með samþykki beggja því Denni vildi aldr- ei láta deyfa sig, en sagan er ekki verri fyrir það. Það voru tveir forset- ar Bandaríkjanna, sem Haukur hafði mestar mætur á. Þetta voru þeir Nix- on og Reagan. Svona í og með í prakkaraskap varð hann sér úti um ljósmyndir af forsetunum í banda- ríska sendiráðinu. Myndirnar voru settar upp á vegg á tannlæknastofu hans í Drápuhlíðinni, og hefur þetta örugglega komið ýmsum spánskt fyr- ir sjónir. Hauki kærði sig að sjálf- sögðu kollóttan um álit annarra í þessum efnum, enda ekki vanur að fara í felur með skoðanir sínar. Clausenbræður voru náttúrulega fyrst og fremst þekktir fyrir árangur sinn í frjálsum íþróttum. Á þeim vett- vangi voru þeir í hópi vaskra merk- isbera ÍR. Raunar byrjuðu þeir feril sinn í KR og hafa löngum sagt svo frá, að þeir hafi verið í KR allt þar til þeir fóru að hafa vit. Haukur og Örn fylgd- ust að á sínum íþróttaferli og það mun hafa verið svo, að þjálfari unglinga- starfs KR hafði heitið hverjum þeim, sem gæti gengið á höndum yfir allt gólf KR-heimilisins túkalli í verðlaun. Sjálfsagt hefur hann ekki búist við að neinn þeirra drengja, sem á æfing- unni voru, gæti unnið slíkt afrek. Haukur gerði sér hins vegar lítið fyrir og gekk yfir þvert og endilangt KR- heimilið á höndum og var svo svikinn um túkallinn. Clausenbræður sögðu skilið við KR og kepptu ávallt undir merkjum ÍR framvegis. Nokkrum ár- um síðar, þegar Örn var beittur órétti af hálfu íþróttayfirvalda, hættu þeir bræður báðir keppni rétt liðlega tví- tugir að aldri, þegar búnir að skipa sér í sveit mestu afreksmanna álfunn- ar. Það kom aldrei til greina að aðeins annar tvíburinn hætti keppni, því Haukur tók ekki annað í mál en að standa með bróður sínum. „Brødrene Braun“ stóðu alltaf saman, sem einn maður. Hann Hauki auðgaði líf allra þeirra, sem voru svo heppnir að fá að kynnast honum. Sjálfur var hann lánsmaður en varla er það ofsagt að hans stóra lán í lífinu var að kynnast henni Ellí og eignast hana að lífsföru- naut. Hauki hafði verið kvæntur áður, en í Ellí fann hann einstaka mann- eskju, sem varð hans sálufélagi og, rétt eins og mamma okkar gagnvart pabba, hafði hún húmor fyrir „Brødr- ene Braun“. Þegar þeir sögðu „við“ þá þýddi það „við bræðurnir“. Þetta var ekkert illa meint hjá þeim. Þeir höfðu jú verið óaðskiljanlegir frá fyrsta degi. Fyrir nokkrum árum varð Hauki fyrir alvarlegum heilsu- bresti og var ekki hugað líf um nokk- urra mánaða skeið. Á einhvern ótrú- legan hátt náði Hauki aftur nokkurri heilsu með hjálp Guðs og góðra manna, eða réttara sagt kvenna, því þær mæðgur Ellí, Ragnheiður og Þórunn viku ekki frá honum á sjúkra- beðnum. Líkamlega náði hann sér aldrei að fullu en andlega sló hann ekki feilpúst. Þrátt fyrir að hafa legið í dái um margra mánaða skeið var það gamli góði Hauki sem vaknaði upp. Kollurinn var í topplagi og húmorinn á sínum stað. Fyrir vikið hafa börnin okkar verið svo heppin að fá að kynn- ast Hauka frænda, sem þau raunar litu á sem auka-afann sinn í Blikanes- inu. Söknuðurinn er sár hjá þeim núna. Ragnheiður og Þórunn sjá núna á bak föður, sem sá ekki í sólina fyrir þeim. Þær eru báðar miklar pabba- stelpur, sem höfðu borið pabba sinn á höndum sér í veikindum hans, rétt eins og hann bar þær á höndum sér þegar hann hafði fullt þrek. Þeirra missir er mikill og við biðjum Guð að gefa þeim styrk. Einnig viljum við biðja Guð að styrkja Önnu Marie, dóttur Hauka af fyrra hjónabandi, sem bjó hjá Hauka og Ellí eftir að hún missti móður sína, 15 ára gömul, svo og syni hans Örn Friðrik og Hauk Arreboe. Mestur er þó missir Ellíar, sem hefur alltaf staðið sem klettur við hlið Hauka. Styrkur hennar, hlýja, og hennar dásamlegi húmor hefur verið ómetanlegur fyrir okkur öll á erfiðum stundum. Við vitum, að það var líka svo fyrir Hauka. Stundum fannst okkur að við ættum að vera til staðar fyrir hana en einhvern veginn var það hún, sem sýndi styrkinn og fleytti okkur í gegnum hlutina. Við biðjum Guð að veita henni styrk í sorginni. Það er skrítið að vera nú komin að kveðjustund. Hugurinn leitar til baka til allra litlu hlutanna, sem rifjast nú upp, þegar Hauki er farinn frá okkur. Það rifjast upp jól hjá okkur blönkum í námi í útlöndum, þegar meðal jóla- pakkanna að heiman leyndist lítið umslag frá Hauka. Það rifjast upp heimsóknir til Hauka og Ellí í Sviss. Það rifjast upp skottúrar að Skafta- felli eða Heklu til að taka myndir í fal- legu veðri. Það rifjast upp morgnarn- ir í eldhúsinu í Blikanesinu. Það er ekki hægt að horfa á Nýárskonsert- inn í Vínaróperunni í sjónvarpi án þess að hugsa til Hauka frænda, þótt Hansa hafi nú á sínum tíma talað um „djöfulsins Vínarblut“, þegar henni þótti nóg um! Vínarmúsík var í það minnsta í algeru uppáhaldi hjá Hauka, jú, og góðir bandarískir söng- leikir. „Oh What a Beautiful Morning, Oh What a Beautiful Day. I’ve Got a Wonderful Feeling, Everything’s Going My Way!“ Þau eru mörg lögin, sem koma upp í hugann núna, þegar við kveðjum Hauka. Við sjáum Hauka fyrir okkur við fallega sólarupprás, syngjandi þetta fallega lag úr Okla- homa. Hann er í góðum félagsskap, þar sem hann er núna, því margir góðir eru farnir á undan. Við mætum seinna og tökum undir lagið. Hugurinn er hjá Ellí, Ragnheiði og Þórunni og öðrum þeim sem eiga sár- ast um að binda núna. Minningin um besta og skemmtilegasta frænda í heimi lifir. Kveðja, Óli, Budda og Hansa. Ólafur, Guðrún Sesselja og Jóhanna Vigdís Arnarbörn. Allt frá því að ég flutti frá Íslandi fyrir níu árum, þá fimm ára gamall, hef ég alltaf komið heim á sumrin. Ég hef aðallega verið hjá ömmu og afa í Blikanesi, og í næsta húsi bjuggu þau Hauki frændi og Ellí, og frænkur mínar Ragnheiður og Þórunn. Ég, og svo seinna Dísa, systir mín, skrupp- um á hverjum degi (stundum oft á dag) yfir til þeirra. Við vorum alltaf velkomin og það var alltaf skemmti- legt að koma til þeirra. Ég naut þess að sitja og rabba við Hauka um alla mögulega hluti, hann var svo skemmtilegur og hafði ákveðnar skoðanir á málunum. Það skipti engu máli þó að aldursmunurinn á milli okkar væri sex áratugir – hann talaði alltaf við mig eins og jafningja. Hauki var alltaf í góðu skapi og hafði þannig áhrif á umhverfi sitt að allir urðu léttir og glaðir þar sem hann var nálægt. Hauki var minn góði vinur. Ég mun alltaf sakna hans og þegar ég kem heim núna verður það því miður til að kveðja hann í síðasta sinn. Ég er þakklátur fyrir að hafa fengið tæki- færi til að verja tíma með honum. Ég mun segja yngri bræðrum mínum frá hálf-afa okkar, honum Hauka, sem var mikil hetja og riddari og vann all- ar orrustur, nema þá síðustu, og eins og sannur riddari barðist hann hetju- lega til síðustu stundar. Elsku Ellí, Ragnheiður og Þórunn, við skulum reyna að brosa í gegnum tárin. Örn Ólafsson. Það er ekki auðvelt að kveðja góð- an vin í nokkrum minningarorðum, vin sem maður hefur bundist svo traustum og góðum böndum, frá ærslafullum æskuárum og fram að ellinni. Það mun hafa verið vorið 1945 sem sameiginlegur félagi okkar í ÍR fór með mig á gamla góða Melavöllinn að kynna fyrir mér það sem fram færi bakvið bárujárnið. Sú för og árin þar á eftir eru mér ógleymanleg og þar kynntist ég mörgum af mínum bestu vinum og kunningjum sem mér eru kærir enn þann dag í dag. Þar á með- al voru aðsópsmikir tvíburar sem gustaði af svo ekki sé dýpra í árinni tekið. Ekki var hægt að kynnast öðr- um án þess að kynnast hinum, svo samrýndir voru þeir eins og gjarnan er með tvíbura. Árin sem í hönd fóru á þessum ung- lingsárum eru ógleymanleg bæði í leik og í keppni á hinum ýmsu íþrótta- mótum, bæði hér heima og erlendis þó að hæst beri þátttöku okkar og samveru á Ólympíuleikunum í Lond- on 1948. Þegar alvara lífsins tók við af þessum glöðu og áhyggjulausu árum var þá ekkert um annað að ræða en hætta leik, þó að bestu íþróttamenn og síðar afreksmenn allstaðar í kring- um okkur væru rétt að hefja sinn fer- il. Svona var þetta bara, þó að breyt- ingar hafi á orðið með tilkomu alls konar styrkja, fjárhagslegra og á annan hátt. Þegar íþróttaferli okkar lauk hófst alvara lífsins fyrir alvöru. Ég fór að byggja mér hús en Haukur að gera við tennur fólks og Örn fór í lögfræðina. Ekki rofnuðu tengsl okk- ar samt, því við vorum nábúar, þeir á Freyjugötu og ég á Mímisvegi. Of langt mál er að rifja upp allt það helsta sem brallað var. Lengi vel dáðist ég að Hauki vegna íþróttaafreka hans og langaði mjög að gera eins vel og hann. En maður má ekki vanmeta sjálfan sig því þar kom að hann vildi gera eins og ég, nefni- lega að kvænast einni af heimasæt- unum af Sóleyjargötu 11 og þar með vorum við orðnir svilar. Vegna tengsla minna við íþrótta- félag Reykjavíkur er mér ljúft og skylt að færa Hauki innilegustu þakk- ir okkar fyrir hvað hann gerði og var fyrir ÍR. Ferill hans á íþróttasviðinu er ótrúlegur miðað við hvað ungur hann var þegar hann náði sínum bestu árangrum. Hann var einn besti spretthlaupari Íslands, Norður- landanna og Evrópu árin 1946–1951. Setti unglingamet í öllum hlaupum frá 80 m og upp í 400 metra, 200 m grindahlaupi og boðhlaupum með ÍR, Íslandsmet karla í 100, 200 og 400 m hlaupum og 200 m grindahlaupi og boðhlaupunum með ÍR og landsliðinu árin 1947–1950. Einn glæsilegast sigur hans og ógleymanlegur þeim sem á horfðu, var þegar hann varð Norðurlanda- meistari í 200 m hlaupi þá aðeis 18 ára. Datt manni ekkert annað í hug en þar færi berserkur. Ekki var Haukur í náðinni hjá íþróttaforyst- unni er valið var lið Íslands á Evr- ópumótið í Brussel 1950, en þakkaði fyrir sig með því að setja Íslandsmet og Norðurlandamet í 200 m í Svíþjóð um sama leyti (21,3 sem hefði dugað til Evrópumeistaratitils). Það Norð- urlandamet stóð á annan áratug og sem Íslandsmet í nær þrjá áratugi. Var í landsliði Íslands sem sigraði Dani og Norðmenn í keppni í Noregi 1951. Keppti aðeins einu sinni í tug- þraut og náði þá öðrum besta árangri Íslendings frá upphafi. Tók þátt í Ól- ympíuleikunum í London 1948, eins og áður sagði. Haukur var traustur bakhjarl ÍR-inga í áratugi. Hann brást aldrei félagi sínu, Íþróttafélagi Reykjavíkur, ÍR, þegar til hans var leitað. Fyrir það og margt annars var Haukur sæmdur heiðursorðum fé- lagsins, sem lítils þakklætisvotts frá félaginu. Nafn hans verður með gullnu letri skráð í íþróttasögu Ísland þegar hún verður rituð er fram líða stundir. Fyrir hönd stjórnar Íþróttafélags Reykjavíkur og formannafélags ÍR færi ég þér bestu þakkir fyrir traust og tryggð við félagið í gegnum árin. Elsku Elín, Ragnheiður og Þór- unn, Guð veri með ykkur og kæri „Addi bróðir“, missir þinn er mikill. Haukur minn, far þú í friði. Reynir Sigurðsson. Haukur Clausen vinur minn er lát- inn. Með honum er genginn afreks- maður á alla lund. Ég átti því lífsláni að fagna að fá að kynnast honum og njóta vinskapar hans og hlýju sem einkenndi allt hans far. Hæfileikar hans sköruðu fram úr á öllum sviðum. Hann var íþróttamaður á heimsmæli- kvarða, afburða góður læknir og lista- maður. Hann var fyrst og fremst hjartahlýr og góður maður. Ungur að árum gekk ég til hans á tannlæknastofuna á Öldugötunni og fylgdi honum þar til hann lét af störf- um. Þrátt fyrir mikla líkamsburði var hann fínhentur og varkár læknir. Með léttri lund og frásagnargáfu sem var honum einum gefin eyddi hann kvíða og sársauka sem oft fylgja heimsókn til tannlæknisins. Það var alltaf skemmtilegt að vera í námunda við Hauk. Á meðan faðir minn leigði Þverá í Borgarfirði voru Clausen-bræður alltaf við opnun ár- innar. Þá var glatt á hjalla, sungið, spilað og sagðar sögur. Veiðiáhuginn var honum í blóð borinn og þegar fyrsti laxinn lá silfurgljáandi á bakk- anum var kátínan í hámarki. Þessar stundir við Þverá eru ógleymanlegar. Hvorki veður, vindur né veiðileysi gátu skyggt á þá gleði sem ríkti í kringum Hauk. Eftir að ég flutti utan heimsótti Haukur mig nær árlega. Við ókum um fögur landsvæði Sviss og áttum það sameiginlegt að heillast af lands- laginu en gættum þess líka að far- arskjótinn væri góður. Hlógum við oft og innilega að bíladellunni sem hrjáði okkur báða og ákváðum að leita ekki lækninga við henni. Haukur hafði næmt auga fyrir fögru landslagi og endurspegluðust þessir hæfileikar hans í þeim lista- verkum sem hann lætur eftir sig. Málverkin hans sem prýða heimili mitt eru dýrmætar gjafir manns sem sýndi mér traust, ást og umhyggju á meðan ævi entist. Á kveðjustundu er hugurinn hjá fjölskyldu Hauks; Ellý, Ragnheiði og Þórunni. Þau syrgja elskulegan eig- inmann, föður og vin sem við öll vild- um eiga. Guð blessi minningu Hauks Clausen. Jón Kjartansson. „Haukur kvaddi klukkan hálfsjö.“ Þannig var mér tilkynnt andlát míns góða vinar, Hauks Clausen, að kvöldi fimmtudagsins fyrsta maí. Eftir mikil veikindi kom andlát Hauks ekki á óvart. Engu að síður skilur Haukur eftir sig mikið skarð. Hann var þann- ig maður. Við Haukur kynntumst ungir við Tjörnina. Þeir bræður, Haukur og Örn, bjuggu í Vonarstrætinu og ég í Tjarnargötunni. Við urðum félagar í Röskum drengjum, lékum okkur á Tjörninni og á Landakotstúninu þar sem Haukur tók sín fyrstu skref í spretthlaupum. Þar kom í ljós að efn- ið var gott og keppnisskapið mikið. Það var ekki síst skapið sem bar Hauk oft til sigurs. Leiðir okkar lágu síðan saman í Menntaskólanum í Reykjavík. Þar vorum við bekkjar- bræður í sex ár. Þessi æskukynni okkar leiddu til ævilangrar vináttu, sem aldrei bar skugga á. Allt sem Haukur vildi gera gerði hann með ágætum. Haukur var einn fremsti íþróttamaður, sem við Íslend- ingar höfum átt. Á þeim vettvangi var hann þjóð sinni til sóma. Haukur var mjög góður málari. Hygg ég, að það hafi verið sú tómstundaiðja, sem hreif hann mest. Sem tannlæknir var Haukur frábær. Um þetta allt verður eflaust fjallað vel af öðrum. Það, sem ég met þó mest, eru okkar mörgu samverustundir, ekki síst á okkar yngri árum. Á kveðjustundu leita þær minningar á hugann, minningar um góðan dreng. Með þessum fátæklegu orðum kveð ég vin minn, Hauk Clausen. Við Edda vottum eiginkonu Hauks, Elínu Thorarensen, börnum, Erni bróður Hauks og öðrum aðstandendum okk- ar dýpstu samúð. Steingrímur Hermannsson. Mjög góður vinur og félagi, Hauk- ur Clausen, er látinn. Hann átti í baráttu við erfið veik- Haukur í viðbragði á Melavellinum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.