Morgunblaðið - 20.05.2003, Page 12
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
12 ÞRIÐJUDAGUR 20. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
HAGNAÐUR samstæðu Sölumiðstöðvar hrað-
frystihúsanna hf. nam 62 milljónum króna eftir
skatta á fyrsta ársfjórðungi þessa árs. Það er
47% lækkun frá sama tímabili á síðasta ári en þá
var hagnaðurinn 118 milljónir.
Hagnaður SH fyrir fjármagnsliði og afskriftir
(EBITDA) nam 381 milljón á móti 428 millj-
ónum árið áður. Hagnaður fyrir skatta var 110
milljónir en 184 milljónir á sama tíma árið áður.
Veltufé SH frá rekstri nam 184 milljónum á
tímabilinu janúar til mars á þessu ári en 210
milljónum á sama tímabili í fyrra.
Rekstrartekjur samstæðunnar á fyrsta árs-
fjórðungi þessa árs námu 12,9 milljörðum króna
en 14,0 milljörðum á sama tímabili árið á undan
og jafngildir það 8% lækkun. Í tilkynningu frá
félaginu kemur fram að meðalgengi viðskipta-
mynta samstæðunnar hafi hins vegar lækkað um
14,5% gagnvart íslensku krónunni og því hafi
veltan aukist í erlendri mynt.
Segir í tilkynningu SH að þótt miklar sveiflur
íslensku krónunnar hafi einungis takmörkuð
áhrif í formi gengismunar á erlendum lánum
móðurfélagsins, hafi þær áhrif á allar erlendar
rekstrarstærðir. Þannig aukist EBITDA-fram-
legð nokkuð í erlendri mynt þótt hún dragist
saman í krónum. Mest muni hins vegar um áhrif
hlutdeildarfélaga á afkomu félagsins í saman-
burði milli ára, sem nú séu neikvæð um 19 millj-
ónir en voru jákvæð árið áður um 38 milljónir.
Eignir SH voru 22,8 milljarðar í lok fyrsta
ársfjórðungs þessa árs, sem er rúmlega 3%
lækkun frá áramótum. Á sama tíma lækkuðu
eigna- og skuldamyntir samstæðunnar í íslensk-
um krónum um 1–7% eftir myntum. Segir í til-
kynningunni að frávik á einstökum liðum efna-
hagsreiknings séu ekki veruleg nema hvað
birgðir dragast saman en viðskiptakröfur aukast
eins og búast hefði mátt við í lok ágæts sölu-
tímabils.
Fram kemur í tilkynningu SH að búist sé við
að dótturfélag SH í Bandaríkjunum, Icelandic
USA Inc., yfirtaki rekstur fyrirtækisins Ocean
to Ocean Seafood Sales um næstu mánaðamót.
Fyrirtækið er með höfuðstöðvar í Virginíuríki í
Bandaríkjunum og sérhæfir sig í sölu á frystri
heitsjávarrækju. Velta fyrirtækisins á síðasta
ári nam um 110 milljónum dala.
Hagnaður SH dregst saman
um tæpan helming milli ára
● BJARNI Sveinsson, stofnandi
Sóma ehf., hefur selt meðeigendum
sínum, Arnþóri Pálssyni sölustjóra og
Alfreð Hjaltalín framkvæmdastjóra,
70% eignarhlut sinn í fyrirtækinu.
Í fréttatilkynningu segir að Arnþór
og Alfreð hafi starfað hjá Sóma um
árabil og verið meðeigendur Bjarna
síðan 1993. „Þeir hafa þegar tekið
við rekstri Sóma og mun Bjarni
Sveinsson sitja áfram í stjórn fyrir-
tækisins eftir söluna.
Sómi er einn stærsti framleiðandi
á samlokum og tengdum réttum hér
á landi. Fyrirtækið var stofnað 1978
og er því 25 ára á þessu ári.
Íslandsbanki veitti ráðgjöf við
kaupin og annast fjármögnun, en
kaupverð er trúnaðarmál.“
Sómi skiptir
um eigendur
● HAGNAÐUR Lífs hf. á fyrsta fjórð-
ungi þessa árs nam um 42 millj-
ónum króna eftir skatta. Á sama
tímabili á síðasta ári var hagnaður-
inn um 80 milljónir. Hagnaður fyrir
afskriftir og fjármagnsgjöld,
EBITDA, var 56 milljónir eins og ár-
ið áður, en hagnaður fyrir skatta
var 62 milljónir í ár en 87 milljónir í
fyrra.
Tekjur Lífs á fyrsta ársfjórðungi
þessa árs námu 2.028 milljónum
króna, sem er tæplega 24% aukn-
ing frá sama tímabili árið 2002. Í
fyrsta sinn er nú dótturfélagið
Ilsanta UAB í Litháen hluti af sam-
stæðuuppgjöri Lífs og var velta
Ilsanta á tímabilinu 75 milljónir
króna. Aukning tekna á Íslandi á
tímabilinu nam ríflega 19%.
Tæplega 25 milljóna króna tap
varð af rekstri Ilsanta á ársfjórð-
ungnum. Áhrif Ilsanta á rekstrarnið-
urstöðu Lífs eru neikvæð um 21
milljón. Segir í tilkynningu frá Lífi
að áætlanir geri ráð fyrir hagnaði
af rekstrinum á seinni hluta ársins.
Eiginfjárhlutfall 22,5%
Eigið fé Lífs hinn 31. mars síð-
astliðinn nam 1.184 milljónum en
var í ársbyrjun 1.193 milljónir. Þá
er búið að taka tillit til lækkunar
eigin fjár um 51 milljón vegna arð-
greiðslu til hluthafa á árinu 2003.
Eiginfjárhlutfall var 22,5% í lok
tímabilsins og veltufé frá rekstri
nam 33,5 milljónum.
Segir í tilkynningu Lífs að af-
koma af sölu og dreifingu neyt-
endavara hafi valdið vonbrigðum á
tímabilinu. Rekstur þess hluta
starfseminnar hafi þegar verið end-
urskipulagður og þær breytingar
komnar til framkvæmda. Þá segir
að unnið hafi verið að end-
urskipulagningu rekstrar Ilsanta í
Litháen og hafi félagið þegar opnað
söluskrifstofur í Lettlandi og muni
bráðlega hefja starfsemi í Eist-
landi. Komist hafi verið að sam-
komulagi við nokkur stór alþjóðleg
félög á sviði lækningatækja, lyfja
og neytendavara um sölu á vörum
þeirra í Eystrasaltslöndunum. Und-
irbúningur vegna sölu á nýjum
vörum hafi gengið vel og sé reikn-
að með að áhrifa þess fari að
gæta í lok annars ársfjórðungs.
Líf hf. hagnast
um 42 milljónir
● SAMRÆMD vísitala neysluverðs í
EES-ríkjum var 112,9 stig í apríl sl.
óbreytt frá fyrra mánuði. Á sama
tíma var samræmda vísitalan fyrir Ís-
land, 125,3 stig og lækkaði um
0,1% frá mars.
Frá apríl 2002 til jafnlengdar árið
2003 var verðbólgan, mæld með
samræmdri vísitölu neysluverðs,
1,9% að meðaltali í ríkjum EES, 2,1%
á evrusvæðinu og 1,9% á Íslandi.
Í fréttatilkynningu frá Hagstofu Ís-
lands kemur fram að mesta verð-
bólga á evrópska efnahagssvæðinu
á þessu tólf mánaða tímabili var á Ír-
landi 4,4% og 3,7% í Portúgal. Verð-
bólgan var minnst í Þýskalandi, 1,0%
og í Austurríki, 1,2%
Verðbólgan 1,9%
á EES-svæðinu
FJÓRIR íslenskir hönnuðir, Emma
Axelsdóttir, Erla Sólveig Óskars-
dóttir, Ólöf Jakobína Ernudóttir og
Pétur B. Lúthersson, tóku þátt í
Scandinavian Furniture Fair í Bella
Center í Kaupmannahöfn dagana
7.–11. maí. Útflutningsráð Íslands
skipulagði íslenska sýningarsvæðið
undir heitinu Icelandic Designers.
Emma sýndi nýjan fjölskyldu-
einingarsófa MOSS, Erla Sólveig
sýndi í fyrsta sinn alþjóðleg húsgögn
sem voru upphaflega þróuð fyrir Al-
þingi og Ríkissjónvarpið. Ólöf Jak-
obína sýndi sófaborð sem nýtast
jafnframt sem hirsla fyrir þá hluti
sem fólk vill hafa við höndina án
þess að vera sýnilegir uppi á borði.
Pétur sýndi stóla fyrir skrifstofur og
stofnanir og sófa og fundarstóla. Í
fréttatilkynningu frá Útflutnings-
ráði kemur fram, að aðkoma Út-
flutningsráðs að þessari sýningu er
liður í þeirri viðleitni að styðja við
bakið á nýjum útflutningsgreinum
og auka þannig fjölbreytni í útflutn-
ingi Íslendinga. Húsgangasýningin í
Bella Center er ein stærsta sýning
sinnar tegundar á Norðurlöndum og
er hún haldin árlega. Þar eru sýnd
húsgögn fyrir heimili og skrifstofur
auk sérstaks svæðis þar sem ungir
hönnuðir kynna hugmyndir sínar.
Fjórir íslenskir húsgagnahönnuðir
sýndu hönnun sína í Kaupmanna-
höfn nýverið.
Íslenskir
húsgagna-
hönnuðir
sýna erlendis
TAP samstæðu Opinna kerfa Group hf., OKG, á
fyrsta fjórðungi þessa árs, nam 39 milljónum króna,
samanborið við um 8 milljóna króna hagnað árið áð-
ur. Niðurfærsla vegna hlutabréfaeignar er nú 43
milljónir króna en var á sama tímabili í fyrra 53
milljónir króna, einkum vegna Columbus IT Partn-
er A/S.
Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá félaginu.
Samstæða Opin Kerfi Group hf. samanstendur af
móðurfélaginu, Opin kerfi ehf., Opin Kerfi Sweden
AB (eignarhaldsfélag Datapoint Svenska AB), Opin
kerfi eignarhaldsfélag ehf., (Skýrr hf.), Tölvudreif-
ing hf. og Enterprise Solutions A/S.
Rekstrarhagnaður fyrir fjármagnsliði og afskrift-
ir (EBITDA) var 115 milljónir króna en var 174
milljónir króna árið áður. Rekstrartekjur samstæð-
unnar drógust saman um 7% milli tímabila og eru nú
um 2.268 milljónir króna. Veltufé frá rekstri fyrir
tímabilið er 81 milljón króna en var á sama tímabili í
fyrra 108 milljónir króna. Í umfjöllun um uppgjörið í
Morgunpunktum Kaupþings segir að uppgjörið sé
slakt. Þar segir að lækkun EBITDA framlegðar úr
7,2% niður í 5,1% verði að teljast mikil vonbrigði og
einnig segir varðandi niðurfærslu hlutabréfaeignar
félagsins að slíkt sé orðið nokkuð fastur liður í upp-
gjörum Opinna kerfa.
„Á heildina litið er uppgjör félagsins slakt og und-
ir væntingum Greiningardeildar. Umtalsverður
tekjusamdráttur er á Íslandi og í Svíþjóð og lækk-
andi EBITDA framlegð er nokkuð áhyggjuefni.
Rekstur Skýrr virðist á hinn bóginn ganga ágæt-
lega. Síðasta viðskiptagengi með hlutabréf Opinna
kerfa Group var 20,3. Að mati Greiningardeildar
hefur gengi á bréfum félagsins endurspeglað vænt-
ingar um sókn félagsins inn á norrænan upplýsinga-
tæknimarkað. Félagið keypti nýverið Virtus í Sví-
þjóð og tvö smærri fyrirtæki í Danmörku og virðast
þau kaup hafa verið vel heppnuð. Ljóst er hins vegar
að félagið þarf að bæta afkomuna. Greiningardeild
mun að öllum líkindum lækka afkomuspá félagsins
fyrir yfirstandandi ár á næstunni.“
Uppfært verðmat
Greiningardeild Íslandsbanka hefur uppfært
verðmat sitt á Opnum kerfum í tilefni kaupanna á
Virtus AB, og birt er sérstakt verðmat á Virtus AB
á heimasíðu bankans.
Greiningardeildin metur Opin kerfi á 22,1 en í
gær var gengi félagsins um 20 í Kauphöll Íslands.
Síðasta verðmatsgengi greiningardeildarinnar var
21,3 að því er fram kemur á heimasíðunni, og mælir
deildin með kaupum á bréfum félagsins.
„Niðurstaða verðmats á Virtus er 1.097 milljónir
króna. Að teknu tilliti til skuldsetningar Opinna
kerfa vegna kaupanna er verðmat félagsins með
Virtus 5.919 milljónir króna,“ segir í frétt á heima-
síðu Íslandsbanka.
Opin kerfi tapa 39 millj-
ónum á fyrsta fjórðungi
SKRIFAÐ hefur verið undir
samninga hjá Lánasýslu ríkisins í
tengslum við útgáfu ríkis-
skuldabréfa og viðskiptavakt á
eftirmarkaði.
Samkvæmt frétt frá Kauphöll
Íslands er markmiðið með samn-
ingunum að efla verðmyndun á
eftirmarkaði og styrkja aðgang
ríkissjóðs að lánsfé.
Í tilkynningunni segir að frá 1.
júní 2003 hafi sex aðilar heimild
til að kalla sig „aðalmiðlara með
ríkisskuldabréf“, Búnaðarbanki
Íslands, Íslandsbanki, Kaupþing
banki, Landsbanki Íslands, Spari-
sjóðabanki Íslands og Sparisjóður
Reykjavíkur og nágrennis.
Samningurinn gildir frá 1. júní
2003 til 31. maí 2004. Þóknun til
allra aðalmiðlara ríkisskulda-
bréfa á samningstímanum verður
112 m.kr. og skiptist hún á aðal-
miðlarana 6 í hlutfalli við mark-
aðshlutdeild þeirra á frum- og
eftirmarkaði ríkisskuldabréfa.
Vakt með
ríkisvíxla
Sömuleiðis hefur verið skrifað
undir samninga hjá Lánasýslu
ríkisins í tengslum við útgáfu á 6
ríkisvíxlaflokkum og viðskipta-
vakt þeirra á eftirmarkaði en
markmið þeirra er sömuleiðis að
efla verðmyndun á eftirmarkaði
og styrkja aðgang ríkissjóðs að
lánsfé. Frá 1. júlí 2003 hafa þrír
aðilar heimild til að kalla sig „að-
almiðlara með ríkisvíxla“, Ís-
landsbanki, Landsbanki Íslands
og Sparisjóðabanki Íslands.
Samningur þessi tekur gildi 1.
júlí og gildir fyrir næstu sex rík-
isvíxlaútboð og viðskiptavakt á
þessum sex flokkum frá útgáfu-
degi til lokagjalddaga þeirra.
Þóknun til allra aðalmiðlara rík-
isvíxla á samningstímanum verð-
ur 55 milljónir króna og skiptist
hún á aðalmiðlarana þrjá í hlut-
falli við markaðshlutdeild þeirra
á frum- og eftirmarkaði ríkis-
víxla.
Aðgangur að
lánsfé styrktur
Morgunblaðið/Sverrir