Morgunblaðið - 20.05.2003, Page 19

Morgunblaðið - 20.05.2003, Page 19
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. MAÍ 2003 19 ÞAÐ varð uppi fótur og fit í Smára- skóla í Kópavogi á dögunum þegar 7. bekkur R var kallaður á sal. Þar var hverjum og einum nemenda af- hent umslag með skjali í og spenntir foreldrar þeirra fylgdust með á meðan umslögin voru opnuð. Eftir að hafa lesið sig í gegn um þó nokk- urn texta á skjölunum rann upp ljós fyrir krökkunum – þau voru á leið til Kaupmannahafnar í helgarferð með bekkjarsystkinum sínum. Ferðin er verðlaun í keppni sem Tóbaksvarnarnefnd efndi til meðal 7. og 8. bekkinga á landinu en inntak hennar var fræðsla um skaðsemi reykinga. Að sögn Önnu Lóu Ólafs- dóttur, kennara sigurbekkjarins, var keppnin tvískipt. Annars vegar skrifaði hópurinn undir skjal þar sem fram kom að hann væri reyk- laus og hins vegar þurfti hópurinn að útbúa einhvers konar efni sem tengdist forvörnum. „Við bjuggum til söngleik þar sem við sömdum íslenska texta við fjögur erlend lög sem við höfðum útvegað okkur undirspil að,“ segir hún. „Söngleikurinn fjallar góðu klíkuna Englana sem á í kasti við vondu klík- una Strompana en hún er að reyna að fá einn úr góðu klíkunni til að reykja. Góða klíkan nær honum hins vegar aftur á sitt band þannig að hið góða vinnur að lokum.“ Verkið var tekið upp á myndband og geisladisk og sent í keppnina auk handrits og plakats sem krakkarnir útbjuggu einnig. Þetta reyndist svo sigur- stranglegasta verkefnið á landinu þegar upp var staðið. Ætla að versla á Strikinu Verðlaunin í keppninni eru helg- arferð fyrir allan bekkinn til Kaup- mannahafnar en lagt verður upp 30. maí næstkomandi. Anna Lóa segir krakkana að vonum ákaflega spennta fyrir ferðinni enda margir þeirra aldrei hafa farið til útlanda fyrr. „Þetta er mikil gleði og mikið ævintýri fyrir tólf ára krakka að vinna svona ferð til útlanda með öll- um bekknum sínum,“ segir hún og upplýsir að búið sé að skipuleggja ferð í tívolí og á Dyrehavsbakken þessa helgi. „Svo ætlum við líka að leyfa þeim að labba Strikið því þó þau séu ekki nema tólf, þrettán ára þá spurðu þau strax hvort þau fengju að versla. Þannig leggjum við líka áherslu á að þetta verði þeirra ferð.“ Hún segir keppnina og niðurstöð- una hafa gert ótrúlega mikið fyrir bekkinn enda séu allir krakkarnir staðráðnir í að halda sig frá tóbak- inu í framtíðinni. „Ég held að það sé toppurinn á mínu starfi að sjá út- komuna úr þessu,“ segir hún. Reyklaus á leið til Kaupmannahafnar 7. R klár í utanlandsferðina: Bekkjarkennarinn Anna Lóa stendur til vinstri við krakkaskarann en lengst til hægri standa Elín Heiðberg Lýðsdóttir aðstoðarskólastjóri og Valgerður Snæland Jónsdóttir skólastjóri. Morgunblaðið/Halldór Kolbeins Það var ósvikin gleði í andlitum krakkanna þegar þeir gerðu sér grein fyr- ir að þeir væru á leið til Kaupmannahafnar með félögum sínum. Kópavogur REKSTRARGJÖLD Garða- bæjar á síðasta ári fóru 116 milljónir króna fram úr áætlun en á móti hækkuðu skattekjur um 73 milljónir króna. Þetta er meðal þess sem kemur fram í ársreikningi bæjarins sem sam- þykktur var á fimmtudag. Segir í frétt frá Garðabæ að stærstu skýringuna á auknum rekstrargjöldum megi finna í nýjum reglum um reikningaskil sveitarfélaga en vegna þeirra sé hluti þess kostnaðar, sem áætl- aður var sem fjárfesting, færður sem rekstrarkostnaður í árs- reikningum. Þá hafi lífeyris- skuldbindingar bæjarins hækk- að um 20 milljónir. Alls námu heildarrekstrartekjur bæjarins 2.627 milljónum króna og þar af voru skatttekjur 2.193 milljónir. Heildarrekstrargjöld voru 2.313 milljónir. Stærsti útgjaldaliður- inn varlaunakostnaður sem nam 1.355 milljónum. Er rekstrar- niðurstaða ársreikningsins já- kvæð um 112 milljónir. Kemur fram í fréttinni að flestar stofnanir bæjarins hafi haldið sig innan fjárhagsramm- ans á árinu. Þá hafi skuldir á hvern íbúa bæjarins ekki aukist á milli ára. Ársreikningar sam- þykktir í bæjarstjórn Niðurstaða rekstrar já- kvæð um 112 milljónir Garðabær GERT er ráð fyrir að borgarráð muni fjalla um nýtt deiliskipulag fyrir reit sem afmarkast af Stakkahlíð, Boga- hlíð og Hamrahlíð en skipulags- og bygginganefnd Reykjavíkur sam- þykkti á síðasta fundi sínum að aug- lýsa skipulagið. Reiturinn hefur verið umdeildur vegna fyrirhugaðrar bygg- ingar fjölbýlishúss við Stakkahlíð 17 en úrskurðarnefnd skipulags- og byggingamála hefur í tvígang úr- skurðað að stöðva skyldi fram- kvæmdir vegna hússins. Eins og Morgunblaðið hefur greint frá voru framkvæmdir við niðurrif eldra húss á lóðinni stöðvaðar í fyrra sinnið á grundvelli þess að bygginga- leyfi fyrir fjölbýlishúsinu var veitt áð- ur en breyting á aðalskipulagi um- rædds svæðis tók gildi. Brugðust byggingayfirvöld við með því að aft- urkalla leyfið en veita nýtt leyfi þegar í stað enda hafði breytingin á aðal- skipulaginu þá tekið gildi. Íbúar í grennd við húsið kærðu þá veitingu hins nýja byggingaleyfis til úrskurðarnefndarinnar sem stöðvaði framkvæmdir á ný á meðan hin nýja kæra væri til meðferðar hjá henni. Ekki er búið að úrskurða í því máli. Nú er það hins vegar nýtt deili- skipulag svæðisins sem er til umfjöll- unar hjá borgaryfirvöldum. Að sögn Helgu Bragadóttur, skipulagsfulltrúa í Reykjavík, er ekki til gilt deiliskipu- lag fyrir reitinn í heild sinni. Þar sem fleira hangi á spýtunni en fjölbýlis- húsið að Stakkahlíð 17 hafi þótt rétt að vinna deiliskipulag fyr- ir götureitinn í heild sinni. Þannig standi til að byggja tveggja deilda leikskóla við Stakkahlíð 19 auk þess sem bílastæð- um hjá Blindrafélaginu syðst á reitnum verður fjölgað. Jákvæðar undirtektir við leikskóla Deiliskipulagið hefur verið kynnt hagsmunaað- ilum á svæðinu og að sögn Helgu voru athugasemdir sem bárust fyrst og fremst ítrekanir á fyrri athugasemdum vegna nýbygg- ingarinnar að Stakkahlíð 17. Að auki hafi borist athugasemd varðandi aukna umferð við nýja leikskólann. „Verkfræðistofa hefur gefið það álit sitt að þetta séu ekki teljandi áhrif auk þess sem við höfum fengið mjög jákvæðar undirtektir frá fólki með að fá leikskóla þarna,“ segir Helga. Umræddur leikskóli verður stað- settur þar sem núverandi gæsluvöllur er en verið er að leggja hann niður að sögn Helgu. Sem fyrr segir verður hann tveggja deilda og er áformað að þar verði rými fyrir u.þ.b. 40 börn. Við afgreiðslu skipulagsins hjá skipulags- og bygginganefnd var til- laga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins um að fresta skipulaginu þar til úrskurð- að hefði verið í kærumálinu að Stakkahlíð 17 felld. Segir í bókun þeirra að það veki furðu að meirihlut- inn ákveði að ganga frá deiliskipulagi á svæðinu á sama tíma og niðurstaða þess máls liggur ekki fyrir. Bókuðu fulltrúar R-lista á móti að þar sem ekki hefðu komið fram nein- ar nýjar athugasemdir vegna upp- byggingar á svæðinu hefði verið eðli- legt framhald að auglýsa deiliskipu- lag reitsins. Hlíðar Fyrirhugað er að byggja tveggja deilda leik- skóla á þessum stað við Stakkahlíð þar sem gæsluvöllur hefur verið starfræktur hingað til. Morgunblaðið/Arnaldur Samþykkt að auglýsa nýtt deili- skipulag reits við Stakkahlíð FJÓRIR aðilar í Garðabæ fengu á miðvikudag afhenta afreksíþrótta- styrki frá Garðabæ en styrkveitingin er í samræmi við nýja afreksstefnu Íþrótta- og tómstundaráðs bæjarins sem samþykkt var í mars sl. Þeir sem hlutu styrkina voru Ottó Sigurðsson kylfingur úr GKG, sem hlaut 150.000 króna styrk vegna góðra afreka og sem hvatningu til frekari framfara að því er segir í frétt frá Garðabæ. Sindri Pálsson, skíðamaður úr Breiðabliki, hlaut 200.000 króna styrk til að standa undir kostnaði við undirbúning þess að vinna sér rétt til að taka þátt í Ólympíuleikunum í Tórínó árið 2006. Logi Laxdal hestaíþróttamaður hlaut 100.000 krónur í styrk fyrir tit- ilinn Íþróttamaður Garðabæjar árið 2002 og sem hvatningu til frekari framfara. Loks fékk Blakdeild Stjörnunnar 400.000 krónur í styrk sem viður- kenningu fyrir frábæran árangur en liðið vann til þriggja titla á sl. keppn- istímabili. Á myndinni má sjá styrkþega og fulltrúa bæjarins við afhendingu styrkjanna. Morgunblaðið/Árni Torfason Styrkir úr afreksmannasjóði íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar. Hlutu íþróttastyrki bæjarins Garðabær

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.