Morgunblaðið - 13.05.2003, Qupperneq 44
ÍÞRÓTTIR
44 ÞRIÐJUDAGUR 13. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
CLAUDIO Ranieri, knatt-
spyrnustjóri Chelsea, hefur beðið
Ken Bates, stjórnarformann félags-
ins, að sjá til þess að Gianfranco
Zola, Ítalinn snjalli, verði áfram í
herbúðum þess. Zola verður 37 ára
í júlí en hann varð markahæsti leik-
maður Chelsea á nýliðnu tímabili
með 16 mörk og átti drjúgan þátt í
að koma félaginu í Meistaradeild
Evrópu.
„Ég vona svo sannarlega að Zola
verði um kyrrt. Hann er hreinn
snillingur, það sýndi hann á síðustu
20 mínútunum gegn Liverpool. En
ég ræð ekki yfir fjármálum
Chelsea. Mitt verk er að ná því
besta út úr hverjum leikmanni og
ég er sérlega ánægður með að við
skulum vera komnir á ný í Meist-
aradeild Evrópu,“ sagði Ranieri.
Zola hefur sjálfur ekki tekið
ákvörðun um framhaldið hjá sér.
„Ég myndi spila með Chelsea þótt
liðið væri í 1. deild og það er ynd-
islegt að við skulum vera komnir
aftur í Meistaradeildina. Þótt ég
hafi spilað þar áður hefur alltaf
verið takmarkið að endurtaka þann
leik. En ég vil ekki leiða hugann að
nýjum samningi strax, nú vil ég að-
eins njóta sigursins gegn Liverpool.
Úrslitin í þeim leik hafa hins vegar
ekkert að gera með þá ákvörðun
sem ég á eftir að taka um fram-
haldið,“ sagði Zola.
Ranieri biður Bates
að halda Zola
FÓLK
BESIM Haxhiajdini, fyrrum leik-
maður með Val og KR í knattspyrn-
unni, gekk í gær til liðs við 1. deild-
arlið Stjörnunnar. Besim, sem er 31
árs, er frá Júgóslavíu en hefur verið
búsettur hér á landi um skeið og lék
11 leiki með Val í úrvalsdeildinni
fyrir tveimur árum en spilaði ekk-
ert á síðasta tímabili.
FORRÁÐAMENN enskra knatt-
spyrnuliða í 1., 2. og 3. deild á Eng-
landi eru afar ánægðir þar sem
áhorfendur mættu vel á leiki lið-
anna í vetur og hafa ekki verið jafn-
margir frá því á sjötta áratug sl.
aldar.
ALLS greiddi 14.871.981 sig inn á
leiki í deildunum þremur og er það
aukning um 150 þúsund áhorfendur
og það mesta frá keppnistímabilinu
1964/1965. Að meðaltali kom 8.981
áhorfandi á leiki í deildunum þrem-
ur og í 1. deild var aukningin 2% og
hefur ekki verið meiri aukning frá
því árið 1959.
REAL Madrid verður án Frakk-
ans Claude Makalele þegar liðið
leikur síðari leik sinn á móti Juv-
entus í undanúrslitum Meistara-
deildarinnar í Torínó annað kvöld.
Makalele meiddist í leiknum við
Huelva um helgina og hafa læknar
Evrópumeistaranna útilokað að
hann geti tekið þátt í leiknum.
ZINEDINE Zidane, Luiz Figo og
Raúl hvíldu allir í leiknum við
Huelva en meiðsl hafa verið að
angra þessa snjöllu leikmenn. Zid-
ane er ekki heill heilsu í baki, Figo
hefur átt við nárameiðsl að stríða og
Raúl er að jafna sig eftir botnlanga-
aðgerð. Forráðamenn Madridar-
liðsins binda vonir við að þeir geti
tekið þátt í leiknum en Real Madrid
vann fyrri viðureign liðanna, 2:1.
URS Meier frá Sviss verður dóm-
ari í viðureign Juventus og Real
Madrid annað kvöld en leik Mílanó-
liðanna AC Milan og Inter sem fram
fer á San Síró í kvöld dæmir Frakk-
inn Gilles Veissiere.
JERMAIN Dafoe leikmaður West
Ham United hefur óskað eftir því að
verða settur á sölulista aðeins sólar-
hring eftir liðið féll úr ensku úrvals-
deildinni. Mörg lið hafa rennt hýr-
um augum til þessa 20 ára gamla
framherja, meðal annars ensku
meistararnir í Manchester United.
ALAN Wright og Ian Taylor yf-
irgefa Aston Villa í sumar en for-
ráðamenn félagsins hafa ákveðið að
samningar leikmannanna sem
renna út í sumar verða ekki end-
urnýjaðir. Wright er 31 árs gamall
varnarmaður en Taylor er 34 ára og
leikur í stöðu miðjumanns.
STEFAN Effenberg, knatt-
spyrnumaður hjá Wolfsburg, segist
vera með freistandi tilboð frá fé-
lagsliði í Katar. Samningurinn er
eins árs og segist Effenberg reikn-
armeð að taka því og leggja skóna á
hilluna að því loknu.
ÍSLAND er í hópi þeirra
átta ríkja sem fyrst hafa
fengið blessun frá UEFA,
Knattspyrnusambandi Evr-
ópu, vegna leyfiskerfisins
svokallaða. Leyfishandbók
KSÍ hefur verið vottuð af
UEFA og því komin í fullt
gildi. Hin löndin sem fengu
samþykki í þessari fyrstu
umferð voru Makedónía,
Georgía, Litháen, Pólland,
Írland, Rússland og Serbía-
Svartfjallaland.
KSÍ veitti sem kunnugt er
öllum tíu liðum úrvalsdeildar
karla keppnisleyfi fyrir árið
2003 í síðasta mánuði. Mörg
þeirra þurfa að gera end-
urbætur á aðstöðu sinni á
allra næstu árum til að upp-
fylla tilskildar kröfur.
Grænt ljós
frá UEFA
til KSÍ
Jón Arnar verður í tugþrautar-keppni í Götzis í Austurríki á
svipuðum tíma og ég ákvað því að
leyfa honum að einbeita sér heilum
og óskiptum að því verkefni. Bæði á
síðustu Smáþjóðaleikum og þar á
undan reyndi Jón að samræma þessa
tvo viðburði en það tókst ekki betur
en svo að hann varð fyrir meiðslum
sem töfðu hann lengi frá keppni. Það
var því ákveðið að koma til móts við
hann að þessu sinni. Í staðinn fá ung-
ir efnilegir frjálsíþróttamenn tæki-
færi á Smáþjóðaleikunum,“ sagði
Guðmundur. „Jón Arnar hefur svo
sannarlega skilað sínu í gegnum tíð-
ina og því ekkert nema eðlilegt að
komið sé til móts við hann að þessu
sinni.“
Einar Karl Hjartarson, Íslands-
methafi í hástökki, tekur heldur ekki
þátt í Smáþjóðaleikunum þar sem
hann er keppa á háskólameistara-
móti Bandaríkjana sömu helgi og
keppt verður á Möltu. Reiknað er
hins vegar með að FH-ingarnir Silja
Úlfarsdóttir og Jónas Hallgrímsson
verði komin heim í tíma frá Banda-
ríkjunum til þess að vera með í
keppninni á Miðjarðarhafseyjunni.
Landsliðshópurinn er skipaður
eftirtöldum íþróttamönnum, keppn-
isgreinar innan sviga.
Silja Úlfarsdóttir, FH
(100m/200m/400m/4x100m/4x400m).
Sunna Gestsdóttir, UMSS,
(100m/200m/langstökk
/4x100m/4x400m).
Sigurbjörg Ólafsdóttir, Breiða-
bliki, (100gr./langstökk /4x100m/
4x400m).
Vigdís Guðjónsdóttir, HSK
(spjótkast).
Sigrún Fjeldsted, FH, (spjótkast).
Halla Heimisdóttir, FH, (kringlu-
kast).
Reynir Logi Ólafsson, Ármanni
(100/4x100).
Óðinn Björn Þorsteinsson, FH,
(kringlukast/kúluvarp).
Magnús Aron Hallgrímsson,
Breiðabliki (kringlukast/kúluvarp).
Sveinn Margeirsson, UMSS,
(3000m hindrunarhlaup/5000m).
Björgvin Víkingsson, FH,
(400m/400mgr./4x400m).
Jónas Hlynur Hallgrímsson, FH,
þrístökk/langstökk/4x100m/
4x400m).
Martha Ernstdóttir, ÍR,
(5000m/10000m).
Fríða Rún Þórðardóttir, ÍR,
(800m/1500m/5000m).
Björn Margeirsson, Breiðabliki
(800m/1500m/4x400m).
Ragnar Frosti Frostason, UMSS,
(400m/800m/4x100m/4x400m).
Bjarni Traustason, FH,
(100m/200m/lang-
stökk/4x100m/4x400m).
Ásdís Hjálmsdóttir, Ármanni,
(kringlukast/spjótkast).
Rakel Tryggvadóttir, FH, (þrí-
stökk).
Vilborg Jóhannsdóttir, UMSS,
(100m gr/4x100m/4x400m).
Jón Arnar
ekki með
á Möltu
GUÐMUNDUR Karlsson, landsliðsþjálfari, hefur valið tuttugu
manna hóp frjálsíþróttamanna til þess að taka þátt í Smáþjóðaleik-
unum á Möltu í byrjun næsta mánaðar. Af þeim eru ellefu konur og
níu karlar. Athygli vekur að tugþrautarmaðurinn Jón Arnar Magn-
ússon er ekki í landsliðinu að þessu sinni en langt er um liðið síðan
hann tók ekki þátt í Smáþjóðaleikum. Guðmundur sagði í samtali
við Morgunblaðið að það ætti sér eðlilegar skýringar að Jón Arnar
yrði ekki með.
Morgunblaðið/Golli
Magnús Aron Hallgrímsson, kringlukastarinn efnilegi.