Morgunblaðið - 13.05.2003, Síða 45
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. MAÍ 2003 45
Fjórði Úrslitaleikur
ESSO deildar karla
í kvöld 13. maí kl. 20:00
Íþróttahúsinu V/ Austurberg
FÓLK
JERMAIN Defoe hefur óskað
eftir því að verða seldur frá West
Ham sem á sunnudaginn féll úr
ensku úrvalsdeildinni. Defoe ósk-
aði eftir sölunni innan við sólar-
hring eftir fallið. Hann er fyrsti
leikmaður liðsins sem biður um
sölu en væntanlega aðeins sá fyrsti
því ljóst er að West Ham verður að
draga verulega úr útgjöldum í
kjölfar tekjutaps.
LES Ferdinand segir það ekki
koma til greina að leggja knatt-
spyrnuskóna á hilluna. Hann von-
ast eftir að fá nýjan samning hjá
West Ham í sumar þrátt fyrir að
liðið hafi fallið niður um deild.
Ferndinand er 36 ára gamall og
skoraði annað tveggja marka West
Ham í síðasta leik liðsins í ensku
úrvalsdeildinni á sunnudaginn.
Ferdinand lék áður með Totten-
ham og fékk fá tækifæri þar á bæ.
HERMT er að tveir þjálfarar
berjist nú um starf knattspyrnu-
stjóra Fulham, þeir Klaus Topp-
möller og George Burley.
GRAEME Souness segir að allt
verði lagt í sölurnar til þess að
halda Damien Duff innan herbúða
Blackburn.
PAOLO di Canio hefur lýst yfir
áhuga á að leika með Portsmouth
á næstu leiktíð. Di Canio líkaði
mjög að leika undir stjórn Harry
Redknapp þegar hann stýrði West
Ham á sínum tíma en Redknapp
er nú með Portsmouth.
DAVID Elleray, einn af þekktari
dómurunum í ensku úrvalsdeild-
inni, hyggst leggja flautuna til
hliðar nú í lok leiktíðarinnar.
CLAUDE Makelele getur ekki
leikið með Real Madrid í dag þeg-
ar liðið sækir Juventus heim í síð-
ari leik liðanna í undanúrslitum
Meistaradeildar Evrópu í knatt-
spyrnu. Makelele er meiddur.
NÝLEGA boðaði lyfjaeftirlit ÍSÍ
sex körfuknattleiksmenn til lyfja-
eftirlits í keppni. Um var að ræða
leikmenn sem tóku þátt í úrslita-
keppni Intersport-deildarinnar og
1. deildar kvenna. Niðurstöður
liggja nú fyrir.
ENGIN lyf á bannlista fundust í
sýnunum en þeir sem fóru í lyfja-
próf voru Þorsteinn Húnfjörð
(Njarðvík), Gunnar Einarsson
Keflavík, Gregory Harris (Njarð-
vík), Magnús Þór Gunnarsson
Keflavík, Stefanía Helga Ás-
mundsdóttir (Grindavík) og Krist-
ín Arna Sigurðardóttir úr KR.
MARCUS Allbäck, sænski landsliðsmaðurinn
hjá Aston Villa, skorar á stjórn félagsins að
sjá til þess að Jóhannes Karl Guðjónsson verði
keyptur frá Real Betis. Allbäck sagði við net-
miðilinn icbirmingham í gær að vonandi kæm-
ust félögin að samkomulagi um kaupverð.
„Ég veit að Villa vill halda honum, svo þetta
ætti aðeins að vera spurning um ákveðna
vinnu. Jóhannes lék vel í Leeds og það er í
góðu lagi þegar eitt skot af tíu hjá honum
hafnar í netinu. Það er ekki hægt að gagn-
rýna hann fyrir að reyna þessi langskot, sér-
staklega ekki þegar hann skorar mörk á borð
við þetta,“ sagði Allbäck en Jóhannes gerði
mark Villa í tapleik gegn Leeds á sunnudag,
3:1, með þrumuskoti af rúmlega 30 metra
færi.
Skorar á Villa
að halda
Jóhannesi
JÓHANNES Karl Guðjónsson, lands-
liðsmaður í knattspyrnu, sendi Mark
Halsey dómara tóninn á heimasíðu
félagsins eftir ósigurinn gegn Leeds,
3:1, í lokaumferð ensku úrvalsdeild-
arinnar á sunnudaginn. Ian Harte
skoraði fyrsta mark leiksins beint úr
aukaspyrnu á meðan leikmenn Villa
voru að stilla upp varnarvegg.
„Ég hef aldrei upplifað annað
eins. Dómarinn sagði mér að fara
aftar og sagði síðan leikmönnum
Leeds að flýta sér að taka auka-
spyrnuna. Þetta var ótrúlegt og mér
finnst að enska knattspyrnu-
sambandið ætti að skoða þetta mál,“
sagði Jóhannes Karl.
Jóhannes
sendir dóm-
ara tóninn
Jóhannes Karl
MAGNÚS Aron Hallgrímsson,
kringlukastari úr Breiðabliki,
var aðeins einum metra frá lág-
marksárangri til að öðlast þátt-
tökurétt á HM í París í sumar
þegar hann kastaði kringlunni
62,34 metra á kastmóti FH-inga
á Kaplakrikavelli á sunnudag-
inn. Þetta er besti árangur
Magnúsar í þrjú ár, en lengst
hefur hann kastað 63,09 metra.
Magnús virðist í góðri æfingu
um þessar mundir og til alls lík-
legur í sumar því á laugardag-
inn kastaði hann 60,37 metra á
stigamóti FH í Kaplakrika.
Magnús stefnir að því að taka
þátt í heimsmeistaramótinu í
París í ágúst byrjun í sumar. Til
þess að tryggja sér farseðilinn
þangað þarf hann að kasta 63,50
metra. Að sögn Vésteins Haf-
steinssonar, þjálfara Magnúsar
og Íslandsmeistara í kringlu-
kasti, þá er árangur Magnúsar í
góðu samræmi við það sem
Magnús hefur verið að vinna í
æfingum síðustu mánuði, en
hann hefur nú náð fullum styrk
eftir slæm hnémeiðsl sem hann
varð hlaut fyrir tveimur árum.
Óðinn Björn Þorsteinsson,
FH, varð í öðru sæti í kringlu-
kastinu á kastmótinu í Hafn-
arfirði, kastaði 54,75 metra sem
er 12 sentímetrum lengra en á
sama stað á laugardaginn. Þess
má geta að Magnús og Óðinn
æfa saman í Svíþjóð undir stjórn
Vésteins.
Magnús Aron
nálgast
HM-lágmark
Morgunblaðið fékk Þorberg Að-alsteinsson, fyrrverandi lands-
liðsþjálfara og núverandi þjálfara
FH-inga, til að spá í
spilin en Haukar
unnu ótrúlegan létt-
an sigur á heimavelli
í fyrradag og tóku
þar með forystu í einvíginu. „Ég sé
ekki fyrir mér að bikarinn fari á loft á
morgun (í kvöld). Ég tel að ÍR-ingar
eigi fullt inni og ég spái því að þeir nái
að knýja fram hreinan úrslitaleik.
ÍR-ingar slepptu Haukum frá sér á
sunnudag og gáfust hreinlega upp og
voru greinilega farnir að hugsa um
næsta leik. Það vill oft verða í svona
baráttu,“ sagði Þorbergur.
Hvað heldurðu að ÍR-ingar leggi
aðaláherslu á að gera í leiknum?
„Þeir hljóta að leggja mikið upp úr
varnarleiknum og að fá sem flest
mörk út úr hraðaupphlaupum og
byrja hratt á miðjunni. Sóknarleik-
urinn hefur verið einn helsti höfuð-
verkurinn hjá liðinu í þessum leikjum
á móti Haukum og lykilatriði að mínu
mati er að þeir komi aga á sóknar-
leikinn. Þeir verða að skilja á milli
þess að geta hafið sóknir sínar hratt
og að þurfa ekki að enda þær of fljótt.
Ólafur Sigurjónsson, Einar Hólm-
geirsson og Ingimundur Ingimund-
arson verða að stilla saman strengi
sína. Þeir hafa getuna og kunnáttuna
en þurfa að hugsa um mikilvægi
hverrar sóknar.“
Verður hörkuviðureign
Heldurðu að það geti truflað leik
Haukanna að titillinn er kannski inn-
an seilingar hjá þeim?
„Þeir hafa alltaf í bakhendinni að
fá fimmta leikinn og eins og þeir hafa
spilað heimaleikina til þessa verður
kannski erfitt fyrir ÍR-inga að leggja
þá að velli á Ásvöllum. Haukarnir
vilja eflaust tryggja sér titilinn sem
fyrst en mín tilfinning er sú að ÍR-
ingar hafi betur í hörkuleik, líkt og
þeir gerðu í öðrum leiknum. Það hef-
ur komið í ljós í þessu einvígi að
breiddin er meiri hjá Haukunum en
ég tel samt að sigur þeirra á sunnu-
dag sé ekki alveg marktækur. ÍR-
ingar gerðu sig seka um ofboðslega
marga feila í leiknum og fyrir vikið
var leikurinn frekar auðveldur fyrir
Haukana en ég tek það ekki af þeim
að þeir léku vel.“
Haukar með meiri breidd
Þorbergur segir erfitt að spá um
framhaldið. Hann telur þó Haukana
sigurstranglegri í einvíginu og metur
stöðuna 60/40 þeim í vil.
„Með heimavöllinn og meiri breidd
tel ég að Haukar hafi þetta af en með
sigri í kvöld er ég viss um að sjálfs-
traustið eykst til muna hjá leikmönn-
um ÍR. Ég trúi ekki öðru en ÍR-ing-
arnir mæti eins og grenjandi ljón til
leiks á heimavelli sínum og fyrir
handboltaáhugamenn vona ég að til
hreins oddaleiks komi. Það yrði gam-
an að enda tímabilið á þann hátt.“
Morgunblaðið/Kristinn
Dómarar hafa haft nóg að gera í úrslitarimmu Hauka og ÍR. Hér
rekur Ólafur Haraldsson Haukamanninn Vigni Svavarsson af
leikvelli í viðureign liðanna á Ásvöllum á sunnudaginn.
Þorbergur Aðalsteinsson, þjálfari FH-inga, spáir í úrslitaeinvígi Hauka og ÍR
„ÍR-ingar knýja fram
hreinan úrslitaleik“
FJÓRÐI úrslitaleikur Hauka og ÍR um Íslandsmeistaratitilinn í hand-
knattleik verður í Austurbergi í kvöld og þar geta úrslitin ráðist.
Með sigri tryggja Haukar sér Íslandsmeistaratitilinn í þriða sinn á
síðustu fjórum árum en fari ÍR-ingar með sigur af hólmi knýja þeir
fram oddaleik á Ásvöllum á fimmtudagskvöld.
Guðmundur
Hilmarsson
skrifar
HOLLENSKI landsliðsmaðurinn
Ruud van Nistelrooy er ekki í mikl-
um metum hjá forráðamönnum
norska liðsins Stabæk þessa dagana
en markið sem hann skoraði gegn
Everton og tryggði Manchester
United 2:1 sigur gerði það að verk-
um að Stabæk fær ekki 30 millj. kr.
greiðslu frá Everton.
Sænski landsliðsmaðurinn Tobias
Linderoth var seldur frá Stabæk til
Everton s.l. sumar og í samningi
hans er ákvæði sem tryggir Stabæk
30 millj. kr. ef liðið nær Evrópusæti
en liðin í fimmta og sjötta sæti deild-
arinnar leika í UEFA-keppninni.
Ef Everton hefði lagt Manchester
United að velli hefði liðið náð Evr-
ópusæti en þess í stað verður það
Blackburn sem leikur í UEFA-
keppninni næsta haust, en liðið náði
sjötta sætinu af Everton.
Stabæk varð af 30 millj. kr.