Morgunblaðið - 20.05.2003, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. MAÍ 2003 13
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
VERÐ þess 38,84% hlutar í Baugi
Group, sem Mundur ehf. hefur til-
kynnt um áfom um að gera tilboð í,
er um 10,1 milljarður króna.
Mundur ehf., er í eigu Fjárfest-
ingafélagsins Gaums og tengdra að-
ila, Kaupþings banka, Eignarhalds-
félagsins Vors, Eignarhaldsfélags-
ins ISP og Ingibjargar Pálma-
dóttur. Félagið hefur eignast
61,16% hlutafjár í Baugi Group og
hefur tilkynnt um áform um að
gera öðrum hluthöfum tilboð í hluti
þeirra á genginu 10,85.
Aðalfundi
frestað
Aðalfundi Baugs Group sem
halda átti í dag hefur verið frestað.
Í tilkynningu frá Hreini Loftssyni,
stjórnarformanni félagsins, segir að
fundinum hafi verið frestað vegna
tilkynningar um væntanlegt yfir-
tökutilboð nokkurra aðila á hlutafé
félagsins.
Jafnframt kemur fram að aðal-
fundurinn verði haldinn fyrir lok
júní samkvæmt samþykktum fé-
lagsins.
Hreinn Loftsson sagði í samtali
við Morgunblaðið að ætlunin væri
að senda yfirtökutilboðið út í þess-
ari viku. Yfirtökuferlið taki fjórar
vikur og að því loknu verði aðal-
fundurinn haldinn.
Það muni svo koma í hlut nýrrar
stjórnar að óska eftir afskráningu
félagsins.
Tíu millj-
arðar fyrir
minnihluta
í Baugi
FARÞEGAR í millilandaflugi
Icelandair voru um 8,8% færri í
apríl á þessu ári en í sama mán-
uði í fyrra. Farþegum fækkaði
yfir Norður Atlantshaf en fjölg-
aði hins vegar til og frá Íslandi.
Í tilkynningu frá Flugleiðum
segir að fækkun farþega Ice-
landair sé eingöngu á Norður-
Atlantshafsmarkaðnum, en þar
hafi farþegum félagsins fækkað
um liðlega 26%. Segir að minni
eftirspurn megi meðal annars
rekja til afleiðinga Íraksstríðsins
og ótta við bráðalungnabólgu-
faraldur. Farþegum til og frá Ís-
landi fjölgaði hins vegar í apríl
um 4,5% frá fyrra ári. Sætafram-
boð Icelandair í apríl var 4,7%
minna en í sama mánuði 2002 og
sætanýting versnaði því um
4,8%.
Á fyrstu fjórum mánuðum árs-
ins fækkaði farþegum Icelandair
um rúm 10%. Það er eingöngu
rakið til tæplega 30% fækkunar
Norður-Atlantshafsfarþega. Far-
þegum til og frá Íslandi fjölgaði
um 3,9% fyrstu þrjá mánuði árs-
ins. Sætanýting fyrstu þrjá mán-
uði ársins versnaði um 6%.
Hlutfall farþega Icelandair,
sem ferðast með félaginu á leið-
um til og frá Íslandi, var um 67%
á fyrstu fjórum mánuðum þessa
árs en um 58% á sama tímabili
2002.
Fjölgun farþega með
Flugfélagi Íslands
Farþegar sem ferðuðust með
Flugfélagi Íslands voru um 3,4%
fleiri í apríl á þessu ári en í sama
mánuði í fyrra. Hefur þeim fjölg-
að um tæp 7% það sem af er ári.
Sætanýting félagsins hefur
sömuleiðis batnað. Farþegar
Flugfélags Íslands fyrstu fjóra
mánuði ársins voru tæplega 82
þúsund, en voru liðlega 76 þús-
und á sama tímabili í fyrra.
Í apríl 2003 fluttu Flugleiðir
Frakt 2.362 tonn, sem er 6,7%
aukning frá apríl í fyrra. Flutn-
ingar félagsins fyrstu fjóra mán-
uði ársins voru um 8.939 tonn,
sem er 4,4% minna en á sama
tímabili í fyrra.
Framleiðsla og nýting hjá
dótturfélögum Flugleiða
Farþegum í
millilanda-
flugi fækkar