Morgunblaðið - 20.05.2003, Side 6

Morgunblaðið - 20.05.2003, Side 6
FRÉTTIR 6 ÞRIÐJUDAGUR 20. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ www.isb.is  Vertu me› allt á hreinu! Grei›slufljónusta fyrir fyrirtæki fyrir eftir N‡jung ! Allt einfaldara ... ANNA Svavarsdóttir fjallgöngu- kona, sem hefur nýlokið velheppn- uðum leiðangri sínum á 6. hæsta fjall heims, hið 8.201 metra háa Cho Oyu í Himalayafjöllunum, er lögð af stað til að klífa annan Himalayatind, Shishapangma, og byrjar uppgönguna á miðvikudag eða fimmtudag. Takist henni að ná tindinum verður hún fyrsti Íslend- ingurinn til að klífa fjallið, og hafa þá þrjú fjöll af þeim fjórtán fjöllum í heiminum sem eru hærri en 8.000 metrar, fallið að fótum Íslendinga. Shishapangma er 8.013 metra hátt og lægst hinna 14 tinda yfir 8.000 metrum. Það var síðasta fjallið í 14 tinda röðinni sem klifið var á þeim 11 árum sem tók að klífa alla tindana milli 1953 og 1964, en það voru Kínverjar sem komust fyrstir á Shishapangma 1964. Velgengni Önnu hefur vakið mikla athygli hér heima og hafa hamingjuóskir birst á heimasíðu Íslenska alpaklúbbsins, isalp.is, auk frétta af leiðangri hennar. Ljóst er að takist henni að sigra Shishapangma, verður um eitt mesta afrek íslenskrar fjallgöngu- sögu að ræða. Með sigri sínum á Cho Oyu varð Anna fyrst íslenskra kvenna til að klífa upp fyrir 8.000 metra og jafn- framt fyrsta íslenska konan til að klífa fjallið, en gamla hæðarmetið átti Anna Lára Friðriksdóttir á hinu 6.768 metra háa Huscaran í Perú árið 1987. Anna Svavarsdóttir er síðan væntanleg til Íslands 10. júní. Stefnir á annan tind yfir 8.000 metrum MIKIÐ var um dýrðir í húsi Regn- bogabarna, fjöldasamtaka gegn einelti, í Hafnarfirði í gær þegar landssöfnun samtakanna hófst með formlegum hætti. Landssöfnunin gengur undir nafninu „Draumur að veruleika“ og stendur yfir frá 19. maí til 9. júní. Stefán Karl Stef- ánsson, formaður Regnbogabarna, og Freyja Friðbjarnardóttir fram- kvæmdastjóri kynntu dagskrá söfn- unarinnar og markmið hennar. Áhersla verður lögð á fyrirtæki landsins og hófust úthringingar í gær. Að sögn Freyju gefst almenn- ingi einnig kostur á að hringja í söfnunarsíma og styðja þannig við bakið á Regnbogabörnum, en 1.000 krónur renna til söfnunarinnar við hvert símtal. Söfnunin nær síðan hámarki sínu um hvítasunnuhelg- ina þegar félagar í körfuknattleiks- deild Þórs ætla að dripla bolta hringinn í kringum landið til stuðn- ings við söfnunina. Verndari söfn- unarinnar er Vigdís Finnboga- dóttir. Stefán Karl sagði að stofnkostn- aður samtakanna væri mikill og því þörf á landssöfnun til þess að þessi viðamikla starfsemi geti farið fram. Hann lagði áherslu á að starfsemin ætti að laga sig að samfélaginu og sagði það draum að mögulegt væri að opna skrifstofur í Reykjavík, á Akureyri, á Egilsstöðum og víðar. Hann sagði þó markmiðin nú vera þrjú. „Í fyrsta lagi að þjónustu- miðstöð Regnbogabarna sem þjóni öllu landinu verði að veruleika í húsi stofnunarinnar í Hafnarfirði. Í öðru lagi að hægt verði að ráða sér- fræðinga til að byggja upp og móta þá þjónustu sem helst ríður á að hafa til taks fyrir þá sem á þurfa að halda og loks að hægt verði að koma á laggirnar víðtækri þjónustu fyrir einstaklinga og hópa á land- inu,“ lýsti Stefán Karl. Hann benti á að ýmislegt fælist í þessari þjón- ustu, til dæmis námskeið, fyr- irlestrar, fræðslufundir, bóka- og gagnasafn í þjónustumiðstöðinni, útgáfa fræðsluefnis og fleira. Þá er ætlunin að Regnbogabörn reki að- gengilega og gagnvirka heimasíðu þannig að þeir sem skrifi sig inn á hana fái svör sérfræðinga og bætti Stefán Karl við að samtökin hefðu átt í viðræðum við sálfræðinga og félagsfræðinga innan Háskóla Ís- lands um sérfræðiráðgjöf. Félag lesblindra í sama húsnæði Pétur Guðmundsson, fulltrúi Körfuknattleikssambands Íslands, kynnti ferð körfuknattleiksfélags Þórs í kringum landið, en ferðin er hluti landssöfnunarinnar og ætla Þórsarar að dripla bolta á leiðinni. Hann sagði að farið yrði í tveimur fylkingum um hvítasunnuhelgina, norður- og suðurleið, frá Egils- stöðum til Reykjavíkur. Á nokkrum viðkomustöðunum verða síðan haldnar körfuboltahátíðir. Fyr- irtæki geta stutt Regnbogabörn í formi áheita á leikmennina. Dagskránni í gær lauk með söng 7. bekk HS úr Vogaskóla en bekk- urinn bar sigur úr býtum í sam- keppni 7. bekkja við eineltisklípum. Verðlaunin eru brot úr degi með Birgittu Haukdal og Evróvisjón- hópnum þann 6. júní næstkomandi. Bekkurinn hafði við þetta tilefni samið lag sem þau tileinkuðu Birg- ittu Haukdal. Landssöfnun Regnbogabarna hófst í gær Körfu- bolta- dripl í kringum landið Morgunblaðið/Árni Torfason 7. bekkur HS úr Vogaskóla söng lag sem hann tileinkaði Birgittu Haukdal. ÁTJÁN ára piltur var í gær dæmdur í 18 mánaða fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir ítrekuð kynferðisbrot gegn 11 ára gamalli frænku sinni og fyrir að stinga pilt í bakið með hnífi á fót- boltavelli við Háaleitisbraut í Reykjavík. Skýrsla var tekin af stúlkunni fyrir dómi og skýrði hún svo frá að frændi hennar gisti oft í viku á heimili hennar. Tveir aðrir frænd- ur hennar hefðu einnig gist þar. Fyrir jólin 2001 hefðu hún og ákærði verið ein heima og verið að tuskast en upp úr því hefði hann nauðgað henni. Eftir hvatningu frá vinkonum sínum leitaði stúlkan til lögreglu í september árið 2002. Þá greindi hún svo frá að frændi hennar hefði a.m.k. 10 sinnum haft samræði við hana, síðast kvöldið áður en þá taldi hún að henni hefði verið gefið svefnlyf en frændi hennar síðan komið fram vilja sínum. Í eitt skiptið hefðu samfarirnar verið með samþykki hennar. Í skýrslu félagsráðgjafa kemur fram að kynferðisbrotin hafi haft alvarlegar afleiðingar fyrir stúlk- una, valdið mikilli vanlíðan og hún verið í sjálfsvígshættu. Þá kenni hún sér sjálf um eins og algengt sé í slíkum málum. Breytti framburði sínum Í fyrstu neitaði pilturinn sök en breytti síðan framburði sínum og sagðist hafa haft samræði við stúlkuna í 5–6 skipti með hennar samþykki. Dómurinn taldi sannað að pilturinn hefði haft við stúlkuna samræði í 5–6 skipti en ekki a.m.k. 10 sinnum eins og hann var ákærður fyrir. Var hann dæmdur skv. ákvæðum 202. greinar al- mennra hegningarlaga en þar seg- ir „að hver sem hefur samræði eða önnur kynferðismök við barn, yngra en 14 ára, skal sæta fangelsi allt að 12 árum.“ Skilorðsbinding kom ekki til greina Pilturinn var einnig sakfelldur fyrir stórfellda líkamsárás en hann játaði að hafa stungið pilt í bakið eftir að þeir höfðu rifist á fótbolta- velli. Við ákvörðun refsingar tók Val- týr Stefánsson héraðsdómari m.a. tillit til þess að pilturinn játaði brot sín og ungs aldurs hans. Einnig að svo virtist sem hann hefði ekki alfarið átt upptökin að líkamsárásinni sem hefði á hinn bóginn getað valdið alvarlegum af- leiðingum þó ekki hefði farið verr en raun ber vitni. Varðani kyn- ferðisbrotið var litið til þess að um ítrekuð brot var að ræða og pilt- urinn misnotaði aðstöðu sína. Ekki kom til greina að skilorðsbinda refsinguna. Auk fangelsisrefsing- arinnar var pilturinn dæmdur til að greiða frænku sinni 500.000 krónur í skaðabætur og piltinum sem hann stakk um 280.000 krónur í bætur. Sigríður Jósefsdóttir saksóknari flutti málið f.h. ríkissaksóknara en Brynjólfur Eyvindsson hdl. var skipaður verjandi. Réttargæslu- maður stúlkunnar var Herdís Hallmarsdóttir hdl. Dæmdur fyrir ítrek- uð kynferðisbrot gegn 11 ára frænku FRAMKVÆMDIR eru hafnar við brúargerð yfir Ólafsfjarðarós vegna jarðganga um Tröllaskaga til Siglufjarðar og vinna verktakar nú við að ramma niður staura und- ir brúna. Göngin gegnum Tröllaskagann verða alls 10,6 km löng og í tveim- ur hlutum, annars vegar 3,7 km göng á milli Siglufjarðar og Héð- insfjarðar og hins vegar 6,9 km göng á milli Héðinsfjarðar og Ólafsfjarðar. Reiknað er með að framkvæmdum verði lokið síðla árs 2008 en leiðin milli Siglufjarð- ar og Ólafsfjarðar verður þá 15 km löng en er nú rúmir 60 km ef farið er um Lágheiði. Ný brú yfir Ólafsfjarðará Ljósmynd/Svavar Berg Framkvæmdir eru hafnar við brúargerð yfir Ólafsfjarðarós vegna tilkomu jarðganga til Héðinsfjarðar og Siglufjarðar. Verktakar eru byrjaðir að ramma niður staura undir brúna.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.