Morgunblaðið - 20.05.2003, Page 4
FRÉTTIR
4 ÞRIÐJUDAGUR 20. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
ráða annan til starfans voru að áliti
dómsins illa grunduð og ómálefnaleg.
Bærinn hélt því fram að meginástæða
þess að annar var ráðinn, hafi verið sú
að samsetning starfsreynslu viðkom-
andi hafi fallið betur að hugmyndum
félagsþjónustunnar um rekstur sam-
býlisins. Að mati dómsins reyndi
bærinn ekki að sýna fram á með
hvaða hætti samsetning reynslu þess
umsækjanda, sem ráðinn var, hafi
fallið betur að hugmyndum um rekst-
urinn.
Ekkert kom fram í málinu um að
starfsmenn bæjarins, sem höfðu með
ráðninguna að gera, hefðu rætt hug-
myndir sínar um reksturinn í starfs-
viðtölum við Dofra Örn, leitað eftir af-
stöðu hans til þeirra hugmynda og
látið þess getið að um ólíkar og ósam-
rýmanlegar hugmyndir væri að ræða.
Fékk dómurinn því ekki séð hvaða
HÉRAÐSDÓMUR Reykjaness hef-
ur dæmt Kópavogsbæ til að greiða
samkynhneigðum karlmanni, Dofra
Erni Guðlaugssyni, 300 þúsund krón-
ur í miskabætur fyrir að brjóta á hon-
um jafnræðisreglu þegar honum var
synjað um starf umsjónarmanns á til-
sjónarsambýli fyrir unglingsdrengi.
„Ég er mjög ánægður með niðurstöð-
una og að dómurinn skuli viðurkenna
að jafnræðisreglan hafi verið brotin,“
segir Dofri Örn við Morgunblaðið.
„Við höfum ekki fordæmi fyrir því og
þess vegna er ég mjög ánægður með
að fordæmi skuli nú vera skapað.“
Talið var óumdeilt að Dofri hafði
meiri menntun en tveir aðrir umsækj-
endur um starfið, m.a. sérmenntun
frá Danmörku í rekstri sambýla fyrir
ungmenni með félagsleg vandamál.
Sjónarmið í rökstuðningi Kópa-
vogsbæjar fyrir þeirri ákvörðun að
frambærilegu og málefnalegu sjónar-
mið lágu að baki því mati bæjarins að
hann yrði síður en hinir umsækjend-
urnir tveir reiðubúnir til fullrar sam-
vinnu og samstarfs.
Að mati dómsins fólu ákveðin um-
mæli félagsmálastjóra í sér fordóma í
garð samkynhneigðra s.s. þau að um
væri að ræða sólarhrings tilsjónar-
sambýli fyrir drengi, sem eigi erfitt
og þurfi „sérstakt trúnaðarsamband“
að ríkja milli þeirra og tilsjónar-
manns, enda komi hann til með að
þurfa að deila lífi sínu með viðkom-
andi drengjum og því „ekki talið for-
svaranlegt annað en að upplýsa um
öll atriði sem máli geta skipt við þess-
ar aðstæður“.
Málið dæmdi Jónas Jóhannsson.
Lögmaður Dofra Arnar var Hulda
Rós Rúriksdóttir hdl. Lögmaður bæj-
arins var Þórður Þórðarson hrl.
Kópavogsbær dæmdur fyrir að brjóta jafnræðisreglu
Sjónarmið bæjarins
talin illa grunduð
MIKIL rigning hefur verið aust-
anlands undanfarið og hafa fuglar
lent í hrakningum vegna þessa. Á
Eskifirði fannst blautur og úrvinda
múrsvölungur sem nú er kominn í
vörslu Náttúrustofu Austurlands í
Neskaupstað til aðhlynningar og
verður honum sleppt þegar fuglinn
braggast og veður lagast.
Að sögn Berglindar Steinu Ingv-
arsdóttur, líffræðings hjá Nátt-
úrustofunni, er múrsvölungur af
svölungarætt. Hann er evrópskur
flækingsfugl sem er frekar sjald-
gæfur hér við land. Hann líkist svöl-
um í útliti en auðgreindur frá þeim
á löngum vængjum, stuttu klofnu
stéli, sótsvörtum lit og hvítri kverk.
Múrsvölungar eru mjög hraðfleygir
og sjást sjaldan nema á flugi. Í
kuldatíð leita þeir skjóls, t.d. í
mannvirkjum, og leggjast í dvala og
dorma.
Þá tók ungur smyrill sér far með
Bjarti NK til lands aðfaranótt
sunnudags. Fuglinn settist á skipið
á Fæti, um 40 mílur frá landi, og var
illa á sig kominn, blautur og hrak-
inn. Óli Hans Gestsson, skipverji á
Bjarti, veitti Smyrlinum húsaskjól
þegar í land kom. Smyrillinn var óð-
um að braggast í vistinni, búinn að
snæða skinku og drekka vel af vatni
og var bara nokkuð sáttur við sam-
veru mannanna. Starfsmenn Nátt-
úrustofunnar merktu og vigtuðu
fuglinn áður en honum var sleppt út
í frelsið.
Múrsvölungur og
smyrill í hrakningum
Morgunblaðið/Kristín Ágústsdóttir
Smyrillinn með fóstra sínum Óla
Hans Gestssyni á Bjarti NK.
Neskaupstað. Morgunblaðið.
NOTENDUR fréttavefjar
Morgunblaðsins, mbl.is, geta nú
keypt tóna og tákn í GSM-síma.
Í boði er mikið úrval eða yfir
4.000 hringitónar og 5.000 tákn.
Lögð verður áhersla á að hafa
alltaf það nýjasta í boði þannig
að allir farsímanotendur geti
fundið eitthvað við sitt hæfi.
Nær allar gerðir Nokia-síma
taka við tónum og táknum auk
nýrri gerða annarra símafram-
leiðenda.
Hægt er að velja tóna og tákn
með því að smella á hnapp í
hægra dálki á forsíðu frétta-
vefjarins mbl.is eða með því að
tengjast vefnum Fólkið og
smella á hnapp efst í hægra
horninu.
Tónar og tákn
í farsíma á mbl.is
EKKI var lögð fram tillaga um fjár-
framlög til einkarekinna grunnskóla
af hálfu meirihluta Reykjavíkur-
listans á fundi fræðsluráðs í gær.
Næsti reglulegi fundur fræðsluráðs
verður haldinn 2. júní og segir Stefán
Jón Hafstein, formaður fræðsluráðs,
að tillögur meirihlutans í málinu verði
kynntar þá.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í
fræðsluráði lögðu fram tillögu um að
Reykjavíkurborg samþykkti að
greiða sambærilegt fjármagn með
hverjum reykvískum nemanda óháð
því hvort hann gengi í einkarekinn
skóla eða borgarrekinn en fulltrúar
Reykjavíkurlistans vísuðu tillögunni
frá.
Slæmt að tillögur liggi ekki fyrir
Guðrún Ebba Ólafsdóttir, borgar-
fulltrúi Sjálfstæðisflokksins, telur það
vera alvarlegt mál hversu dregist hafi
að taka á málefnum einkareknu
grunnskólanna. Mjög slæmt sé fyrir
skólana að málið sé dregið fram til 2.
júní enda sé nú verið að vinna að því
að ganga frá málum fyrir næsta vetur
og tímasetningin því mjög óheppileg.
Guðrún Ebba minnir á að á síðasta
borgarstjórnarfundi hafi hún farið
formlega fram á að menn notuðu síð-
ustu helgi til þess að móta tillögur
sem kynna hefði mátt í gær. Við þeirri
ósk hafi því miður ekki verið orðið.
Stefán Jón Hafstein segir að í kjöl-
far þess að skýrsla embættismanna
um stöðu skólanna var kynnt á síðasta
reglulega fundi hafi hann óskað eftir
viðbrögðum frá forstöðumönnum
skólanna en þeim viðræðum sé ekki
lokið. Á næsta reglulega fundi
fræðsluráðs verði niðurstaða þeirra
kynnt, sem og tillögur meirihlutans í
málinu. Stefán segir það mikinn mis-
skilning, eins og sumir hafa viljað láta
í veðri vaka, að R-listinn hafi eitthvað
á móti einkareknu skólunum. „Það
stendur í starfsáætlun og stefnu-
mörkun R-listans að einkaskólar hafi
hlutverki að gegna og við höfum
hækkað við þá framlögin ár frá ári
undanfarin ár. Ég hef margoft lýst
því yfir í borgarstjórn að við viljum
tryggja framtíðarstöðu þessara skóla
en ég hef einnig sagst vilja sjá fram
fyrir í því hvert við stefnum með sam-
starfið við þessa skóla í framtíðinni.“
Málefni einkarekinna grunnskóla
voru rædd á fundi fræðsluráðs
Kynna á tillögur
um framlög eftir
mánaðamót
ÞAÐ var norðaustan hraglandi fyrstu ævidaga hryss-
unnar sem fæddist norður í Kollafirði á Ströndum
fyrr í maímánuði. Þarna er hún ásamt hryssunni Maí-
stjörnu sem fæddist á svipuðum tíma í fyrra. Hjá
hryssunum standa mæður þeirra sem vernda af-
kvæmi sín.
Hryssurnar láta vel að eiganda sínum, Sigurði Mar-
inóssyni, þar sem þær leita skjóls í Nátthaganum.
Morgunblaðið/Arnheiður Guðlaugsdóttir
Folald fætt á Ströndum
Ströndum. Morgunblaðið.