Morgunblaðið - 13.05.2003, Síða 49
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. MAÍ 2003 49
STÖKKBREYTTU verurnar í X2
eru á toppnum á bandaríska bíólist-
anum en myndin var sú mest sótta í
kvikmyndahúsum vestra um helgina.
Þessi vísindaskáldsögumynd hefur
halað inn rúmlega 11 milljarða króna
eftir 10 daga í sýningum. Ólíklegt
þykir að X-mönnunum takist að
halda toppsætinu næstu helgi en þá
verður önnur mynd úr svipuðum
brunni, Matrix endurhlaðin, frum-
sýnd.
Dagfaðirinn (Daddy Day Care) er
eina nýja myndin sem kemst inn á
topp tíu eftir helgina. Eddie Murphy
er í aðalhlutverki og þykir þetta kær-
kominn smellur fyrir hann. Þrátt fyr-
ir að gagnrýnendur hafi ekki látið
mikið með myndina naut hún vin-
sælda en myndin situr í öðru sæti
listans.
Murphy leikur mann, sem missir
vinnuna og opnar dagheimili ásamt
vinum sínum. Jeff Garlin og Steve
Zahn eru í öðrum helstu hlutverkum
en leikstjóri myndarinnar er Steve
Carr, sem einnig leikstýrði Murphy í
Dagfinni dýralækni 2.
Hin myndin sem var frumsýnd síð-
ustu helgi við almennar vinsældir,
Mynd Lizzie McGuire (The Lizzie
McGuire Movie) lækkaði sig um eitt
sæti og fór úr öðru í það þriðja.
Spennumyndin Kennimerki
(Identity), sem fjallar um fjöldamorð-
ingja, situr í fjórða sætinu þriðju
helgina á lista.
Barna- og fjölskyldumyndin Hol-
urnar (Holes), sem hefur hlotið góða
dóma, lækkaði sig um eitt sæti og er í
því sjötta, sína fjórðu helgi á lista.
Kvikmyndin Sunnangola (A
Mighty Wind) hækkaði sig úr 14.
sætinu í það sjöunda. Myndin gerir
góðlátlegt grín að sveitasöngvaheim-
inum en þetta er fjórða helgi hennar
á lista.
Breska gamanmyndin Beygð’ann
eins og Beckham (Bend It Like Beck-
ham) hélt áfram sigurgöngu sinni og
hækkaði sig um eitt sæti og situr í því
níunda eftir níu vikur á lista.
Í trúnaði (Confidence) hefur geng-
ið vel þrátt fyrir að lækka sig um þrjú
sæti. Myndin situr nú í tíunda sæti
listans.
Eins og áður segir er beðið með
mestri eftirvæntingu eftir framhalds-
mynd Matrix, sem verður frumsýnd
næstu helgi. Í aðalhlutverkum eru
sem fyrr Keanu Reeves, Carrie-Anne
Moss og Laurence Fishburne.
Ennfremur verður frumsýnd á
landsvísu í Bandaríkjunum gaman-
myndin Ástin tekur völdin (Down
With Love). Þar er notuð gamalkunn
formúla mynda með Rock Hudson og
Doris Day í aðalhlutverkum en í þetta
sinnið eru helstu hlutverk í höndum
Ewan McGregor og Renee Zellweg-
er.
!
"
#$"
%
&
%
&
'
()*(
+*,
+*-
,*.
/*/
(*,
*0
*)
)*+
)*/
)(0*1
+*,
+*
.0*
) *0
/)*(
0*.
.)*-
).*)
))*1
Shawn Ashmore og Anna Paquin í hlutverkum sínum sem Iceman og
Rogue í vísindaskáldskapnum vinsæla X2, framhaldsmynd X-manna.
Hinir stökk-
breyttu halda
toppnum
MIKIÐ var um dýrðir í miðborg
Rómar um helgina þegar fyrrum
Bítillinn Sir Paul McCartney hélt
tvenna tónleika í Colosseum,
hringleikahúsinu forna. McCartn-
ey hélt fyrst tónleika inni í hring-
leikahúsinu á laugardagskvöld
fyrir nokkur hundruð áhorf-
endur, sem greiddu stórfé í að-
gangseyri en tónleikarnir voru
haldnir til að afla fjár til góð-
gerðarmála. McCartney hélt aðra
tónleika utan við hringleikahúsið
á sunnudag og í þetta skipti
þurftu áhorfendur ekkert að
borga. Talið er að hundruð þús-
unda manna hafi safnast saman í
miðborginni til að hlýða á tón-
leikana.
Fólk byrjaði að safnast saman
utan við Colosseum þegar í gær-
morgun, um hálfum sólarhring
áður en tónleikarnir áttu að hefj-
ast. Þegar þeir síðan hófust var
Via dei Fori Imperiali, breið-
stræti sem liggur við Colosseum
og Forum Romanum, troðfullt af
fólki.
Colosseum var baðað í marg-
litum ljósum og McCartney söng
gömul Bítlalög, lög frá ferli hans
með hljómsveitinni Wings og af
sólóplötum sínum. Segir í frétt
AP að McCartney hafi heillað alla
viðstadda, allt frá unglingum upp
á fólk á sjötugsaldri, sem var í
hópi fyrstu aðdáenda Bítlanna á
sjöunda áratug síðustu aldar.
Ágóðinn af tónleikunum á laug-
ardagskvöld rennur til fornleifa-
stofnunar í Róm og samtaka, sem
aðstoða fórnarlömb jarðsprengna
enda vinnur eiginkona hans,
Heather Mills, mikið í málefnum
þessa hóps. Viðstaddir greiddu
1.295 evrur fyrir miðann, eða yfir
110 þúsund krónur, og söfnuðust
yfir 22 milljónir króna.
McCartney er nú á tónleika-
ferðalagi um Evrópu, því fyrsta í
áratug.
Paul McCartney spilar í Róm
Reuters
Rokkið gerði sig heimakomið í Colosseum, hringleikahúsinu forna í Róm, á
tónleikum Pauls McCartneys um helgina þar sem hann þótti fara á kostum.
Bítlatónlist óm-
ar í Colosseum
Síðumúla 34 - sími 568 6076
Antik er fjárfesting
Antik er lífsstíll
10.05. 2003
16
6 0 4 5 2
8 2 9 9 8
17 21 26 30
28
07.05. 2003
11 17 22
31 37 48
32 45